BBC valdið meiri skaða en nokkur vírus: Matthew Le Tissier

Meðan fréttamenn BBC sátu í hlýjum stólum undir skærum ljósum frammi fyrir sjónvarpsvélum á sunnudag, komu þúsundir saman í kuldanum úti fyrir til samstöðufundar með þeim sem veikst hafa af covid-vaksínum og aðstandendum þeirra sem látist hafa: „Skömmin er ykkar – Shame on you,“ kyrjaði fólkið fyrir utan höfuðstöðvar BBC á Portland Place í Lundúnum. Fréttamenn BBC á lúxus launum fólksins fyrir utan hvorki sá né heyrði ákall hinna veiku og syrgjandi.

covid BBC

     Suss suss, BBC. Suss suss RÚV

Þið sjáið ekki fréttir á BBC og RÚV um fórnarlömb covid-vaksína. Jules Serkin, þáttakona BBC hlaut alvarlegan skaða af sprautu. Það opnar ekki augu BBC né lát kollega, Lísu Shaw. BBC flytur einvörðungu ríkisáróður. Jules hefur lýst þöggun sem hún mætir vegna veikinda sinna; sjúkrahúslæknir tók fyrir munn sér og sagði; sé ekkert, heyri ekkert, segi ekkert, suss suss. Syrgjandi eiginmaður Lísu tvítar en mætir ærandi þögn. BBC þaggar, lyfjarisa má ekki styggja, suss suss. Elon Musk tvítaði á föstudag: “Fékk heiftarlegar aukaverkanir af booster tvö. Hélt í nokkra daga ég væri að deyja. Vonandi ekki varanlegur skaði en veit ekki: I dunno.“ Suss suss BBC, suss suss RÚV.

covid Jane Serkin

     Suss suss, Kata

Jules og Rebekka okkar Ósk hafa myndað stuðningshópa á fésbók. Katrín Jakobsdóttir hlustar ekki á ákall þúsunda íslenskra kvenna með tíðavanda; já þúsundir eiga um sárt að binda á Íslandi, umframdauði á Íslandi hinn hæsti í Evrópu, Þórólfur Guðnason í skjóli nætur fiktar við covidtölur til þess að fela skaða, RÚV þaggar. Lyfjarisa má ekki og skal ekki styggja. Big-Pharma skal vera holdtekja vísinda, suss suss, ekki ræða. Vísindin eru hjáguð BBC og RÚV. Þannig eru vísindin misnotuð. Þið sjáið frétt um ákall fólksins  á fréttin.is sem berst í bökkum fjárhagslega meðan megin-miðlar í framvarðasveitum Ríkislögreglustjóra flytja ríkisáróður á ríkisstyrkjum. Það verður þegar ríkið byrjar að greiða bætur til sjúkra og syrgjenda vegna þess að Kata litla með lokuð augu sagði suss suss. Svona er Bretland í dag, svona er Ísland í dag. 

 

Covid hinir veiku

     Suss suss, Rishi

Meðal þeirra í kuldanum fyrir utan BBC var Matthew Le Tissier sem flutti ræðu og sagði: „BBC hefur valdið meiri skaða en nokkur manngerður vírus getur nokkurn tíma gert.“ Snillingurinn sem lék fyrir Southampton er knúinn sannleiksvitund; hugrakkur og heiðarlegur. „Þessi vaksín koma ekki í veg fyrir að þú smitist, koma ekki í veg fyrir að þú veikist, koma ekki í veg fyrir innlögn á sjúkrahús, koma ekki í veg fyrir að þú deyir. Svo hvurn fjandann gera þau? Ég skal segja ykkur það. Þau valda skaða og drepa fólk á skala sem við  höfum aldrei áður séð,“ sagði Le Tissier. Le Tissier ávarpaði hinn ofurríka forsætisráðherra Breta, Rishi Sunak en fólk í hjólastólum hafði komið saman fyrir utan Downing Stræti 10: „Rishi, þú sagðir í viðtali að ég væri æskuhetjan þín og að þú ættir frábærar minningar á Dell þar sem þú komst til að horfa á mig spila fótbolta. Jæja, ég bið þig nú um greiða. Komdu og talaðu við mig og komdu og talaðu við þá sem hafa orðið fyrir bóluefnaskaða.

Covid MuskKomdu og hlustaðu, komdu og hlustaðu á sögur þeirra og sannaðu að þú getir verið leiðtogi allra, en ekki bara yfirherra þinna í World Economic Forum,“ sagði Le Tisser. Suss suss, Rishi fyrirskipar Pfizer. Þessi grein er ekki á fésbók þar sem ég er rægður og útskúfaður af ritskoðurum í Sílikondal, Kaliforníu. Hversu galin er veröld okkar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og öryggisbelti koma ekki í veg fyrir að banaslys verði í umferðinni og geta drepið þig ef þú ekur út í sjó og nærð ekki að losa þig. Góð rök fyrir því að hætta að nota öryggisbelti, og ábyggilega hægt að finna margar sögur. Rök batna töluvert þegar ekki er verið að rýna í gögn og tölur og sögur látnar nægja. En því miður þá heimtar BBC gögn og tölur en fær bara sögur frá andstæðingum bóluefna. Sumum nægja sögur til að sannfærast og skilja ekki hvers vegna sögur sannfæra ekki alla.

Vagn (IP-tala skráð) 24.1.2023 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband