Kolsvart elítu-framboð Höllu Tómasdóttur ...

Halla Tómasdóttir útsendari hins ameríska  útibús wefaranna í Davos hyggst taka húsfreyjuvald Bessastaða í skjóli kvenna elítu sem komið var á laggirnar fyrir 25 árum. Full ástæða er fyrir íslenska þjóð að átta sig á þungri undiröldu framboðs Höllu. Bakland Höllu er klíka í Samtökum kvenna í atvinnulífi sem komið var á laggirnar 1999 til þess að koma kvenfólki í stjórnir fyrirtækja með þvingunum. Kvennaklíkan klappaði ákaft og skríkti þegar Halla tilkynnti framboð sitt í Grósku enda kokteilboð á Bessastöðum í sjónmáli. Það er táknrænt að hvorki fáni né skjaldarmerki Íslands voru sjáanleg þegar framboðið var tikynnt.

 

B-TEAM AMERÍSKT ÚTIBÚ DAVOS

Halla er forstjóri B-Team útibús Davos í Ameríku.  Hún talar fyrir Great Reset; hina miklu endurræsingu sem “... við þörfnumst svo; so badly,“ að hennar sögn. Reset er valdataka hinna ríku og voldugu á Vesturlöndum. Halla Tómasdóttir talar fyrir friði en vinnur að stofnun alheimsstjórnar; “world governance“ sem stendur fyrir útþenslu stríðum Nato.  Halla talar fyrir jafnrétti en vinnur að “reset“ hinna ríku og voldugu. Halla talar fyrir sjálfbærni en hér verður málið svart. Í samráðsgátt stjórnvalda liggja fyrir drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu sem færir ráðherra óhóflegar valdheimildir til upptöku lands bænda. Í Evrópu standa yfir víðtæk mótmæli bænda og sjómanna vegna sjálfbærni-stefnu útsendara hinna ríku og voldugu til valdatöku heimsins, fólks eins og Höllu Tómasdóttur.

 

HALLA & BRANSON

Halla mælir fagurgala til þess að fela slóð sína í innsta hring wefaranna. Bretinn Richard Branson “contributor“ wefaranna í Davos stofnaði B-Team árið 2013, vinur Jeffrey Epstein líkt og margir hinna ríku og voldugu. Halla er útsendari Klaus Schwab í Davos stofnanda World Economic Forum. Íslenskt útibú wefaranna í Davos hér á landi er félagið Festa, sem vinnur að afsali fullveldis og grefur undan íslensku lýðveldi; íslenskri menningu, íslenskri tungu, íslenskri þjóð. Hinir ríku og voldugu vilja ekki  jafnrétti heldur afsal auðlinda; orku, fiskimiða  og stefna að  vindmylluvæðingu. Af hverju halda menn að ríkasti maður Englands hafi keypt jarðir á Norð-Austurlandi sem nema stærð sautján Þingvallavatna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Halla mun líkt og 2016 örugglega vera með vel smurða kosningavél
en staðan er bara allt önnur núna

Hvar og hvernig nærð þú til kjósenda í dag ?

Að ná "góðum" fréttamanni hjá RUV á sitt band er tvímælalaust kostur

Mun hún þora að segja eitthvað um hælisleitendur, Palestínu, Eurovision, Borgarlínu

Grímur Kjartansson, 18.3.2024 kl. 16:05

2 Smámynd: Agný

Hún fékk ekki mitt atkvæði síðast og Guðni ekki heldur... Þau eru í sömu jólasveina klíkunni.. 

Agný, 19.3.2024 kl. 02:31

3 identicon

Staðan er alvarleg er lítur að framtíð þjóðar ... Þetta hyski hefur alla peninga veraldar & svakalegasta þykir mér að ríkasti maður Englands Hr. Ratcliffe á sem nemur 17 Þingvallavötnnum nú þegar Gulli græni er á harðaspretti með vindmyllur sínar; Hvernig er hægt að heita Hr. Ratcliffe ...  & ríkið rænir lendum bændum. Það er sótt að þjóðinni ...

Hallur Hallsson (IP-tala skráð) 20.3.2024 kl. 09:39

4 identicon

Ekki má gleyma því að hún nýtti sér kauprettarákvæði í starfssamningi sínum við Glitni á sínum tíma og kvaddi með milljarð í vasanum.  Ekki má heldur gleymst að hún var einn æðsti stjórnandi í Viðskiptaráði sem á sínum tíma lagði til að Íslendingar tækju upp ensku sem móðurmál og henti alfarið íslenskunni á ruslahauga sögunnar ásamt því að vera helsta klappstýra útrásarvíkinganna.

Fyrir starfslokagreiðslu sína frá Glitni stofnaði hún, ásamt fleiri kvennrembum, auð í krafti kvenna, fjárfestingarsjóð, nú auður, dóttir Kviku.  Þær stærðu sig af því hafa engu tapað í hruninu. Ástæðan var einföld, þær tóku við fjármunum frá almenning og lofuðu góðri ávöxtun, rukkuð það um umsýslugjald en fjárfestu síðan eingöngu í ríkisskuldabréfum.  Eitthvað sem viðskiptavinirnir hefðu sjálfir getað gert og sparað sér umsýslugjaldið.

Þessi aurapúki á ekkert erindi í forsetaembættið.

Bjarni (IP-tala skráð) 20.3.2024 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband