10.6.2024 | 21:50
Krafan var að banna ferðir mínar í sjö póstnúmerum um aldur & ævi
Eva Bryndís Helgadóttir hjá LMG lögmönnum krafðist yfir mér “ótímabundins nálgunarbanns”. Það átti að þagga mig sem persónu og blaðamann, banna ferðir í sex póstnúmerum í Reykjavík & einu póstnúmeri í Garðabæ; samtals sjö póstnúmerum meðan ég skrimti. Ég var sakaður um “umsáturs-einelti“ á hendur fimm hjónum vegna fósturvísamálsins. Ég var sakaður um umsátur í samtals sjö póstnúmerum í Reykjavík og Garðabæ búandi á Akureyri! Þetta er ekki hægt að skálda. Það liggur fyrir að nítján fósturvísum hjónanna Gunnars Árnasonar og Hlédísar Sveinsdótuir var stolið. Lög voru brotin. Eva er verjandi fimm hjóna sem rökstuddur grunur er að tengist fósturvísunum. LMG hefur spunnið lygavefinn um fósturvísana. Í febrúar 2022 áttu hjónin fund með Snorra Einarssyni forstjóra Livio Rvk. Í apríl 2022 hóf LMG að gæta hagsmuna Livio Rvk, Livio AB í Svíþjóð og í framhaldi af því hjónin fimm! Ein lögmannstofa fyrir hina sakbitnu! LMG er miðvörður í vörn Art Medica og Livio. Í maí 2022 hófust ofsóknir Landspítalans og ári síðar offors lögreglu. Fyrir liggja falsaðar sjúkraskrár Landspítala og hylming Persónuverndar um lygavef spítalans fyrir hönd 44 lækna sem frömdu innbrot í sjúkraskrár, hylmingar þriggja saksóknarembætta og lögregluofbeldi. Þetta verður ekki skáldað.
EKKI LÖGMENNSKA – ÓMENNSKA ...
Eva Bryndís fékk lögreglu til að stimpla mig sakborning, senda lögreglumenn norður til að yfirheyra mig. Krafist var “ótímabundis ferðabanns“ yfir mér. Það lýsir ofsa og skorti á dómgreind. Þetta er ekki lögmennska, það er ómennska. Það er alvarlegt mál og ég hlýt að leita réttar fyrir dómstólum. Ber að svipta konuna lögmannsréttindum? Á fimm mínútum hefði mátt leiða sannleika máls í ljós með einfaldri dna-rannsókn og málið dautt. En ekki Eva, nei aldeilis ekki Eva, aldeilis ekki LMG. Ausum karlinn aur og rægjum hjónin. Hvers lags lögmannsstofa tekur að sér svona skítamix.
HIÐ MAKALAUSA VINSTRA MIX
Eva slitadrottning Byrs sparisjóðs færði eiginmanni sínum í Arctic Finance 55 milljarða þrotabú Byrs til að selja. Samstarfsmaður Ástráður Haraldsson nú ríkissáttasemjari var meðal stofnenda Arctic Finance, fékk 248 milljónir afskrifaðar af þrotabúi Glitnis 2011, barnsfaðir Svandísar Svavadóttur sonur þeirra inn í LMG. Dagur B. Eggertsson meðreiðarsveinn í fósturvísamálinu og náinn vinur, gerði Evu að oddvita kjörstjórnar í Reykjavík. Hvað segir það okkur?
Steingrímur J. Sigfússon var í fjármálaráðuneytinu þegar LMG lögmannsstofa Vinstri grænna fékk “hinn feita Byr bita“ 2010 sem kom hjónunum á græna grein um aldur og ævi. Arctic Finance er í turninum mikla við Höfðatorg og LMG er til húsa í Garðastræti 37 tæplega 700 m² 16 herbergja höll þar sem fjármálafyrirtækið Gamma var á síðasta áratug, þar áður Fíton og eitt sinn Síldarútvegsnefnd. Gerspilltir okkar tíðar maka krók og hreiðra um sig í glæsihöllum en drunur drynja svo 101 Reykjavík nötrar ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2024 | 21:29
Ráðherra talar sem vélbyssa fyrir stigmögnun stríðsins ...
Vesturlönd standa frammi fyrir ósigri í stríðinu í Úkraínu. Nato svarar með plani B sem er að bein þátttaka í stríðinu svo sem kort sýna og áréttar hversu langt austur Washington, Nato og Brussel eru komin í útþenslu sinni. Bandarískar hersveitir verða sendar eftir fimm leiðum austur á bóginn; “corridors“ eftir endilangri Evrópu. Hinn seníli Joe Biden hefur gefið Úkrum leyfi til árása á Rússland með amerískum eldflaugum sem er mikil stigmögnun og þýðir beina aðild Nato. Árásir hafa staðið yfir á Belgorod í Rússlandi skammt frá Kharkiv og dróni fór svo langt sem 1600 kílómetra inn í Rússland á dögunum. Margir spyrja hvort Heimstyrjöldin þriðja sé hafin. Alexander Mercouris á Duran telur að Úkraínustríðið mestu mistök Vesturlanda síðan Versaille-nauðungarsamninginn; Versaille Treaty í lok Fyrri heimstyrjaldar sem leiddi til Heimstyrjaldar síðari.
VALDARÁN CIA Í KÆNUGARÐI
Eftir valdarán CIA í Úkraínu 2014 mögnuðust fasískar þjóðernisofsóknir Kænugarðs á hendur Rússum í Donbass í A-Úkraínu og Ungverjum í V-Úkraínu; bannað að tala tungumál sitt. Rússar á Krímskaga gengu í rússneska lýðveldið. Stjórnvöld í Kænugarði hófu stríð á hendur rússnesku fólki í Donbass 2014. Rússar svöruðu með innrás í Úkraínu árið 2022. Friður var saminn í apríl 2022 en Boris Johnson stöðvaði friðarferlið. Friðarsamningar kenndir við Minsk 2014-15 voru brotnir. Í febrúar 2023 sagði Angela Merkel samningana til að vinna tíma til að vopnavæða Úkra. Hér eru sömu glóbalistar á ferð sem eru að taka yfir auðlindir Íslands, alveg eins og Blackrock og Big-Pharma í Úkraínu. Þeir áforma að búta Rússland í sundur og lama, sagan rímar.
MALAR EINS & VÉLBYSSA
Við erum með utanríkisráðherra sem talar eins og vélbyssa fyrir stigmögnun stríðsins sendandi vopn sem gera það eitt að verkum að fleiri Úkrar og Rússar deyja. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir finnst sjálfsagt að útiloka Rússa frá friðarviðræðum. Dísa Reykás harmar að Kænugarður hafi ekki kjarnorkuvopn. Konan malaði vitleysu á yfirsnúningi á Bylgjunni fyrir helgi. Dísa Reykás gerir ekkert með hættu sem steðjar að íslenskri þjóð. Það hefur eitthvað hent konuna. Jóhanna Vilhjálmsdóttir gerði vel að spyrja gagnrýninna spurninga á Bylgjunni.
VATIKANIÐ & VÍG SNORRA STURLUSONAR
Ég hef sagt og segi enn að framganga Ríkisstjórnar Íslands og Alþingis eru svik við arfleifð Snorra Sturlusonar, sem árið 1241 var drepinn af útsendurum Hákonar gamla í bandalagi við Vatikanið sem kramdi Ísland og Noreg. Á sama tíma gaf Vatikanið út tilskipun til Svía um árásir á orthódox Rússland sem var hrundið í orrustunni á ísnum 1242; Peipusvatn suður af Pétursborg. Pétur mikli sigraði Svía í orrustunni við Poltova skammt frá Kænugarði árið 1709. Er hægt að skálda þetta? Svo mætti Napoleón í Moskvu 1812 og Hitler knúði dyra 1941. Nú árið 2024 knýr Biden dyra með stríði á hendur Rússlandi. Biden faldi ekki fasískar rætur sínar í hatursræðu í sjálfri Fíladelfíu 2022. Tími fyrir þjóð mína að vakna? Íslenskir ráðamenn eru óupplýstir kjánar, hef ég rétt fyrir mér ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.6.2024 | 12:23
Þjóðfélagið snýst um að hylma yfir lygar lækna ...
Á minni tíð á Dagblaðinu, Morgunblaðinu, Sjónvarpinu og Stöð 2 um 20 ára skeið átti ég afburða samstarf við lögreglu- og lögmenn vítt og breitt um landið. Vegna einstakra tengsla og sambanda sem reist voru á trausti og trúnaði, fékk Ingvi Hrafn Jónsson mig á Sjónvarpið 1986 og Páll Magnússon síðar á Stöð 2. Þá voru miklir umbrotatímar á Íslandi. Við breyttum sjónvarpsfréttum. Ég var í fremstu víglínu frétta minnar tíðar heima í stofum fólks. Það brá mörgum lögreglu- og lögmönnum þegar ég varð sakborningur kærður fyrir “umsátur” héðan frá Akureyri. Fámenn klíka hefur farið offari í lögreglu- og dómskerfinu á hendur hjónunum Gunnari Árnasyni og Hlédísi Sveinsdóttur.
Þegar lögreglumenn komu norður til Akureyrar og yfirheyrðu mig 16. maí lýsti ég ástæðum þess sem ég hafði skrifað um fósturvísamálið. Á árunum 2008-2010 heimti Art Medica 50 egg, út frá þeim urðu til 29 fósturvísar. Tíu notaðir af Hlédísi, eftir stóðu 19 frystir fósturvísar sem hjónin höfðu ekki vitneskju um á annan áratug. Staðfest er að Art Medica hélt eftir fósturvísum þeirra hjóna sem var stolið. Rökstuddur grunur er um að líf-börn hjónanna séu nú stálpuð. Hjónin hafa leitað samstarfs um að upplýsa málið með einfaldri dna-rannsókn. Þau hafa sætt fádæma ofbeldi klíku sem hefur misbeitt löggæslu landsins.
ÓTÍMABUNDIÐ NÁLGUNARBANN!
Nálgunarbanni var skellt á hjónin í fyrra þar sem hin gerspillta Eva Bryndís Helgadóttir hjá LMG lögmönnum hefur stillt strengi. Hún krafðist “ótímabundins nálgunarbanns” yfir mér og hjónunum. Það átti að þagga mig og hefta ferðafrelsi blaðamanns um aldur og ævi fyrir upplogið umsátur frá Akureyri. Þetta er ekki hægt að skálda. Fyrir liggur rökstuddur grunur um misferli Art Medica, falsanir og ofstopi Landspítala, hylming Landlæknis, Persónuverndar, þriggja saksóknarembætta og lögregluofbeldi. Rökstuddar grunsemdir hjónanna hefði mátt afsanna á fimm mínútum með einfaldri dna-rannsókn og málið dautt. Ó, nei.
Nú vonandi er þessum fasa lokið að lögregla láti misnota sig. Rannsókn á hendur mér og hjónunum hefur verið hætt. Það eru tímamót þó klíkan muni ekki láta staðar numið. Landspítalinn falsar, blekkir og öskrar eins og ljón. Hjónin eru “…ógn við valdstjórnina.” Þetta er sturlun. Læknamafían herðir róður. Mér blandast ekki hugur um það. Gervifrjóvgun er stórbísniss. Fósturvísir mun seldur yfir tuttugu milljónir á markaði í Evrópu. Hér fer Golíat gegn Davíð.
SJÁLFUR SÆTTI ÉG ÁRÁS LÆKNA
Fyrir tæpum átta árum sætti ég sjálfur árás lækna í líkama minn þegar þeir söguðu af viðbeini mínu að mér forspurðum. Það voru svívirðileg svik manna sem ég hafði treyst fyrir heilsu minni. Ég hafði brjóst-, kinnbeinsbrotnað svo og rætur framtanna í hjólaslysi 13 ára drengur og þeir söguðu af viðbeini mínu rúmum fimmtíu árum síðar. Þetta er ekki hægt að skálda. Meginsin axlar slitnaði frá festum og rifnaði. Undirliggjandi er afsagað viðbein; gat í líkama mínum. Enn eru erfiðir tímar. “Þið hafið opnað mitt Pandórubox,” sagði ég við lækninn. Hann hristi hausinn, laug öllu og fékk aðra til að ljúga, hylma og ég var rægður. Faðir minn og afi létust fáum dögum eftir magaaðgerðir. Sem syni hsím var mér neitað um krufningskýrslu. Læknar eru ábyrgðarlausir starfandi í myrkrinu.
Landspítalinn hagar sér með sama hætti í fósturvísamálinu. Eurostat hefur birt tölur sem sýna að frá því mRNA sprautun hófst vegna covid er umframdauði í Evrópu mestur á Íslandi: “… fjöldi Íslendinga mætir ótímabærum dauðdaga í mánuði hverjum,” skrifar Þorgeir Eyjólfsson á Heildarmyndina. Aldur þjóðar lækkar. Læknar fremja siðlausar aðgerðir á börnum; aflima drengi, fjarlægja móðurlíf stúlkna og fylla börn hormónablokkerandi ólyfjan. Þetta er ekki hægt að skálda. Við missum frelsi og heilsu nema læknar sæti ábyrgð og kemízkum lyfjarisum skellt í lás. Þjóðfélagið meira og minna snýst um að hylma yfir lygar lækna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2024 | 09:22
Lögreglan fellir niður rannsókn vegna "fósturvísamáls" ... kröfu um nálgunarbann vísað frá
LRH lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur hætt sakamálarannsókn 007-2024-19975 á hendur mér sem og hjónunum Gunnari Árnasyni og Hlédísi Sveinsdóttur 007-2023-33528 með bréfi fimmtudag 30. maí sl. undirritað af Kristmundi Stefáni Einarssyni aðstoðarsaksóknara. “...Að virtum gögnum málsins er það mat lögreglustjóra að umfjöllun blaðamanns, Halls Hallssonar, verði ekki heimfærð undir refsiákvæði almennra hegningarlaga sem sæta kunna opinberri meðferð.“ Það verður að hrósa embættinu fyrir að afgreiða málið rösklega, lögreglumönnum sem að komu svo og saksóknara.
Mér bárust tíðindin síðdegis í gær, 1. júní. Tíðindin eru góð fyrir blaðamenn yfir höfuð en ég hafði verið kærður fyrir skrif mín fyrir brot á 232. grein hegningarlaga 19/1940, svokallað “umsáturs-einelti“, einnig 228. og 233. greinar. Málatilbúnaður á hendur blaðamanni um einelti hafði hneykslað marga lögmenn. Lögreglan hefur sem sagt hætt rannsókn. Lögreglan í Hafnarfirði hafði hringt í mig á afmælisdag minn 8. maí og boðað til yfirheyrslna, fimm dögum áður en Eva Bryndís Helgadóttir LMG lögmönnum hafði undirritað kæruna, þann 13. maí. Hver sá kæru Evu Bryndísar fram í tímann? Var það sviðsstjóri ákærusviðs, María Káradóttir með sín nánu sambönd ... Þetta er ekki hægt að skálda.
NÝR SKILNINGUR LÖGREGLU
Tveir lögreglumenn komu norður og yfirheyrðu mig 16. maí, Stefanía Pálsdóttir og Grímur Thor Bollason Thoroddsen sem sýndu kurteisi á allan hátt. Ég útskýrði ástæður og forsendur fyrir skrifum mínum um “fósturvísamálið“. Þessi kjarni málsins kemur nú fram í fyrsta skipti hjá lögreglu. Gunnar Árnason og Hlédís Sveinsdóttir hafi með bréfum til kærenda óskað eftir eftir því að “... börn kærenda gangist undir erfðafræðilega rannsókn. Kærðu [Hjónin] hafa haldið því fram að fósturvísum þeirra hafi verið stolið og notaðir í heimildarleysi af öðrum.“ Þessi afstaða lögreglu markar þáttaskil í málinu og er væntanlega sem kjaftshögg á Evu Bryndísi Helgadóttur hjá LMG lögmönnum og hjónin fimm sem kærðu mig. Hin ofurvirka Eve Bryndís er jafnframt lögmaður Livio í Svíþjóð. Atlagan gegn mér sem blaðamanni hefur vakið mikla athygli meðal lögmanna. Ég var með lögreglu- og dómsmál á Mogganum. Ég breytti sjónvarpsfréttum Sjónvarps 1986 og síðar Stöðvar 2 þegar ég átti einstakt samstarf við lögreglu- og dómsyfirvöld og naut mikils trausts.
ART MEDICA/LIVIO RVK Á RADAR LÖGREGLU
Art Medica er nú Livio Reykjavík í eigu Livio AB út frá Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi, Livio AB í eigu evrópska risans GeneralLive í eigu Kohlberg Kravis Roberts á Wall Street “eitt af fimm topp hlutabréfafirmum heims; one of top five equity firms globally.“ Art Medica er á radar lögreglu. Þetta hlýtur að valda skjálfta á Wall Street sem víða um heim, alþjóða fjölmiðlar skoða og spyrjast fyrir grein mína; Nítján fósturvísum stolið og sett í móðurlíf kvenna-elítu og staðgöngumæðra; Nineteen embryos stolen to the advantage of elite-women involving surrogates. Kári Stefánsson Íslenskri erfðagreiningu í eigu Amgen eins stærsta lyfjarisa heims. Björgólfur Thor Björgólfsson fyrstur Íslendinga á lista Forbes yfir ríkustu menn heims. Sigurður Gísli Pálmason Ikea á Íslandi. Svo eru auðvitað Katrín Jakobsdóttir, Dagur B. Eggertsson og Davíð Oddsson.
OPINBER RANNSÓKN FARI FRAM
Það hefur skapast forsenda fyrir opinberri rannsókn á “ fósturvísamálinu“ sem raunar verður að fara fram. Ríkissaksóknari getur fyrirskipað slíka rannsókn. Hins vegar er framganga Landspítalans ekkert minna en kolsvört, ofsóknir á hendur hjónunum sem sökuð eru um “...brot gegn valdstjórninni“. Landspítalinn falsaði sjúkraskrár 2016. Sú fölsun var afhjúpuð af uppljóstrara í október 2020 þegar sjúkraskrár 2012-2020 bárust hjónunum og í ljós komu á fjórða þúsund innbrot. Enn þann dag í dag heldur Landspítalinn leyndum sjúkraskrám 2008-2011 þvert á lög. Sjúkraskrár eru í eigu fólks. Þvert á lög gaf Landspítalinn út nokkurs konar tilskipun til Persónuverndar um að “sýkna“ 44 lækna fyrir á fjórða þúsund innbrot í sjúkraskrár Hlédísar Sveinsdóttur. Læknar sem höfðu aldrei heimild til að fara inn í sjúkraskrár. Það voru skýlaus brot á persónuverndarlögum. Jafnframt synjaði Persónuvernd börnum um vitneskju um uppruna sinn. Viku eftir að Umboðsmaður Alþingis hóf að grennslast fyrir um ákvörðun Persónuverndar fór Helga Þórisdóttir í forsetaframboð og gaf þjóðinni fingurinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.5.2024 | 09:36
Hvað er þetta með konur & sannleika ...
Já, hvað er þetta með konur og sannleika? Þær stöllur Halla Tóm, Halla Hrun & Nato Kata eru jafnan blankar þegar kemur að því að umgangast sannleika. Þeim virðist ómögulegt að segja satt. Á #forseti24 Stöð 2 voru frambjóðendur spurðir hvort þeir ættu hlutabréf. “‘Ég á ekki beint en í einhverju félagi sem á hlutabréf aðallega óskráðum,“ sagði Halla Tóm nervös og Halla Hrun sagði: „Ég á ekki hlutabréf nema þegar ég var krakki. Getur verið í SS ... fimm þúsund gamlar, þegar ég lagði inn lömbin á haustin.“ Svo brosti hún saklaus. Og Kato Jak sagði frá sínu tíu þúsund króna hlutabréfi í húsi Samtaka herstöðvarandstæðinga, geiflaði sig, baðaði öngum og fór tala um frið!!! Hún minntist á friðarsetrið á Höfða! Kata geiflaði sig, baðaði enn meir öngum fullviss um að þjóðin sé búin að gleyma byssukúlunum sem ríkisstjórn Nato Kötu sendir í stríðsrekstrur. Upplýst er að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur braut Stjórnarskrána. Stöllurnar treysta að þjóðin sé gleymin.
SUNNUNES HÖLLU TÓMU
Viðskiptablaðið hefur sagt okkur frá Sunnunesi ehf. sem Halla Tóm á 50% hlut í. Félagið hagnaðist 53.9 milljónir og átti 240 milljóna eigið fé í árslok 2022. Halla er stjórnarformaður en kveður “...aðkomu að rekstri enga.“ Hún – stjórnarformaðurinn sumsé er alveg tóm þegar kemur að milljónafélaginu. Hún fékk í sinn hlut 200 milljónir af sölu félaga til Símans. “Ég á ekki beint,“ sagði hún og brosti svo fegin þegar orðið var tekið af henni.
ÁLFHEIMAR HÖLLU HRUN
Halla Hrun er heldur ekki á flæðiskeri stödd. Á móti Kristjáni Frey bónda sínum á Halla Hrun 50% hlut í Álfheimum ehf. sem hagnaðist um 43.3 milljónir og átti eigið fé 59 milljónir króna í árslok 2022. Álfheimar eiga í 50Skills. Halla Hrun ætlar að leita að gamla bréfinu í SS, athuga þetta með bréfin og fór að tala um gildi atvinnulífs.
Hvað er þetta með konur & sannleika ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.5.2024 | 10:04
Hver telur Ísland lýðræðisríki ...
Hver telur Ísland lýðræðisríki ... Já eða Nei.
Okkur er sagt að 25 þúsund utankjörfundaratkvæði séu í húsi. Okkur er sagt að verið sé að “rannsaka og forvinna atkvæði.“ Það sé hvorki meira né minna en 700 manna teymi sem "...er skipulagt eins og her. Þetta er fallegt,“ segir Eva Bryndís Helgadóttir oddviti kjörstjórnar. Eva Bryndís LMG lögmönnum, spillltasti lögmaður landsins er oddviti til að forvinna atkvæði. Þetta er ekki hægt að skálda. Á árum áður voru kjörkassar utankjörfundaratkvæða opnaðir síðast af öllum. Nú er allt undir kontról hjá elítunni og atkvæði “rannsóknar og forunnin“ af innvígðum og innmúruðum hersveitum ráðhússins.
EVA HLIÐVÖRÐUR
Eva Bryndís Helgadóttir hjá LMG lögmönnum er hliðvörður Vg, sérstakur hliðvörður Katrínar Jakobsdóttur í “Fósturvísamálinu.“ Eva Bryndís sér um að rógbera, ofsækja og siga ákæruvaldi LRH, Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu, á hjónin Gunnar Árnason og Hlédísi Sveinsdóttur. Hún sér um að koma í veg fyrir að óbreyttir borgarar nái fram réttlæti og um tugur barna fái þekkt uppruna sinn. Eva Bryndís er á bak við kærur á hendur mér, Halli Hallssyni. Lögreglan í Hafnarfirði sendi sveit norður yfir heiðar til þess að yfirheyra karlinn sem sakaður er um hegningarlagabrot fyrir “umsáturs-einelti“. Lagagrein þessari er beitt í fyrsta sinn gegn íslenskum blaðamanni, líklega vestrænum blaðamanni. Mér er neitað um málsgögn. Sakarefni er á bak við luktar dyr. Um málið er ofinn leyndarhjúpur.
THORODDSEN & THORODDSEN
Virðulegt ættarnafn lögreglumanns var gert að leyndarmáli við yfirheyrslu. Grímur Thor Bollason er Thoroddsen í þjóðskrá náfrændi Katrínu Jakobsdóttur Thoroddsen. Svona vinnur kerfið. Eva Bryndís var kölluð “slitadrottningin“ eftir Hrun, fékk eiginmann sinn í Arctica Finance til að selja þrotabú Byrs sem eitt sinn voru sparisjóðir vélstjóra, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Norðlendinga. Eva Bryndís kann til verka. Hún skellti Byr á koddann.
GALLUP HLAUPATÍK
Gallup mælir Kötu Jakobs, Höllu Hrund og Höllu Tómasar nánast saman á marklínu. Stjórnarformaður Gallup er kosningastjóri Katrínar Jakobsdóttur, Huginn Freyr Þorsteinsson var áður hlaupastrákur Steingríms J. Sigfússonar. Þetta finnst Katrínu bara í lagi. Allt undir kontról hjá elítunni. Gallup og fjölmiðlarnir stilla strengina. Okkur er sagt að Ísland sé svo fullkomið að ekki þurfi kosningaeftirlit Samvinnu- & öryggisstofnunar Evrópu.
Þegar kemur að sannindum eru þær elítustöllur fjarri lagi. Katrín hefði “...sjálf stutt að hafa engin tímamörk...“ á fóstureyðingu fullburða barns. Það sjokkeraði þjóðina. Það féllu 200 milljónir króna ofan á himnum á Höllu Tóma í félag hennar Sunnunes „sem Jón stýrði.“ Hún hafði enga aðkomu að því upplýsti Viðskiptablaðið. Halla Hrund rak sjálfstæða utanríkisstefnu þegar hún færði argentínskum ráðherra bréf Arctic Circle Assembly. Það styggði utanríkisráðuneytið. Halla Hrund gat ekki sagt satt og rétt frá, fremur en um samskiptastýru sína sem stóð fyrir hertöku Austurvallar. Svona er sjöunda valdaár Katrínar Jakobsdóttur ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.5.2024 | 10:11
Í betri stofunni með Þórhildi Sunnu ...
Í Kastljósi fjallaði pírínan Þórhildur Sunna Ævarsdóttir formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins um ofsóknir bandarískra stjórnvalda gegn blaðamanninum Julian Assange. Hún heimsótti Assange í Belmarsh fangelsi í Lundúnum á dögunum. Assange er sakaður um njósnir fyrir að afhjúpa bandaríska stríðsglæpi. Assange stundaði blaðamennsku af fádæma hugrekki. Um þetta erum við flest sammála og tökum til varna fyrir Assange. “Það er auðvitað verulegt áhyggjuefni þegar ríki eins og Bandaríkin seilast það langt til að fá mann framseldan til Bandaríkjanna fyrir að uppljóstra um glæpi þeirra,“ sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sem fór í betri stofuna í Kastljósi og lét ljós sitt skína innvígð og innmúruð. Hún kveðst vera að vinna skýrslu fyrir Evrópuráðið. Píratar og Evrópuráðið standa með blaðamennsku, bara ekki á Íslandi ef ég skil Tótu pírínu rétt.
MANNRÉTTINDI & TÓTA PÍRÍNA
Ég hef fjallað um hið alvarlega „fósturvísamál“. Lögreglan í Hafnarfirði sendi sveit norður yfir heiðar til þess að hrella karlinn sem grunaður er um hegningarlagabrot fyrir “umsáturs-einelti“ sem er lagagrein beitt í fyrsta sinn á Íslandi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu LRH neitar að afhenda lögmanni mínum Skúla Sveinssyni málsgögn um sakarefni. Um kæruefni er ofinn leyndarhjúpur. Virðulegt ættarnafn lögreglumannsins var leyndarmál en í ljós kom að hann er Thoroddsen náfrændi Kötu-litlu Thoroddsen. Þetta er ekki hægt að skálda. Þegar kemur að ofsóknum og yfirheyrslum lögreglu yfir mér, Halli Hallssyni blaðamanni þá verður Tóta pírína þögul; hlustar ekki, sér ekki, talar ekki.
Tótu pírínu, hinum íslenska formanni Evrópuráðsþingsins, hafa verið kynnt mannréttindabrotin á hjónunum Gunnari Árnasyni og Hlédísi Sveinsdóttur en hefur kosið að þegja og þagga. Hún kýs að upplýsa börnin ekki um uppruna sinn grundvallar mannréttindi hvers einstalings. Tóta Pírína kýs að vita ekki þegar hentar. Mannréttindabrot á íslenskum borgurum þarf ekki að taka til umræðu á Alþingi og alls ekki í betri stofu RÚV. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir alþingismaður og formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins er að vinna skýrslu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2024 | 17:19
Mogginn, séra Grétar & þöggun blaðamanns ...
Daginn eftir að lögreglumenn örkuðu norður heiðar til þess að yfirheyra sakborninginn mig, blaðamanninn Hall Hallsson á Akureyri, kallaði Morgunblaðið séra Grétar Halldór Gunnarsson prest í Kópavogskirkju í fréttaþáttinn Spursmál til þess að ræða um fréttir vikunnar. Á sömu mínútum og ríkið reiddi til höggs með því að tilkynna mér að séra Grétar Halldór væri meðal þeirra sem krefðust allt að 4ra ára fangelsisdóms til þess að þagga niður í mér, kynnti Stefán Einar Stefánsson stjórnandi Spursmála séra Grétar til leiks á vettvangi Morgunblaðsins. Ríkið beitir nýrri tegund af ofbeldi til þess að þagga niður í blaðamanni, 232. grein hegningarlaga frá 2021 um svokallað “umsátursofbeldi”. Mogginn gefur siðblindum prestinum vettvang til þess að afvegaleiða þjóðina. Þetta er ekki hægt að skálda.
RÚV & FORSETAFRAMBOÐ HELGU
Kvöldið tók nafnlaus fréttamaður RÚV viðtal við Helgu Þórisdóttur forstýru Persónuverndar í framboði til forseta Íslands. Helga hafði haft vanhæfi sitt að engu og hylmt yfir með 44 læknum sem höfðu gerst sekir um innbrot í sjúkraskrár Hlédísar Sveinsdóttur. Viku eftir að umboðsmaður Alþingis hafði krafið forstýruna svara lýsti gerspillt Helga Þórisdóttir yfir framboði til forseta. Lægra verður ekki lagst. Nú þegar ber að ógilda framboð hennar. Á RÚV kvartaði Helga undan aðförum ráðamanna gegn sér en var ekki spurð um þátttöku sína í aðför læknamafíunnar gegn hjónunum Gunnari Sveinssyni og Hlédísi Sveinsdóttur að ekki sé talað um að upplýsa ekki um grundvallarrétt ellefu barna um uppruna sinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2024 | 18:18
Ofsóknir lögreglu á hendur blaðamanni ...
Lögreglumenn að sunnan kynntu mér sakarefni við yfirheyrslur á lögreglustöðinni á Akureyri í gær, fimmtudag 17.05. Ríkið reiðir hátt til höggs til ritskoðunar með nýjum og ósvífnum hætti til þess að þagga rödd mína. Ég er sakaður um umsáturseinelti á grundvelli 232. greinar hegningarlaga frá 2021: „Hver sem endurtekið hótar, eltir, fylgist með, setur sig í samband við eða með öðrum sambærilegum hætti situr um annan mann og háttsemin er til þess fallin að valda hræðslu eða kvíða skal sæta sektum eða fangelsi allt að 4 árum.“ Hvernig get ég búandi á Akureyri, haldið uppi umsáturseinelti í Reykjavík? Kæran er sett fram af Evu Bryndísi Helgadóttur LMG lögmönnum fyrir hönd fimm hjóna í skjóli hinna ríku og voldugu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ofsækir frjálsan blaðamann með ósvífnum hætti og hótar fangelsi. Umsáturseineltið er reist á samningi Evrópuráðsins í Istanbúl frá 2011 um baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi. Þetta er ekki hægt að skálda. Þetta ákvæði er notað til að ofsækja blaðamann. Ég hef varpað ljósi á stærsta hneyksli Íslandssögunnar og er ofsóttur af ríkisvaldinu.
BLAÐAMANNAPASSINN
Ég sýndi lögreglumönnum blaðamannapassa minn á frettin.is. Málið snýst um frjálsa fjölmiðlun og málfrelsi. Atlaga lögreglu er að frjálsum blaðamönnum. Ég er að upplýsa afar alvarleg afbrot tæknifrjóvgunarfyrirtækisins Art Medica á árunum 2008-2010. Fósturvísum hjónanna Gunnars Árnasonar og Hlédísar Sveinsdóttir var stolið og leynt af Art Medica sem nú er Livio. Landspítalinn leynir innbrotum lækna í sjúkraskrár, afvegaleiðir, blekkir og beitir ofbeldi til að vernda spillta lækna og auðfólk. Hjónin eru yfirlýst “...ógn við valdstjórnina.“ Uppljóstari afhjúpaði fjögur þúsund innbrot í sjúkraskrár Hlédísar á árunum 2012-2020.
INNBROT LÆKNA Í SJÚKRASKRÁR
Forstýra Persónuverndar hylmir yfir innbrot 44ra lækna í sjúkraskrár sem kærðir voru af hjónunum, forstýran gerir grín að þjóðinni með framboði til forseta. Stofnarnar ríkisins hylma og lögregla beitir ofbeldi. Yfirstýra ákærusviðs lrh, María Káradóttir sigar lögreglumönnum á mig og hótar fangelsi. Hún starfar fyrir hönd hjónanna fimm með sálusorgarann Grétar Halldór Gunnarsson prest í Kópavogskirkju í broddi fylkingar. Presturinn er mágur Dags B. Eggertssonar sem hefur beitt borgarapparatinu. María Káradóttir saksóknari er bullandi vanhæf en lögreglustjóri Halla Bergþóra Björnsdóttir vísar öllu slíku á bug. Kröfur Gunnars og Védísar um dna-rannsóknir hafa verið settar í tætara og lögreglu margoft sigað á hjónin Gunnar og Hlédísi. María Káradóttir hefur það hlutverk að koma í veg fyrir að uppruni ellefu barna sé upplýstur. Við skulum hafa í huga að það er helgur réttur barna að fá að vita uppruna sinn. Öll óvissa hyrfi á augabragði, múturnar sem Björn Zoëga nefndi hefðu horfið, Ari Fenger sem er einn kærenda hefði ekki hrökklast úr Viðskiptaráði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.5.2024 | 20:31
"Það er gríðarlega mikið blackmail í þessu máli"
Það er afar mikilvægt, beinlínis þjóðarnauðsyn að fram fari opinber rannsókn á “fósturvísamálinu” sem teygir sig svo víða um þjóðfélag okkar. Þann 11. febrúar 2023 átti Björn Zoëga forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð samtal við Gunnar Árnason vegna fósturvísamálsins. Björn hringdi í Gunnar frá Stokkhólmi og sagði þá m.a.: “Það er gríðarlega mikið blackmail í þessu máli.” Björn sem tekinn er við King Faisal sjúkrahúsinu í Saudi Arabíu verður að skýra þessi ummæli. Hann er nú stjórnarformaður Landspítalans, var forstjóri 2010-2013. Í forstjóratíð Páls Matthíasarsonar freistaði LSH að blekkja Gunnar og Hlédísi með fölsuðum sjúkraskýrslum. Það var í janúar 2015.Uppljóstrari sendi hjónunum réttar sjúkraskýrslur frá 01.01 2012 til 06.10 2021. Ennþá heldur LSH leyndum sjúkraskrám yfir viðkvæmasta tímann 2008-2011 og lýsir hjónunum sem “…ógn við valdstjórnina.” Landspítalinn svífst einskis til að hylma með læknum og þar á meðal Björn Zoëga.
ALMA MÖLLER: FÓSTURVÍSAR TEKNIR VÍSVITANDI? …
Þegar Alma Möller landlæknir hringdi í Gunnar í febrúar 2022 spurði hún: “Getur ekki verið að fósturvísar hafi verið teknir frá ykkur vísvitandi...“. Hljóðupptökur eru af þessum samtölum. Önnur ummæli Ölmu hef ég birt: „Það verður allt vitlaust í þjóðfélaginu,“ sem var deilt á annað þúsund sinnum. Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi er einn helsti hliðvörður “fósturvísamálsins“. Framboðið er vanvirðing við þjóðina. Viku eftir að Umboðsmaður Alþingis hóf að rannsaka “fósturvísamálið“ tilkynnti Helga framboð sitt. Gunnar og Hlédís höfðu kært 44 lækna fyrir ólögleg innbrot í sjúkraskrár sínar. Bullandi vanhæf hylmir Helga. Katrín Jakobsdóttir beitti forsætisráðuneytinu af ósvífni, Dagur B. Eggertsson borgarapparatinu. Það er til marks um dapurlega stöðu Morgunblaðsins að ritstjórinn Davíð Oddsson hylmir málið fyrir áskrifendum. Lögmaður LMG, Eva Bryndís Helgadóttir á sæti í Viðskiptaráði. Hún stendur fyrir lögregluofsóknum á hendur mér. Formaður Viðskiptaráðs Ari Fenger lét af embætti í byrjun febrúar. Hann er með barn no. 2 fætt 2009 sem hefur verið synjað um dna-rannsókn og vitneskju um réttan uppruna sinn. Svanhildur Hólm varð sendiherra í Washington rétt fyrir jól. Kona sem aldrei hafði komið nálægt utanríkismálum. Fylgihlutur er Logi Bergmann. “Fjárkúgunin“ á margvíslegar myndir og fótspor finnast í fasteignaviðskiptum. Biskupsstofa hylmir málið, prestar tengjast umræddum börnum sem komu frá stolnum fósturvísum Art Medica árin 2008-2010. Enginn þingmaður hefur tekið málið upp á Alþingi. Art Medica varð Livio Reykjavík 2015 í eigu Livio AB sem komst í eigu GeneralLive haustið 2022 eins alstærsta tæknifrjóvgunarfirma Evrópu í eigu Kolberg Kravis Roberts á Wall Street. Tæknifrjóvgun er big bísniss.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)