Færsluflokkur: Evrópumál

Hafa þeir yfirgefið mig eða ég þá?

Þúsundir færslna eru ritskoðaðar á facebók; mikill fjöldi hægra fólks er jaðarsett og varpað í f-fangelsi fyrir að efast um rétttrúnað woke, covid & stríðið í Úkraínu; hægra fólki er grímulaust varpað í f-grjót, málfrelsi er dautt. Í stað þess að koma þessu fólki til varnar, eru fjölmiðlar okkar þátttakendur í hinum ljóta leik Sílíkondals í Kaliforníu; facebók, youtube, google og rest. Ritstjóri Kjarnans er ósáttur við nýfengið málfrelsi Twitters. Ritstjórinn hneykslast á því að Musk hafi lokað ‘mannréttindadeild‘ Twitter. Deildin sú sá um ritskoðun og varpaði hægra fólki í f-fangelsi, þar á meðal 45. forseta Bandaríkjanna. Á orwellsku er ritskoðun mannréttindi, stríð er öryggi sagði Zelinsky í Sameinuðu Bandaríkjaþingi.

Ég er meðal þeirra sem settur er í f-fangelsi; þaggaður, ofsóttur, úthrópaður, texti skyggður, blokkaður, færslur niðurfærðar. Ég hef verið kallaður ljótustu nöfnum íslenskrar tungu af vinstri villingum ófærum um gagnrýna hugsun; rökræna umræðu. Vinstri villtir ritskoðaðarar samfélagsmiðla í Sílikondal dæma skoðanir mínar samfélagslega hættulegar eftir klögun íslenskra glóbal-popúlista. Hversu galið er það?

Í fremstu víglínu frétta

Ég hef næstum hálfrar aldar reynslu í fremstu víglínu frétta. Ég var meðal stofnenda Dagblaðsins 1975 með föður mínum Halli Símonarsyni og Jónasi Kristjánssyni. Ég fór á Moggann 1979 og vann með Styrmi Gunnarssyni og Matthíasi Johannesen, mesta blaðamanni 20. aldar. Ég lærði af þeim bestu. Ég breytti fréttum í sjónvarpi 1986-1994. Ég flutti fréttir af hruni Hafskips og Útvegsbanka, hruni Sambandsins, hruni Sovétsins og klofningi Sjálfstæðisflokksins. Ísland nötraði og Alþingi sjokkeraðist þegar ég sagði frá ákæru á hendur forseta Alþingis. Það gekk ekki lítið á þegar Sverrir heitinn Hermannsson bankastjóri hugðist reka Óla Kr. Sigurðsson heitinn út úr Olís, eigin fyrirtæki. Ég var frumkvöðull lögreglu og dómsfrétta í sjónvarpi. Á meðan öðrum var úthlutað fréttaefni á fréttafundum sótti ég fréttir á bak við luktar dyr elítunnar. Spaugstofan sótti óspart innblástur. Ég var fremsti fréttahaukur Sjónvarpsins þegar það var til húsa á Laugavegi; flutti þjóðinni fréttir af skákglímum Jóhanns við Korchnoi og Karpov. Ómar Ragnarsson auðvitað var & er þjóðardýrgripur.

Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins ruddi vinsælasta þingmanni flokksins, Alberti Guðmundssyni úr pólitískum vegi árið 1987. Atlaga Þorsteins var sem bjúgverpill í gæfulausri formennskutíð. Albert kom í sjónvarpssal eftir að hafa verið flæmdur úr ráðherraembætti; leiðtogi Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Skiptiborðið bókstaflega sprakk og flautur voru þeyttar þegar örtröð myndaðist fyrir utan. Við Ingvi Hrafn vorum sakaðir um að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn. Eftir að Sjálfstæðisflokkur Þorsteins rak Ingva Hrafn var tekið til að bíta í hæla mína. Ég tók boði Páls Magnússonar að færa mig á Stöð 2. Þar hélt ég áfram að segja frá atburðum á bak við luktar dyr. Ég var með fréttir um brennivínsmál elítunnar. Jón Baldvin sló til mín í beinni útsendingu og krafðist með Steingrími Hermannssyni að við Palli yrðum reknir í skiptum fyrir 500 milljóna ríkislán til Stöðvar2. Metinn á 500 millur. Á bak við þessar luktu dyr!

Váfugl í Westminster

Það kom ekki í veg fyrir að ég færi með Jóni Baldvin í fræðgarför hans til Eystrasaltslandanna í ársbyrjun 1991; Rauði herinn við borgarhlið Vilnius, Riga og Tallinn. Auðvitað erfði hvorugur. Ég beitti mér fyrir því að Ingvi Hrafn yrði ráðinn á Stöð 2. Ég hætti eftir að Ingvi vinur minn “left the building“. Sjónvarpið var tröllum gefið þegar til varð ohf. RÚV sem ropi úr iðrum. Ég skrifaði Váfugl til varnar fullveldi Íslands. Ensk þýðing Váfugls var gefin út í Westminster, breska þinginu 2012 meðal lávarða og þingmanna sem elska land sitt. Þegar ég fagnaði fullveldi Bretlands 2019 sögðu þeir við mig í Thatcher House: “The Vulture inspired us, you inspired us.“  Kiljan hefur ekki enn frétt af Váfuglinum, Silfur Egils ekki af Halli Hallssyni.

Þaggaður

Eftir að ég tók afstöðu gegn Orkupakka 3 tók minn gamli vinur að snúast gegn mér og formæla í sand og ösku. Ég er útilokaður og þaggaður á ÍNN líkt og þaggaður á Stöð 2 eftir að Jón Ásgeir breytti fréttastofunni í pólitíska ormagryfju; þaggaður á RÚV í rúman aldarfjórðung. Þegar RÚV fagnaði 50 ára afmæli Sjónvarpsins 2016 með stór-veislu var ég strokaður út, sem þeir sem féllu í ónáð í Sovétinu voru strokaðir út úr myndum flokksforystunnar á Kremlarmúrum. Nú stend ég einn og segi stétt minni til syndanna fyrir að elta villuljós og bregðast þjóð sinni, fólkinu í landinu. Ríkismiðillinn RÚV þjónar óseðjandi ríkisvaldi í bandalagi við ofsaríka davósa; lyfjarisa, vopnasala og búrókrata. RÚV hylmir yfir barnaníð og mansal. Hversu galið er það?

Ég mótmæli

Ég andæfi ríkislygi; einni ríkisskoðun að hætti Marteins Mosdal; pólitískri ritskoðun, pólitískum ofsóknum, pólitískum ákærum, pólitískum réttarhöldum, pólitískri lögreglu, covid-lygi, vestrænum glóbalizma sem birtist í Endalausum styrjöldum Nato, Ameríku og Evrópu. Íhugið vandlega styrjaldir þeirra: Balkanskagi fyrir 30 árum, Serbía, Afganistan, Írak, Lýbía, Sýrland, Súdan, Sómalía og nú Úkraína. Tólf milljónir fallnar varlega áætlað, tugir milljónir á flótta. Julian Assange sá í gegn um stríðsleiki amerískra stríðsherra Clinton Bush Obama og Biden löngu á undan okkur hinum ... fylgið peningaslóðinni sagði Assange fyrir áratug. Hugleiðið: Af hverju er Assange í fangelsi?

Ísland er land mitt því aldrei ég gleymi, Jesús leiðtogi minn.

Hallur á TVHHallssonStöð2


Af laumuhlustun & skápahommum

Framvarðasveitir Ríkislögreglustjóra á fjölmiðlum okkar eru í yfirdrifi að dreifa ríkisáróðri í samvinnu við lyfjarisa og Íslenska erfðagreiningu. Blaða- & fréttamenn eru skilgreindir af fjölmiðlanefnd ‘framvarðasveitir‘ sem flytja ríkisáróður og þiggja til þess ríkisfé. Íhugið það gott fólk. Fjölmiðlar okkar flytja allir eina og sömu fréttina um covid; sumsé skapa rétta stemmningu. Sama á við um fréttir erlendis. Allir flytja sömu fréttina sem bergmálar um Ísland, Bretland, Þýskaland, Frakkland, Bandaríkin, Kanada á rauntíma; fréttir eru samstilltar Reuter, AFP, AP, CNN, BBC og rest í eigu hinna ofsaríku. Þannig er hlutum varið um allan hinn vestræna heim undir yfirskriftinni ‘Trusted News Iniative‘. Allt er þetta yfirlýst og skráð.

Frjáls pressa er ekki lengur við lýði á Vesturlöndum; lýðréttindi eru skert, málfrelsi heft, fólk sprautað, ferðir heftar, eftirlit alls staðar, umframdauði falinn. Ríkismiðlar Evrópu eru í bandalagi með davóskum fjölmiðlum beggja vegna Atlantsála um samstarf til að tryggja ofurvald hinna ríku og voldugu í bandalagi við glóbal-popúlíska ‘mennta-elítu‘ Sameinuðu þjóðanna og 101 metrópól veraldar.

Allir segjast hafa háleit markmið. Fjölmiðlanefnd kveðst vinna að ‘miðlalæsi almennings‘.Covid helsi

Frjáls umræða jaðarsett

RÚV hefur 6.6 milljarða króna milli handa til þess að þjóna og efla sívaxandi ríkisvald. Markmið RÚV er skýrt: Ísland skal sósíalískt lýðveldi, fullveldi þjóðarinnar skal selt undir erlent vald hinna ofsaríku elítu og búrókrata. Helstu fjölmiðlar okkar dreifandi ríkisáróðri fá 380 milljón króna ríkisstyrki; Stöð 2, Visir, Mogginn, Fréttablaðið, DV, Stundin vinnandi með facebók, youtube, google og rest jaðarsetja frjálsa umræðu. Þessir miðlar hafa fengið samheitið falsmiðlar því þeir selja sig undir eina ríkislygi. Nú býður sjónvarpstöðin N4 á Akureyri upp í dans, föl fyrir 100 milljóna ríkisfé og vill sameinast fréttum Rúvak um að dreifa ríkisáróðri. Svona breiðist veiran út. Það er bara pláss fyrir eina skoðun á Íslandi, eina ríkisskoðun. Mörg okkar munum Martein Mosdal.

Hvar óma raddir hlustenda?

Ein útvarpstöð leyfir öllum skoðunum að heyrast á öldum ljósvakans. Hafið þið hlustað á raddir hlustenda á Útvarpi Sögu, klukkustund eftir klukkstund alla daga? Allir fá að láta rödd sína hljóma. Spyrjið: leyfir RÚV röddum hlustenda að hljóma? Útvarp Sögu er refsað. Útvarp Saga fær ekki krónu í ríkisstyrk og sætir linnulitlum ágjöfum góða fólksins á ríkisstyrktu fjölmiðlunum. 

Á dögunum var Arnþrúður Karlsdóttir útvarpstjóri í viðtali á Stöð 2. Af því tilefni þurfti fréttamaður að niðurlægja hlustendur Sögu. Hann kvaðst hafa hitt miðaldra kennara sem hefði sagt að heyra mætti hverjir væru að laumuhlusta Útvarp Sögu. Já sæll, skrítið fólk laumuhlustar Sögu. Þetta fannst fréttamanninum fyndið.

Sú var tíð að það voru bara til skápahommar í felum. Það þurfti hugrekki til að koma út úr skápnum. Nú þykir sjálfsagt að vera hommi og enginn þarf að fela sig. Getur verið að sá dagur renni brátt upp að fólk kannist ekki við að hlusta á ríkisstyrkta Stöð 2 & RÚV ropandi úr iðrum en allir hlusti á frjálst og óháð Útvarp Sögu?

Sannleikurinn finnur alltaf leið að lýsa upp myrkrið ...


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband