Hafa þeir yfirgefið mig eða ég þá?

Þúsundir færslna eru ritskoðaðar á facebók; mikill fjöldi hægra fólks er jaðarsett og varpað í f-fangelsi fyrir að efast um rétttrúnað woke, covid & stríðið í Úkraínu; hægra fólki er grímulaust varpað í f-grjót, málfrelsi er dautt. Í stað þess að koma þessu fólki til varnar, eru fjölmiðlar okkar þátttakendur í hinum ljóta leik Sílíkondals í Kaliforníu; facebók, youtube, google og rest. Ritstjóri Kjarnans er ósáttur við nýfengið málfrelsi Twitters. Ritstjórinn hneykslast á því að Musk hafi lokað ‘mannréttindadeild‘ Twitter. Deildin sú sá um ritskoðun og varpaði hægra fólki í f-fangelsi, þar á meðal 45. forseta Bandaríkjanna. Á orwellsku er ritskoðun mannréttindi, stríð er öryggi sagði Zelinsky í Sameinuðu Bandaríkjaþingi.

Ég er meðal þeirra sem settur er í f-fangelsi; þaggaður, ofsóttur, úthrópaður, texti skyggður, blokkaður, færslur niðurfærðar. Ég hef verið kallaður ljótustu nöfnum íslenskrar tungu af vinstri villingum ófærum um gagnrýna hugsun; rökræna umræðu. Vinstri villtir ritskoðaðarar samfélagsmiðla í Sílikondal dæma skoðanir mínar samfélagslega hættulegar eftir klögun íslenskra glóbal-popúlista. Hversu galið er það?

Í fremstu víglínu frétta

Ég hef næstum hálfrar aldar reynslu í fremstu víglínu frétta. Ég var meðal stofnenda Dagblaðsins 1975 með föður mínum Halli Símonarsyni og Jónasi Kristjánssyni. Ég fór á Moggann 1979 og vann með Styrmi Gunnarssyni og Matthíasi Johannesen, mesta blaðamanni 20. aldar. Ég lærði af þeim bestu. Ég breytti fréttum í sjónvarpi 1986-1994. Ég flutti fréttir af hruni Hafskips og Útvegsbanka, hruni Sambandsins, hruni Sovétsins og klofningi Sjálfstæðisflokksins. Ísland nötraði og Alþingi sjokkeraðist þegar ég sagði frá ákæru á hendur forseta Alþingis. Það gekk ekki lítið á þegar Sverrir heitinn Hermannsson bankastjóri hugðist reka Óla Kr. Sigurðsson heitinn út úr Olís, eigin fyrirtæki. Ég var frumkvöðull lögreglu og dómsfrétta í sjónvarpi. Á meðan öðrum var úthlutað fréttaefni á fréttafundum sótti ég fréttir á bak við luktar dyr elítunnar. Spaugstofan sótti óspart innblástur. Ég var fremsti fréttahaukur Sjónvarpsins þegar það var til húsa á Laugavegi; flutti þjóðinni fréttir af skákglímum Jóhanns við Korchnoi og Karpov. Ómar Ragnarsson auðvitað var & er þjóðardýrgripur.

Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins ruddi vinsælasta þingmanni flokksins, Alberti Guðmundssyni úr pólitískum vegi árið 1987. Atlaga Þorsteins var sem bjúgverpill í gæfulausri formennskutíð. Albert kom í sjónvarpssal eftir að hafa verið flæmdur úr ráðherraembætti; leiðtogi Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Skiptiborðið bókstaflega sprakk og flautur voru þeyttar þegar örtröð myndaðist fyrir utan. Við Ingvi Hrafn vorum sakaðir um að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn. Eftir að Sjálfstæðisflokkur Þorsteins rak Ingva Hrafn var tekið til að bíta í hæla mína. Ég tók boði Páls Magnússonar að færa mig á Stöð 2. Þar hélt ég áfram að segja frá atburðum á bak við luktar dyr. Ég var með fréttir um brennivínsmál elítunnar. Jón Baldvin sló til mín í beinni útsendingu og krafðist með Steingrími Hermannssyni að við Palli yrðum reknir í skiptum fyrir 500 milljóna ríkislán til Stöðvar2. Metinn á 500 millur. Á bak við þessar luktu dyr!

Váfugl í Westminster

Það kom ekki í veg fyrir að ég færi með Jóni Baldvin í fræðgarför hans til Eystrasaltslandanna í ársbyrjun 1991; Rauði herinn við borgarhlið Vilnius, Riga og Tallinn. Auðvitað erfði hvorugur. Ég beitti mér fyrir því að Ingvi Hrafn yrði ráðinn á Stöð 2. Ég hætti eftir að Ingvi vinur minn “left the building“. Sjónvarpið var tröllum gefið þegar til varð ohf. RÚV sem ropi úr iðrum. Ég skrifaði Váfugl til varnar fullveldi Íslands. Ensk þýðing Váfugls var gefin út í Westminster, breska þinginu 2012 meðal lávarða og þingmanna sem elska land sitt. Þegar ég fagnaði fullveldi Bretlands 2019 sögðu þeir við mig í Thatcher House: “The Vulture inspired us, you inspired us.“  Kiljan hefur ekki enn frétt af Váfuglinum, Silfur Egils ekki af Halli Hallssyni.

Þaggaður

Eftir að ég tók afstöðu gegn Orkupakka 3 tók minn gamli vinur að snúast gegn mér og formæla í sand og ösku. Ég er útilokaður og þaggaður á ÍNN líkt og þaggaður á Stöð 2 eftir að Jón Ásgeir breytti fréttastofunni í pólitíska ormagryfju; þaggaður á RÚV í rúman aldarfjórðung. Þegar RÚV fagnaði 50 ára afmæli Sjónvarpsins 2016 með stór-veislu var ég strokaður út, sem þeir sem féllu í ónáð í Sovétinu voru strokaðir út úr myndum flokksforystunnar á Kremlarmúrum. Nú stend ég einn og segi stétt minni til syndanna fyrir að elta villuljós og bregðast þjóð sinni, fólkinu í landinu. Ríkismiðillinn RÚV þjónar óseðjandi ríkisvaldi í bandalagi við ofsaríka davósa; lyfjarisa, vopnasala og búrókrata. RÚV hylmir yfir barnaníð og mansal. Hversu galið er það?

Ég mótmæli

Ég andæfi ríkislygi; einni ríkisskoðun að hætti Marteins Mosdal; pólitískri ritskoðun, pólitískum ofsóknum, pólitískum ákærum, pólitískum réttarhöldum, pólitískri lögreglu, covid-lygi, vestrænum glóbalizma sem birtist í Endalausum styrjöldum Nato, Ameríku og Evrópu. Íhugið vandlega styrjaldir þeirra: Balkanskagi fyrir 30 árum, Serbía, Afganistan, Írak, Lýbía, Sýrland, Súdan, Sómalía og nú Úkraína. Tólf milljónir fallnar varlega áætlað, tugir milljónir á flótta. Julian Assange sá í gegn um stríðsleiki amerískra stríðsherra Clinton Bush Obama og Biden löngu á undan okkur hinum ... fylgið peningaslóðinni sagði Assange fyrir áratug. Hugleiðið: Af hverju er Assange í fangelsi?

Ísland er land mitt því aldrei ég gleymi, Jesús leiðtogi minn.

Hallur á TVHHallssonStöð2


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll. Þú ættir að vera óhultur hér á blogginu. Enginn sem segir fyrir verkum hér. Mundu, ef 99 segja sólin snúist um jörðina en 1 segir hið gagnstæða, hver hefur rétt fyrir sér?

Birgir Loftsson, 24.12.2022 kl. 01:23

2 identicon

Hallur! Þeir hafa yfirgefið Guð sinn og svikið land sitt og þjóð. Þú þarft ekki að hryggjast þótt þú sér ekki gjaldgengur lengur í þeirra hópi.

Vertu glaður yfir því að vera álitinn, verðugur ofsókna vegna trúar þinnar á, Guð vors lands og land vors Guðs.

Jesús segir í Jóhannesarguðspjalli 15. kafla: Ef heimurinn hatar yður, þá vitið, að hann hefur hatað mig fyrr en yður. Væruð þér af heiminum, mundi heimurinn elska sitt eigið. Heimurinn hatar yður af því að þér eruð ekki af heiminum, heldur hef ég útvalið yður úr heiminum.

Minnist orðanna, sem ég sagði við yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans. Hafi þeir ofsótt mig, þá munu þeir líka ofsækja yður. Hafi þeir varðveitt orð mitt, munu þeir líka varðveita yðar.

En allt þetta munu þeir yður gjöra vegna nafns míns, af því að þeir þekkja eigi þann, sem sendi mig.

Hefði ég ekki komið og talað til þeirra, væru þeir ekki sekir um synd. En nú hafa þeir ekkert til afsökunar synd sinni.

Guðmundur Böðvarsson kvað:

Eitt verð ég að segja þér áður en ég dey,

enda skalt þú börnum þínum kenna fræði mín,

sögðu mér það álfarnir í Suðurey,

sögðu mér það dvergarnir í Norðurey,

sögðu mér það gullinmura og gleymérei og gleymdu því ei:

Að hefnist þeim er svíkur sína huldumey,

honum verður erfiður dauðinn.

Engillinn sagði við þá: Verið óhræddir.

Því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu.

Guð gefi þér og þinni fjölskyldu, gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár. Þökk fyrir það liðna.

Guðmundur Örn Ragnarsson (IP-tala skráð) 24.12.2022 kl. 01:25

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég var búinn að dást að þessum frábæra pistli þínum á Sögu, en gleðst yfir að lesa hér á óritskoðuðu moggablogginu - so far

Jónatan Karlsson, 24.12.2022 kl. 20:11

4 identicon

Sæll Hallur.

Engum hefur dulist að ævinlega hefur þú fylgt sannfæringu
þinni og að hún hefur ekki verið til sölu
hvorki fyrir 7 sinnum 500 millur eða nokkuð annað.

Ekki þarf að sýta þau kvikvendi sem héldu sig
yfirgefa sökkvandi skip, - og snéru hófarnir aftur,
svo mikill var asinn!

Mætti ég ráðleggja þér eitthvað eða leggja þér
eitthvað til þá væri það helst að leggja út á eyðimörkina
eða öllu heldur á lífsins veg og gerast stríðsmaður
eilífðarvissunnar, - boða Krist upprisinn og það fagnaðarerindi
sem nafnið eitt segir. Er þér ekki í kot vísað þó
þú takir upp merkið af nafna þínum Síðu-Halli.

Opinberun Jóhannesar gefur þér þetta: Vertu trúr allt til dauða og ég mun gefa þér lífsins kórónu!

Vegni þér ævinlega vel og þér fylgja árnaðaróskir
um Gleðileg jól og farsæld á nýju ári.

Húsari. (IP-tala skráð) 25.12.2022 kl. 12:52

5 identicon

Gleðileg jól Hallur

Allir sem einn sem fylgja Pútin og vegsama innrás hans í hina "rússneskumælandi" (sic) Úkarínu eru fasistar. Þeir eru engu betri en fylgjendur Stalíns og Hitlers. Pútin er nefnilega sjálfur fasisti.

Það leiðir að sjálfu sér að við sem erum trúir Jesú Kristi getum ekki stutt stríðsglæpamann. "Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá."

Einar S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 25.12.2022 kl. 15:07

6 Smámynd: Jónatan Karlsson

Bíddu nú við Einar. Þú varst að skrifa athugasemd við djúpar pælingar Halls, en telur þig sjálfan greinilega trúan Jesú Kristi í sama liði og félagarnir Biden og Selenski, eða hvað?

Jónatan Karlsson, 25.12.2022 kl. 17:57

7 identicon

Sæll Hallur; sem og aðrir gestir, þínir !

Þakka þjer fyrir; vandaða samantektina Hallur - og enn þann dag í dag sakna jeg viðveru þinnar, í gömlu góðu frjettamennzkunni, á fyrri tíð.

Guðmundur Örn Ragnarsson; ágæti frændi !

''Guðrún Arnórsdóttir

23. maí 1822 - 17. okt. 1900

Símon Eyjólfsson

27. ágúst 1824 - 9. júní 1892

Árni Símonarson

3. jan. 1851 - 3. júlí 1921

Þórður Árnason

14. apríl 1890 - 7. mars 1933

Mynd af einstaklingi Jónína Aldís Þórðardóttir

6. júlí 1923 - 7. des. 1999

Óskar Helgi Helgason

2. júlí 1958

 

Mynd af einstaklingi Ragnheiður Símonardóttir

26. ágúst 1855 - 4. júní 1920

Mynd af einstaklingi Ingveldur Ólafsdóttir

18. júní 1895 - 16. okt. 1983

Ragnar Kjartansson

17. ágúst 1923 - 26. okt. 1988

Guðmundur Örn Ragnarsson''

Gleymum ekki Guðmundur minn; að Kristur var hinn ágætasti reddarri, þó enginn sjerstakur frelsari hafi verið, eins og svo margir auðtrúa hafa látið glepjazt af, í gegnum tíðina, ágæti drengur.

Zaraþústra heitinn; sem og svo margir annarra frömuða liðins tíma, voru ekkert minni að atgerfi, eins og við vitum, kæri frændi 

 

Með beztu kveðjum; af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.12.2022 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband