Hryðjuverkamennirnir handteknir við landamæri Úkraínu ...

Sterkar vísbendingar eru um tengsl Úkraínu við hryðjuverkið skelfilega í Moskvu með vitneskju Bandaríkjanna. Hryðjuverkið hefur stigmagnað stríðið í Úkraínu. Pólski herinn í viðbragðsstöðu. Ellefu hryðjuverkamenn hafa verið handteknir; í Moskvu sjö hjálparmenn líklega frá Tzedikistan. Byssumennirnir fjórir, sem skutu 133 manns og særðu á annað hundrað, voru handteknir í Brjansk-héraði í skóginum skammt frá landamærum Úkraínu þar sem þeir hugðust “sleppa út um glugga” til felustaðar í Úkraínu. Þeir voru komnir langleiðina frá Moskvu. Bifreiðin löskuð eftir að ekið var utan í hana.

ISIS íslömsku hryðjuverkasamtökin lýstu ábyrgð á hendur sér og kváðu ódæðismennina hafa komist undan sem ekki reyndist rétt. CNN var fyrst til að birta ISIS fréttina sem fór samhljóða um allan hinn vestræna heim. Fjölmiðlar utan Vesturlanda efast um trúverðugleika yfirlýsingar ISIS. Í Mið-Austurlöndum var bent á að yfirlýsingin sé á gömlum grunni; “template” sem ekki sé lengur notaður. Times of India hefur eftir ritstjóra Rossiya Segodnyan Margaritu Simonyan að ISIS segði flóttann hafa heppnast. Yfirlýsinging hafi verið birt fyrir handtöku mannanna. Þetta afhjúpi ósannindi ISIS, CIA og vestrænna fjölmiðla. Margarita fullyrðir að hinir handteknu séu Úkraínumenn. Bent er á að ef hryðjuverkið hefði verið unnið af íslamistum, þá hefðu þeir verið með sprengjuvesti, látist sem hetjur; fórnardauða og farið til paradísar en ekki reynt að flýja eins og hérar. 

 

VIÐVÖRUN SENDIRÁÐSINS

Bandaríska sendiráðið í Moskvu birti 7. mars viðvörun til bandarískra ríkisborgara í Rússlandi þess efnis, að öfgahópar plani árás í Moskvu, þar á meðal tónleika. “US Citizens should be advised to avoid large gatherings within 48 hours…”. Fyrir nokkru fjölluðu Washington Post og New York Times um leynilegt skuggastríð CIA gegn Rússlandi með þjálfun úkraínskra flugumanna; CIA hjálpar Úkraínu á laun í stríðinu við Pútin, var fyrirsögn New York Times með mynd úr skógum Úkraínu. Victoria Nuland sagði í Washington á dögunum að Rússar ættu óvænt von á vondu; nasty surpise. Politico segir ásakanir Rússa án sannana; without evidence. Stjórnvöld í Úkraínu segja árásina verk Pútins.

 

ÍSLAND VOTTAR EKKI SAMÚÐ

RÚV flutti falsfrétt ISIS. Í samtali Boga Ágústssonar og Ólafar Ragnarsdóttur var fabúlerað að Pútin hefði framið hryðjuverkið til þess að fá “…samúð alþjóðasamfélagsins til þess að afla sér vinsælda heima fyrir...”. Enginn annar fjölmiðill nema RÚV ber snilld sem þessa á borð fyrir almenning. Svona duglegt er RÚV að innræta og sannfæra. Þau segjast rýna í allar staðreyndir! Beggja vegna Atlantshafs er hryðjuverkið fordæmt og rússnesku þjóðinni vottuð samúð. Forseti Íslands hefur ekki sent samúðarkveðjur, né forsætisráðuneytið eða utanríkisráðuneytið. Hvuttinn veifar skottinu, stríðið stigmagnast Nato-KEF orðið skýrt skotmark; Clear & Present Target.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Hallur; líka sem og þið önnur, gesta Halls !

Eru engin takmörk; fyrir dálæti þínu, á fjöldamorðingjanum

Vladimír Vladimírovich Pútin, Hallur minn ?

Hvers vegna; ættu Úkraínumenn, að leggja ofuráherzlur á,

að sprengja upp Tónlistar hallir og verzlana miðstöðvar

í stað þess að einbeita sjer fremur, að innrásarliðinu

Rússneska:: í Úkraínu sjálfri - sem og:: reyndar, með 

rjettmætum árásum á Olíubirgðastöðvar sem og önnur þau

mannvirki, sem finna má í Rússlandi:: rjettilega ?

Þú; ásamt nokkrum öðrum samlanda okkar, skautar listi

lega yfir Hallur, sívaxandi ágengni Rússa / jafnt austur

í Asíu, sem og í Evrópu:: ekki hvað sízt gagnvart gömlum

Sovjet lýðveldum (sbr. átökin í Kákasuslöndunum, t.d.).

Mega Kazakhar - Mongólar, sem og Georgíumenn ekki allt eins

eiga von á yfurgangi Pútín´s Hallur - fari sem horfir ?

Og; hvenær skyldu Rússar skila Kúril- eyjum til Japana, 

hvað þá Austur- Karelíu til Finna, t.d. Hallur ?

Stærstu mistök Úkraínumanna voru þau; að reka ekki Rússa

frá austur hjeruðunum / sem og af Krím skaga: ja líkt

og Moldóvar, að reka Rússa heim, frá Transnistríu, ekki

síður.

Rússland - Ísrael og Kína; eru lang hættulegustu ríki

heims nú um stundir, eins og öllu skynugu fólki ætti

að vera kunungt, fræðaþulur góður.

Með beztu kveðjum; engu að síður, af Suðurlandi /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.3.2024 kl. 18:34

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég veit ekki um hefðbundnar formlegar samúðarkveðjur, en á miðlinum X var þó þessa yfirlýsingu að finna:

President of Iceland@PresidentISL

Iceland strongly condemns the terrorist attacks in Moscow last night which claimed the lives of so many innocent civilians. Our thoughts are with the victims and their families, and with the people of Russia.

Og frá sendiráði Rússa barst eftirfarandi tilkynning:

Starfs­menn sendi­ráðsins segj­ast þakk­lát­ir um­hyggju­sömu sam­lönd­um sín­um og Íslend­ing­um sem sam­hryggj­ast með rúss­nesku þjóðinni og hafa boðið ein­lægt fram stuðning sinn.

Jónatan Karlsson, 25.3.2024 kl. 07:14

3 Smámynd: Hallur Hallsson

Enn er ekkert formlegt á heimasíðu forsetans sem komið hefur verið á framfæri á eðlilegum vettvangi, sendiræáð okkar lokað í Moskvu ... ekkert forsætisráðuneyti né utanríkisráðuneyti. Ríiksstjórn hervæðir alþjóðaflugvöll; Nato-Kef, kjarnorkukafbátar lóna við Helguvík & B-2 váfuglar flugu lágflug yfir Reykjavík ... Allt eins og vera ber & Nato-Kef skotmark í heimsstríði ... 

Hallur Hallsson, 25.3.2024 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband