Ef vér slítum í sundur lögin, munum vér slíta og friðinn ...

Vatnaskil urðu fyrir um þrjátíu árum þegar Vesturlönd hófu að taka upp guðlausan sið sem boðar að manneskjan komi úr myrkri þar sem ekkert er og hverfi í myrkrið að loknu lífshlaupi. Horfið var frá kristnu lífi í ljósi, kærleika, jafnrétti og upprisu. “Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið,” sagði Jesús Kristur fyrir tvö þúsund árum. Hann kvaðst varða leiðina til Drottins, skapara himins og jarðar, bauð heilagan anda. Hálfur annar áratugur er síðan kristnikennslu var hætt á Íslandi og Jesús Kristur hvarf úr kennslubókum. Nú eru börn kynvædd og limlest í nafni trans-húmanisma kennt af aðgerðasinnum. Við höfum tekið upp nýjan sið guðleysis sem hrærir saman ólíkum siðum. Vindhani settur í stað kross á Bessastaðakirkju, forseti veifar hornum Satans. Verið er að slíta í sundur lögin og friðinn. Fyrir rúmum þúsund árum mælti Þorgeir ljósvetningagoði hin fleygu orð:  “…Ef vér slítum í sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn.“

 

HNIGNUN & UPPLAUSN

Við sjáum skelfilega hnignun evrópskra og amerískra borga; glæpagengi, fátækt á götum, fólk í tjöldum, dópað fólk, mannlega hnignun, stríð í Austurvegi, Endalaus stríð í Mið-Austurlöndum, stjórnlausar innrásir hælisleitenda. Við sjáum hnignun Íslands, hnignun Reykjavíkur. Austurvöllur svívirtur, Jón Sigurðsson atyrtur, öskrað að þingmanni að fokka sér, palestínskum fánum flaggað, leigubílastríð á götum, konum nauðgað í leigubílum. Ísland hervæðist, KEF natovöllur, Helguvík athvarf kjarnorkukafbáta, B2 váfuglar voma yfir Íslandi. Bændur, sjómenn, einyrkjar, öryrkjar, aldraðir afskiptir; landbúnaður upp við vegg, fiskimið og orkulindir skulu undir Brussel. Guðlaust Alþingi hefur selt fullveldi þjóðarinnar úr landi, á leið inn í guðlaust alheimsríki í þágu hinna ofsaríku og voldugu wefara í Davos. Jafnrétti í glatkistu. Brussel er leppur fyrir Nato, hernaðararm amerískrar hermaskínu í Washington.

 

LEPPAR WEFARANNA

Festa, íslenskur leppur wefaranna með elíturáðstefnur undir merkjum Reset styrkt af flugufólki í fyrirtækjum þjóðarinnar í Landsbanka og Landsvirkjun og sendiráðum. Orð DV segir að forstjóri B-team alþjóðarisa Halla Tómasdóttir á mála hjá wefurnum í Davos og hinna illræmdu schwab hyggist bjóða sig fram til forseta Íslands. Ef áform þessa fólks ná fram að ganga hverfur íslenskt lýðveldi; menning, tunga og erindi Íslendinga við veröldina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Wefararnir eru langt komnir með að rústa vestrænum ríkjum, Ísland er þar engin undantekning þar sem wefarar hafa íslenska ráðamenn á sínu bandi. Þeim hefur tekist vel til þar sem þorri almennings sér ekki þó augu þeirra séu opin og eyru þeirra heyra ekki og hjörtu þeirra eru sljó.

Næsta skref wefaranna með whoara í broddi fylkingar verður að losa um X-veiruna út í andrúmsloftið er veldur miklum ótta og þvinga alla jarðarbúa, nema þá sjálfa að sjálfsögðu, að þiggja sprautur sem eiga að vera öruggar og áhrifaríkar. Öryggið er í því fólgið að þeir ná fram áformum sínum og áhrifin að fólki muni fækka svo um munar.

Íslenska þjóðin þarf á Guði að halda, hún þarf að snúa sér til Jesú Krist Hann er sá sem bjargar, ríkisstjórn og Alþingi getur ekki bjargað okkur, svo er víst.

Tómas Ibsen Halldórsson, 27.2.2024 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband