10.1.2023 | 17:43
Þegar Friðrik Ólafsson varð þjóðhetja
Friðrik Ólafsson varðaði veginn á fyrstu árum lýðveldisins með glæstum sigrum á hvítu reitunum og svörtu. Þjóðhetja svo erfitt er fyrir fólk að skynja og skilja nú á dögum. Líklega hefur enginn Íslendingur hrifið íslenska þjóð sem Friðrik Ólafsson. Öll þjóðin fylgdist með afrekum hans og beið úrslita í ofvæni. Sjónvarpið sýnir nú tvær heimildamyndir um Friðrik Ólafsson eftir Jón Þór Hannesson. Helgi Ólafsson stórmeistari hefur skrifað magnaða ævisögu Friðriks.
Friðrik hampaði Íslandstitli 1952, aðeins 17 ára gamall og varð Norðurlandameistari ári síðar. Friðrik bjó yfir leiftrandi hæfileikum; sókndirfsku, djúpum fléttum, óvæntum leikjum svo áhorfendur tóku andköf. Tvítugur titillaus stúdent frá Íslandi sló í gegn í Hastings á Englandi um áramótin 1955-56. Þá einu alfrægasta skákmóti heims. Ungi Íslendingurinn var óskrifað blað þar sem hann atti kappi við heimsfræga stórmeistara. Spekingar spáðu fyrir mótið, töldu hinn júgóslavneska Ivkov eða Sovétmennina Taimanoiv og Korchnoi líklega til sigurs. Engum datt í hug að tvítugur strákur frá Íslandi ætti möguleika gegn svo öflugum stórmeisturum. Spekingar settu Friðrik ekki á blað.
En Friðrik varð efstur. Sigur Friðriks skipar honum við hlið beztu skákmanna heims, var fyrirsögn Morgunblaðsins yfir þvera forsíðuna. Símar ritstjórnar loguðu linnulaust og skákskýringar Guðmundar Arnlaugssonar í hádegisútvarpinu voru afar, afar vinsælar. Hvert mannsbarn hlustaði á og las fréttir frá Hastings.
Þjóðhetju fagnað á Reykjavíkurflugvelli
Mikið fjölmenni tók á móti Friðriki á Reykjavíkurflugvelli við komuna til landsins. Ræður voru fluttar, skákmeistari hylltur þjóðin tók á móti þjóhetju sinni. Og Sigurður heitinn Sigurðsson, hinn vinsæli fréttamaður Útvarpsins, var þá á vettvangi sem endanær þegar Frirðik snéri heim frá glæstum sigrum í útlöndum. Þjóðin þekkti ávarpsorð hans komiði sæl og komst í gott skap. Segðu mér, Friðrik
Áður en Friðrik fór til Hastings í lok árs 1955 hafði hann orðið efstur á Norðurlandamótinu í skák. Nokkrum dögum eftir komuna heim hóf Friðik einvígi sitt við Bent Larsen í Sjómannaskólanum. Þar var ávallt fullt út úr dyrum og færri komust að en vildu. Þjóðin fylgdist með viðureigninni við Danann af lífi og sál. Larsen náði tveggja vinninga forystu en Friðrik jafnaði metin með tveimur glæstum sigrum. Þeir tefldu úrslitaskák, Friðrik lenti í æsilegu tímahraki og tapaði. Líklega hafði liðið of skammur tími milli móta.
Þá var ég tæpra fimm vetra. Við Friðrik erum systkinabörn. Faðir minn, Hallur Símonarson, hsím þá á Tímanum síðar einn stofnenda Dagblaðsins, var ágætur skákmaður og afar snjall bridgespilari. Margfaldur Íslandsmeistari og landsliðsmaður. Mínar fyrstu bernskuminningar eru frá einvíginu í Sjómannaskólanum. Friðrik fór á millisvæðamót í Portoroz í Júgóslavíu og hafnaði í 5-6. sæti, vann þar meðal annars Bobby Fischer. Friðrik hafði skipað sér á bekk þeirra bestu til þess að skora á heimsmeistarann Mikhail Botvinnik. Hann var útnefndur stórmeistari 1958, 23 ára. Friðrik Ólafsson bar höfuð og herðar yfir aðra Íslendinga að vinsældum.
Þegar Rússar snérust gegn Friðriki
Þegar ég hóf störf á Morgunblaðinu 1979 hafði Friðrik Ólafsson verið forseti FIDE, alþjóða skáksambandsins í eitt ár. Ég fékk það hlutverk að halda utan um skákfréttir. Skák var stórmál á Mogganum. Friðrik þurfti að taka á erfiðum málum í forsetatíð sinni ekki síst máli stórmeistarans Viktors Korschnoi. Í tíð Friðrik tók Fide upp málstað mannréttinda og Korschnoi. Þing Alþjóðaskáksambandsins var haldið í Luzern í Sviss árið 1982. Þá kom Friðrik til endurkjörs og ég var blaðamaður Morgunblaðsins. Andstæðingur Friðriks í baráttunni um embætti forseta var Filipseyingurinn Campomanes. Sovétmenn hefndu sín og snérust gegn Friðriki. Ógleymanlegt þegar þau tíðindi spurðust á þinginu í Sviss að Brezhnev Sovétleiðtogi væri allur og þingheimur reis úr sætum til að hylla hinn látna leiðtoga.
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að flytja þjóðinni fréttir af frækilegum sigri Jóhanns Hjartarsonar við Viktor Korschnoi í St. John í Kanada þegar ég var á Sjónvarpinu. Friðrik aðstoðaði Jóhann við undirbúninginn, var í St. John ásamt Margeiri Péturssyni og Helga Ólafssyni. Þjóðin fylgdist með hinum unga Jóhanni í glímunni við rússnesku goðsögnina. Ég fór sem fréttamaður Sjónvarps til Seattle þegar Jóhann tefldi við Anatoly Karpov í átta manna úrslitum um réttinn til að skora á Garri Kasparov. Karpov reyndist okkar manni ofjarl, en svona nálægt en samt svo fjarri var Íslendingur frá heimsmeistaratign árið 1989.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.1.2023 | 09:38
Fá blindir sýn? ...
Það var húsfyllir á fundi Málfrelsis, samtökum um frjálsa og opna umræðu um lýðræði og mannréttindi; Í þágu upplýstrar umræðu. Undiraldan er þung og þyngist. Aðstoðarritstjóri Spectator og formaður Free Speech Union, Toby Young flutti fyrirlestur. Minn fyrrum samstarfsmaður og vinur, Ögmundur Jónasson fjallaði um stöðu Kúrda, Svala Magnea Ásdísardóttir fjölmiðlafræðingur um fangelsun Julian Assange. Fundarstjóri var Arnar Þór Jónsson. Fréttin.is greinir frá.
Ég hef reynt að vekja vini mína Albert Jónsson og Óla Björn Kárason til umræðu um Úkraínustríðið. Hvernig ber að túlka þögn þeirra? Gera vinir mínir sér grein fyrir áhyggjum fólks af skerðingu málsfrelsis og lýðréttinda? Ég hef reynt að opna augu þeirra án árangurs og uppskorið fangelsun facebókar; f-jail, nýr dagur, nýr dómur. Hvenær opnast augu valdastéttarinnar í 101 Reykjavík ... Hvenær fá blindir sýn?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.1.2023 | 16:50
F-dýflissa fyrir opin bréf til Alberts & Óla Björns
Ég hef skrifað gömlum félögum og vinum tvö opin bréf um Úkraínu-stríðið; Alberti Jónssyni fremsta alþjóðafræðingi okkar og Óla Birni Kárasyni þingmanni. Þeir hafa ekki verið í sambandi né svarað en ég efast ekki um að þeir ráði bót á því. Öll umræða er mikilvæg. Ein ríkisskoðun hefur verið grunnur umræðu meginmiðla samfélags- og fjölmiðla svo ekki má ræða aðra sviðsmynd en útgáfu Nato.
Þegar van der Leyen æðsti kómizar ESB missti útúr sér ummæli um hroðalega útreið úkranska hersins þar sem hún skýrði frá því að yfir 100 þúsund úkranskir hermenn séu fallnir, þá voru ummælin þurrkuð út nánast á rauntíma. Ég veit ekki til þess að nokkur vestrænn meginmiðill hafi skýrt frá. Þeir leiðrétta ef rangt er. Annað dæmi er hótun Biden 7. febrúar 2022 þess efnis að binda endi á; to end Nordstream gasleiðsluna með garminn Olaf Stolz kanslara sér við hlið. Ritskoðarar hafa verið í yfirvinnu að stroka út og meginmiðlar þagga en vinir mínir leiðrétta ef rangt er.
F-dýflissa: dómur Facebókar
Facebókin hefur sett mig í f-dýflissu og neitað að birta síðara bréf mitt til Alberts og Óla Björns [ II ]. Efast einhver um að Stóri bróðir sé í aksjón? Ég birti mynd af Zelinskí forseta undir úlfsöngli; miðaldatákni notað af nazistum Hitlers. Öngull úlfsins hefur verið áberandi í Úkraínu okkar samtíma. Eftir að stríðið braust út eru meginmiðlar ofurviðkvæmir því ekki má falla kusk á hvítflibba forsetans, né nazíska fortíð Úkraínu. Fyrir rúmu ári birti Nato mynd á Twitter af úkraínskum kvenhermanni með nazískan Svartkross Schwarze Sonne. Guardian birti sömu mynd á forsíðu. Nato fjarlægði myndina en eðli máls samkvæmt gat Guardian það ekki.
Hreinsun vestrænna meginmiðla
'Hreinsun' meginmiðla á nazískri fortíð Úkraínu hefur staðið yfir frá upphafi stríðs. Þeir sem dirfast að véfengja eru jaðarsettir. Svona er komið fyrir Vesturlöndum, samanber meðfylgjandi dóm facebókar og nokkur ummæli meginmiðla fyrir og eftir stríð sem ég hef birt. Traustvekjandi? Elon Musk hefur rofið þöggunarmúrinn á Twitter, samanber meðfylgjandi ummæli og mynd: Ég er ekki heilaþveginn. Sjá má II hluta bréfs míns: Albert, ÓliBjörn og ég [ II ] hér að neðan og Útvarpi Sögu og fréttin.is sem hafa tekið upp.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2023 | 22:28
Albert, Óli Björn & ég ... [ II ]
Rússland á uppruna í Garðaríki þar sem nú er Kænugarður eða Kyiv. Sagt er að Rússland hafi fæðst í Kievan-Rus. Víkingar sigldu Eystrasalt austur rússnesku ána Dvínu. Þeir sigldu fjarlæga Nepurfljót Dnjeprfljót suður til Kænugarðs niður til Svartahafs yfir til Miklagarðs í Býzan. Volga rennur í Kaspíahaf, Dóná í Svartahaf. Kænugarður var fyrsta höfuðborg Rússlands, stofnuð AD 882. Rúrik eða Hrærekur var fyrsti konungur Kievan-Rus og ríktu afkomendur hans í rúm 700 ár. Rúrik dó 879. Oleg eða Helgi gerði Kænugarð að höfuðborg.
Mongólar rústuðu Kænugarði á 13. öld þannig að Rúrikar fluttu sig norður til smábæjar nefndur Moskva. Valdatíma Rúrika lauk um 1600. Rómanóvar komust þá til valda. Garðaríki sætti árásum um aldir; Mongólar, Tyrkir, Litháar, Pólverjar, Svíar. Úkraína þreifst ekki sem þjóðríki fyrr en með rússnesku byltingunni fyrir rúmri öld þegar Úkraína varð sovéskt sósíalískt lýðveldi. Vladimir Lenín renndi iðnaðarsvæðum Donbass inn í Úkraínu. Holomodyr skipulögð hungurneyð Jósefs Stalíns 1932-33. Miðstýrður samyrkjubúskapur leiddi til dauða átta milljón bænda. Þegar Hitler og Stalín skiptu Póllandi milli sín 1938 renndi Stalín pólska hlutanum inn í Úkraínu þar sem Lviv er stærst borga. Hitler réðst inn í Sovétríkin í júní 1941. Hitler galt afhroð við Stalíngrad á bökkum Volgu. Stephan Bandera stofnaði nazískt leppríki í Lviv þar sem vinur minn Margeir Pétursson rekur Bank Lviv. Bandera gekk vasklega fram í fjöldamorðum svo jafnvel þýskum ofbauð. Rætur nazisma eru djúpar. Bandera var lýstur þjóðhetja Úkraínu fyrir rúmum áratug.
GERVIRÍKIN ÚKRAÍNA & HVÍTA RÚSSLAND
Úkraína og Hvíta-Rússland voru stofnríki Sameinuðu þjóðanna; gerviríki til að fjölga atkvæðum Stalíns á Allsherjarþingi og í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna; Ukraine Soviet Socialist Republic, Belo-Russian Socialist Republic. Krímskagi heyrði undir Rússland innan sovéska ríkjasambandsins þar til Nikita Krútsjoff fékk þá grillu í höfuðið að færa Krím undir úkraínska sovétlýðveldið árið 1954.
ÞEGAR KREMLARMÚRAR OPNUÐUST
Ég var í Moskvu 1985. Mér var sögð sú saga að á Sovét-tímanum hefðu Kremlarmúrar opnast að morgni 17. júní og sendinefnd ekið um Moskvu að íslenska sendiráðinu til að samfagna Íslendingum á þjóðhátíðardaginn, norrænum vinum til gremju. Pétur Thorsteinsson var sendirráðsritari í Moskvu 1944-47, sendiherra 1953-61 í miklum metum. Ísland er Rússum hugstætt vegna Heimskringlu, Eddu-kvæða Snorra Sturlusonar. Völuspá segir frá Ragnarökum þar sem bræður berast á banaspjót. Snorri kvað Óðinn koma frá Tanakvísl í Ásheimi þar sem Dóná rennur í Svartahaf við borgina Odessu. Njála, Egla, Laxdæla, Kristnisaga segja frá Gunnari á Hlíðarenda og Kolskeggi herja í Austurvegi þaðan sem þeir sigldu með fé mikið; sömuleiðis Egill og Þórólfur Skalla-Grímssynir í Kúrlandi. Laxdæla segir af Bolla í Austurvegi; sonur Bolla Þorleikssonar og Guðrúnar Ósvífursdóttur. Kristnisaga segir af Þorvaldi víðförla Konránssyni í Jórsölum og Miklagarði, sigldi Nepurfljót til Kænugarðs. Víkingar voru Rús, væringjar í Miklagarði.
Sovétríkin hrundu eins og spilaborg í ágúst 1991 þegar harðlínuklíka fangelsaði Gorbatsjov þar sem hann dvaldi á Krímskaga. Valdaránið fór út um þúfur þegar Boris Yeltsin klifraði upp á skriðdrekann í Moskvu. Sovétríkin liðuðust í sundur. Rússland og Úkraína urðu til ásamt lýðveldunum í Kákasusfjöllum og við Eystrasalt. Vladimir Pútin komst til valda um aldamótin. Hann hefur puðað við að sameina Rússa eftir hroðaskaða kommúnista. Þetta er örsaga Rússlands og Úkraínu í 500 orðum í bland við íslensk tengsl.
NATO MEÐ ELDSPÝTURNAR
Nú þætti mér vænt um ef vinir mínir, Albert og Óli Björn svari því hvað Nato sé að gera þarna. Zelinskí sagði á dögunum í Washington að Úkraínustríðið sé fjárfesting í öryggi Vesturlanda! Stríð er öryggi á orwellsku. Úkraínskri eldflaug var skotið á Pólland. Zelinskí laug að hún væri rússnesk. Zelinskí kvað Pólland hafa orðið fyrir árás; árás á eitt Natoríki væri árás á öll. Hvað er Nato að leika sér með eldspýtur í rússneskum kartöflugarði? We will stay with Ukraine as long as it is there, sagði Biden um daginn með Zelinskí sér við hlið. Lindsey Graham senator sagði að meðan Ameríka láti Úkraínu í té vopn, þá berjist úkranar til síðasta manns! Þessa menn varðar ekkert um úkraínskt blóðbað. Bræður berjast í amerísku proxy-stríði.
Rússum svíður kjánaprik íslenskra stjórnmálamanna. Utanríkisstefna okkar gengur gegn hagsmunum Íslands, ólíkt frændum okkar í Færeyjum. Við höfðum allar forsendur til að miðla friði í stað þess að senda milljarða í þvottavélar Zelinskí og Biden. Vinir mínir hljóta að átta sig á að vestrænt málfrelsi er ekki lengur við lýði, ritskoðun er sem mara yfir Vesturlöndum. Af hverju halda menn að facebók setji mig á f-fangelsi fyrir þessa myndar af Zelinski með vinum sínum? Telst það fréttaefni?
Vinir mínir hljóta að þekkja ummæli Angelu Merkel þess efnis að Minsk-samningarnir hafi veitt Úkraínu tíma til hervæðingar. Vinum mínum hlýtur að vera kunnugt um Tölvuna úr Helvíti Laptop from Hell sem afhjúpar glæpi Biden-feðga; skelfilegt barnaníð, mansal og fordæmalausa spillingu. Vestræn 101 metrópól hylma yfir. Vinir mínir hljóta að hafa kynnt sér valdaránið 2020 þegar Ameríka varð fasísk. Eða er ekki svo?
ORWELLSKA: STRÍÐ ER FRELSI
ESB lætur sig dreyma um evrópskt glóbal stórríki, en stendur frammi fyrir frostavetri, efnahagshruni og upplausn. Enginn nefnir hótun Biden að sprengja Nordstream gasleiðsluna. Er ekki sannleikurinn sá að úkrnazískur hersveitir eru gersigraður sem Hitlers við Stalíngrad fyrir 80 árum? Úkraína kolmyrkuð, orkulaus, máttvana. Vissulega voru Rússar í útjaðri Kænugarðs í upphafi stríðs, drógu sig baka og héldu til A-Úkraínu sem nú er hluti Rússlands. Það var túlkað sem ósigur. Er það svo? Var tilgangurinn að binda úkraínskar hersveitir í kring um Kænugarð. Nú berast fregnir af bandarískum hersveitum í Úkraínu ásamt vestrænum málaliðum með hátæknivopn. Sagt er að tugir, jafnvel hundruð rússneskra hermanna hafi fallið í flugskeytaárás á Mavkívka í Donetsk á dögunum. Vísbendingar eru um að Pólverjar hugsi sér til hreyfings. Væri það til að taka V-Úkraínu til baka? Hvað verður um Kyiv Oblast? Douglas Macgregor sagði í vikunni að 35 þúsund úkraínskir hermenn séu týndir, allt að 150 þúsund fallnir, enn eigi rússneski hrammurinn eftir að falla af fullum þunga.
Stríðið er framhald af því sem í Ameríku er kallað Endalausar styrjaldir; Balkanskagi, Afganistan, Írak, Lýbía, Sýrland, Súdan, Sómalía. Af hverju allar þessar styrjaldir? Þeir sögðu að stríðin væru í nafni frelsis og lýðræðis; stríð er frelsi á orwellsku. Hefur þeim tekist að breiða út frelsi og lýðræði í ríkjum múslima? Til hvers dóu 11 milljónir múslima og tugum milljóna stökkt á flótta? Standa frelsi og lýðræði á traustum fótum á Vesturlöndum? Er stefnan að Ameríka deili og drottni: Sjá menn ekki að stríðinu í Austurvegi er beint gegn Rússlandi, kallast Proxy-stríð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.1.2023 | 16:38
Albert, Óli Björn & ég
Albert Jónsson og Óli Björn Kárason eru gamlir samstarfsfélagar mínir og vinir. Við Óli Björn unnum saman á Morgunblaðinu fyrir næstum fjörtíu árum og aftur árið 2003 þegar Óli Björn þá ritstjóri DV fékk mig til að leiða umbreytingu blaðsins. DV fékk nýtt nútímalegt útlit. Þá hins vegar urðu þau tíðindi að Landsbanki Björgólfsfeðga seldi DV Dablaðið Vísi í hendur Baugsveldi Jón Ásgeirs sem safnaði fjölmiðlum eins og nærbuxum. Þann 1.nóvember 2003 var tilkynnt um brotthvarf Óla Björns af DV.
Við Albert vorum saman á Sjónvarpinu á umbrotatímum. Albert kom til starfa á Sjónvarpið skömmu eftir fund Reagans og Garbatsjovs í Höfða í október 1986, fjölfróður um utanríkismál, ráðgjafi Davíðs Oddssonar í utanríkismálum alla hans forsætisráðherratíð og utanríkisráðuneytinu, síðar sendiherra í Washington, Moskvu og víðar.
Ég ber mikla virðingu fyrir þessum vinum mínum. Báðir hafa tjáð sig undanfarna daga um atburði í Úkraínu í Morgunblaðinu. Það er sannarlega erfitt að átta sig á gangi stríðsins en sú mynd sem þeir draga upp er á skjön við mína vitneskju. Albert kallar Rússa pappírsbjörn sem hafi tapað miklu landi eftir innrásina fyrir 10 mánuðum. Rússar hafi grafið sig niður í Donbass. Rússneski herinn hafi misst allt að 100 þúsund manns. Albert telur að Vesturlönd hafi ekki tekið nógu hart á Rússum við innlimun Krímskaga. Rússar hafi talið sig geta klárað málið hratt að mati Alberts en séu í krappri vörn. Ósigra rússneska hersins megi rekja til spillingar og vanhæfni. Óli Björn er harðorður í garð Rússa, lýsir Zelenskí forseta sem kyndilbera frelsis sem gangi á hólm við illsku. Framganga Zelinskí veiti unnendum frelsis innblástur; hernám einnar þjóðar rýri frelsi annarra. Ef Úkraína falli verði sólin á himni þínum daufari. Pútín sé meðal illmenna sögunnar. Sagan að sjálfsögðu mun dæma.
VALDARÁNIÐ 2014
Vinum mínum hlýtur að vera kunnugt um rætur valdaránsins í Kænugarði 2014 þegar öfgaöfl voru leidd til valda af Obama og Biden, hroðaleg morð framin í Kænugarði og Odessa. Nazísk öfl tóku yfir Kænugarð. Azov-nazistar urðu deild í úkraínska hernum, ásamt fleiri fasískum öfgaöflum. Rússneska var bönnuð í A-Úkraínu. Til varð Úkrnazía. Íbúar A-Úkraínu lýstu yfir sjálfstjórn eftir þjóðaratkvæðagreiðslur. Krímskagi fór á ný undir Rússland eftir þjóðaratkvæði. Íbúar Úkraínu eru að helmingi landsvæða rússnesku mælandi. Er það fólk réttlaust? Sjokkerandi var haturstónn öldungaþingmannanna John McCain og Lindsey Graham í útjaðri Mariepol síðla árs 2016 lofandi vopnum og dollurum. Herför Kænugarðs gegn rússnesku fólki í Donbass stóð þá yfir, borgir sættu linnulausum sprengjuárásum, á milli 15-20 þúsund Rússar féllu í þjóðernishreinsunum í A-Úkraínu fram að innrás Rússa. Um þrjár milljónir hafa flúið til Rússlands, allt að fimm milljónir hafa verið nefndar.
Það er engin úkraínsk þjóð í A-Úkraínu, yfirgnæfandi Rússar. Stalín innlimaði V-Úkraínu þar sem er Lviv eftir griðasamninginn við Hitler. Í Úkraínu berjast slavneskir bræður. Það væri sem danir, norðmenn og svíar í stríði. Azov-nazistar í fremstu víglínu sprengdu borgir A-Úkraínu og frömdu stríðsglæpi eins og nazista er siður. Vinir mínir vita auðvitað að Zelinskí hefur afnumið málfrelsi, bannað stjórnmálaflokka, drepið og ofsótt pólitíska andstæðinga, ofsótt rússneska orthodox kirkju. Vinir mínir hljóta að þekkja til peningaþvættis FTX Bankmans og Zelinskí klíkunnar til Biden, demókrata og hreytur til repúblikana. Allt er þetta skjalfest. Sama munstur og stríðshráðum ríkjum múslima. Fyrir rúmum áratug upplýsti Julian Assange um peningaþvætti Endalausra styrjalda. Af hverju halda menn að Obama, Biden og Zelinskí búi sem auðkýfingar?
HVAÐ VILL NATO Í AUSTURVEGI?
Hvað vill Nato í Úkraínu? er spurning sem ekki má spyrja. Er ekki Úkraína fjarri Atlantshafinu sem Nato er kennt við? Skoðanir vina minna eru í takti við ríkjandi skoðanir í 101 metrópólum Vesturlanda þar sem ein ríkisskoðun ræður stýrð af vestrænum samfélags- & fjölmiðlum í ríkiseigu og ofsaríkra eigenda hermaskínu og lyfjarisa beggja vegna Atlantsála. Þetta er bandalag auðmagns, neo-cons og sósíalista að hætti nazista Hitlers. Stríðið í Úkraínu er afleiðing útþenslu Nato austur á bóginn, svikin loforð gefin Gorbatsjov. Stríðið er amerískt/evrópskt proxy-stríð gegn Rússlandi þar sem úkraínsku blóði er fórnað á altari útþenslu Nato. Blóðbaðið má ekki nefna.
Ursula van der Leyen æðsti kómizar Brussel missti útúr sér á dögunum að 100 þúsund úkraínskir hermenn séu fallnir. Ritskoðarar voru fljótir að þurrka út ummælin sem eru í takt við mat herforingjanna Scott Ritter og Douglas Macgregor sem fullyrða að úkraínski herinn sé óvígur; 100 þúsund séu fallnir, tvö hundruð þúsund óvígir, vígtólum gereytt. Eftir að fréttir bárust af gereyðingu úkraínska hersins snéri Mark Malley yfirherforingi þeim yfir á rússneska herinn á fundi með ofsaríkum Wall Street verðbréfa-guttum. Vesturlönd eru búin að dæla að minnsta kosti 120 milljörðum dollara í Úkraínu; fimm þúsund milljörðum. Sannarlega er erfitt að átta sig á gangi mála undir það skal tekið með Alberti. Azov-nazistar biðu ósigur í Mariepol, höfðu hreiðrað um sig í kjallara verksmiðju ásamt vestrænum herforingjum og málaliðum. Bandarískar hersveitir eru sagðar í Úkraínu, vestrænir málaliðar undir vopnum. Hafa vestrænir fjölmiðlar sagt frá því eða endurbyggingu Mariepol? Meira síðar um stríðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.12.2022 | 22:15
Elektrónískar fangabúðir
Bara milli mín og þín ... bara milli þín og mín. Hjónin með síma sína upp í rúmi og rauðvín á náttborði eru grunlaus um að Stóri bróður stendur vaktina og fylgist með. Þau fletta facebook og googla; allt skráð, símtöl hleruð, samtöl sömuleiðis Stóri bróðir veit allt. Þau eru líka markaðsvara. Google og Facebook selja upplýsingar um þau dýrum dómum. Þau eru undir eftirliti CIA, FBI og NSA National Security Agency. Eftirlitsþjóðfélag í öllu sínu veldi.
Stóri bróðir veit allt um fjármál þeirra. Google og Facebook taka höndum saman við CIA, FBI og NSA um að stýra skoðunum þeirra í svefni og vöku. Í Ameríku kallast þetta mind-control, við segjum heilaþvottur. Ef þau uppfylla ekki samfélagslegar kröfur er þeim varpað í Facebook-fangelsi svo útrýma megi óæskilegum skoðunum sem ekki falla að Stóra bróður. Google sér um að stýra þeim inn á æskilegar vefsíður. Heilabylgjur eru stilltar á rétta tíðni.
Sannarlega hittir Ben Garrison naglann á höfuðið snillingur; Garrison er Sigmund Mogga 1964-2008 og Halldór Fréttablaðsins.
Garrison er einn áhrifamesti skopteiknari Bandaríkjanna, sagður ofsóttasti skopteiknari veraldar, fæddur 1957. The most trolled cartoonist in the world. Ef menn fletta Garrison upp í Wikipedia þá blasa við neikvæð ummæli. Various media commentators have called him sexist, racist, anti-feminist, xenophobic, anti-government, conspiritorial, antisemitic. Wikipedia stendur vaktina fyrir Stóra bróður. Eftir þessa þulu kemur loks fram að Garrison lýsir sjálfum sér sem liberterian; stendur vörð um frelsi einstaklingsins. Menn mega ekki rugla libertarian saman við liberal vinstri mann sem við köllum frjálslyndan. Progressive liberal er framsækinn frjálslyndur í villta vinstrinu þar sem manninum er allt leyfilegt þar á meðal velja sér kyn. Maðurinn er almáttugur guð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2022 | 22:00
Kennedy, CIA & lone gunman
Á dögunum rakti Tucker Carlsson á Fox News tengsl CIA við morð John F. Kennedy forseta Bandaríkjanna 22.nóvember 1963. Af því tilefni skrifaði bróðursonur forsetans, Robert Kennedy jr: Morð CIA á frænda mínum var velheppnað [successful] Coup dEtat sem lýðveldi okkar hefur aldrei jafnað sig á. Þáttur Tucker á Fox News er vinsælasti fréttaþáttur Ameríku, svo tíðindin eru allnokkur. CIA er ríki í ríkinu. Lee Harvey Oswald var handtekinn fyrir morðið, sagður lone gunman en skotinn til bana af öðrum lone gunman að nafni Jack Ruby. Ég var tólf ára þegar Kennedy var myrtur í Dallas Texas. Drengurinn í Bústaðahverfi frétti af morðinu í mjólkurbúðinni og hljóp heim til að segja tíðindin. Það var mín fyrsta frétt.
Sagt er að þeir sem véfengi amerískt intelligence community stefni eigin lífi í hættu. Friðarsinninn Kennedy hafði tekist á við repugnant secret societies fyrirlitleg leynifélög og 3.júní 1963 undirritað forsetatilskipun No. 11110 að taka upp silfurdollar sem styggði Federal Reserve, Seðlabanka Bandaríkjanna. Hundrað árum áður hafði Abraham Lincoln forseti [1861-1865] hafnað lánum evrópska bankers, gefið út greenbacks til að fjármagna stríðsreksturinn gegn Suðurríkjunum og galt með lífi sínu. Þriðji forsetinn til að takast á við evrópska bankers er Donald J. Trump. Þann 12.september 2018 undirritaði hann forsetatilskipun No. 13848 um árás á Bandaríkin.
60 ÁRA ÞÖGGUN
Í 60 ár hefur morðið á Kennedy verið tabú í Ameríku sem ekki hefur mátt nefna. Fjölmargir hafa efast um niðurstöðu Warren nefndarinnar þess efnis að Oswald hefði myrt Kennedy. Fyrir morðið á Kennedy var orðið conspiracy theory samsæriskenning óþekkt í ensku. Árið 1964 var New York Times fyrst til að nefna hugtakið. Árið 1967 sendi CIA tilskipun til starfsstöðva víða um heim directive on conspiracy theory í tengslum við morð Kennedy.
CIA hefur haldið upplýsingum um morð Kennedy frá bandarískum almenningi allar götur síðan, þar á meðal tengsl sín við Lee Harvey Oswald. Árið 2017 bar CIA að birta öll skjöl, þúsundir blaðsíðna. Það gerðist ekki. Ríkið í ríkinu fer sínu fram. Tucker hafði eftir heimildarmanni að CIA hefði verið þátttakandi í morðinu á Kennedy. Hvað þýðir það? spurði Tucker og svaraði: Innan bandarískrar stjórnsýslu eru öfl sem eru utan og ofan við kjörna fulltrúa. Ameríka veit nú að forsetar eru valdir en ekki kjörnir. Er umfjöllun Tucker á Fox News vísbending um að molni undan CIA?
Charles Schumer leiðtogi demókrata sagði í janúar 2017 fyrir embættistöku Donald Trump að hann væri dumb kjáni að takast á við leyniþjónustur Washington: Þeir hafa sex aðferðir frá sunnudegi til að ná sér niðri á þér six ways from Sunday at getting back at you. Þeir skálduðu RussiaHoax - Rússagaldur sem stóð á þriðja ár. Þremur vikum fyrir kosningar 2020 hylmdu CIA og FBI yfir frétt New York Post um Laptop from Hell Bidenfeðga Tölvuna úr Helvíti sem CIA uppnefndi Russia-Hoax Rússagaldur. FBI hafði haft tölvuna til rannsóknar í 10 mánuði án þess að aðhafast. Það er yfirhylming á barnaníði, mansali og kolsvartri spillingu. Hlýðnir fals- og samfélagsmiðlar þögguðu; NYT, WaPo, CNN, BBC, Facebook, Youtube, Google, Twitter, RÚV & rest.
GAMLI BUSH & KENNEDY
Margar bækur og heimildamyndir hafa verið gefnar út um morðið á Kennedy. George W.H. Bush varaforseti [1981-1989] forseti [1989-1993] var cia-agent í Texas þegar Kennedy var myrtur. Bush er ítrekað tengdur við morðið í Dallas. Aðspurður kvaðst Bush ekki muna hvar hann var þegar Kennedy var myrtur og neitaði cia-tengslum. Samt kemur hann fyrir í skjölum sem slíkur og á myndum í Dallas. Bush var forstjóri CIA 1976-77. Frægust kvikmynda um Kennedy-morðið er JFK eftir Oliver Stone.
Frá stofnun Federal Reserve 1913 hefur ófriður ríkt og plágur geisað í veröld. Fed er undirstaða skuggastjórnar veraldar. Allar götur frá morði Kennedy hefur bandarísk saga verið samfelld harmsaga styrjalda, plága og vofleiflegra skotárása; jafnan lone-gunman á ferð. Martin Luther King var myrtur í apríl 1968 af lone gunman. Robert Kennedy var myrtur í LA í júní 1968 af lone gunman. John Lennon var skotinn til bana í New York í desember 1980 af lone gunman. Ronald Reagan var sýnt banatilræði í mars 1981 af lone-gunman. Reglulega kemur til skotárása í bandarískum skólum, jafnan er lone gunman á ferð.
KENNEDY JR 1960-1999
John F. Kennedy jr. [1960-1999] fórst undan strönd Marthas Vinyard í Massachussetts í júní 1999 ásamt eiginkonu og mágkonu. Kennedy hafði áform að bjóða sig fram til öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir New York í nóvember 2000. Margt er á huldu um lát Kennedy jr. Lítil flugvél hans steyptist í hafið, John jr var ekki jarðaður. Margt er ósagt. Í stað Kennedy var Hillary Clinton kjörin í nóvember 2000. Hugleiðið stríðsforseta Ameríku til 30 ára; Clinton, Bush, Obama, Biden.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.12.2022 | 23:02
Hafa þeir yfirgefið mig eða ég þá?
Þúsundir færslna eru ritskoðaðar á facebók; mikill fjöldi hægra fólks er jaðarsett og varpað í f-fangelsi fyrir að efast um rétttrúnað woke, covid & stríðið í Úkraínu; hægra fólki er grímulaust varpað í f-grjót, málfrelsi er dautt. Í stað þess að koma þessu fólki til varnar, eru fjölmiðlar okkar þátttakendur í hinum ljóta leik Sílíkondals í Kaliforníu; facebók, youtube, google og rest. Ritstjóri Kjarnans er ósáttur við nýfengið málfrelsi Twitters. Ritstjórinn hneykslast á því að Musk hafi lokað mannréttindadeild Twitter. Deildin sú sá um ritskoðun og varpaði hægra fólki í f-fangelsi, þar á meðal 45. forseta Bandaríkjanna. Á orwellsku er ritskoðun mannréttindi, stríð er öryggi sagði Zelinsky í Sameinuðu Bandaríkjaþingi.
Ég er meðal þeirra sem settur er í f-fangelsi; þaggaður, ofsóttur, úthrópaður, texti skyggður, blokkaður, færslur niðurfærðar. Ég hef verið kallaður ljótustu nöfnum íslenskrar tungu af vinstri villingum ófærum um gagnrýna hugsun; rökræna umræðu. Vinstri villtir ritskoðaðarar samfélagsmiðla í Sílikondal dæma skoðanir mínar samfélagslega hættulegar eftir klögun íslenskra glóbal-popúlista. Hversu galið er það?
Í fremstu víglínu frétta
Ég hef næstum hálfrar aldar reynslu í fremstu víglínu frétta. Ég var meðal stofnenda Dagblaðsins 1975 með föður mínum Halli Símonarsyni og Jónasi Kristjánssyni. Ég fór á Moggann 1979 og vann með Styrmi Gunnarssyni og Matthíasi Johannesen, mesta blaðamanni 20. aldar. Ég lærði af þeim bestu. Ég breytti fréttum í sjónvarpi 1986-1994. Ég flutti fréttir af hruni Hafskips og Útvegsbanka, hruni Sambandsins, hruni Sovétsins og klofningi Sjálfstæðisflokksins. Ísland nötraði og Alþingi sjokkeraðist þegar ég sagði frá ákæru á hendur forseta Alþingis. Það gekk ekki lítið á þegar Sverrir heitinn Hermannsson bankastjóri hugðist reka Óla Kr. Sigurðsson heitinn út úr Olís, eigin fyrirtæki. Ég var frumkvöðull lögreglu og dómsfrétta í sjónvarpi. Á meðan öðrum var úthlutað fréttaefni á fréttafundum sótti ég fréttir á bak við luktar dyr elítunnar. Spaugstofan sótti óspart innblástur. Ég var fremsti fréttahaukur Sjónvarpsins þegar það var til húsa á Laugavegi; flutti þjóðinni fréttir af skákglímum Jóhanns við Korchnoi og Karpov. Ómar Ragnarsson auðvitað var & er þjóðardýrgripur.
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins ruddi vinsælasta þingmanni flokksins, Alberti Guðmundssyni úr pólitískum vegi árið 1987. Atlaga Þorsteins var sem bjúgverpill í gæfulausri formennskutíð. Albert kom í sjónvarpssal eftir að hafa verið flæmdur úr ráðherraembætti; leiðtogi Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Skiptiborðið bókstaflega sprakk og flautur voru þeyttar þegar örtröð myndaðist fyrir utan. Við Ingvi Hrafn vorum sakaðir um að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn. Eftir að Sjálfstæðisflokkur Þorsteins rak Ingva Hrafn var tekið til að bíta í hæla mína. Ég tók boði Páls Magnússonar að færa mig á Stöð 2. Þar hélt ég áfram að segja frá atburðum á bak við luktar dyr. Ég var með fréttir um brennivínsmál elítunnar. Jón Baldvin sló til mín í beinni útsendingu og krafðist með Steingrími Hermannssyni að við Palli yrðum reknir í skiptum fyrir 500 milljóna ríkislán til Stöðvar2. Metinn á 500 millur. Á bak við þessar luktu dyr!
Váfugl í Westminster
Það kom ekki í veg fyrir að ég færi með Jóni Baldvin í fræðgarför hans til Eystrasaltslandanna í ársbyrjun 1991; Rauði herinn við borgarhlið Vilnius, Riga og Tallinn. Auðvitað erfði hvorugur. Ég beitti mér fyrir því að Ingvi Hrafn yrði ráðinn á Stöð 2. Ég hætti eftir að Ingvi vinur minn left the building. Sjónvarpið var tröllum gefið þegar til varð ohf. RÚV sem ropi úr iðrum. Ég skrifaði Váfugl til varnar fullveldi Íslands. Ensk þýðing Váfugls var gefin út í Westminster, breska þinginu 2012 meðal lávarða og þingmanna sem elska land sitt. Þegar ég fagnaði fullveldi Bretlands 2019 sögðu þeir við mig í Thatcher House: The Vulture inspired us, you inspired us. Kiljan hefur ekki enn frétt af Váfuglinum, Silfur Egils ekki af Halli Hallssyni.
Þaggaður
Eftir að ég tók afstöðu gegn Orkupakka 3 tók minn gamli vinur að snúast gegn mér og formæla í sand og ösku. Ég er útilokaður og þaggaður á ÍNN líkt og þaggaður á Stöð 2 eftir að Jón Ásgeir breytti fréttastofunni í pólitíska ormagryfju; þaggaður á RÚV í rúman aldarfjórðung. Þegar RÚV fagnaði 50 ára afmæli Sjónvarpsins 2016 með stór-veislu var ég strokaður út, sem þeir sem féllu í ónáð í Sovétinu voru strokaðir út úr myndum flokksforystunnar á Kremlarmúrum. Nú stend ég einn og segi stétt minni til syndanna fyrir að elta villuljós og bregðast þjóð sinni, fólkinu í landinu. Ríkismiðillinn RÚV þjónar óseðjandi ríkisvaldi í bandalagi við ofsaríka davósa; lyfjarisa, vopnasala og búrókrata. RÚV hylmir yfir barnaníð og mansal. Hversu galið er það?
Ég mótmæli
Ég andæfi ríkislygi; einni ríkisskoðun að hætti Marteins Mosdal; pólitískri ritskoðun, pólitískum ofsóknum, pólitískum ákærum, pólitískum réttarhöldum, pólitískri lögreglu, covid-lygi, vestrænum glóbalizma sem birtist í Endalausum styrjöldum Nato, Ameríku og Evrópu. Íhugið vandlega styrjaldir þeirra: Balkanskagi fyrir 30 árum, Serbía, Afganistan, Írak, Lýbía, Sýrland, Súdan, Sómalía og nú Úkraína. Tólf milljónir fallnar varlega áætlað, tugir milljónir á flótta. Julian Assange sá í gegn um stríðsleiki amerískra stríðsherra Clinton Bush Obama og Biden löngu á undan okkur hinum ... fylgið peningaslóðinni sagði Assange fyrir áratug. Hugleiðið: Af hverju er Assange í fangelsi?
Ísland er land mitt því aldrei ég gleymi, Jesús leiðtogi minn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.12.2022 | 23:50
Af laumuhlustun & skápahommum
Framvarðasveitir Ríkislögreglustjóra á fjölmiðlum okkar eru í yfirdrifi að dreifa ríkisáróðri í samvinnu við lyfjarisa og Íslenska erfðagreiningu. Blaða- & fréttamenn eru skilgreindir af fjölmiðlanefnd framvarðasveitir sem flytja ríkisáróður og þiggja til þess ríkisfé. Íhugið það gott fólk. Fjölmiðlar okkar flytja allir eina og sömu fréttina um covid; sumsé skapa rétta stemmningu. Sama á við um fréttir erlendis. Allir flytja sömu fréttina sem bergmálar um Ísland, Bretland, Þýskaland, Frakkland, Bandaríkin, Kanada á rauntíma; fréttir eru samstilltar Reuter, AFP, AP, CNN, BBC og rest í eigu hinna ofsaríku. Þannig er hlutum varið um allan hinn vestræna heim undir yfirskriftinni Trusted News Iniative. Allt er þetta yfirlýst og skráð.
Frjáls pressa er ekki lengur við lýði á Vesturlöndum; lýðréttindi eru skert, málfrelsi heft, fólk sprautað, ferðir heftar, eftirlit alls staðar, umframdauði falinn. Ríkismiðlar Evrópu eru í bandalagi með davóskum fjölmiðlum beggja vegna Atlantsála um samstarf til að tryggja ofurvald hinna ríku og voldugu í bandalagi við glóbal-popúlíska mennta-elítu Sameinuðu þjóðanna og 101 metrópól veraldar.
Allir segjast hafa háleit markmið. Fjölmiðlanefnd kveðst vinna að miðlalæsi almennings.
Frjáls umræða jaðarsett
RÚV hefur 6.6 milljarða króna milli handa til þess að þjóna og efla sívaxandi ríkisvald. Markmið RÚV er skýrt: Ísland skal sósíalískt lýðveldi, fullveldi þjóðarinnar skal selt undir erlent vald hinna ofsaríku elítu og búrókrata. Helstu fjölmiðlar okkar dreifandi ríkisáróðri fá 380 milljón króna ríkisstyrki; Stöð 2, Visir, Mogginn, Fréttablaðið, DV, Stundin vinnandi með facebók, youtube, google og rest jaðarsetja frjálsa umræðu. Þessir miðlar hafa fengið samheitið falsmiðlar því þeir selja sig undir eina ríkislygi. Nú býður sjónvarpstöðin N4 á Akureyri upp í dans, föl fyrir 100 milljóna ríkisfé og vill sameinast fréttum Rúvak um að dreifa ríkisáróðri. Svona breiðist veiran út. Það er bara pláss fyrir eina skoðun á Íslandi, eina ríkisskoðun. Mörg okkar munum Martein Mosdal.
Hvar óma raddir hlustenda?
Ein útvarpstöð leyfir öllum skoðunum að heyrast á öldum ljósvakans. Hafið þið hlustað á raddir hlustenda á Útvarpi Sögu, klukkustund eftir klukkstund alla daga? Allir fá að láta rödd sína hljóma. Spyrjið: leyfir RÚV röddum hlustenda að hljóma? Útvarp Sögu er refsað. Útvarp Saga fær ekki krónu í ríkisstyrk og sætir linnulitlum ágjöfum góða fólksins á ríkisstyrktu fjölmiðlunum.
Á dögunum var Arnþrúður Karlsdóttir útvarpstjóri í viðtali á Stöð 2. Af því tilefni þurfti fréttamaður að niðurlægja hlustendur Sögu. Hann kvaðst hafa hitt miðaldra kennara sem hefði sagt að heyra mætti hverjir væru að laumuhlusta Útvarp Sögu. Já sæll, skrítið fólk laumuhlustar Sögu. Þetta fannst fréttamanninum fyndið.
Sú var tíð að það voru bara til skápahommar í felum. Það þurfti hugrekki til að koma út úr skápnum. Nú þykir sjálfsagt að vera hommi og enginn þarf að fela sig. Getur verið að sá dagur renni brátt upp að fólk kannist ekki við að hlusta á ríkisstyrkta Stöð 2 & RÚV ropandi úr iðrum en allir hlusti á frjálst og óháð Útvarp Sögu?
Sannleikurinn finnur alltaf leið að lýsa upp myrkrið ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.12.2022 | 22:48
Musk, Twitter & málfrelsi
Varðar það almenning að vita um ferðir Elon Musk og barna hans? Spyrji hver og einn. Eltihrellir komst á slóð bifreiðar Musks eftir að nokkrir vinstri villtir blaðamenn höfðu rakið og birt ferðir Musks 24/7. Í bílnum var sonur Musks. Atvikið var í Los Angeles. Níu blaðamenn voru settir í Twitter-bann fyrir að brjóta samfélagsstefnu Twitter. Fals- & samfélagsmiðlar um allan heim fóru af hjörunum hamslausir af reiði yfir ritskoðun Twitter. Áhugavert, ekki satt? Þeir andmæltu ekki þegar hægri mönnum var sparkað af Twitter. Nú hefur Elon Musk spurt hvort hann eigi að láta af framkvæmdastjórn Twitter. Meirihluti vill að hann geri svo. Gættu hvers þú óskar, gæti einhver sagt.
Musk og Biden feðgar
Ameríka hefur nötrað vegna uppljóstrana Elon Musk á samvinnu FBI, dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, Demókrataflokksins og fyrrverandi eigenda Twitter í tengslum við forsetakosningarnar 2020. Frétt New York Post um hina frægu "Tölvu frá Helvíti: Laptop from Hell" var þögguð þremur vikum fyrir kosningar 2020. Fimmtíu CIA njósnarar afvegaleiddu bandarísku þjóðina með því að uppnefna frétt NYP Rússalygi. Falsmiðlar um allan heim endurómuðu lygina.
"Tölvan frá Helvíti" afhjúpar glæpi Biden-feðga svo skelfilega að orð fá ekki lýst; barnaníð, mansal og mútur. Taumlausar mútur. Þar er setning um Joe Biden forseta sem fer eins og eldur í sinu um Ameríku: 10% to the Big-Guy. Joe Biden án vafa spilltasti stjórnmálapési í sögu Vesturlanda, leiðtogi íslenskra stjórnmálamanna, leiðtogi Nato. Þá auðvitað fylkir Vg sér á bak við Nato. CIA hylmir yfir barnaníð, mansal og mútur, svo og hinn vestræni falsmiðla- og samfélagsheimur, ásamt pólitík; Macron, Stolz, Sunjai, Fredriksen, Kötu og rest. Hversu vont er það?
Musk og Fauci
Elon Musk birti Twitter færslu um Anthony Fauci; Þórólf Ameríku: Fornöfn mín eru Saksækjum/Fauci ... My Pronouns are Prosecute/Fauci. Hinn 82 ára forstjóri Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna er maðurinn bakvið covid drullumixið í Ameríku; maðurinn sem fjármagnaði veirurannsóknir í Wuhan í Kína, uppsprettu covid faraldursins; helsti ráðgjafi Joe Biden í svokölluðum heilbrigðismálum. Robert F. Kennedy jr. bróðursonur John F. Kennedy forseta [1917-1963] afhjúpar skelfilega glæpi Fauci í nýlegri heimildamynd: The Real Anthony Fauci: The Movie. Elon Musk er með innherja upplýsingar um Musk úr Twitter. Hann tvítaði: Fauci laug að Congress og fjármagnaði rannsóknir sem hafa kostað millónir manna lífið. Ekki rosalegt IMO [In My Opinion]. Heimildamynd Stew Peters um covid: Died Suddenly er skylduhorf, ókeypis á Rumble.
Sannarlega er Elon Musk versta martröð vinstri manna. Nú þegar málfrelsi ríkir á Twitter vill Brussel banna miðilinn og demókratar panikera skelfingu lostnir. Twitter hefur rofið skarð í þöggunarmúr vestrænna fals- og samfélagsmiðla með því að virða skoðana- og málfrelsi alþýðu manna ... Hið besta mál, ekki satt?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)