Þjónusta við myrkrið

Gylfi Sigurðsson IIIBreska krúnan kaus að bíða fram yfir páska að ákæra ekki okkar ástsælasta knattspyrnumann eftir tæplega tveggja ára frelsissviptingu og mannréttindabrot. Gylfi mun vonandi ná rétti sínum á Englandi. Jón Magnússon lögmaður hefur bent á að öskurkonur hafi dæmd Gylfa án dóms og laga á Íslandi. Mér finnst grafalvarlegt að RÚV hafi bendlað Gylfa við kynferðisbrot gegn barni; sumsé barnaníð meðal annars í fréttaskýringu 17. júní 2022. Hugleiðið það. Enskir fjölmiðlar hafa ekki upplýst um nafn Gylfa. RÚV hefur allan tímann nefnt Gylfa og tengt barnaníði. Eftir úrskurð krúnunnar fannst fréttamanni RÚV fyndið að götublöðin ensku höfðu nefnt félag hans Everton en ekki nafn.

Pistillinn 17. júní var langur og ítarlegur með hljóðbútum. Blaðamannafélag Íslands veitti fyrir nokkru fréttakonunni blaðamannaverðlaunin 2022 fyrir níðumfjöllun um trúað fólk í svokölluðum sértrúarsöfnuðum, þá fyrir Stöð 2. Eftir þáttaröðina flutti hún sig aftur yfir á RÚV. Hugleiðið það. Hið sigursæla landslið okkar hefur verið sakað um nauðgunarmenningu. Einstakir leikmenn hafa verið skotspónn RÚV gargandi nornir fyrir utan KSÍ. Þetta er enginn saklaus leikur, þetta er atlaga úr andaheimi. Hugleiðið það.

KOLSVÖRT ÓMENNSKA

Páskakvöldi varði RÚV í fyrstu sýningu þáttraðarinnar Aftureldingar; kolsvört ómennska. RÚV hefur ekki opinberað ákvörðun um að skipa sér í framvarðasveit ríkislögreglustjóra til þess að skapa stemmningu fyrir ríkisáróður vegna covid. Alla daga vinnur RÚV að því að flytja fullveldi úr landi í blóra við þjóðina. Hvorki útvarpsstjóri né fréttastjóri hafa borið undir þjóðina framsal frétta á rauntíma til EBU; hið orwellska Trusted News Inistiative undir forystu BBC. RÚV hefur hvorki upplýst um leynisamning heilbrigðisráðherra við lyfjarisa né um alvarlegar aukaverkanir vaksína og umframdauða af völdum covid. Þúsundir landsmanna lifa í þögn og þöggun um veikindi sín og sorgir.

ChosenTHE CHOSEN

RÚV sýndi hvorki kvikmynd um Jesú Krist né þúsund ára kristinn sið í landinu. Hugleiðið það. Ég hef sagt frá stórkostlegum þáttum The Chosen um líf og starf Jesú og lærisveinanna. Yfir 500 milljónir manna hafa horft á þessa þætti. Slíkt virðist ekki freista guðlausu RÚV. Nú er það svo að allur þorri starfsfólks RÚV trúir vísindum að það komi úr myrkri þar sem ekkert sé, lífið sé sprettur eftir lífsgæðum og hverfi svo í myrkrið þar sem ekkert sé, morkni og rotni.

Sérstök ástæða er til að vara þessari trú sem er heiðin, myrk og vond og gengur gegn boðskap kristinnar trúar um líf í ljósi, kærleik og eilíft líf. RÚV-fólk selur Satan sálu sína alveg eins og Bob Dylan kvaðst hafa gert forðum og söng síðar: You’re going to serve somebody. Well, it may be the Devil or it may be the Lord. But you’re going to serve somebody … Sáluhjálp er í húfi, íslenskrar þjóðar sem starfsmanna RÚV … Guðn blessi Ísland


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að því leyti sem ég þekki líf og sögu Gylfa Þórs Sigurðssonar, þá gengur hún út á yfirnáttúrulega glæstan feril hans í knattspyrnu.

En þessi ferill hans er ekki tilviljun, heldur byggir á trú hans, ögun hans og hreinu líferni hans, ásamt frábærum stuðningi föður hans.

Þess vegna hefur hann hlotið blessun inn í sitt eigið líf og verið til blessunar fjölskyldu sinni og þúsundum annarra.

En það er alltaf fólk sem þolir ekki framúrskarandi þrautseigju og velgegni annarra og reynir því að ryðja þeim úr vegi með öllu hugsanlegu móti og ef ekki vill betur, með lygum.

Saga Gylfa minnir mig á aðra sögu, sem við öll fengum að læra um í barnaskóla í Biblíusögutímum, á meðan þeir voru leyfðir. Það er sagan af Jósef Jakobssyni. Hana má finna í 37. kafla 1. Mósebókar og köflunum á eftir.

Hann lifði líkt og Gylfi, öguðu og hreinu líferni og átti alla elsku föður síns, Jakobs. Þar að auki hlaut hann blessun Guðs í öllu sem hann tók sér fyrir hendur.

En bræður hans þoldu hann ekki vegna velgegni hans. Þeir tóku hann og seldu í þrældóm til Egyptalands en sögðu föður hans að hann væri dáinn.

Í Egyptalandi var hann ásakaður fyrir kynferðisbrot sem hann hafði ekki framið og var varpað í fangelsi. Hann sat í tíu ár saklaus í fangelsinu.

Jósef fékk uppreisn æru af sjálfum Faró Egyptalandskonungi og var, af honum síðan skipaður forætisráðherra Egyptalands.

Þegar hungursneið varð í Kanainnlandi komu faðir hans og bræður til Egyptalands til að leita ásjár þar, svo þeir og fjölskyldur þeirra færust ekki úr hungri.

Þá var það sjálfur Jósef, Forsætisráðherra Egyptalands, sem veitt þeim skjól. Í fyrstu þekktu bræður Jósefs hann ekki. En þegar þeir höfðu borið kennsl á hann óttuðust þeir að hann myndi hefna sín á þeim og drepa þá. En það var ekki eðli Jósefs.

4 Og Jósef sagði við bræður sína: Komið hingað til mín! Og þeir gengu til hans. Hann mælti þá: Ég er Jósef bróðir yðar, sem þér selduð til Egyptalands. 5 En látið það nú ekki fá yður hryggðar, og setjið það ekki fyrir yður, að þér hafið selt mig hingað, því að til lífs viðurhalds hefir Guð sent mig hingað á undan yður. 1. Mós. 45.

Guð leyfði það að Jósef varð að dúsa í fangelsi í tíu ár. Það var til að reyna hann og gera hann auðmjúkan.

Það er trú mín að Guð hafi einnig leyft að Gylfi dveldist í tvö ár saklaus í einskonar stofufangelsi í Bretlandi, til að reyna hann og gera hann auðmjúkan.

Jósef tók því sem tilskipun Guðs hvernig bræður hans og aðrir höfðu farið með hann, vegna háleitari tilgangs með líf hans. Einnig trúi ég því að Guð hafi leyft þessa meðferð á Gylfa saklausum vegna þessa að Guð ætlar að gera eitthvað stórkostlegt, miklu meira, með líf Gylfa en við höfum séð hingað til.

Hann fær þessi tvö ár ekki aftur, sagði einhver spekingur. Nei, en hann fær miklu meira á komandi árum fyrir sig og þjóð sína ef hann treystir Guði eins og Jósef gerði.

Guðmundur Örn Ragnarsson (IP-tala skráð) 15.4.2023 kl. 22:17

2 Smámynd: Hallur Hallsson

Þú skrifar af mikilli visku kæri vinur. Hárrétt hjá þér, allt snýst þetta um trú á Drottinn, skapara himins og jarðar & fyrirgefningu ... Við lifum í syndugum heimi sveimandi dreka reiðubúnir að gleypa sálir sem þeim eru færðar á altari Baals ... 

Hallur Hallsson, 16.4.2023 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband