17.3.2025 | 21:21
Af Kúrsk, pínu-áfalli & Pútin á snæðingi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ráðamenn með blóð á höndum, eru samábyrgir jafnvel allt að 1.5 milljón úkraínskra hermanna sem hafa fallið á vígvöllum í Austurvegi. Harmleikur úkraínsku þjóðarinnar er hinn mesti frá lokum síðari heimstyrjaldar. Það er enn tími til þess að segja skilið við stríðsóða Evrópu. Við getum þrátt fyrir allt varðveitt arfleifð Snorra Sturlusonar [1179-1241] í Heimskringlu. Við deilum sögu með Rússum og Úkrum allt til Ása-Óðins sem bjó í Ásgarði í Ásheimi í Ásíá austan Tanakvíslar þar sem lygn streymir Don, ritaði Snorri í Heimskringlu. Austar er Volga og Asíá. Óðinn tók sér bústað við Löginn í hinu fornu Sigtúnum í Svíþjóð hinni miklu, líklega að áliðinni fjórðu öld. Slavar stofnuðu Novgorad-Rus; Hólmgarð 862 AD með víkingnum Rúrik; Hrærek sem tók við konungsdómi. Frændi hans Oleg tók ríki eftir hann og stofnaði Kievan-Rus; Garðaríki 882 AD á sama tíma og forfeður okkar námu land á Íslandi. Rússar fögnuðu þúsund ára afmæli 1862, Íslendingar fögnuðu þúsund ára landnámi 1874. Íslendingar og Slavar eiga sameiginlega fortíð. Við eigum Snorra skjaldarmerki okkar að þakka. Þjóðirnar eiga rætur í eyðimörkinni með Móse. Arfleifð Snorra Sturlusonar gaf forfeðrum okkar sérstöðu, styrk og þor til hlutleysis. Forfeður okkar neituðu að lýsa stríði á hendur öðrum þjóðum. Íslendingar stofnuðu friðarsetur á Höfða þar sem Gorbatsjov og Reagan hittust 1986. Friðarsúla John Lennon lýsir næturhiminn við Sundin.
[Slavneskir] Bræður munu berjast, og að bönum verða mun engi maður, öðrum þyrma, spáir Völuspá. Mesti sonur Íslands, Snorri Sturluson færði okkur Völuspá. Vatikanið kramdi frumkristinn norskan sið í Niðarósi þegar Osló varð höfuðsetur hins kaþólska Noregs og Skúli var drepinn þegar hann flúði eldhafið. Þá voru trúarofsóknir páfa gegn frumkristnum Katörum í Suður Frakklandi. Er frásögn Sturlungu ekki stórmerkileg ef það voru áttatíu Musterisriddarar sem riðu með Snorra alskjaldaðir á Alþingi 1217. Spyrjið: Af hverju? Snorri fór ári síðar til Noregs og Svíþjóðar. Hin mikla sagnaritun fylgdi í kjölfarið.
ÁRÁSIR Á ORTHODOX RÚSSLAND
Vatikanið gaf út tilskipun til Svía um að ráðast á orthódox Rússland á dögum Snorra en voru stöðvaðir af Alexender Nevsky prins í bardaganum við Neva-fljót 1240. Út vil ek, sagði Snorri sem var veginn í Reykholti 1241 að skipan flugumanna Hákonar gamlista í bandalagi við Gregoríus IX páfa sem sendi þýska riddara í kjölfar sænskra. Þeir voru ginntir út á Peipus-vatn þar sem nú er Eistland skammt sunnan Pétursborgar. Árið var 1242. Ísinn brast og þýsku riddararnir drukknuðu í ísköldu vatninu. Ein frægasta orrusta sögunnar. Árásir á orthodox Rússland runnu út í sandinn.
PÓLSKAR INNRÁSIR & SMÅ SVERIGE
Undir lok sextándu aldar lauk valdaferli Rúrika; Hræreka í Rússlandi. Í kölfarið fylgdi Tíðaskeið Vandræða; Times of Troubles þar sem fóru saman styrjaldir, hungurneyð og pólitísk óvissa. Þetta var á dögum pólsk-litháeska ríkisins; Commonwealth [1569-1795] eins öflugasta ríkis Evrópu á sinni tíð. Pólverjar réðust nokkrum sinnum inn í Rússland; Polish Invasions á sautjándu öld og meira að segja marseruðu til Moskvu. Romanóvar komust til valda í Rússlandi 1613 og ríktu til 1917 þegar bolsevikar rændu völdum. Norðurstríðið mikla 1700-1721 markaði ósigur Svíþjóðar sem stórveldis við Eystrasalt og meginlandi Evrópu. Svíar undir forystu Karls XII réðust inn í Rússland og stefndu til Moskvu en hröktust undan rússneska vetrinum suður á bóginn og biðu ósigur 1709 við Poltova suðaustur af Kænugarði. Svíþjóð Hin Mikla varð små Sverige.
NAPÓLEON, HITLER & BIDEN
Napóleon galt afhroð í rússneska vetrinum og yfirgaf Moskvu í ljósum logum 1812. Lenín renndi A-Úkraínu; Donbass og Luhansk inn í Sovét-Úkraínu við stofnun Sovétríkjanna. Þýskaland nazista réðst inn í Rússland 1941 og stefndi til Moskvu en skriðdrekar Hitlers frusu fastir og festust í leysingum. Orrustan um Stalíngrad tapaðist. Úkrinn Krútsjov gaf Krímskaga 1954 á fylleríi. Slavar berast nú á banaspjót í A-Úkraínu svo sem segir í Völuspá. Úkrar með vestrænum peningum og vopnum Nato gegn bræðrum sínum Rússum í A-Úkraínu. Þetta er proxy-stríð; skugga-stríð Evrópu gegn Rússlandi nú þegar guli karlinn í Ameríku krefst friðar eftir brölt Joe Biden. En, nei Evrópa skal í stríð; Friður er hættulegri en stríð, segir Mette sem kveður leikara í Kyiv hetju, sjúgandi í nös. Við Íslendingar hefðum getað talað fyrir friði fremur en stríðs-æðis Kötu litlu, Dísu reykás, Frostrósu frosta og Toggu töff undir merkjum femin-glóbalizma. Hvað er þetta með druslur og drullusokka? Við hefðum getað verið friðflytjendur og haldið arfleifð Snorra hátt hátt á lofti. Ég segi fyrir mig, við gerðum ekkert betra en halda arfleifð Snorra á lofti á óöld okkar tíðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2025 | 14:37
Af mútum & ekki-fréttum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.3.2025 | 11:08
Grænlendingar að segja Dönum upp vistinni ..
Grænlendingar hafa valið hinn borgaralega Demókratiit með 29.9% atkvæða og usa-flokkinn Naleraq með 24.5% atkvæða. Demokratiit þrefaldaði fylgi úr 9.25% og Naleraq tvöfaldaði fylgi sitt. Grænlendingar vísuðu vinstri flokkunum á dyr; Inuit með sjö þingmenn, missti 5 þingsæti og Siumut með fjögur þingsæti missti sex sæti. Lygaveitan okkar sagði að gott gengi siurvegaranna yrði góða fólkinu áfall en skoðanakannanir kváðu "bara" sex prósent vilja aðild að USA.
DANIR EGIA EKKERT ERINDI Í VESTURHEIMI
Það sem er ljóst er að Grænlendingar eru að segja Dönum upp vistinni. Grænlendingar eiga tvo kosti, báða góða fyrir okkur Íslendinga. Annars vegar að Grænland lýsi yfir sjálfstæði og hins vegar ganga í USA þannig að Íslendingar eigi landamæri með Bandaríkjunum. Hvoru tveggja myndi gerbreyta stöðu Íslands á mörkum gamla og nýja heimsins. Grænland er þegar allt kemur til alls í Vesturheimi þar sem Danir eiga ekkert erindi.
DÖNSK NÝLENDUKÚGUN
Grænlendingar hafa fengið sig fullsadda af danskri nýlendukúgun. Lykkjumálið situr í þjóðinni. Dönum fannst of margar grænlenskar unglingsstúlkur eiga börn. Lykkju var komið fyrir í fjögur þúsund og fimm hundruð unglingsstúlkum á sjöunda áratugnum. Inúitar sumsé voru of margir. Ný kvikmynd sýnir að Danir hafa grætt Dkr. 400 milljarða á námagreftri á Grænlandi á 130 árum tímabili; 1857-1987. Heimildamynd Hið hvíta gull Grænlands varpar ljósi á hvernig Danir högnuðust á greftri kríolíts nálægt Arsuuk skammt frá Hvarfi syðsta odda Grænlands. Í íslenskum krónum eru þetta IsKr. 7.900.000.000.000.-, sjöþúsund&níuhundruð milljarðar.
Múte Egede með danskar rætur sínar galt afhroð í kosningunum. Múte er afkomandi trúboðans Hans P. Egede [1686-1758) sem vakti áhuga Dana á Grænlandi 300 árum eftir landnemarnir okkar höfðu horfið af spjöldum sögunnar. Múte hitti Mette eftir uppljóstranirnar. Það þarf nákvæma útreikninga [þjófnaðinn] í ljósi verðbólguþróunar, segir lygaveitan okkar. Já, og kostnað. Mette hefur sjálfsagt rætt við Múte um helsta hugaðarsefni sitt: Friður er hættulegri en stríð.
Bloggar | Breytt 14.3.2025 kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2025 | 11:55
Af harðstjórn í Rúmeníu & alræðisstjórn Evrópu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2025 | 20:13
Ósigur blasir við Úkraínu í Kúrsk í Rússlandi ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.3.2025 | 17:29
Ný forysta Sjálfstæðismanna á tímum breytinga ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.3.2025 | 04:17
Úkraína Zelinskys er lögregluríki fjármagnað af USaid
Úkraína Zelinsky er lögregluríki; Police State. Zelinsky er einræðisherra. Þjóðin vill ekki stríð. Í Úkraínu er friður glæpur. USaid varði 30.6 milljörðum dollara í Úkraínu árin 2021-2024 sem var fimmti hver dollar á erlendri grund. Fjögur þúsund og þrjú hundruð milljarðar; IsKr. 4.300.000.000.000. Úkraína var leppríki Biden-stjórnarinnar til þess að koma á lögregluríki í Úkraínu.
Þrjótar Zelinsky fara um landið, elta uppi og sjanghæja unga menn í herinn, líkt og JD Vance benti á í Oval Office. Tólf pólitískir flokkar hafa verið bannaðir í Úkraínu. Slavneski flokkurinn; Slavic Party bannaður fyrir fjórum mánuðum. Bandaríski blaðamaðurinn Gonzalo Lira [1968-2024] fangelsaður lést af illri meðferð í Kharkiv. Biden-stjórnin hreyfði hvorki legg né lið. Mótmæli í Úkraínu eru bönnuð. Hundruð blaðamanna, bloggara og stórnmálamanna hafa verið handteknir. Sjónvarpstöðvar eru undir stjórn Zelinsky; sem minnir á Ísland, 99% bloggara á mála Kyiv, skrifar hinn landflótta ljósmyndari Myroslav Olesko. Hann birti mynd af ungum manni með mótmælaspjald: Stríð réttlætir ekki einræði. Drengurinn var handtekinn varpað í fangelsi. Landflótta andófsmenn eru ofsóttir, þingmaður Oleksandr Dubinsky handtekinn fyrir að styðja Trump. Nú er að upplýsast að Bucha-stríðsglæpir Rússa voru sviðsettir af MI-6 bresku og úkraínsku SBU leyniþjónustunum. Við fylgjumst með.
TRÚAROFSÓKNIR Í ÚKRAÍNU
Zelinsky í græna T-bolnum stefnir á útrýmingu Úkraínsku Orthódox Kirkjunnar; Ukranian Orthodox Church UOC sem á meir en þúsund ára vegferð með úkraínsku þjóðinni. Löggjöf nr. 3894/2024 í úkraínska þinginu, Verkhovna Rada færðu stjórnvöldum vald til að ofsækja Orthódox kirkjuna og takmarka rétt fólks til trúartilbeiðslu, prestar eru ofsóttir. Þrjótar Zelinsky hafa tekið yfir um 1500 orthódox kirkjur og fært í hendur nýrrar ríkistrúar, fjármögnuð af USaid stýrt af Mike Pompeo og Victoriu Nuland. Meðan fólkið í landinu fyllir gömlu Orthódox kirkjurnar, standa hinar haldlögðu tómar.
Alþjóðlegt lögfræðifirma í Washington DC og Lundúnum; Amsterdam and partners, stofnandi Robert Amsterdam hefur tekið að sér málsvörn fyrir UOC og ofsótta prestsins Vadym Novynskyi. Amsterdam segir í viðtölum við Tucker Carlson að Úkraína sé Police State. Úkraína hafi varið 3.6 milljón dollurum til þess að rægja hann í Washington. Í Úkraínu sé friður glæpur; Peace is Crime. Amsterdam lýsir því hvernig kirkjur hinnar nýju ríkistrúar standa tómar meðan orthódox-kirkjur séu fullar út ýr dyrum. Amsterdam er enginn Pútin aðdáandi. Hann segir frá heimsókn lögreglu árið 2005 á hótel hans klukkan eitt að nóttu, skipað að hafa sig úr landi innan 24 stunda þegar Pútin tókst á við oligarkana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2025 | 21:54
Tilfinningaóreiða er ógn við þjóðaröryggi ...
Aldrei á lýðveldistíma höfum við haft jafn vanhæfa leiðtoga. Það er verið draga Ísland inn í ESB á tímum styrjaldar við Rússa. Það er verið að rústa samskiptum við Bandaríkin. Öryggi Íslands með varnarsamning við Bandaríkin er stefnt í tvísýnu. Ísland í stríð við Rússland langfjölmennustu þjóð Evrópu. Ísland ein þjóða skellti í lás sendiráði í Moskvu. Út við ysta haf fjarri átakasvæðum eru Frostrós frosta, Togga töff og Dísa reykás með lokuð augu, snortnar tiilfinningaóreiðu. Þær eru hrein ógn við þjóðaröryggi; íslenska þjóðarhagsmuni og hegningarlöggjöfin tekur á því. Þetta endar illa, nema fókið í landinu grípi í taumana.
SPECTATOR: TRUMP EINA VON ÚKRAÍNU
Fyrirsögn í hinu virta Spectator: Trump ekki Zelinsky er eina von Úkraínu. Zelinsky vill stríð, Evrópa vill stríð. Bandaríkin velja frið, hafna stríði og vilja viðskipti. Þeir vilja opna Nordstream til að bjarga orkusnauðu Þýskalandi, ef marka má fréttir og draga herafla frá ströndum Kína. Úkraínskur almenningur er miður sín eftir að hafa fylgst með klúðri Zelinsky í Hvíta húsinu á föstudag. Það átti að undirrita samvinnu um nýtingu Rare Earth; sjaldgæfra frumefna. Mynda efnahagsbelti þar sem bandarísk fyrirtæki áttu að vinna með heimamönnum; 50-70 kílómetra öryggisbelti. Því klúðraði Zelinsky. Bandaríkin munu ekki senda hermenn til Úkraínu; US Boots on the Ground. Það verður ekki stríð meðan guli karlinn er í Hvíta Húsinu. En nei utanríkiskómizar ESB segir: "...hinn frjálsi heimur þarf nýjan leiðtoga. Þessar konur eru veruleikafirrtar.
BRESKIR HERMENN TIL ÚKRAÍNU
Keir Stromer greip tækifærið með fundi litla fólksins i Lundúnum þar sem Mette Frederiksen var fulltrúi Íslands. Friður er hættulegra en stríð. Þetta er ekki hægt að skálda. Keir Starmer ætlar að senda 25.000 hermenn til Úkraínu;UK Boots on the Ground and planes in the air. Stormer 008; License to Bore er sagt um garminn fyrirlitinn af bresku alþýðufólki. Hann gerði 100 ára leynisamning í Kænugarði, þar á meðal Rare Earth að er sagt en breska ljónið er pappírstígur. Bretar verða að fá bandarískt Security Guarantee. Þannig á að lokka Ameríku í heimstyrjöld; WW III með nýjum Biden.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)