Læknamistök: þrjár kynslóðir ...

Eftir að sjúkraþjálfari hafði lesið læknaskýrslu mína fyrir bráðum sjö árum og upplýst mig um að sagað hefði verið sentimeter af vinstra viðbeini, sagði ég að mitt pandórubox hefði verið opnað og ormum hleypt út. Ég hef velt vöngum hvers vegna aðgerðin fór svona illa í mig. Auðvitað blasa við beinbrot úr bernsku, ég er greindur sem lokað loft í hálsi. En fleira kemur til. Ég velti líka upp lófakreppu; dupuytren sem hefur leikið ætt mína grátt. Ég hef rakið lófakreppu 200 ár aftur í tímann norður í land. Lófakreppa á til að leggjast víðar um líkama og mig grunar að hún sé valdur að tíðum sorglegum skyndidauða í ætt minni. 

Ég er þriðja kynslóð sem fer illa út úr opnum skurðaðgerðum. Ég hef ég oft gengið til svefns í óvissu um að vakna að morgni. Faðir minn Hallur Símonarson hsím blaðamaður lést viku eftir magaaðgerð á Borgarspítalanum árið 2001. Mér fyrir hönd ættingja var synjað um krufningsskýrslu. Læknir á réttarmeinadeild á Barónsstíg kvað hinn látna þann eina sem fengi skýrsluna í hendur, sumsé hsím. Sagt er frá þessu í Váfugli. Krufningsskýrslan er leyniplagg. Læknir las upphátt að pabbi hefði dáið af völdum heilablóðfalls. Svo var fælnum lokað. Ég var með pabba tveimur tímum fyrir áfallið sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hann hafði verið ferskur til huga á sama aldri og ég nú, byrjað að spila bridge á ný og farið á kostum, snillingur sem  hann var.

Afi minn Símon Sveinbjarnarson skipstjóri lést líka nokkrum dögum eftir magaaðgerð liðlega fimmtugur að aldri 1935 á Landakoti. Ættingjar fengu ekki krufningsskýrsluna þá fremur en nú en var sagt að Símon afi hefði hefði látist af völdum lungnabólgu. Raunar hófst rannsókn á tíðum skyndidauða í ættinni eftir lát pabba 2001. Við vorum kölluð til rannsókna, en við vitum ekki meir.

 

LÓFAKREPPA: DUPUYTREN

Lítið er vitað um lófakreppu; dupuytren en líklega eru 10% íslenskra karla með þennan sjúkdóm ef marka má norskar rannsóknir, mun fleiri karlar en konur; hsím var með svæsna lófakreppu. Sjálfsagt ekki bara í lófum. Ég er þjáður í axlar-, háls- og hryggjarliðum. Eftir að ég hafði rætt við vin minn lögmann var mér vísað af sjúkraskrá Orkuhússins með sundurtætta meginsin axlar. Málinu var vísað til Landlæknis sem auðvitað sló skjaldborg um kollega sína í Orkuhúsinu. Eftirlit Landlæknis er verra en ekkert eftirlit. Landlæknir gerir ekkert með tvær rannsóknir sem staðfesta að supraspinatus-sinin er sundurtætt með undirliggjandi afsagað viðbein, þá fyrri í janúar 2018 í Orkuhúsinu og seinni mars 2021 í Domus. Bara alls ekki neitt.


Af erfiðu slysi í bernsku og læknamistökum í Orkuhúsinu

Þrettán ára drengur 1964 fékk ég erfiða byrjun í lífinu. Ég slasaðist illa á hjóli á hitaveitustokknum sem liggur um Bústaðahverfi. Ég var á mikilli ferð niður brekku undan vindi þegar göt birtust á stokknum. Ég gat forðast það fyrsta en ekki næstu göt, skall á stokknum og úti í móa. Ég stóð upp frá slysinu, hélt áfram för minni og drengurinn hélt áfram lífi sínu. Slysið hefur markað líf mitt og ég lifað með verkjum allar götur síðan. Löngu síðar kom í ljós að drengurinn hafði brjóstbeins- og kinnbreinsbrotnað, hryggjarliðir 7-9 fleygmyndast, undir hryggjarliðunum erfitt bakflæði. Framtennur mínar urðu svartar, ræturnar brotnuðu og voru rótfylltar.  Þannig var líkami drengsins skorðaður.

Samt skapaði drengurinn sér nafn í fremstu röð blaða- og fréttamanna, meðal stofnenda Dagblaðsins 1975, vann á Morgunblaðinu 1979-1986, Sjónvarpinu 1986-9 og Stöð 2 1989-1994. Drengurinn hætti að æfa fótbolta í yngri flokkum, hætti Moggaboltanum 20 árum síðar, reyndi golf en varð að hætta vegna verkja og stundaði gufu af eldmóð. Þegar ég var með mín stóru mál þá var líkt og líkaminn væri sem í skrúfstykki svo ég hætti fréttamennsku eftir áratug í sjónvarpi. Það var vindingur upp til höfuðs og ég átti til að fá mígreni og sjóntruflanir upp úr fimmtugu. Ég lærði að slaka á og vinna með orkuna. Ég sumsé lærði að lifa lífi mínu þó með verkjum væri og fúnkeraði bara ágætlega, takk fyrir.

 

ÖRLAGARÍK LÆKNAMISTÖK

Nú í október eru sjö ár liðin síðan verkir urðu að óbærilegri þjáningu. Í október 2016 – fimmtíu árum eftir rótfyllinguna – gekkst ég undir aðgerð í Orkuhúsinu þegar til stóð að skafa vinstri axlarhyrnu. Í þess stað var sentimeter sagaður af vinstra viðbeini að mér forspurðum. Óskiljanleg ákvörðun lækna og afdrifarík læknamistök gerð í Orkuhúsinu sem er stærsta einkaklíník landsins. Í kjölfarið slitnaði meginsin axlar og rifnaði endilöng; tættist í sundur:  „...stór fullþykktar rifa í supraspinatus sininni og virðist sem maður sjái sinina um 2sm frá festunni,“ samanber rannsókn 10. janúar 2018 í Orkuhúsinu. Sama niðurstaða aftur í mars 2021 í Domus. Vinstri öxl mín er mjög löskuð. Sinin sem um ræðir tengir viðbein út í öxl, undir er gat, kring um það er sundurtætt sin. Líkaminn hafnaði inngripi lækna Orkuhússins. Þetta hefur áhrif á daglegt líf mitt, erfitt með svefn þannig get ég ekki sofið á vinstri hlið eða maga svo staðan er erfið skal ég segja ykkur.


Metkóngar Víkings ...

Víkingar luku Íslandsmótinu með stæl 5-1 gegn silfurliði Vals í Víkinni á laugardag. Víkingur lauk Íslandsmótinu með nýju stigameti 66 stig. Liðið fékk 59 stig í 22 leikjum 19 – 2 – 1 með markatöluna 65-20. Það eru 2,68 stig í leik, 2,95 mörk skoruð í leik. Svona tölur hafa aldrei sést áður, met eftir met. Sjö stiga bæting frá fyrra meti en KR 2svar (2013, 2019) og Stjarnan (2014) höfðu náð 52 stigum. Bikarinn í Víkina í fjórða sinn í röð eftir 3-1 sigur á KA. Sannlega magnaður árangur. Til að kóróna sumarið þá unnu stelupurnar Bikarinn eftir 3-1 sigur á Blikum og Lengjudeildina. Þær endurtóku árangur karlaliðsins frá 1971 þegar Víkingur varð sigurvegari 2. deildar og vann Bikarinn eftir 1-0 sigur á Blikum á Melavelli.  Hamingjan ríkti í Víkinni um helgina þegar Víkingar fögnuðu. Arnar Gunnlaugsson valinn þjálfari ársins með goðsögnum á Mount Rushmore og Birnir Snær Ingason leikmaður ársins.

 

SIGURGANGA Í EVRÓPU Í VÍKINNI

Það hefur gætt misskilnings um árangur Víkings í Evrópukeppnum og því jafnvel haldið fram að Evrópuför Víkings síðastliðin tvö ár hafi verið sneypuvör. Það er einfaldlega rangt.  Víkingar hafa ekki tapað Evrópuleik á heimavelli í Víkinni í tvö ár. Víkingar hafa unnið meistaralið San Marínó 1-0 og Eistlands 6-1. Þeir gerðu jafntefli við sænsku meistarana í Malmö 3-3 í Víkinni, unnu New Saints meistara Wales 2-0 og loks Lech Poznan Póllandi, 1-0. Í ár unnu þeir núverandi meistara Riga frá Lettlandi 1-0 í Víkinni. Víkingar gerðu jafnfefli í Wales 0-0, töpuðu 3-2 í Malmö í dómaraskandal þegar Kristall Máni var rekinn útaf í stöðunni 1-1. Leikurinn í Póllandi fór í framlengingu 2-1, Poznan náði þá loks að knýja fram sigur. Víkingur tapaði einvíginu við Riga samtals 2-1. Sannlega sögulegur árangur.

 

MÁLAFERLI OG ÁFRÝJANIR

Annað sögulegt við Íslandsmótið eru málaferli sem hófust á sama tíma. Annars vegar kærur Vals fyrir dómstólum sem höfðu krafist þess að stórsigur Víkings á Hlíðarenda yrði ógiltur og stigin féllu Val í skaut. Ef Valur hefði náð að sölsa undir sig stigin sex þá hefði leikurinn í Víkinni um helgina verið hreinn úrslitaleikur um Íslandsskjöldinn. Dómur féll ekki fyrr en eftir að Víkingar urðu sófameistarar. Hins vegar áfrýjanir Blika um að fresta leik við Víking í Víkinni. KSÍ tók kröfu þeirra fyrir í þrígang og Blikar áfrýjuðu og áfrýjuðu. Breiðablik krafðist þess að Víkingur léki við Blika í landsleikjahléi án landsliðsmanna í aðdraganda úrslitaleiks Bikarsins. Til þess að láta fýlu sína í ljósi mættu Blikar of seint í Víkina og neituðu að nýta búningsklefa vegna meintrar fýlu. Blikar voru sektaðir fyrir tiltækið. Segja má að þarna hafi Blikar misst fókus í titilvörn sinni en þeir enduðu með tuttugu og fimm færri stig en meistarar Víkings og Valur ellefu stigum minna.


Rússland mesta efnahagsveldi Evrópu ...

Rússland varð stærsta efnahagsveldi Evrópu í sumar, fimmta mesta efnahagsveldi heims með 5.32 trilljón dollara GDP á grunni PPP samanburði kaupgetu; purchasing power parity, stærra en Þýskaland með 5.3 trilljón dollara. Kína er farin framúr Ameríku með 30 trilljón dollara GDP samanborið við 25 trilljón dollara GDP í Ameríku. Þetta gerist þrátt fyrir viðskiptabann Vesturveldanna á Rússland. „Viðskiptabann átti að rústa rússneskum efnahag. Í staðinn er efnahagur Rússa nú stærri en Þýskalands ... Gjald Evrópu er afiðnvæðing og verðbólga,“ tvítaði D.M. Collingwood, ritstjóri BritanniQ. Vanmat Vesturveldanna á rússneskum efnahag er að koma illa í bakið á íbúum Evrópu og Ameríku. Viðskiptabann átti að gera Rússa fátæka og ókleift að heyja stríð. Þvert á móti er efnahagur Rússa kröftugur og dýnamískur meðan Ameríka og Evrópa eru í frjálsu falli stöðnunar og verðbólgu. Ekkert ríki í heiminum á jafnmikla gnægð olíu, gas, kola, málma með öflugan landbúnað. Rússland er þess vegna vel í stakk búið að takast á við ófriðartíma.

Vesturlönd hafa sent vopn sín til Úkraínu illa fær um að endurnýja þau. Í þessu samhengi er vert að nefna að vestrænar þjóðir reiða sig á þjónustugreinar en Rússland er framleiðslu- og iðnríki. Á styrjaldartímum skiptir þetta sköpum. Um áratugaskeið hafa Vesturlönd flutt framleiðslu sína úr landi til ríkja sem hafa verið kölluð þriðji heimurinn. Nú vilja Vesturlönd koma á alheimsstjórn til þess að ná tökum á stjórn þriðja heimsins til þess að arðræna. Þessu er þorri mannkyns ósammála og segir hingað og ekki lengra.

 

SAMANBURÐUR HAGKERFA Á ÓFRIÐARTÍMUM

Franski hagfræðingurinn Jaques Sapir bendir á að frá upphafi stríðsins í Úkraínu hafi spurningin um stærð hagkerfa Vesturlanda samanborið við hið rússneska og raunar líka kínverska, fengið aukið vægi. Sérstaklega hafi vestrænir pólitíkusar bent á að hagkerfi Rússa sé á stærð við Spán og Ítalíu. Nú þegar menn hafi endurvakið Kalda stríðið og ófriður ríki í Evrópu þá skipti sköpum að auka skilning á samanburði hagkerfa. Vestræn hagkerfi reiða sig á þjónustugreinar. Þau eru veik fyrir þegar kemur að framleiðslugreinum, námugrefti og landbúnaði. Mæling þjóðarframleiðslu GDP; Gross Domestic Production hafi blindað Vesturveldin. Á friðartímum virðist baksvið litlu skipta en öðru gildi á ófriðartímum. Þetta þurfi Vesturveldin að líta til.  Frá heimstyrjöld no. 2 1939-1945 – World War II – hafi menn einblínt á þjóðarframleiðslu og auðsköpun á hlutabréfamörkuðum og gengi gjaldmiðla almennt miðað við dollar. En þessi einfalda lausn hefur þann veikleika að endurspegla ekki endilega efnahagsstyrk þjóða. „Á stríðstímum missa þjónustugreinar mikilvægi í samanburði við landbúnað, iðnað og byggingariðnað. Það verður nauðsynlegt að mæla vöruframleiðslu einstakra þjóða til þess að skilja raunverulegan samanburð,“ skrifar Sapir í American Affairs 2022. Ólíkt Rússum hafa hvorki Evrópa né Ameríka lagað efnahag að stríði. Stríðið í Úkraínu er Proxy-stríð; staðgengisstríð með vestrænum vopnum og peningum í þágu útþenslu Nato. Allt er greitt af Vesturlöndum og hefur svo verið frá valdaráninu 2014. 

Hin fræga Big-Mac vísitala gefur samanburð á lífskjörum milli þjóða. Dollar; – $1 í Rússlandi færir kaupanda miklu mun meira en $1 í USA. Big Mac kostar 5.15 dollara í USA en 2.44 dollara í Rússlandi. Heimamenn tóku yfir rekstur McDonald‘s eftir að viðskiptabanni var skellt á. Viðskiptabannið hefur gert Rússa sjálfum sér nóga á mörgum sviðum, til dæmis kaupa þeir innlenda bíla Avto og GAZ í stað Benz og Audi sem Þjóðverjar seldu í stórum stíl.

 

RÚSSUM VEX ÁSMEGIN

Lokun markaða í Evrópu og Ameríku var sem högg á rússneskan efnahag árið 2022 en Rússar hafa aðlagað sig og markaðir einkum í Asíu hafa opnast. Það skiptir sköpum að 80% mannkyns styður Rússa í deilunni í Úkraínu. BRICS-löndin; Brasilía, Indland, Kína og S-Afríka eru í efnahagsbandalagi með Rússum ásamt tugum annarra ríkja sem eru að ganga inn. Þar eru sérlega eftirtektarverð Saudi-Arabía, Íran og Egyptaland. Líklega eru dagar petro-dollars taldir. Olíubann átti að lama Rússa en það hefur þvert á móti komið illa við orkusnauða Evrópu. Rússar beindu olíu- og gasviðskiptum frá Evrópu til Asíu, einkum Kína og Indlands sem áframselur rússneska olíu, þar á meðal til Vesturlanda. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir tæplega eins prósents hagvexti í Rússlandi en heimamenn 2% meðan stöðnun ríkir í Evrópu og upplausn í Ameríku sem á undanförnum áratugum hefur flutt verksmiðjur sínar erlendis, alveg sérstaklega Kína. Rússland nútímans minnir á Ameríku fyrir hundrað árum.

 

EVRÓPA Í TÆTLUM

Í Evrópu ríkir Alræði sérfræðinganna en á dögum bolsevika var það alræði öreiganna sem hrundi. Það er að koma í bakið á Vesturveldunum að vanmeta Rússland og kjánaleg ummæli vestrænna leiðtoga stinga í augu. Ursula van der Leyen kvað í ræðu í setember 2022 að Rússland væri í tætlum; in tatters þar sem þrjú þúsund alþjóða firmu hefur yfirgefið landið. Skortur væri á tölvukubbum í vopn og Rússar leituðu í þvottavélar. Viðskiptabann var vissulega högg en Rússar eru að  aðlaga sig og ný heimsmynd að birtast. Evrópa er þvert á móti er í tætlum meðan efnahagur Rússa vex. Josep Borell utanríkisstjóri ESB uppnefndi Rússa "efnahagsdverg ... gasstöð með kjarnorkuvopn". Borell þessi segir líka að Evrópa sé sem aldingarður umkringdur frumskógi; Europe is a garden. The rest of the world [...] is a jungle.“ Annalena Boerback utanríkisráðherra Þýskalands varð sér til háðungar þegar hún sagði að Vladimir Pútin yrði að breyta stefnu sinni varðandi Úkraínu um 360°. Það hafði áður vakið uppnám þegar hún sagði að Þjóðverjar yrðu að sætta sig við að Úkraína væri í forgangi og Þýskaland væri í stríði við Rússland. Nú er komið á daginn að þýskir Bundeswehr hermenn stýra þýskum Leopard skriðdrekum sem Rússar hafa eyðilagt í stórum stíl.

 

ÞÝSKALAND Á BRAUÐFÓTUM

Economist og Der Spiegel kalla Þýskaland veika mann Evrópu; sick man of Europe. Þar er samdráttur, lífskjör hrapa og þýska iðnveldið á brauðfótum. Orkukreppt Þýskaland er í kreppu. Hryðjuverkið í Eystrasalti þegar Nord Stream leiðslan var sprengd í tætlur er mesta mengunarhryðjuverk sögunnar. Ódýrt gas hætti að streyma til Þýskalands sem hefur komið illa við efnahag landsins. Auðlindir eru undirstaða velsældar, orkuskortur er ávísun á stöðnun. Andrezj Duda forsætisráðherra Póllands líkir Úkraínu við drukknandi mann; drowning man. Pólverjar, Ungverjar og Slóvakar neita að kaupa mengað úkraínskt korn og er af því hörð deila. Sigurvegari kosninga í Slóvakíu um helgina krefst þess að stríðinu linni líkt og Ungverjar. Sá dellumosktur er við lýði á Vesturlöndum að taka beri út CO2 orkugjafa án þess að því sé svarað hvað koma eigi í staðinn. Kolefni er undirstaða lífs. Gróður svolgrar í sig CO2 og framleiðir súrefni sem við öndum að okkur. Jörðin framleiðir olíu á nútíma sem fyrri skeiðum.  Kolefnislaus veröld er leið fátæktar og helsis. Vesturlönd eru á hraðferð fram af Svörtuloftum. 


Heimir Karlsson opnar umræðu um Úkraínu á Bylgjunni ...

Það er áhugavert að hlusta á viðtal Heimis Karlssonar á Bylgjunni við Arnar Loftsson sem búsettur er í Rússlandi. Það markar þáttaskil að því ég best veit því að í fyrsta sinn frá stríðsbyrjun í febrúar 2022 tekur meginmiðill viðtal við stuðningsmann Rússa í stríðinu í Úkraínu. Heimir er afburða þáttastjórnandi, farsæll og vinsæll. Arnar fór yfir helstu ástæður fyrir því að Rússar gerðu innrás. Ég er hér með samantekt í tilefni þessa.

BLÓÐUG BYLTING CIA 2014

Á útmánuðum 2014 var blóðugt valdarán í Kænugarði að undirlagi CIA stýrt frá tveimur efstu hæðum gömlu KGB byggingarinnar í Kænugarði. Engum Úkra var hleypt upp. Allt að hundrað manns voru skotnir til bana á Sjálfstæðistorginu og um fimmtíu Rússar brenndir inni í Alþýðuhúsinu í Odessa. Lýðræðiskjörinn forseti landsins Viktor Yanukovic flúði land. Íbúar Donbass, Luhansk og Krímskaga eru Rússar. Þeim hafði verið bannað að rækta menningu sína og tungu, svo og börnum í skólum. Það var brot á Helsinki-sáttmálanum frá 1975. Oligarkinn Petro Poroshenko var kjörinn forseti en rússneskir íbúar kusu sjálfstjórn með yfir 90% atkvæða. Fræg eru ummæli Poroshenko: „Okkar börn fara í skóla meðan þeirra börn hírast í kjöllurum.“ Þetta var í raun þjóðernisstríð gegn rússneskum íbúum A-Úkraínu. Nazismi hefur verið landlægur í Úkraínu og nazistinn Stepan Bandera þjóðhetja styttur reistar honum til heiðurs.

ÁRÁSARSTRÍÐ GEGN EIGIN ÞEGNUM

Það hefur verið algengur misskilningur að Rússar hafi ráðist inn í Krímskaga. Rússar tóku yfir stjórn Krím. Þeir voru þar fyrir. Úkrinn Nikita Krútsjov hafði fært Úkraínu að "gjöf" árið 1954. Lenín hafði rennt Donbass og Luhansk inn í sovétlýðveldið Úkraínu 1922. Stalín hafði rennt inn V-Úkraínu sem hafði tilheyrt Póllandi. Stjórnin í Kænugarði hóf árásarstríð gegn eigin þegnum í A-Úkraínu og á næstu árum féllu að minnsta kosti 15 þúsund manns og um tvær milljónir flúðu austur á bóginn til Rússlands. Árið 2015 voru Azov-nazistar sendir í fremstu víglínu. Þekkt eru myndskeið af þingmönnunum Lindsey Graham og John McCain lofandi azov-hermönnum vopnum og dollurum haustið 2016. Tvívegis voru gerðir svokallaðir Minsk-samningar I & II en sviknir af Vesturlöndum og Úkrum. Angela Merkel kanslari hefur lýst því yfir að samningarnir hafi verið til að vinna tíma til að byggja upp úkraínska herinn.

Svikin voru loforð sem Mikhaíl Gorbatsjov voru gefin um að Nato færi ekki þumlung austur á bóginn; „not-inch-east“. Markmið Vesturveldanna er að lama Rússa, skipta landinu upp og arðræna líkt og Blackrock gerir nú þegar í Úkraínu. Hafið í huga að gjald Íslendinga að ESB er framsal fiskimiða og orkulinda til Brussel ...

HIN ENDALAUSU ÁRÁSARSTRÍÐ NATO

Undanfarna áratugi hafa ríki A-Evrópu gengið í Nato sem hefur breyst í árásarbandalag með „Endalausum styrjöldum“ undir forystu Ameríku. Fyrst á Balkanskaga þegar Kosovo var tekin af Serbum og loftárásum á Belgrad. Þá styrjöldum gegn Afganistan, Írak, Lýbíu, Sýrlandi og Súdan; allir íslenskir flokkar hafa tekið þátt. Bandaríkin og Evrópa hafa borið kostnað af stríðinu í Úkraínu. Bandaríkin standa straum af lögreglu, sjúkra- og slökkviliðum í Úkraínu. Andstaðan gegn stríðinu hefur vaxið í Ameríku og Bandaríkjaþing neitar frekari fjárframlögum. Raunar hafa Bandaríkjamenn verið í uppreisn gegn Endalausum stríðum síðan 2016 og eru enn, enda gjald bandarískrar alþýðu hátt.

ZELINSKY LOFAÐI FRIÐI

Volomodyr Zelinsky var kjörinn forseti 2019 og lofaði friði en stríðið gegn íbúum Donbass hélt áfram. Í febrúar 2022 réðust Rússar inn og í apríl lágu fyrir friðarsamningar í Istanbúl að frumkvæði Erdogans en Boris Johnson hélt þá til Kænugarðs og kom í veg fyrir frið. Meðlimur í viðræðunefnd Úkra í Istanbúl sem leiddi frið við Rússa, Denys Kirieiev var myrtur af öryggissveitum Úkra og líkið skilið eftir á götu í Kænugarði.

Nú er allt að hálf millón Úkraínumanna fallin eftir nánast samfellda ósigra og hörmungar alveg sérstaklega í Bakmut sem féll í maí 2023 þar sem um 75 þúsund Úkrar féllu. Að undanförnu hafa þúsundir úkraínskra hermanna veifað hvítum fánum og gefið sig fram. Clayton Morris á Redacted hefur skýrt frá því.

RÚSSLAND MESTA EFNAHAGSVELDI EVRÓPU ... EVRÓPA Í TÆTLUM

Þegar stríðið hófst 2022 spáði Ursula van der Leyen í ræðu að Rússland yrði í tætlum; in tatters. Evrópa þvert á móti er í tætlum. Andrezj Duda forsætisráðherra Póllands líkir Úkraínu við drukknandi mann; drowning man. Pólverjar, Ungverjar og Slóvakar neita að kaupa mengað úkraínskt korn og er af því hörð deila. Kröfur um frið í Úkraínu gerast stöðugt háværari. Economist kveður Þýskaland veika mann Evrópu; sick man of Europe. Þar er samdráttur, lífskjör hrapa og þýska iðnveldið á brauðfótum. Orkukreppt Þýskaland í kreppu. Hryðjuverkið í Eystrasalti þegar Nord Stream leiðslan var sprengd í tætlur er mesta mengunarhryðjuverk sögunnar. Ódýrt gas hætti að streyma til Þýskalands sem hefur komið illa við almenning.

Rússland er stærsta efnahagsveldi Evrópu, fimmta mesta efnahagsveldi heims með $5.32 Trilljón GDP, stærra en Þýskaland $5.3T. Kína er farin framúr Ameríku í frjálsu falli. Vesturveldin vanmeta Rússland. Josep Borell utanríkisstjóri esb uppnefnir Rússa "efnahagsdverg ... gasstöð með kjarnorkuvopn". Annalena Boerback utanríkisráðherra Þýskaland segir að Vladimir Pútin verði að breyta stefnu um 360°!!! Þetta eru leiðtogar titlaðir sérfræðingar ... við lifum skeið alræðis sérfræðinganna.

Þekktasti blaðamaður Ameríku, Symour Hersh hefur afhjúpað að hryðjuverkið í Eystrasalti var framið af Bidenstjórninni með norskri aðild. P-8 þotan sem sveimaði yfir Nord Stream nóttina 26.10 2022 lagði upp frá Keflavíkurflugvelli. Athygli vert, ekki satt? Af hverju höfnuðu Vesturveldin rannsókn Öryggisráðs SÞ á hryðjuverkinu?

80% MANNKYNS ANDÆFIR

80% mannkyns hafnar stuðningi við Vesturlönd í stríðinu við Úkraínu. BRICS er bandalag Brasilíu, Rússlands, Indlands, Kína og S-Afríku þar sem gjaldmiðlar styðjast við gullfót. Auðlindir eru undirstaða velsældar. Tugir ríkja með Saudi-Arabíu, Egyptaland, Íran, Argentínu og Afríkuríki eru að ganga í BRICS og taka upp hið nýja fyrirkomulag. Dagar olíudollars; petrodollars eru taldir. Ameríka sem heimsveldi að syngja sinn svanasöng. Þeim fjölgar sem átta sig á að Ameríka er "failed state." Nýlendustefna Vesturveldanna heyrir senn sögunni til. Blackrock, Vanguard & State Street sem eiga meir en þrjá fjórðu hlutabréfa á hlutabréfamörkuðum Vestanhafs eiga alla helstu fjölmiðla á Vesturlöndum sem í bandalagi við ríkismiðla; Trusted News Iniative flytja eina og sömu fréttina á rauntíma. Íslenskar ritstjórnir fá lygina beint í æð, líkt og ritstjórnir um allan hinn vestræna heim.

Prentararnir í Federal Reserve hafa haft einkarétt á prentun dollars síðan 1913. Allar götur síðan hafa ríkt styrjaldir og plágur í veröld. Menn kvarta undan íslenskum sægreifum en þeir eru á stuttbuxum við þessi ósköp sem einkaréttur á prentun dollars er. Menn geta svo spurt sig, hverjir prentararnir eru ...


Víkingur Íslandsmeistari 2023 - Fimm titlar á þremur árum

Víkingur varð Íslandsmeistari 2023 um helgina eftir að KR og Valur gerðu jafntefli 2-2 í Vesturbænum. Víkingar urðu sófameistarar en spiluðu sinn lakasta leik í sumar gegn Breiðabliki. Fjölmenn stuðningssveit Víkinga lét það ekki á sig fá og hyllti meistarana. Augljóst spennufall líkt og gerist þegar titill er í höfn. ManCity vann alla leiki eftir áramót og varð sófameistarari en vann ekki leik í deildinni eftir það, svo Víkingar þurfa að gæta sín. Blikar heiðursmenn þegar þeir stóðu heiðursvörð. Það var ánægjulegt að sjá eftir að þeir mættu of seint til leiks í Víkina á dögunum og voru sektaðir fyrir. Víkingur hefur sannlega safnað titlum undanfarin ár.

Eftir að tveir af bestu miðvörðum íslenskrar knattspyrnu, Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen snéru heim og Arnar Gunnlaugsson tók við þjálfun 2018 hefur Víkingur verið óstöðvandi. Unnið titil eftir titil eftir titil. Víkingsliðið er eitt besta lið Íslandssögunnar. Fimm titlar á þremur árum, sex af níu á fimm árum er stórbrotinn árangur.

2019: BIKARMEISTARAR
2021: ÍSLANDS- & BIKARMEISTARAR
2022: BIKARMEISTARAR
2023: ÍSLANDS- & BIKARMEISTARAR

Ævintýrið byrjaði með bikartitli 2019 eftir að slá út Blika í undanúrslitum í Víkinni 3-1. Bikarmeistarar fjórum sinnum í röð, unnu Blika í undanúrslitum 2022 í Fífunni 3-0. Valkyrjur Víkings heilluðu þjóðina, lögðu Blika í úrslitum Bikarsins á Laugardalsvelli; unnu tvöfalt 2023; Lengjudeild- og Bikar. Þær endurtóku leik Bikarmeistara karla frá 1971 sem unnu Breiðablik 1-0 í úrslitum á Melavelli og 2. deild með miklum yfirburðum. Magnaðar rimmur milli þessara nágranna í sögulegu ljósi.

Víkingur 108 Reykjavík
Nú eru 50 ár frá því Víkingar tóku ákvörðun að flytja í Fossvog undir forystu Jóns Aðalsteins Jónssonar heitins. Stjórn Antons Arnar Kærnested hóf framkvæmdir á níunda áratugnum. Árið 1991 var íþróttahúsið tekið í notkun og búningsaðstaða. Stúka í kjölfarið. Hins vegar kom það forystumönnum Víkings í opna skjöldu að Kópvogsbær bjó HK setur skammt frá í Fossvogi. HK óx og dafnaði sem eitt öflugasta íþróttafélag landsins. Jafnframt að borgaryfirvöld ákváðu að reisa Fram setur í Safamýri þar sem glæsilegt íþróttahús reis. Nú hins vegar eru þessi félög flutt. HK upp í Kóra og Fram í Úlfarsárdal.

Víkingur er eitt félaga í 108 Reykjavík, hefur tekið yfir Safamýrina og er landfræðilega með eitt besta félagssvæði íþróttafélaga á landinu og líklega með bestu forystusveit íþróttafélaga í landinu sem hefur sameinað 108 Reykjavík að baki Víkingi. Sannlega er framtíð Víkings björt og 50 ára væntingar forystumanna hafa ræst.


Glæstur sigur í torfkofa ...

Fátt gleður íslenska þjóð meir en glæsilegir sigrar Íslands í íþróttakappleikjum; fótbolta, handbolta og körfu. Einn slíkur var gegn Bosníu þar sem Ísland vann sigur á öflugu liði Bosníu 1-0. Stórbrotinn sigur þar sem Alfreð Finnboga skoraði sigurmarkið, maður á réttum stað eftir að Jóhann Berg, Hákon Örn og Jón Dagur höfðu sundurspilað vörn Bosníu. Við sannlega eigum efnilegt lið og stórbrotin unglingalið í öllum íþróttum beggja kynja. Framtíðin er björt.

Sá skuggi er yfir íslenskum íþróttum að þeim eru gerð setur í torfkofum; Laugardalshöll og Laugardalsvelli, mannvirkjum sem voru tekin í notkun fyrir meir en hálfri öld og eru á undanþágu. Ráðamenn þykjast aftur og aftur ætla að búa sómasamlega að íþróttum en svíkja jafnan. Við höfum öll orðið vitni að þessum svikum og hrist höfuðið meðan aðrar þjóðir skjótast fram fyrir okkur, ég nefni Luxemborg og Færeyjar. Sannleikurinn er að pólitíkin grefur undan íslensku þjóðerni, menningu, tungu og karlmennsku. Þar fara fremstir feministar í öllum flokkum sem öllu tröllríða. Konur eru jafnvel meiri fasistar en karlar. Síðar mun ég rekja fasískar rætur feminisma.

Nærfellt 40% drengja eru ólæsir og efa sáð í huga barna um kyn sitt. Reykvísk námskrá gerir út á kynvæðingu barna í samræmi við markmið Sameinuðu þjóðanna. Okkur er sagt að fólk sé óvelkomið í skóla sem kallaðir eru vinnustaðir kennara og barna! Lögreglu sigað á fólk sem var að líta á aðstæður. Hvað er verið að fela? Drengir eru limlestir með skelfilegum hætti, þeim er talin trú um að þeir séu hán, limur fjarlægður og líkamar þeirra fylltir kemískum efnum siðlausra lyfjarisa. Fjölmiðlar elta þessa bábilju. RÚV er skelfilegast fjölmiðla. Þar er herför gegn karlmennsku. Sérstök herför hefur verið gegn fótboltalandsliði okkar. Við þekkjum það öll. Á 17. júní sjálfan þjóðhátíðardag Íslendinga var Gylfi Þór Sigurðsson níddur í þætti eftir hádegisfréttir á Rás 1. Á sjálfan þjóðarhátíðardag Íslendinga hampaði RÚV höfuðleðri karlmennsku í þessu landi. Það var táknrænn gjörningur. Hversu fyrirlitlegt var það? Níðárás á Gylfa Þór. Þetta er ógeðfellt svo orð fá ekki líst. Við erum vitni að Alræði sérfræðinga sem kom í stað martraðar Alræðis öreiga fyrir hundrað árum. Meira um það síðar.


Hnignun Íslands ...

Það eru allir sammála um að framganga Íslands í Luxemburg er ein lélegasta í manna minnum í nýjum þjóðarleikvangi Lúxera. Íslenska liðið var arfaslakt segja allir, eiginlega jafn slakt og íslensk pólitík segi ég. Fyrirgefið mér að blanda þessu saman en getuleysi ríkisstjórnar og borgaryfirvalda að skapa umgjörð um þjóðaríþróttir er þjóðarskömm. Þjóðaríþróttir okkar, fótbolti, karfa og handbolti eru í torfbæjum á meðan Lúxerar og Færeyingar reisa þjóðarmannvirki. Nýr leikvangur Lúxera var líkt og nudda salti í sárin. Töpum við í Þórshöfn? Um langt árabil hefur verið rætt um að reisa þjóðarleikvang og íþróttahöll en ekkert gerist, bara alls ekkert frekar en Sundabraut þann arðbæra veg sem myndi leysa reykvíska umferðahnúta og gerbreyta samgöngum í landinu. Spyrjið af hverju vilja þau ekki umbylta samgöngum en krefjast 280 milljarða í borgarlínu?

Pólitíkin hefur engan áhuga á því að lyfta Íslandi og því sem íslenskt er. Það er alvarlegur skortur á stolti í þessu landi. Pólitíkin eyðir milljörðum í stríðsrekstur og tugum milljarða í fólk ólöglega í landinu. Ekkert fjármagn er til þess að lyfta íslenskri þjóðarvitund, bara alls ekkert. Er ekki rangt gefið?


Hnignun Íslands ...

Það eru allir sammála um að framganga Íslands í Luxemburg er ein lélegasta í manna minnum í nýjum þjóðarleikvangi Lúxera. Íslenska liðið var arfaslakt segja allir, eiginlega jafn slakt og íslensk pólitík segi ég. Fyrirgefið mér að blanda þessu saman en getuleysi ríkisstjórnar og borgaryfirvalda að skapa umgjörð um þjóðaríþróttir er þjóðarskömm. Þjóðaríþróttir okkar, fótbolti, karfa og handbolti eru í torfbæjum á meðan Lúxerar og Færeyingar reisa þjóðarmannvirki. Nýr leikvangur Lúxera var líkt og nudda salt í sárin. Töpum við í Þórshöfn? Um langt árabil hefur verið rætt um að reisa þjóðarleikvang og íþróttahöll en ekkert gerist, bara alls ekkert frekar en Sundabraut þann arðbæra veg sem myndi leysa reykvíska umferðahnúta og gerbreyta samgöngum í landinu. Spyrjið af hverju vilja þau ekki umbylta samgöngum en krejast 280 milljarða í borgarlínu?

 

Pólitíkin hefur engan áhuga á því að lyfta Íslandi og því sem íslenskt er. Það er alvarlegur skortur á stolti í þessu landi. Pólitíkin eyðir milljörðum í stríðsrekstur og tugum milljarða í fólk ólöglega í landinu. Ekkert fjármagn er til þess að lyfta íslenskri þjóðarvitund, bara alls ekkert. Er ekki rangt gefið?


Don Quixote með heimilisfesti í Kópavogi?

Það verður ekki annað sagt en vængstýfðir Blikar hafi klæðst brynju Don Quixote og slegist við vindmyllur þegar kemur að Íslandsmótinu í sumar. Sérlega hafa Víkingar farið í taugarnar á grænum Blikum sem ekki nýttu búningsaðstöðu í Víkinni á dögunum því hún væri ljóslaus og illa lyktandi, svo sem Gummi Ben upplýsti í Stúkunni á Stöð 2. Búningsaðstaðan hefði verið Blikum ósamboðin. Blikar hituðu því upp í Kópavogi, skiluðu leikskýrslu og mættu seint í Víkina til þess að „...mótmæla á táknrænan hátt,“ segir á heimasíðu Blika. Víkingar unnu ungt og flott lið Blika 5-3. Blikahöfundur skrifar að „...föst leikatriði heimapilta og mistök dómaratríósins [hafi orðið] Blikaliðinu að falli ... Einn lítill Víkingur [Danijel Djuric innsk. HH] skoraði mark en hann var svo rangstæður að jafnvel rangeygðustu menn sáu það.“ Danijel einn efnilegasti leikmaður landsins uppalinn í Kópavogi hefur þroskast vel undir handleiðslu Arnars þjálfara.

VETTVANGSKÖNNUN DV

Víkingar svöruðu ekki aðfinnslunum Blika en fréttamaður DV fór í vettvangskönnun í Víkina, kveikti ljós og fann enga vonda lykt. Kári Árnason sagði í viðtali við DV að aðstaðan í Víkinni „...væri bara eins og á Laugardalsvelli; strípuð og old school.“ Af þessu tilefni má nefna að Víkingar gerðu samninga um hina farsælu uppbyggingu í Fossvogi fyrir 50 árum og vígðu Víkina árið 1991. Sjálfsagt er kominn tími til að taka næstu skref. Spyrja má hvort Blikar sætti sig við búningsklefa Ísfirðinga fari svo að Vestri fari upp í Bestu deild eða hvort Skagamenn hafi endurnýjað klefa nýlega? Bara spyr.

Óskar Hrafn Blikaþjálfari fór niðrandi orðum um Evrópuárangur Víkinga sem væri ekki sambærilegur Blika en þar er hann sjálfsagt að vísa til Evrópusigra Blika á Tre Tenne, Budoconos, Shamrock Rovers og Struga. Þegar Blikar loks mættu til leiks tók Óskar ekki í hönd Arnars Víkingsþjálfara, að sögn Stöðvar 2. Á trofullum Heimavelli hamingjunnar sáu Blikar Víkinga afhenda Ljósinu, stuðningsamtökum krabbameinssjúkra, þriggja milljón króna ávísun ágóða af góðgerðatreyju til minningar um tónlistarmanninn Svavar Pétur Eysteinsson betur þekktan Prins Póló sem féll frá í september 2022 eftir harða baráttu við krabbamein. Fjölskyldan býr í Fossvogi. Treyjan hafði selst upp á nokkrum klukkstundum áletruð Nú! er góður tími. Kóróna Prinsins er fyrir ofan Víkingsmerkið.

HARMAKVEIN AÐ ÁRI?

Blika-höfundur vitnar í Halldór Laxness: „Minn herra á aungvan vin.“ Með þremur synjunum KSÍ að fresta Víkingsleiknum hafi Blikar skapað vesen fyrir KSÍ og félög í Bestu deild og gætir biturðar í skrifum en höfundur kallar aðdraganda leiksins „farsa“ og kveður Víkinga koma sér í „...einhver kjánaleg sjálfskaparvíti“ án þess að útskýra nánar. Vandséð er hvað hann á við. Víkingur er á þröskuldi Íslandstitils og í úrslitum Bikarsins við sterkt lið KA. Að loknum 22 leikjum í Bestu eru Blikar 21 stigi á eftir Víkingi. Hinn bókvísi Bliki hefur svo í hótunum við Víkinga: „Áhugavert verð[ur] að heyra harmakveinin úr Fossvoginum þegar þeir röndóttu verða hugsanlega í sömu stöðu og við eftir ár!“ Svo mörg voru þau orð. Við lestur Blikasíðu skilst af hverju Ungmennafélagið Breiðablik hefur ekki beðist afsökunar á ummælum Óskars Blikaþjálfara fyrr í sumar þess efnis að Víkingar séu „fávitar“ og Höskuldur fyrirliði uppnefndi Víkinga „geltandi hunda“. Er Don Quixote kominn með heimilisfesti í Kópavogi?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband