Nú er kallað eftir stríði við Íran ...

Þrír bandarískir hermenn féllu og 40 særðust í drónaárás á herstöð Turn 22; Tower 22 sem sögð er á landamærum Jórdaníu og Sýrlands. Árásin var á sunnudag, 28. janúar. Bandaríska varnarmálaráðuneytið segir að hermennirnir hafi verið í Jórdaínu vegna Aðgerða til Lausna; Operation Inherent Resolve í svokalllaðri baráttu við ISIS sem Obama-stjórnin kom á laggirnar fyrir um áratug. Þrjú þúsund bandarískir hermenn eru sagðir í Jórdaníu. Bandaríkjamenn eru með ólöglega herstöð á olíuslóðum í norð-austur Sýrlandi, þrátt fyrir að Donald Trump forseti hafi fyrirskipað alla hermenn frá Sýrlandi árið 2019, tilskipun sem Pentagon virti að vettugi. N-Austur Sýrland er hernumið og landið arðrænt með því að olíu er dælt upp, send í olíubílalestum til Írak og þýfið selt til Evrópu svo sem ég hef áður upplýst; sturlað sjónarspil.

 

BIDEN HEITIR HEFNDUM

Biden á kosningafundi í S-Karólínu heitir hefnda: „Við munum bregðast við,“ sagði forsetinn. Að sögn Reuters, kveður Biden-stjórnin öfgahópa í Sýrlandi og Írak, sem studdir eru af Íran, vera að baki árásinni. „Velkist ekki í vafa, við munum láta þá, sem að verki voru, gjalda fyrir ódæðið þegar tími er réttur,“ sagði talsmaður Pentagon. Íran hefur neitað aðild að árásinni. „Það eru átök milli bandarískra hersveita og andspyrnuhópa á svæðinu,“ sagði Teheran. Talsmaður Hamas segir að árásin á Turn 22 sé bein afleiðing Gaza. Það er stríð í Mið-Austurlöndum.

 

NEO-CONS KREFJAST ÁRÁSA Á ÍRAN

Raunar endurtekur sagan sig. Hvar sem bandarískar hersveitir eru staðsettar í Mið-Austurlöndum, myndast andspyrnusveitir sem hefja árásir. Herstöðin Turn 22 hlaut að vera skotmark. Þegar ráðist er á ameríska hermenn krefjast stríðsæsingamenn; neo-cons hefnda. Nú skammast þeir út í vanmátt Biden. Leiðtogi repúblikana í þinginu, hinn seníli Mitch McConnell sem reglulega frýs frammi fyrir fréttamönnum, kveður aðgerðaleysi Biden styrkja óvini Ameríku. „Það átti bregðast við árásinni áður en hugrakkir Bandaríkjamenn létust,“ sagði McConnell. Tom Cotton þingmaður frá Texas: „Gereyðandi aðgerðir eru eina svarið gegn írönskum vígasveitum ... Öðrum kosti er Joe Biden heigull,“ sagði Cotton. Lindsey Graham frá Gerogíu krefst árása á Íran; to strike targets in Iran. Graham segir árásir ekki bara til að hefna, heldur koma í veg fyrir árásir. Ég hef sagt ykkur frá för Lindsey Graham til Mariepol í Úkraínu 2016 þegar hann hét hermönnum Azov-nazista fé og vopnum til árása á rússnesku mælandi borgara Donbass. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra gerir vel að hvetja Biden-stjórnina að hefja friðarferli líkt og var á árunum 2017-2021 þegar friður ríkti á Gaza, Arabaríki hófu að taka  upp stjórnmálasamband við Ísrael og hefja brottflutning bandarískra hermanna frá Mið-Austurlöndum líkt og áformað var en Pentagon stöðvaði. 


Með Satan á brjósti ...

Hvað finnst fólki um að ungmenni spili með Satan á brjósti? ManUtd eitt stærsta félag heims fór til Newport í Wales í FA Cup og vann 4-2 sigur eftir að jafnt hafði verið 2-2.
 
Hvaða merkingu hefur þessi gjörningur? Ungmenni víða um heim fylgdist með leiknum. Hver er tilgangur þessa gjörnings ... Spyrjið ...

Af hverju ofsóknir í enska boltanum ...

Þrír klúbbar sem eru að stækka eða boðað stækkun leikvanga sinna; ManCity, Everton og Nottingham Forest sæta allir ásökunum skuggastjórnar EPL um að þeir brjóti reglur EPL, financial fair play og/eða megi ekki eyða um efni fram. Klúbbar með glæsta sögu fyrir stofnun EPL 1992. ManCity nú í Eastlands, Everton á bökkum Mersey og Forest á bökkum Trent.  Wall Street hefur náð undirtökum í enska boltanum; English Premier League. Agentar WS hafa tekið yfir tíu klúbba. Eigandi Chelsea var látinn gjalda þjóðernis síns. Hann hafði gert Chelsea að einu besta félagi Englands. Klúbburinn var afhentur agentum Wall Street sem Divide & Conquer. Hvað finnst mönnum um eignaupptöku á grundvelli þjóðernis? Eftir að enski boltinn varð vinsælasta sófasport veraldar mætti WS til leiks á Englandi. skuggastjórn EPL tók yfir. Eftir 20 ára valdaferil Glazera er Old Trafford hriplekur; falling down, falling down. Er rangt gefið? Af hverju Rauður Ofsi? Af hverju Svartur Ofsi í Ameríku?

 

TITLAR

Everton Englandsmeistarar níu sinnum, FA Cup fimm sinnum, Evrópumeistarar bikarhafa einu sinni. Nottingham Forset Englandsmeistarar einu sinni, FA Cup tvisvar, Evrópumeistarar tvisvar. League Cup fjórum sinnum, UEFA Super-Cup einu sinni.  ManCity Englandsmeistarar níu sinnum, FA Cup sjö sinnum, League Cup átta sinnum, Evrópumeistarar einu sinni, Evrópumeistarar bikarhafa einu sinni, UEFA SuperCup einu sinni og FIFA heimsmeistarar einu sinni.


Eru Bandaríkin að klofna ... Hörð deila Texas & Washington um ólöglega innflytjendur ...

Eru Bandaríkin að klofna? Upp er komin deila milli næst fjölmennasta fylkis Bandaríkjanna; Texas og Biden stjórnarinnar í Washington um yfirráð yfir landamærum fylkisins. Fylkisstjóri Texas, Greg Abbot lýsti því yfir á miðvikudag 24. janúar að réttur fylkisins til sjálfsvarnar „...gangi framar öllum alríkislögum sem gangi þvert á öryggi fylkisins ... Höfundar stjórnarskrárinnar sáu fyrir að fylkin gætu ekki verið upp á náð forseta sem færi fram með lögleysu og gerði ekkert til þess að stöðva glæpaklíkur sem smygluðu milljónum ólöglegra innflytjenda inn í landið,“ sagði fylkisstjórinn. Harðar deilur eru milli Biden forseta og Abbott fylkisstjóra sem hefur lýst því yfir að Washington sé ekki að verja fylkið fyrir innrás í landið, þvert á móti brjóti lög. Texas hafi stjórnarskrár varinn rétt til varnar utanaðkomandi ógn sem taumlaus ólöglegur innnflutningur sé og gaddavír var lagður á landamærunum.    

ÚRSKURÐUR HÆSTARÉTTAR

Á mánudag úrskurðaði Hæstiréttur Bandaríkjanna að alríkisstjórninni sé heimilt að fjarlægja gaddavírinn á landamærum Texas og Mexíkó við Ríó Grande-fljót. Alríkisverðir hafa fjarlægt gaddavír sem fylkisstjórnin lét koma upp. Á sama tíma halda texas-þjóðvarðliðar áfram að leggja gaddvír til þess að hamla ólöglegum innflytjendum inngöngu í fylkið. Þjóðvarðlið Texas er undir fylkisstjórninni. Umræða er um að Biden kunni að setja texas-liða undir alríkisstjórnina. Biden-stjórnin hélt því fram fyrir Hæstarétti að heimild til þess að fjarlægja gaddavír væri svo landamæraverðir geti sinnt störfum af ýmsum ástæðum; mannúðar- og heilbrigðisástæðum. Staðan er grafalvarleg og  líklegt að fleiri fylki muni krefjast úrsagnar. Flórída og Oklahoma hafa lýst stuðningi við Texas um að fylkin hafi heimild til þess verja eigin landamæri frá utanaðkomandi ógn; border invasion.

LÖGSÓKN TEXAS 2020 & TEXIT = BREXIT

Árið 2020 höfðaði Texas mál fyrir Hæstarétti gegn fimm fylkjum þar sem opinber úrslit kosninganna 2020 milli Joe Biden og Donald Trump voru véfengd og kosningalög verið brotin. Texas-fylki hefði lögvarða hagsmuni af því að fylkin fari að lögum og virði kosningalög. Hæstiréttur neitaði að taka málið til meðferðar. Ég hef margoft sagt frá valdaráninu; Coup d‘Etat í Washington 2020 þegar senílt gamalmenni kom upp úr kjallara og tók við embætti án þess að halda marktækan kosningafund. Í kjölfar synjunar Hæstaréttar 2020 magnaðist umræða um að Texas segi sig úr Bandaríkjum Ameríku; Texit í takt við slagorðið Brexit. Þáverandi fylkisstjóri Alan West gaf til kynna að Texas kunni að segja sig úr Bandaríkjum Ameríku. Repúblikanaflokkur fylkisins hvatti til fylkisatkvæðagreiðslu um úrsögn 2023. Í Ameríku er verið að skipta um þjóð líkt og á Íslandi nema hér á landi er hlutfallslegt innstreymi hælisleitenda miklu mun meira undanfarin ár; sex þúsund í Ameríku samanborið við fimmtán þúsund á Íslandi á þremur árum. Texas er næstum sjöfalt Ísland með yfir 30 milljón íbúa.


Kynþáttafordómar í garð hvítra ...

Guðlaus glóbalizmi er reistur á hóphyggju; ein alheimsstjórn, afnám þjóðríkja, kristni útskúfuð, skipt um þjóð í landinu á fáum áratugum. Íslensk þjóð skal afmáð; íslensk tunga og menning, fullveldi, frelsi og jafnrétti. Þessi stefna væri í lagi ef þjóðin væri spurð og væri sammála. Svo er ekki. Þeir sem efast og andæfa opnun landamæra eru uppnefndir popúlistar og rasistar. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í vikunni „...hörmung að sjá tjaldbúðir við Austurvöll á hinum helga stað milli stytt­unn­ar af Jóni Sig­urðssyni og Alþing­is og erlendum þjóðfána sé flaggað.“ Hóphyggjufólk stimplaði Bjarna umsvifalaust popúlista og rasista. Í silfri Egils hjó Sigríður Hagalín í þennan knérunn, fákunnandi, stamandi, fálmandi.

 

15.000 HÆLISLEITENDUR Á ÞREMUR ÁRUM ...

Árin 2022 og 2023 bárust hvort ár 4.000-5.000 umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi, samtals hátt í 10 þúsund manns á framfærslu skattgreiðenda. Hvað verður 2024, 15 þúsund á þremur árum? Kostnaður um 15 milljarðar á ári fer ört hækkandi. Vinnumálastofnun leigir hótel og íbúðir fyrir um 2.800 hælisleitendur. Finna þarf um 1.500 búsetuúrræði. Sveitarfélög ráða ekki við fjölgun. Þingið ræðir neyðarlög svo sveitarfélög geti breytt iðnaðarhúsnæði í íbúðir. Á þetta bendir formaður XD. Á visi.is voru 73% þátttakenda í skoðanakönnun sammála ráðherranum. Bjarni Ben vill breyta stefnu til samræmis við Evrópu. Grindavíkingar eru settir aftur fyrir gæluverkefni hins villta vinstris. Í silfri Egils uppefndi pírínan Þórhildur Sunna Ævarsdóttir formann Sjálfstæðisflokksins popúlista með hræðsluáróður, pírínan full andúðar og fordóma, afvegaleiðir og blekkir. Ólafur Þ. Harðarson fyrrum prófessor talaði um harðskeyttari stefnu Bjarna Ben, en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokki kvað yfirlýsingu BjarnaBen „hugsanlega merkilegustu í stjórnmálasögu þessara aldar.“ Svo virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn sé að stíga á bremsur hömlulauss innstreymi hælisleitenda. Þetta fæst ekki rætt málefnalega á RÚV sem tengir málflutning Bjarna við popúlisma og rasisma. Hóphyggjufólk stimplar, útskúfar og fordæmir.

 

GUÐLAUSIR GLÓBALISTAR SNÚIST GEGN EIGIN KYNÞÆTTI

Guðlausir glóbalistar eru að stofni til villta vinstrið; píratar, samfó, viðreisn, vg sem XD & XB hafa beygt sig undir. Þau vilja opin landamæri sem eru sem íbúðir opnar ókunnugum breytast í hreysi, Austurvöllur sem hreysi undir útlendum fána. Yfirvöld vita ekki hverjir koma. Flokkarnir vilja leggja Ísland og auðlindir undir stjórn Brussel og alheimsstjórn Sameinuðu þjóðanna í samvinnu við hina ofsaríku milljarðamæringa; wefarana í Davos. Flokkar hóphyggju grafa undan jafnrétti, einstaklingsfrelsi og fullveldi íslenskrar þjóðar. Forverar þeirra voru kommar, kratar og framsókn. Pælið í því. Kynþáttafordómar, hatur og ofsóknir birtast okkur fyrst og fremst í garð hvítra karlmanna. Þúsundir mæðra sættu árás í covid, 2.700 í fb-hóp þagðar og þaggaðar. Guðlaus hóphyggja hefur snúist gegn eigin kynþætti; hvíta kynstofninum. Spyrjið: Af hverju? Kristnir víða um heim mæta ofsóknum, 365 milljónir 2023 samkvæmt Open Doors, ráðist á þúsundir kirkna, árlega lagður eldur að um 1.300 kirkjum í Ameríku.

 

AF PRÓFESSOR & HÓPHYGGJU

Helstu vígi glóbalista eru Háskóli Íslands og RÚV sem kæfa umræðu og stimpla skoðanir popúlískar og rasískar. Þetta gerir Ólafur Þ. Harðarson, einn helsti talsmaður hóphyggju, þjóðkunnur fyrir þátttöku í kosningasjónvarpi RÚV um áratugaskeið. Á dögunum uppnefndi hann forsetaframbjóðandann Arnar Þór Jónsson popúlista. Prófessorinn með silkitunguna hikar ekki við að uppnefna. Arnar Þór sagði starfi sínu lausu við Héraðsdóm Reykjavíkur til þess að taka upp málflutning frelsis og lýðræðis; vara við ritskoðun og málfrelsi. Arnar Þór er allt annað en popúlisti en allur ferill Ólafs Þ. Harðarsonar markast af stuðningi við hóphyggju beina arfleifð kommúnisma og nazisma sem nú eru að taka fullveldi og frelsi af íslensku þjóðinni. Sagan rímar.

 

Nú veit fólk að Ólafur er vænsti maður, vorum samtíða í Kennó í den. Mér finnst hörmulegt að fólk hugi ekki að sálu sinni; anda sínum sem við komum með þegar ljósið kveikir líf. Að lokinni lífsgöngu á vit ljóss Drottins. Ekki vantar trú í hinn guðlausa, bábylju þess efnis að manneskja komi úr myrkri þar sem ekkert er. Þetta er börnum okkar kennt og Jesú frá þeim tekinn. Á 60Minutes kvaðst Bob Dylan hafa selt Satan sálu sína; You‘ve got to serve somebody. It may be the Devil or it may be the Lord.


Fjölmiðlar fjórða vald ríkisins ...

Það hefur verið sagt um fjölmiðla í lýðræðisríkjum að þeir séu fjórða valdið sem veiti þrískiptu ríkisvaldi aðhald. Svo er ekki lengur, hvorki á Íslandi né Vesturlöndum. Við lifum í samfélagi þar sem fjölmiðlar eru fjórða vald ríkisins og verið að úthýsa málfrelsi. Hver hefði trúað að þessi staða gæti komið upp? Það eru 33 ár frá því ég var með Jóni Baldvin Hannibalssyni í frelsisför hans til Eystrasaltsríkjanna í janúar 1991. Hin guðlausu Sovétríki hrundu eins og spilaborg seinni part árs 1991. Við áttuðum okkar ekki á að Rússar höfðu hrint guðlausum kommúnistum af höndum sér og snéru sér að Drottni og orthódox kristni. Vesturlönd á móti tóku upp að guðleysi og stefna nú hraðbyri að alræði þar sem ríkis- og einkamiðlar hinna ríku & voldugu sameinast um ritskoðun og kremja málfrelsi. 

OFURVALD ÞRÍEYKIS – EIN SKOÐUN

Í desember 2020 gerði ríkisstjórn Íslands fyrsta leynisamning við lyfjarisa; Big-Pharma um lítt rannsökuð bóluefni á undanþágum. Lyfjarisar með skelfilegt orðspor voru firrtir ábyrgð. „Tryggðir hafa verið samningar af Íslands hálfu við tvo bóluefnaframleiðendur og sá þriðji er í burðarliðnum. Samtals tryggja þeir bóluefni fyrir rúmlega 280.000 einstaklinga,“ tilkynnti Stjórnarráðið. Þríeykinu svokallað var afhent ofurvald yfir þjóðinni. Blaða- og fréttamenn urðu „framvarðasveit ríkislögreglustjóra“ ásamt læknum, hjúkkum, lögreglu og fleiri stéttum, samkvæmt Fjölmiðlanefnd. Fjölmiðlar urðu fjórða vald ríkisins og brugðið frá hinni gullnu reglu um þrískiptingu ríkisvalds sem fjölmiðlar veita aðhald. Ofurvald var fært í hendur þríeykis lögreglu, landlæknis og sóttvarnalæknis sem fjölmiðlar bergmála. Málfrelsi var afnumið. Ísland gat ekki lengur talist lýðræðisríki.

Bólusetningar fóru á yfirsnúning. Einkamiðlar fóru á ríkisstyrki árið 2021. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði að skapa þyrfti stemmningu fyrir bólusetningum í landinu. Ræningjarnir í Kardemommubænum voru fengnir í Höllina til þess að róa börnin meðan þau fóru undir nálina. "Mesta niðurlæging í sögu fjölmiðla," ritaði ég. Funduðu fjölmiðlar um þá ákvörðun að fjölmiðlar yrðu fjórða vald ríkisins? Af hverju var þjóðinni ekki sagt frá?

UMFRAMDAUÐI HÁTT Í ÞÚSUND MANNS?

Síðla árs 2021 tók að bera á dauðsföllum umfram árabilið 2015-2019. Frá nóvember 2021 til júlí 2022 lágu 350 Íslendingar í valnum umfram það sem vænta mátti, samanber upplýsingar Our World of Data. Forsætisráðuneytið leyndi þjóðina þessum upplýsingum því sérfræðingar töldu þetta "skot" og ekki umræðu virði. Læknirinn Guðmundur Karl Snæbjörnsson; Kalli Snær telur að í mars 2023 hafi um 500 Íslandingar verið fallnir í valinn umfram venjulegt árferði. Frá haustdögum 2023 hefur Landlæknir neitað að veita upplýsingar um umframdauða, þar sem ekki liggi fyrir hversu margir hafi verið fullbólusettir. Hvað er að vera fullbólusettur? Kalli Snær mælti með Nóbelslyfinu Ivermectin sem Lyfjastofnun uppnefndi hrossamixtúru. Lyfjastofnun kærði Kalla Snæ til lögreglu. Hann var kærður af Lyfjastofnun kallaður til yfirheyrslu og hótað sex ára fangelsi fyrir að efast um þríeykið og mæla með Ivermectin. Í Vikunni með Gísla Marteini var mikið hlegið að „hrossamixtúrunni.“  Hversu vont er það? Spyrjið.

2.700 KONUR MYNDA FB-HÓP VEGNA AUKAVERKANA

Aukaverkanir voru skelfilegar, 2.700 konur mynduðu fb-hóp einkum vegna tíðavanda. Rebekku Óskar Sváfnisdóttir sem nú er ófrjó hafði frumkvæði. „Ég heiti Rebekka. Ég stofnaði hóp eftir að ég byrjaði á blæðingum. Ég endaði á blæðingum í 53 sólarhringa mjög miklum og þungum blæðingum. Þegar hópurinn var í kring um 600 konur þá hafði ég samband við Landlækni ... þá var ákveðið að rannsaka þetta mál af Lyfjastofnun og óháðum læknum. 19. ágúst [2021] var hringt í mig af kvensjúkdómalækni sem spurði spurninga í gegn um síma. Ekkert annað, svo kom niðurstaða: orsakir blæðinga mjög líklega ekki  bólusetningar. Við værum mjög líklega stressaðar í heimsfaraldri.RÚV þegir og þaggar þessar raddir. Konur í ríkistjórn hlusta ekki, konur á Alþingi hlusta ekki. Landlæknir þegir, sömuleiðis forstýra Lyfjastofnunar, læknar í landinu þegja þunnu hljóði. Valdakonur sem nú stýra Íslandi þagga þjáningar kynsystra sinna. Mæður, sjálf vagga lífsins, hafa sætt árás. Læknar á ofurlaunum eru í raun sölumenn lyfjarisa. Þjóðin er afvegaleidd. Áreiðanlegar heimildir mínar segja að sakbitin Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sé „... í hvers manns skrifborði í ráðuneytinu“. Skapbrestir ráðherrans eru umræddir í Stjórnarráðinu. Ég legg til að Rebekku Ósk verði sæmd fálkaorðu fyrir hugrekki sitt og baráttu.

LANCET: UMFRAMDAUÐI Í BRETLANDI

Breska læknatímaritið Lancet birti í desember upplýsingar um umframdauða í Bretlandi. Árið 2022 var umframdauði á Bretlandi 7.2% eða sem nemur 44.255 manns. Fyrstu sex mánuði 2023 fjölgaði látnum í 8.6% eða sem nemur 28.024 manns umfram það sem við mátti búast miðað við fimm ára tímabil fyrir covid. Það er stórfelldur umframdauði í kjölfari covid. Spyrjið: Af hverju? Lancet hefur líka skýrt frá því að óbólusettir séu við betri heilsu en bólusettir sem glíma við alvarlega sjúkdóma. RÚV fjallar ekki um þessa alvarlegu atburði.

GRAFÍN-OXÍÐ Í BÓLUEFNUM

Það er vont en vernsar. Háskólinn í Almeríu Spáni hefur birt rannsókn um innhald mRNA bóluefna sem bent hefur verið á að eru sýklalyf. Í genabreytandi mRNA bóluefni helstu lyfjarisa, Astra Zenega, Johnson & Johnson, Moderna og Pfizer fundust í hverju hettuglasi 6 ng (nanógrömm) af RNA kjarnasýrum og 747 ng af grafen-oxíði. Með öðrum orðum er grafen-oxíðið 99.103% af innihaldsefni tilraunalyfja. Grafen-oxíð er „...heimsins þynnsta, sterkasta og mest leiðandi efni sem til er“. Grafen-oxíð er leiðari fyrir 5G sem án umræðu nær nú til þorra þjóðarinnar og þorri þjóðarinnar ber móttakarann. Sérsveitin stóð vaktina þegar bóluefnin bárust. Samkvæmt tillögu að stefnu Dr. David Martin MD, PhD gegn bandarískum stofnunum, FDA, CDC  NIAID, Pfizer, Moderna og dr. Anthony Fauci alls tíu aðilum eru bóluefnin sýklavopn eða til hvers allt þetta grafín-oxið. Pétur Yngvi Leoósson hefur unnið þrekvirki að kynna.

Fjarskiptastofa kallar 5G „fjarskiptanet iðnaðarins ... límið í fjórðu iðnbyltingunni.“ Það er aðeins hálfur sannleikur. Grafen-oxíð sem nú hefur verið sett í fólk er forsenda gervigreindar í mannfólk; Artificial Intelligence samruni manns og tölvu sem ofsaríkir wefarar Davos funda um. Grafín-oxíð leiðir 5G-bylgjur sem taka yfir líf fólks. Það er forsenda trans-húmanisma; tölvustýrðs mannkyns. Þýski vísindamaðurinn dr. Andreas Kalcker kveður grafín-oxíð hafa áhrif á hjartslátt. Hjartað slær vegna rafsegulsviðs sem framleiðir rafmagn. Hjartastopp fer sem faraldur um veröld víða; lést á heimili sínu. Fylgist með minningagreinum Mogga. Wefararnir í Davos boða sósíalisma, upptöku eigna: You‘ll own nothing, but will be happy. Klaus Schwab kveður lýðræðislegar kosningar verða minjar fortíðar; relic of the past en wefararnir funda nú í Davos og 1.500 einkaþotur standa á flugvöllum.

RÍKISMIÐLAR & EINKAMIÐLAR Í EINA SÆNG

European Broadcasting Union EBUevrópskir ríkismiðlar hafa samstarf um eina og sömu frétt á rauntíma undir forystu BBC í samvinnu við Reuters, CNN, Washington Post, New York Times og Facebook svo fáir séu nefndir. Þeir kalla þetta Trusted News Initiative. Ríkismiðlar Evrópu hafa samvinnu við fjölmiðla hinna ríku og voldugu. EBU gaf út yfirlýsingu um baráttu gegn frjálsri umræðu um vaksín gegn harmful vaccine disinformation. Forstjóri EBU segir að ekkert megi raska trú og trausti almennings á stjórnvöldum. Með þessu samstarfi hefur ritskoðun verið komið á og málfrelsi heft um öll Vesturlönd. Hver innan RÚV tók þessa ákvörðun? Hversu vont er málið?

BOGI ÁGÚSTSSON & VESTRÆN RITSKOÐUN

Bogi Ágústsson hefur verið einn helsti tengiliður við EBU. Hann hefur gegnt varaformennsku í fréttanefnd EBU og verið formaður ritstjórnarnefndar EBU; verið innsti koppur í búri. Bogi getur áreiðanlega skýrt þjóðinni frá ritstjórnarafsali RÚV og samræmdum fréttaflutningi vestrænna fjölmiðla. RÚV hefur verið þögult um umframdauða hátt í þúsund Íslendinga. RÚV hefur verið þögult um þjáningu þúsunda íslenskra kvenna og almennt alvarlega sjúkdóma þúsunda Íslendinga. RÚV hefur verið þögult um umframdauða í Bretlandi um 100 þúsund manns. RÚV hefur verið þögult um að lögregla hafi stormað skrifstofu forseta Póllands til þess að handtaka pólitíska andstæðinga Evrópusinnans Donald Tusk forsætisráðherra. Hér búa og starfa um 20 þúsund Pólverjar. Svo auðvitað, fréttamenn RÚV sakborningar í rannsókn um byrlun og símastuld; lögðu á ráð um að byrla, stela, ljúga og blekkja þegar skipstjóri var fluttur suður vart hugað líf. Formaður Blaðamannafélags Íslands, fréttakona RÚV ber að skattsvikum,  rekur framkvæmdastjóra BÍ í skjóli þess að hann var kominn á aldur, 67 ára gamall. Þetta gerist dagana sem hún fer í launalaust leyfi hjá RÚV. Þessar lýsingar eiga við  blaða- og fréttamenn; fjórðu valdastétt ríkisins í bandalagi við hina ríku & voldugu. Niðurbrot siðferðis.

Bogi hefur sagt að RÚV þjóni bara almenningi, eigi að hafa eftirlit, segi bara sannar og réttar fréttir, þjóni hvorki ESB né pólitískum öflum. Stenst þessi lýsing? Þó Bogi sé kominn á eftirlaun þá hefur hann ekki látið af störfum, er á ofurlaunum, situr enn þrátt fyrir að hafa sagt annað. Af hverju? Bogi á sæti í orðunefnd og er handhafi fálkaorðu. Hann hefur skýrt frá því að forstjóri Post-Office í Bretlandi hafi skilað orðu breska heimsveldisins; British Empire eftir að hafa ofsótt og rægt um þúsund útibústjóra lítilla pósthúsa víða um Bretland...


Smæð manns frammi fyrir náttúruöflum ...

Forsíða Morgunblaðsins í dag ... .Mynd snillingsins Árna Sæbergs vinar míns.  Þetta er stórkostlegasta forsíða sem ég man eftir & ef út í það er farið erlendra fjölmiðla líka ... Smæð manns frammi fyrir náttúruöflum. Ég hef komið að mörgum forsíðum frá tíð minni á Mogganum en þetta er einstakt. Bestu þakkir Morgunblaðið ... flott úrvinnsla. Staðfesting á ómetanlegu gildi dagblaða ... alveg sérstaklega á válegum tímum.
 

Stjórnlagakrísa í Póllandi ... lögregla stormar forsetahöllina

Djúpstæður ágreiningur er milli forseta Póllands Andrzej Duda & stjórnar hins nýja forsætisráðherra Donald Tusk sem skipaði lögreglu að ráðast inn í forsetahöllina til að handtaka tvo þingmenn sem forsetinn hafði náðað. Þingmennirnir höfðu leitað skjóls í forsetahöllinni. Þingmennirnir eru Mariuz Kaminski fyrrum innanríkisráðherra og Maciej Wasik. Þeir höfðu verið dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir að misfara með vald þegar þeir fóru fyrir aðgerðum gegn spillingu; Anti Corruption Bureau þáverandi hægri stjórnar. Forsetinn hafði náðað þá.
Tusk er fyrrverandi forseti Evrópuráðsins. Duda heldur því fram að hann sem æðsti maður ríkisvaldsins hafi haft fulla heimild til þess að náða mennina en Hæstiréttur hafði á síðastliðnu ári lýst náðun Duda frá 2015 ógilda. Stjórnlagadómstóll og  deild Hæstaréttar; Supreme Court Chamber höfðu staðfest náðun, að sögn BBC.
 
FORSETINN MIÐUR SÍN
Duda ávarpaði þjóðina og kvaðst miður sín um atburðarás og lýsti þeim sem heiðarlegum. Tvímenningarnir höfðu verið kjörnir á þing sl. haust en meirihlutinn neitað að viðurkenna setu þeirra. Forsetinn kveður þá löglega kjörna þingmenn því hann hafi sem æðsti maður framkvæmdavaldsins haft fulla heimild til þess að náða mennina.
Á mánudagskvöldið fyrirskipaði dómstóll handtöku mannanna. Strax á þriðjudagsmorgun bauð Duda forseti mönnunum að koma í forsetahöllina til þess að sverja eið að stjórnarskrá Póllands sem þingmenn. Kaminski sagði þá að ef þeir yrðu handteknir þá væru þeir pólitískir fangar. "Alvarlega kreppa ríkir í Póllandi. Verið er að koma á grimmu alræði," sagði Kaminski. Að loknu ávarpinu fóru þingmennirnir inn í forsetahöllina.
 
TUSK ÁSAKAR DUDA
Skömmu síðar hélt Tusk blaðamannafund og kvað stöðuna "ótrúlega". Hann kvað Duda vera hjálpa mönnunum að komast undan réttvísi og virða yrði handtökuskipun dómstólsins. "Þarna er verið að notfæra embætti í skjóli þess að valdi verði ekki beitt." Daginn eftir, á miðvikudag ruddust lögreglumenn inn í forsetahöllina. Kaminski hefur lýst því yfir að hann hafi hafið hungurverkfall.
BBC kveður nokkur hundruð stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar hafa mótmælt. Myndir hafa í vikunni birst af fjöldamótmælum á götum. Meðfylgjandi er frétt indversku fréttastofunnar First Post. 
 

Svívirðilegt réttarhneyksli í Bretlandi ...

Undanfarna daga hefur helsta umfjöllunarefni breskra fjölmiðla varðað Post Office; Póstinn sem ásakaði hundruð útibússtjóra lítilla pósthúsa um fjárdrátt, saklaust fólk var dæmt fyrir þjófnað. Fjögurra þátta leikin sjónvarpssería ITV náði að fanga athygli bresku þjóðinnar og hneyksla; Mr. Bates vs The Post Office. Fyrsti þáttur var sýndur 1. janúar 2024 og var sem sprengju væri varpað á breskt þjóðlíf. Aðalsöguhetjan Alan Bates; sub-postmaster rak pósthús í þorpi í Wales. Mr. Bates reyndi um árabil að vekja athygli á göllum á tölvukerfum sem leiddu til ásakana, ofsókna og sakfellinga vítt og breitt um England. Alls voru 983 ákærðir og um 700 fundir sekir á árunum 1999-2015. Efasemdir um tölvukerfi komu fram 2009. Þrátt fyrir það hélt málarekstur áfram og fólk gert ærulaust. Alan Bates leiddi hópmálsókn 555 útibússtjóra og vann. Nú eru háværar raddir um að mr. Bates verði sæmdur orðu breska heimsveldisins, British Empire.

OFUREFLI OPINBERRAR STOFNUNAR

Bogi Ágústsson hefur fjallað um á RÚV. „Sýnt er hvernig venjulegt fólk þurfti að berjast gegn ofurefli opinberrar stofnunar sem neitaði að viðurkenna sök og hlusta á vísbendingar um stórgallað bókhaldskerfi. Árangurinn var sá að líf fjölda manns var lagt í rúst,“ skrifar Bogi á vef RÚV undir fyrirsögninni: Stórkostlegt réttarfarshneyksli í Bretlandi. Póstútibúin voru í úthverfum, smærri borgum og þorpum, hverfis- og sveitasjoppum. Ádeiluritið Private Eye gerði úttekt án þess þó að meginmiðlar tæku málið upp. Dómstólar sakfelldu þrátt fyrir vísbendingar um sakleysi. Í haust var tilkynnt um sök Póstsins og greiðslu skaðabóta en aðeins 30 mál hafa verið afgreidd.

SKÚRKUR MÁLSINS

Fólk varð gjaldþrota, ærulaust, makar misstu vinnu, börn voru lögð í einelti og fólk stytti sér aldur. Skúrkur málsins er forstýra Póstsins 2012-2019 Paula Vennells, talin bera ábyrgð á hörkunni, rannsakendur fengu bónusa, dómstólar meðvirkir. Vennels var við starfslok 2019 sæmd orðu CBE, Commander of the Most Excellent Order of the British Empire sem hún ætlar að skila: AT LAST segir Metro. Sjá má færslu á fb með myndum.


Af hverju fóru Vesturlönd í fótspor Sovétríkjanna og tóku upp guðleysi...  

Rússneska Orthódox Kirkjan bannfærði bolsévika í febrúar 1918 og setti útaf sakramenti. Tikhon pataríaki kallaði bolsévika skrímsli og satanista. „Brjáluðu menn, takið sönsum, stöðvið brjáluð fjöldamorð. Þið eruð ekki bara grimmir, gjörðir ykkar eru satanískar. Þið brennið í helvíti og verið fordæmdir af komandi kynslóðum,” sagði patríakinn. Yfirlýsing Tikhon var andsvar við ofsóknum og morðum bolsévika og markaði upphaf andstöðu kirkjunnar gegn guðlausu ríki kommúnista. Fyrsti píslarvotturinn var prestur að nafni Ionn Kochurov leiddur fyrir aftökusveit í útjarði Sánkti Pétursborgar. Vopnaðir byltingarmenn höfðu ráðist á einn helgasta stað Rússlands, Alexander Nevsky Lavra klaustrið í Sánkti Pétursborg, drepið prestinn Petr Skipetrov handtekið Prokopiy biskup. Pétur mikli hafði látið reisa hinn helga stað 1710 til minningar um Alexander Nevsky prins sem leiddi Rússa til sigurs á Svíum og Vatikaninu árið 1242 í bardaganum á ísnum; Ledovoye poboishche. Þar er líka Nevsky dómkirkjan. Það var fyrsta árásarstríð Vesturlanda á hendur Rússum. Napóleon hörfaði frá Moskvu 1812 og Hitler tapaði orrustunni um Stalíngrad 1943 og nú beitir Biden Úkrum fyrir vestrænan stríðsvagn í proxystríði gegn Rússlandi. Nýtt ár 2024 markar enn einn vestrænan ósigur. Biden hefur hafið nýtt stríð í Mið-Austurlöndum.

 

GUÐLAUS SOVÉTRÍKI RÖNGUNNI

Tikhon patríaki greindi stöðuna rétt fyrir hundrað árum. Lenin og Stalín eru fordæmdir. Hin nýju Sovétríki voru sköpun satanista sem jafnan eiga greiða leið að guðlausum almúga. Þetta er hin eilífa barátta góðsku og illsku. Guðlaus almúgi er varnarlaus gagnvart eiturtungu Satans og verður jafnan að hjörð rekin í réttir. Daginn eftir yfirlýsingu Tikhon gáfu bolsévikar út tilskipun um aðskilnað ríkis og kirkju. Bolsévikar tóku yfir kirkjur og klaustur og færðu guðlausu ríkisvaldi. St. Pétursborg varð Leníngrad. Hið helga klaustur var gert að kartöflugeymslum og íshokkíhöll. Drottni var úthýst af guðlausu ríkisvaldi sem breyttist í óseðjandi skrímsli. Í árslok 1922 fékk hið nýja rússneska ríki nafngiftina Sovétríkin. Karl Marx sagði: „Trúarbrögð eru ópíum fólksins.“ Valdimir Lenín sagði: „Allt tengt trú, hver hugmynd um Guð, allt daður við Guð er viðurstyggileg illkynja sýking.” Bolsévikar sögðu: „Drepum borgara og böðla þeirra. Lengi lifi Rauð skelfing.“ Vladimir Pútin segir: „Rússland er ómöguleiki án kristni.

 

“ANDSOVÉSKIR“ KLERKAR

Ráðist var á kirkjur og klaustur vítt og breitt um Rússland sem nú hétu Sovétríkin. Tikhon patríaki hvatti kristna til iðrunar og bæna. Andstaða fælist í mætti trúar og bænar sem myndi stöðva geggjun og ofsóknir. Tikhon var ofsóttur og pyntuður, lést í mars 1925. Á fimm ára tímabili 1918-1923 voru 28 biskupar líflátnir, þúsundir presta, munka og tíu þúsund orthódox kristnir. Stalín lét rífa Dómkirkju Jesú Krists í Moskvu 1931. Kirkjan var reist eftir ósigur Napóleons 1812. Réttarhöldin í Moskvu hófust 1937 jafnhliða holskeflu ofsókna gegn kristnum. Síðla árs 1937 voru 31.359 klerkar handteknir, þar af voru dæmdir til dauða 81 biskup, 4.629 prestar og sjö þúsund forystumenn safnaða. Sjötíu og átta þúsund kirkjur voru í Rússlandi 1918. Við upphaf síðari heimstyrjaldar voru kirkjur innan við 400 með rúmlega fimm þúsund þjónandi presta.

 

ÍSLAND ÚR NATO, HERINN BURT

Eftir stríðið 1939-1945 var Nato stofnað 1949, varnarbandalag vestrænna þjóða. Á Íslandi hófu guðlausir kommúnistar að ganga Keflavíkurgöngur. Ísland úr Nato, herinn burt, var hrópað. „Sovét-Ísland óskalandið: Hvenær kemur þú?“ var ort. Árið 1991 hrintu Rússar af sér oki guðlausra kommúnista. Moskvubúar hófu söfnun til endurreisnar kirkju Jesú Krists í Moskvu sem var vígð aldamótaárið 2000, Alexander Nevsky Lavran í St. Pétursborg var endurreist. Rússar snéru sér að Drottni. Vítt og breitt um Rússland lagði almenningur fram fé til endurreisnar kristni: kirkjum og  klaustrum. Fólkið í landinu snéri sér til Drottins. Á sama tíma hófu Vesturlönd að úthýsa Drottni. Jesús Kristur var tekinn frá börnum, upp er tekin guðlaus kyn- og transvæðing barna og aflimun drengja. Þúsundir kirkna hafa verið brenndar til grunna í Evrópu. Af hverju fóru Vesturlönd í fótspor Sovétríkjanna og tóku upp guðleysi?

 

ÚTÞENSLA NATÓ & PÓLITÍSKAR OFSÓKNIR

Við fall Sovétríkjanna hófst útþensla Nato og Evrópusambandsins til austurs. Nato varð árásarbandalag og Endalausar styrjaldir settar í gang; Balkanskagi, Kosóvo, Serbía í tíð Clinton. 9/11, Afganistan, Írak, í tíð Bush. Súdan, Lýbía, Sýrland, Yemen og valdarán í Úkraínu 2014 í tíð Obama og Biden, stríð hafið gegn rússneskum þegnum Donbass og Luhansk. Valdarán 2020 í USA. Í Hvíta Húsið settist Joe Biden seníll, sídettandi, ófær um tjáningu, kom upp úr kjallara í Delaware. Stríð í Úkraínu 2022, stríðsmögnun í Mið-Austurlöndum, sprengjur falla í  Íran, Sýrlandi og Yemen. Pólitísk réttarhöld eru í Ameríku, 45. forseti Bandaríkjanna sætir pólitískum ákærum; forsetinn sem stöðvaði stríðin; stöðvaði Endalausar styrjaldir, kom á friðarferli í Mið-Austurlöndum er ofsóttur. Dónald Trump sem reitti ameríska hermaskínu; Military Complex til reiði á yfir höfði sér áratuga fangelsi. Maðurinn með yfirburða fylgi í Ameríku er ofsóttur, ákærður því þau geta ekki unnið hann í kosningum. Í Moskvu situr Vladimir Pútin fyrir svörum í 4-6 klukkustundir samfleytt með þegnum sínum og ræðir stöðu þjóðmála. 

 

ASSANGE Í FANGELSI & PUSSY RIOT HAMPAÐ

Julian Assange afhjúpaði stríðsglæpi bandarískra forseta, Nato og kosningasvik Hillary Clinton. Blaðamaðurinn Assange er ákærður fyrir að upplýsa stríðsglæpi, situr í fangelsi, þaggaður á yfir höfði sér 178 ára fangelsisdóm. Assange er ofsóttur af eigin kollegum sem veifa rófu frammi fyrir húsbændum. Árið 2012 ruddust fimm grímuklæddar Pussy-Riot pönkstelpur inn í Dómkirkju Jesú Krists í Moskvu og höfðu uppi satanískar pönk-föck-bölbænir en voru handteknar fyrir helgispjöll. Míga á pútinbrúðu og kalla það list. Á Vesturlöndum eru þær sagðar sæta pólitískum ofsóknum. Stelpunum í Pussy Riot er hampað og Pútin rægður. Tvær stelpnanna veittur íslenskur ríkisborgararéttur á síðastliðnu ári. „Ísland úr Nato, herinn burt,“ er þagnað. Þess í stað sitja Vg & samfó til borðs með stríðsherrum Nato, plana styrjaldir, sprengja samfélög á steinöld. Fólkið í landinu er hirt og skammað fyrir að tortíma jörðinni; heimsendir sagður innan áratugs. Milljarðar hverfa, gufa upp, enginn veit hvað verður um skattfé Íslendinga sem rennur til stríðsátaka og kolefnisskatta; aflátsgjald okkar tíðar.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband