Kjánar stjórna Íslandi, glópar við völd í Evrópu & krimmar í Ameríku ...

Hinn nöturlegi raunveruleiki sem blasir við íslenskri þjóð er að kjánar eru við völd í Stjórnarráðinu. Enginn í valdastól hefur snefil af þekkingu á sögu mannkyns. Glópar stjórna Evrópu frá Brussel þar sem þeir stíga trylltan Hrunadans. Krimmar stýra Ameríku með petródollar í kviksyndi gjaldfalls sem markar endalok heimsvaldatíðar Vesturveldanna. Kata & Dísa hlýða húsbændum sínum, Alþingi er stýrt með tilskipunum frá Brussel; Evrópusambandinu & Nato. Hatursfrumvarp Kötu er árás á frelsi og Dísa kastar fullveldi Íslands á bálið með því að evrópskar tilskipanir verða æðri íslenskum lögum. Þeir sem tilskipanir senda í samræmi við bókun 35 sitja í Brussel. Þeir voru settir í embætti að baki luktum dyrum af nafnlausum skuggastjórnendum í kjallara Berlaymont.

 

KJÁNAR TORTÝMA ÍSLENSKRI ÞJÓÐ

Seníll Joe Biden babblandi vitleysu minnir á söguna um Neró með fiðluna þegar Róm brann. Krimminn Biden er með kolsvarta ferilskrá situr í skjóli amerískrar hermaskínu; American-Military-Complex sem rændi völdum í Washington 2020; Coup d’Etat. Nato er valdatæki glópa sem stefna að heimsyfirráðum; One-World-Government boðuð af Claus Schwab í Davos útfærð af Sameinuðu þjóðunum. Okkar kjánar hafa ekki andmælt alræðisvaldi sem til stendur að færa WHO Alþjóða heilbrigðisstofnuninni. Markmið eru skýr: Þú munt ekkert eiga og verður sæll; You’ll own nothing and be happy. Endurstilling hinna ríku; The Great Reset útrýmir þjóðríkjum, útrýmingu þjóða og þar innifalin tortýming íslenskrar þjóðar; íslenskrar menningar og tungu.

 

KENNEDY & MACGREGOR

Á dögunum ræddu Robert F. Kennedy og Douglas Macgregor ofursti um Úkraínudeiluna og aðdraganda. Kennedy er í framboði gegn Joe Biden sem forsetaefni demókrata 2024. Hann er höfundur The Real Anthony Fauci: Bill Gates, Big Pharma and the Global War on Democracy. Kennedy er bróðursonur John F. Kennedy forseta 1961-63 sem var skotinn til bana í Dallas, Texas. Robert kveður CIA á bak við morðið á frænda sínum. Faðir hans, Robert Kennedy var skotinn til bana í Los Angeles þegar hann fagnaði sigri í prófkjöri. Hann hefði orðið forsetaframbjóðandi demókrata 1968. Robert og John F. Kennedy jr. voru þremenningar. John jr. fórst með voveiflegum hætti sumarið 1999 þegar flugvél hans hrapaði undan ströndum Víngarðs Mörthu; Martha‘s Vineyard. Líkum, eiginkonu og mágkonu var varpað í Atlantshafið úr tundurspilli. John jr. naut fádæma alþýðuhylli, kallaður Krónprins Ameríku. Hann hafði komið til Íslands sumarið 1997, róið kajak um Jökulfirði. Nokkrum vikum síðar dó Díana prinsessa í voveiflegu bílslysi í París. Hún naut fádæma alþýðuhylli, kölluð Prinsessa fólkins Orðrómur var um að John jr. hygðist bjóða sig fram til  öldungadeildar fyrir New York  árið 2000. Sætið féll í skaut Hillary Clinton. Macgregor er kunnasti núlifandi skriðdrekaforingi Ameríku, gagnrýninn á Endalausar styrjaldir Pentagon. Macgregor var í Flóabardaga og á Balkanskaga. Áhugavert viðtal á Red Pill sem ég læt fylgja; Úkraína þurrkuð út. Ukraine being wiped out.

 

VALDARÁN CIA Í KÆNUGARÐI

Macgregor bendir á blóðugt valdarán CIA í Kænugarði 2014. Í kjölfarið hafi Kænugarður farið með blóðugu stríði á hendur eigin þegnum í Austur-Úkraínu; Rússum í Donbass og Luhansk. Pútin hafi tekið Krímskaga til að koma í veg fyrir að Sevastopol yrði amerísk flotastöð. Árið 1954 hafði Nikita Krústsjov „gefið“ sovétlýðveldinu skagann sem hafði verið hluti Rússlands síðan 1783. Í friðarviðræðum í Minsk í Hvíta-Rússlandi hafi Rússar fallist á að Donbass og Luhansk yrðu innan Úkraínu þar sem réttindi rússneskra íbúa væru tryggð; eigið tungumál og menning. Friðarviðræður í Minsk leiddu til Minsk I & II sem Bretar, Frakkar og Þjóðverjar gengust í ábyrgð fyrir. Fyrir liggur yfirlýsing Angelu Merkel kanslara að Vesturveldin hafi svikið Minsk I & II til að gefa Nato tíma til að byggja upp úkraínskan herafla. Það var svikalaust gert. Árið 2022 var úkraínski herinn orðinn sá öflugasti í Evrópu vestan Rússlands. Hernum hefur nú verið gereytt. Kennedy og Macgregor fullyrða að 300 þúsund Úkraníar séu fallnir síðan 24. febrúar 2022, 30 þúsund Rússar. Í Stalingrad féllu allt að 250 þúsund þýskir hermenn og 100 þúsund teknir til fanga. Zelinskiy hafi gert sömu mistök í Bakhmut 2022-23 og Hitler í Stalíngrad 1941-43; blóði úkraínskra og þýskra hermanna var fórnað í brjálæði


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það sem vantar í þessa frásögn er að skýra þann mikla misskilning sem lengi hefur ríkt á Vesturlöndum um að félagi Stalín hafi verið illmenni og gerðir hans því marki brenndar. Arftakarnir, Pútín og félagar hans í KGB hafa verið misskildir. Þeir eru að verja frelsið; með illi skal illt út .... o.s.frv. Eiturbyrlun andstæðinga hins góða hefur verið þeim ill nauðsyn. Þeim verður fyrirgefið á efsta degi.

Í rauninni eru bandalagsríkin Rússland, Íran og Norður-Kórea öll að vinna að einu göfugu markmiði, lýðum til heilla. Enginn áttar sig á þessu nema nokkrir spámenn sendir af Guði. Til allrar hamingju er einn þeirra að finna á Íslandi. Sjálfan Hall Hallsson.

Einar S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 26.5.2023 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband