Svona afvegaleiðir Blinken bandarísku þjóðina ...

Nord Stream BlinkenSvona afvegaleiðir Washington bandarísku þjóðina. Demókratinn Brad Sherman þingmaður frá Kaliforníu spurði Anthony Blinken utanríkisráðherra hvort Alríkisstofnanir hefðu verið á bak við hryðjuverkið á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasalti. Sherman spurði: „Last September the Nord Stream pipeline was blown up. You are now in a Formal Setting. Can You Assure the World that no Agency of the US Government Blew Up Those Pipelines or Facilitated  the Act.“ Blinken svaraði að bragði:  „Yes I can.“ Sherman þakkaði ráðherranum svarið. Blinken laug ekki en spurningin var samin til þess að afvegaleiða bandarískan almenning og raunar veröldina alla. Svokallaðar þriggja stafa stofnanir; CIA, FBI, NSA  og rest komu ekki að hryðjuverkinu í Eystrasalti, útrætt mál eða er ekki svo?

 

Nord Stream Act of WarSTRÍÐSAÐGERÐ ACT OF WAR

Lítum nánar á. Enginn  hefur haldið því fram það ég veit að CIA, FBI eða NSA hafi verið á bak við hryðjuverkið í Eystrasalti sem skilgreint er stríðsaðgerð; Act of War. Allra síst hélt Sy Hersh frægasti blaðamaður Bandaríkjanna þessu fram þegar hann í febrúar síðastliðnum afhjúpaði leyniaðgerð bandarískra stjórnvalda. Hersh hefur ítrekað áréttað frétt sína í fjölmörgum viðtölum. Kafarar Köfunar- & björgunarmiðstöðvar Bandaríkjanna í bænum Panama City í Flórída hefðu verið að verki. Þeir hafi komið sprengjum fyrir við Nord Stream leiðslurnar í júní 2022 í samvinnu við norsku leyniþjónustuna á BALTOP22 æfingu Nato í Eystrasalti. Ef hinir frægu US Navy Seals úrvalssveit kafara í bandaríska flotanum hefðu verið sendir í Eystrasaltið þá hefði Joe Biden orðið að fá heimild þingsins fyrir hryðjuverkinu. Þingið hefði orðið að samþykkja árás á annað ríki; Act of War. Aðgerðin var ekki plottuð af CIA heldur Jake Sullivan öryggisráðgjafa Biden úr Eisenhower byggingunni í Washington gegnt Hvíta Húsinu við Pennsylvaníu Avenue. Kafararnir frá Flórída komu sprengjum fyrir við leiðslurnar, þrjár af fjórum leiðslum voru sprengdar þremur mánuðum eftir Baltop22, eða þann 26.09.2022. Eitthvað fór úrskeiðis við fjórðu leiðsluna í sænskri lögsögu. Ég hef bætt við: P8 þota frá Keflavíkurflugvelli var yfir gasleiðslunum í sex tíma um nóttina fram á morgun 26.09.2022. Eftirlitsstöð Nato á Borgundarhólmi fylgdist þá eins og alltaf með öllu í, á og yfir Eystrasalti alla leið inn í Rússland. 

Nord Stream BorgundarhólmurDönsk stjórnvöld  vita allt um Eystrasaltið, en hrista tómt höfuð. Nato uppljóstrari; svokallaður whistleblower hefur skýrt frá því að kafarar hafi komið með þyrlu frá Stokkhólmi  til að kafa 80 metra niður að gasleiðslunum í sænskri lögsögu. Kafararnir Flórída sáu um leiðsluna skammt undan Borgundarhólmi sem er suður af Stokkhólmi. Sænsk stjórnvöld hættu rannsókn en sendu götublaðið Expressen til þess að taka myndir af skemmdri gasleiðslu á 40 metra kafla. Engir aðrir voru á vettvangi. Í sömu viku og Blinken var í þinginu kom Pentagon með þá útgáfu að gasleiðslurnar hefðu verið sprengdar innanfrá og kenndi Rússum um.

 BLINKEN FÉKK ÞÓ SPURNINGU

Þó vitnisburður Blinken hafi augljóslega verið til að afvegaleiða, þá alltént fékk hann spurningu í þinginu. Hvíta Húsið hafði neitað allri aðild að Nord Stream. Norska utanríkisráðuneytið hefur og neitað aðild. Í Bundestag hafa þingmenn AfD og Linke krafist rannsóknar á þætti Bandaríkjanna á hryðjuverkinu svo og hafa slíkar kröfur verið settar fram í Evrópuþinginu. Leiðtogi Evrópuandstæðinga í Parlement Français, Florian Philippot heldur því fram að Bandaríkin séu á bak við hryðjuverkið og krefst rannsóknar. Frakkland logar stafna á milli í uppreisn gegn Macron forseta. Eftirlaunadeilan er kornið sem fyllir mælinn. Frökkum finnst Macron staðfesta innræti sitt þegar hann laumaði lúxusúri í vasa í sjónvarpsþætti meðan Frakkland logar í óeirðum. Getur fólkið ekki bara borðað kökur?

Ukraine Zelinsky hintYfir 200 þúsund Úkranar eru fallnir, 400 þúsund óvígir, 500 deyja á degi hverjum. Úkraínska hernum hefur verið gereytt. Indverska Hindustan Times skýrir frá viðtali Zelinsky við japanska fréttamiðilinn Yimouri að Úkraína geti ekki hafið vorsókn, þeir hafi hvorki vopn né skotfæri. Indverski miðillinn spyr hvort yfirlýsingin sé fyrstu merki uppgjafar.  

 

 

ÞAU ÞEGJA ÞUNNU HLJÓÐI

Það er sama hvort það er vestanhafs eða austan. Leiðtogar eru ekki í takti við þjóðir sínar, enda sitja þeir allir að svikráðum við fólk sitt. Þó yfirborðs umræða sé um hryðjuverkið, þá er alltént umræða víðast hvar. Alls staðar umræða nema á Íslandi. Hér er bara stríðsáróður. Enginn þingmaður vogar sér í pontu til þess að ræða mesta mengunarhryðjuverk mannkynssögunnar. Þau þegja öll þunnu hljóði. Enginn vogar sér að ræða aðild Íslands að hryðjuverkinu í Eystrasalti, bara alls enginn. Hér er engin alvöru umræða, bara hatur og heift í garð Rússa, kallað á stríð og meiri vopn. 

Ég hef reynt að beina spurningum til Katrínar og Þórdísar en fæ engin svör. Líka til vina minna Alberts Jónssonar og Óla  Björns án árangurs.  Hvergi er nein umræða um hina geigvænlegu mengun í Eystrasalti. Geigvænlegt magn COâ‚‚ og metan slapp út í andrúmsloftið, 250 þúsund tonn af þungmálmum og þrávirkum eiturefnum þyrluðust upp, fiskar drápust og sjávargróður. Allt er umlukið þögn. Nei, það er annað sem er á huga þeirra. Katrín og Þórdís segja okkur að heimurinn sé að farast vegna hamfarahlýnunar. Ég og þú verðum að hraðspóla kolefnisjöfnun. Það á að kolefnisjafna og skattleggja andardrátt okkar. Það á að loka bankareikningum okkar ef þeim mislíkar skoðanir okkar. Hatursorðræða og upplýsingaóreiða er stimpill sem skellt er á fólk sem vill standa vörð um Ísland, íslenska menningu og tungu. Landamæri eru opin og stjórnlaus innstraumur fólks meðan frændur okkar hafa gripið í tauma. Innan fárra áratuga verður íslensk þjóð horfin og Ísland hérað í alheimsríki glóbalizta ef þær fá að ráða. Svona er Ísland í dag.


Rikki ríki ... Útskýring á úraníum

Ágætur vinur á Mogga heldur því fram að bresku skiðdrekarnir sem sendir verða í Austurveg til Úkraínu séu ekki með geislavirkt úraníum; þeir séu með depleted uraninum eða tæmt úraníum. Af þessu tilefni er rétt að árétta að þessi söguskoðun er og hefur verið afstaða Washington allar götur frá Flóabardaga 1990-1991. Bandaríkin og Nato hafa alltaf haldið þessu fram og neitað bótakröfum fórnarlamba sprengjuárása síðustu 30 ára; hvort sem væri sinna eigin hermanna eða óbreyttra borgara fórnarlamba í Afganistan, Írak, Sýrlandi, Bosníu, Kosovo og Serbíu og víðar. Hagsmunir Industrial Military Complex eru teknir fram yfir líf og heilsu fólks og eigin hermanna.

Nato BelgradYfir 500 óbreyttir borgarar féllu í loftárásum á Serbíu, þúsundir önduðu geislavirku sprengjuryki og glíma við illkynja æxli hvers kyns. Ítalskir friðarhermenn í Kosovo urðu fyrir geislavirku sprengjuryki. Til dagsins í dag eru 348 látnir og Nato lætur það sig engu varða; Colleteral Damage – Tryggingatjón þýðir Google.

 

HIN ÞÖGLA ÞJÁNING

Skráð illvirki Nato & Ameríku eru ítarlegust í Serbíu, Kosovo og Írak svo sem kemur fram í fyrri færslu minni um Rikka Ríka. Notkun úraníum eldlflauga og sprengna hefur leikið þessar þjóðir grátt, valdið slíkum harmleik að ekki verður færður í letur. Nýgengi krabbameins í Írak hefur aukist úr 40 pr. 100.000 fyrir Flóaabardaga í 1.600 pr. 100.000 eftir Írak-stríðin. Þetta eru tölur færðar í letur en að baki er dauðinn, þjáningin, fósturlátin og vansköpunin. Hin þögla þjáning óbreytts alþýðufólks sem fórnað er á altari hergagnaiðnaðar sem kaupir rannsóknir til hvítþvottar.

Nato Serbía YFIR SJÖ ÞÚSUND HERMENN ...

Yfir sjö þúsund bandarískir hermenn féllu í Írak og Afganistan. Hermenn sem þjónuðu í Írak-stríðunum komu til baka með illkynja æxli hvers kyns og skemmt DNA; langveikir, fatlaðir og yfirgefnir af eigin stjórnvöldum í Endalausum styrjöldum Clinton, Bush, Obama og Biden.

 

RÚSSAR: HLUTI KJARNORKUVOPNS...

Rússar líta úraníum sem stigmögnun stríðsins í Úkraínu. Vladimir Pútin sagði við Xi forseta Kína að Rússar líti á úraníum sem hluta af kjarnorkuvopni; nuclear compontent. Samsöfnuð Vesturlönd; Collected West ætla að nota hluta kjarnorkuvopns; a nuclear component.

 

HVAÐ SEGJA KATRÍN & ÞÓRDÍS ...

Nú er spurt: Munu fjölmiðlar okkar spyrja Katrínu & Þórdísi um skriðdreka vopnaða sprengjuhleðslum með geislavirku úraníum? Þeir gætu jafnvel líka spurt um íslenska aðild að hryðjuverkinu í Eystrasalti ... noj, Hallur auðvitað ekki ... kjáni ertu. Stríðið verður að halda áfram ... Náttúra og lífríki Eystrasalts er  Colleteral Damage; Tryggingatjón. Hvernig var það ekki í 1984 eftir George Orwell, stríðið í EvrAsíu. Endalaust stríð langt langt í burtu ... svo langtí burtu.


Rikki ríki sendir skriðdreka með geislavirkt úraníum til Úkraínu

Bretland Rishi Rich Rishi Sunak forsætisráðherra Breta ætlar að senda 28 Challenger skriðdreka til Úkraínu í vor. Hermálaráðherra Breta, Annabel Goldie sagði á mánudag að skiðdrekarnir verði með skothleðslur hlaðnar geislavirku úraníum. „Slíkar úraníum hleðslur eru mjög skilvirkar í nútíma skriðdreka orrustum,“ sagði stríðæst Annabella í viðtali við Reuters í byrjun vikunnar. Hvað er þetta með allar þessar stríðæstu konur? Nú eru geislavirkar úraníum sprengjur sendar í Austurveg.

Rishi Sunak hefur aldrei verið kjörinn af bresku þjóðinni. Sunak var komið í embætti eftir hallarbyltingu glóbalizta sem yfirtóku Íhaldsflokkinn eftir Brexit og kosningasigurinn 2019. Sunak er trúr Davos. Bretar líkja Sunak við  teiknifígúruna Rikka ríka; Richie Rich ríka strákinn sem átti billjónir dollara. Hann var leikinn af  Macauley Culkin í Hollywood mynd 1994. Sunak á fátt eða ekkert sameiginlegt með breskri alþýðu. Breska þjóðin kaus Brexit 2016. Árið 2019 leiddi Boris Johnson Íhaldsflokkinn til eins stærsta kosningasigurs í breskri sögu. Það var í ársbyrjun 2019 og Boris kláraði útgönguna. Nú hefna þau sín á Boris Johnson, niðurlægja og velta í skítnum. Lögregla New York er sögð bíða albúin að handtaka og handjárna Dónald Jón Trump 45. forseta Bandaríkjanna. Okkur er sagt að lýðræðið standi traustum fótum á Vesturlöndum. Joe Biden með Laptop-from-Hell, 10% to the Big-Guy situr í Hvíta Húsinu.

Bretland Annabel GoldieÚRANÍUM BLANDAÐ RYK

Geislavirkir úraníum skriðdrekar Nato eru stigmögnun stríðsins í Úkraínu og munu eyðileggja frjósama úkraínska jörð og valda dauða óbreyttra borgara og hermanna og krabbameini. Sprengjur þeirra munu eyðileggja kornforðabú heimsins í 4.5 milljónir ára. Sprengjuregnið þyrlar upp úraníum blönduðu ryki sem leggst á lungu fólks, veldur illkynja æxli og vansköpun fóstra. Að þessu á Ísland aðild. 

Á sama tíma svara þau ekki fyrir mesta mengunarhryðjuverk sögunnar á Nord Stream, aðild Íslands að Crime against Humanity. Hin sömu segja okkur að heimurinn sé að farast og við verðum að hraðspóla. Það á að kolefnisjafna þig og mig og skattleggja andardrátt okkar. Þau ætla að loka bankareikningum okkar vegna óþægilegra skoðana; Unconvienient Truth. Þau kalla óþægilegar skoðanir hatursorðræðu. Þau saka fólkið í landinu um haturorðræðu ef ósammála sínum skoðunum.

NatoSTRÍÐSGLÆPIR Í SERBÍU

Bandarískar herþotur beittu úraníum sprengjum í árásum á Serbíu, yfir 500 Serbar létust sprengdir í tætlur, fólk deyr enn af krabbameini. Mikil særindi eru á Ítalíu því hundruð ítalskra hermanna hafa látist af geislavirkum eitursprengjum Ameríku. Í desember 2017 skýrði ítalska fréttastofan Ansa frá því að 348 ítalskir friðarhermenn í Kosovo séu látnir af völdum úraníum mengunar. Fram á þennan dag deyja ítalskir hermenn, falsmiðlar láta sig ekki varða örlög þeirra. Aðstandendur hafa sótt skaðabætur frá Nato án árangurs. Nato lætur sig ekki varða um mannleg örlög. Um stríðsglæp er að ræða, en auðvitað var Bill Clinton forseti 1993-2001 ekki saksóttur af ICC Alþjóða glæpadómstólnum í Haag.

STRÍÐSGLÆPIR Í ÍRAK

Sama gerðist í Írak. Bandaríkin hlóðu sprengjur geislavrirku úraníum sem bora sig inn í skotmörk. Í Flóabardaga; Gulf War 1990-1991 var úraníum skothylkjum beitt af miklum eldmóð. Í Írak-stríðinu 2003 sömuleiðis með hörmulegum afleiðingum en yfir milljón Íraka féllu, milljónum var stökkt á flótta. Árið 1991 voru 40 krabbamein greind í hópi 100.000 Íraka, árið 1995 voru tilfellin 800 og árið 2005 komin í 1.600 pr 100.000 fjölgar enn. Spyrjið Serba, Ítali og Íraka um depleted tæmt úraníum. Washington lætur þetta sig engu varða. Stríðin eru háð í nafni frelsis og lýðræðis. Þjóðir sprengdar á steinöld og skildar eftir í sárum. Julian Assange upplýsti um skelfilega stríðsglæpi í Írak. George Bush gengur laus óáreittur af Alþjóða glæpadómstólnum en Assange er í breskri dýflissu. Svona eru styrjaldir Nato, dauði og gereyðing. Hvenær opnast augu vina minna ...


Yfirhylmingin

Nord Stream YfirhylminginPulitzer blaðamaðurinn Seymour Hersh hefur á Substack-síðu sinni  skýrt frá því að bandarísk stjórnvöld hafi samið falsfréttir til þess að hylma yfir hryðjuverkið á Nord Stream gasleiðslunum 26. september 2022. CIA hafi samið nýja útgáfu; cover story til þess að koma á New York Times þess efnis að að Joe Biden forseti hafi EKKI gefið skipun um hryðjuverkið í Eystrasalti. Þýska leyniþjónustan, sem gegnir því langa nafni Bundesnachrichtendienst hafi séð um Die Zeit. Sy Hersh er stærsta nafn bandarískrar blaðamennsku í rúmlega 50 ár.

„Það var orðað svo af njósnasamfélaginu; intelligence community, að CIA átti að dæla inn á kerfið; pulse the system með það markmið að grafa undan fréttum þess efnis að Biden hafi skipað fyrir um eyðileggingu gasleiðslanna,“ skrifar Hersh á Substack-síðu sína og vitnar í nafnlausan heimildarmann í njósnasamfélaginu. New York Times og þýskir kollegar á Die Zeit, birtu fréttir um að  leynilegur úkraínskur hryðjuverkahópur á lúxus seglskútu hafi komið fyrir sprengjum á botni Eystrasalts þar sem gasleiðslurnar voru. Hringekjan fór svo af stað af hálfu orwellska Trusted News samstarfinu. „Þetta [sagan um seglskútuna] var uppspuni sem var komið til Þjóðverja til þess að grafa undan trúverðugleika fréttar þinnar,“ sagði heimildarmaður innan bandaríska njósnasamfélagsins við Hersh.

Nord Stream Biden ScholzLITLI BRÓÐIR Í WASHINGTON

Olaf Scholz hitti Joe Biden í Washington í byrjun mars. Það voru engir þýskir blaðamenn í fylgd kanslarans, enginn fréttamannafundur, enginn kvöldverður, engar yfirlýsingar, engin áhætta tekin um óþægilegan sannleika; unconvenient truth. Þjóðverjar sáu sem var að Scholz er litli bróðir og Biden stóri bróðir. CNN fékk að taka viðtal við Scholz og nefndi bara alls ekki gasleiðsluna sem er stærsta mál þýsks almennings. Gasverð hafði meir en sex-faldast frá upphafi Úkraínustríðs, tífaldaðist um haustið með hryðjuverkinu á Nord Stream. Evruprentun fór í yfirgír. 800 milljarðar evra voru settar í niðurgreiðslur til að lina þjáningar íbúa Evrópu. CNN ræddi þetta bara alls ekki, CNN ræðir ekki óþægindi sem koma Biden illa. Orkuverð er nú þrefalt hærra í Evrópu en Ameríku. CIA – Central Intelligence Agency – var sem sagt beðin um nýja útgáfu; cover story af hryðjuverkinu. CIA skilaði af sér sögu um seglskútu og tengdi við úkraínskan hryðjuverkahóp. Fjölmiðlahringekja Trusted News fór af stað.

 

Nord Stream gasleiðslurP8 ÞOTAN FRÁ KEFLAVÍKURFLUGVELLI

Ég hef sagt frá frétt Sy Hersh í febrúar síðastliðnum um að Bandaríkin hefðu verið á bak við hryðjuverkið á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasalti í september 2022 sem var unnið í samvinnu við Norðmenn. Hvíta Húsið hefur þvertekið fyrir að vera á bak við hryðjuverkið, sem og norsk stjórnvöld. P8 þotan sem hóf sig til flugs frá Keflavíkurflugvelli síðla kvölds 25.september sveimaði yfir gasleiðslunum um nóttina sem þýðir sterkar líkur eru á íslenskri aðild að mesta mengunar hryðjuverki sögunnar. Á Íslandi ríkir alger þögn af hálfu stjórnvalda og fjölmiðla sem þiggja fé úr ríkissjóði; rúv, stöð 2, vísi, fréttablaðinu, mbl, dv. Enginn segir neitt, enginn útskýrir, enginn spyr, samfélag okkar ræðir ekki óþægileg mál. Líkleg aðild Íslands að stærsta mengunarhryðjuverki mannkynssögunnar í Eystrasalti er bara alls ekki til umræðu en stjórnvöld í Washington og Osló hafa þó alltént neitað.


Margpóla veröld ... vopnin kvödd

Úkraína BakhmutÍ nýlegu viðtali segir herforinginn Douglas Macgregor að bardaginn um Bakhmut sé grafreitur úkraínska hersins. Bakhmut minni á hið þýska Wehrmacht í Stalíngrad fyrir áttatíun árum. Fyrir stríðið í Úkraínu hafi úkraínski herinn verið öflugasti evrópskra Nató-þjóða; talið 450 þúsund manns með 150 þúsund manna varalið. Nú séu allt að 250 þúsund úkraínskra hermanna fallnir og saknað, 300-400 þúsund óvígir. Mannfall Rússa í stríðinu sé um 30 þúsund og annar eins fjöldi óvígur. Í Austurvegi berjast bræður sem væru Danir og Svíar. Her Úkraínu sem var att á forað glóbalzkrar útþenslu hefur verið gereytt. Sagt er að tíu þúsund úkraínskir hermenn séu í herkví innikróaðir í Bakhmut og úkraínskir herinn hyggi á vorsókn. Enn tala Joe Biden forseti og Stoltenberg um að senda dollar og vopn í Austurveg en Bandaríkin hafa tæmt eigin vopna- og skotfærabirgðir. Petr Pavel forseti Tékklands segir að nú í  ár sé gluggi til lokagagnsóknar Úkraínu; counter-offensive því eftir næsta vetur verði erfitt fyrir Vesturlönd að halda uppi stuðningi og Úkraínu mannafla. Hann veit, fyrrum Natoforingi. Það yrði þá líkt og Battle of Bulge í Ardenneskógi lokasókn Hitlers.

ENDALOK AMERÍSKRAR HEIMSVALDASTEFNU

Vesturlönd byggja ekki lengur framleiðsluþjóðir líkt og fyrir þrjátíu árum, að ekki sé talað um Ameríku 1941. Iðnaður er meira og minna fluttur til Kína. Evrópa er orkusnauð eftir endalausan bulláróður gegn gasi og olíu. Herafli Bandaríkjanna er svipur hjá sjón. Vestrænir innviðir eru í lamasessi, fréttir berast af gjaldþroti 600  ára stáliðjuvers í Saxlandi, sjálft þýska stálið er deigt. Orðrómur er um að Pólverjar ráðist inn í V-Úkraínu. Til hvers? Endurheimta Galisíu og Volhyníu, maður spyr sig. Varla ætla Pólverjar í stríð við Rússland, eða er svo? Úkraína er að hverfa til gamla Kyiv Oblast líkt og var fyrir fyrra heimstríð.

Afgan Biden surrenderÞegar Biden fyrirskipaði flótta frá Afganistan 2021 voru $85 milljarðar af fullkomnustu hertólum Bandaríkjanna skilin eftir. Þá  líkti breski sagnfræðingurinn Niall Ferguson hningun Ameríku við hnignun breska heimsveldisins fyrir öld: As it leaves Afghanistan in chaos, America’s decline mirrors Britain’s a century ago. Tuttugu ár eru frá innrás Bandaríkjanna í Írak með stuðning XD og XB; landið sprengt í tætlur, yfir milljón liggja í valnum, milljónir á flótta, svo voru Lýbía og Sýrland sprengd á steinöld með stimpli frá Vg og Samfó endalausir stríðsglæpir. Nú flytur Biden-stjórnin stolna sýrlenska olíu til Evrópu þjófsnautur Ameríku. Í Kænugarði börðu Katrín og Þórdís trumbur  styrjaldar eltandi senílan Joe Biden með Laptop from Hell hangandi sem myllustein um háls. 'Það var magnað að hitta þennan mann,' sagði Katrín.

Ukraína Katrin ZelSvona vinnur elítan að helsi, ófriði og nýrri transveröld sem mun torýma vestrænni siðmenningu á fáum áratugum. Vesturlönd hírast í bergmálshelli lyga og ritskoðunar, dollar er í hafvillum að renna sitt skeið, vestrænn hrunstormur er í aðsigi. Efnahagur Vesturlanda er á barmi Svörtulofta eftir endalausar styrjaldir, plágur, sprautur, græna villu og slaufun. Alþingi skilur eftir sig dauða og eyðileggingu. Sama ra***** undir þeim eða finn ég einn?

Katrín með töskuna og Þórdís í herjakka stöppuðu stáli í Zelinskyy. Skilaboð þeirra? Haltu áfram að fórna úkraínsku blóði svo Úkraína geti gerst aðili að Nato. Við sendum þér tvo milljarða í viðbót.

Kæru vinir, við erum að kveðja geggjun þeirra.

Rússland AfríkaFÆÐING MARGPÓLA VERALDAR

Ný heimsskipan er í fæðingu. BRICS þenst út með samvinnu Brasilíu, Rússlands, Indlands, Kína og S-Afríku. Fjöldi þjóðar leitar inngöngu. Bara undanfarna daga hefur þetta gerst: Leiðtogar fjörtíu Afríkuþjóða eru í Moskvu á ráðstefnu: Rússland-Afríka í margpóla veröld; multi-polar world. Xi forseti Kína í Moskvu „...til viðræðna við vin minn Pútin.“ Saudi-Arabar og Íranir gera friðarsátt í Peking með Xi við enda borð, Írakar og Íranir innsigla samstarf. Sættir meðal múslima. Bashar al-Assad Sýrlandsforseti flýgur til Persaflóa. Saudi-Arabía opnar sendiráð í Sýrlandi. Forseti Íran heimsækir Riyahd.

Úkraína Kína friður80% mannkyns styður Rússland, takið eftir því. Mestur hluti Asíu, Mið-Austurlönd, Afríka, S-Ameríka. Vesturlönd eru að gufa upp í eigin skítalykt. „Glóbal suðrið hafnar Washington DC og Endalausum styrjöldum. Það eru stærri fiskar að steikja; Bigger Fish to Fry,“ tvítar einn þátttakanda. Xi forseti Kína setur fram tillögur í 12-liðum um vopnahlé og frið í Úkraínu. Pútin kinkar kolli en Biden-klíkan hristir hausinn. Af hverju? Spyrjið.

   

 EINPÓLA VERÖLD Á ÖSKUHAUGA SÖGUNNAR

Við erum vitni að upplausn einpóla veraldar hins ameríska heimsveldis og nýlenduþjóða Evrópu. Bandaríkin eru rúin trausti í frjálsu falli. Evrópa er hrunin. Allt sem ég hef sagt ykkur undanfarin ár er satt. Senn birtist okkur stóra lygi um „úkraínskar frelsishersveitir“.

Bob MinorLíkt og Rússar hristu af sér hlekki kommúnisma fyrir 30 árum munu Bandaríkin skella svikamyllum Federal Reserve, Military Industrial Complex og Big-Pharma í lás og henda lyklunum. Treystið planinu, fórnir bandarískar alþýðu og þjáning heimsins á altari Mammons, helsta herforingja Satans er að ljúka. ­Þegar FED hafði prentað pappírsdollar í rúman áratug og Kína, Indland ásamt Afríku skorti pappírsdollar en höfðu gnægð fólks, fékk teiknarinn Bob Minor sýn árið 1925. Dag einn munu þjóðir heims vakna og átta sig á að eitthvað er breytt. Það er sólarupprás vor í lofti, finnið þið ilminn? Í Völuspá lítur völvan yfir sviðið, sættir verða í Austurvegi, iðjagræn jörð rís. Gætið að, Snorri kveður Óðinn hafa komið frá ósum Tanakvíslar sem nú er Dóná við borgina Odessu þaðan sem við fengum rússa-olíuna:

Þá kná Hænir / hlautvið kjósa / og burir byggja /

bræðra tveggja / vindheim víðan. Vituð þér enn, eða hvað?


Ungar konur sem boða stríð

Úkraína Katrín Þórdís Það er með sorg í hjarta sem ég skrifa þennan pistil en svona er málum háttað: Ungar konur vítt og breitt um Vesturlönd eru talsmenn heiftar og styrjalda. Hvernig má það vera? Hér á landi fara þær fremstar Katrín Jakobsdóttir, kornungri att fram á foraðið og nú Þórdís KR Gylfadóttir. Lítt sjóaðir ráðherrar fákunnandi um sögu mannkyns hafa verið teknir á læri embættismanna, lævíslega mótaðir að hentugleika. Flestu snúið á haus rest á röngu. Þessu fólki verið innrættur glóbalizma styrjalda alla þessa öld; Afganistan, Írak, Líbýa, Sýrland, Súdan, Yemen. Endalausar styrjaldir á hendur þjóðum múslima, áður kristin Serbía, nú er það kristin Úkraína. Skriffinnar okkar ásamt Alþingi beita sér fyrir afsali fullveldis í hendur útlendum skriffinnum í Brussel og New York. Rök standa til þess að alla daga sé brotið gegn landráðakafla hegningarlaga 86. greinar.

Úkraína mannfall IMYRKVUÐ VERÖLD

Þórdís KR Gylfadóttur utanríkisráðherra klædd herjakka minnti á gyðjuna Ingrid Bergmann þegar hún stillti sér upp fyrir framan rústir fjölbýlishúss í Bútsja, Úkraínu. Sannarlega flott kona en uppstillingin óviðeigandi, hún augljóslega skilur ekki hlutverk sitt, mætir í herjakka. Faðmlag Katrínar og Zelinskyy sláandi meðvirkni. RÚV ropandi ríkislygi úr iðrum heilaþvær þjóðina að útlendri forskrift fremjandi landráð á bak við luktar dyr með afsali ritstjórnarvalds í útlendar hendur; Trusted News á orwellsku. Hvorki Kolbrún né fréttakonan í Kastljósi fyrir helgi höfðu minnsta áhuga á að ræða frið né hörmulega útreið úkraínaska hersins. American Conservative kveður 150-200.000 úrkaínska hermenn fallna og 250.000 óvíga, leyniþjónustur skýra frá geigvænlegum harmleik í Austurvegi. Bakhmut fallin eða um það bil. Gera Katrín og Þórdís sér enga grein fyrir hildarleiknum og afleiðingum gjörða sinna. Engar diplómatískar lausnir, bara marklaus mónólógía ófriðar sem endar með einvígi; heimsstyrjöld. ­Við lifum á kjarnorkuöld. Ófriðarblikur í Evrópu eru nú á pari við upphaf fyrri og seinni heimstyrjalda. Heimsstríð verður af litlum neista. Amerísk/norsk hryðjuverkaárás með íslenskri aðild á Nord Stream gasleiðsluna í Eystrasalti; hryðjuverkið er stríðsglæpur.

Ukraína Dennys KyrievÚKRAÍNA OG NAZISMI

Nazistinn Stephan Bandera er úkrönsk þjóðhetja, leikarinn Volomydyr Zelinskyy kolsvartur í vægast sagt ógeðfelldum leikhlutverkum um árabil. Zelinskyi bannar málfrelsi, bannar stjórnarandstöðu, bannar frjálsa fjölmiðla, ofsækir trúaða, fangelsar og drepur stjórnarandstæðinga, sjanghæjar unglinga í herinn. Denys Kireyev átti sæti í friðarnefnd úkrana í Istanbúl fyrir ári. Hann vildi semja við Rússa. Kireyev var tekinn af lífi, líkið skilið eftir á götu í Kænugarði öðrum til viðvörunar. Við vitum að Kænugarður hefur beitt fyrir sig nazistum sem voru teknir í herinn eftir amerískt valdarán 2014 þegar farið var með stríði gegn rússneskum úkrönum í Donbass og Luhansk.  Það fer tvennum sögum um atburðum í Bútsja, vonandi verða voðaverkin upplýst.


Úkraína sýklasmiðjurAuðvitað snýr Alþjóða glæpadómstóllinn ICC í Haag öllu á haus og sakar Rússa um glæpi gegn börnum sem forðað var frá stríðshrjáðri A-Úkraínu. Petro Poroshenko forseti 2014-2019 hóf stríðið: þeirra börn þurfa að hírast í kjöllurum. Poroshenko tók Azov nazistana í herinn með blessun Washington.

Stofnfrumur hafa gengið kaupum og sölum í bráðum aldarfjórðung í Úkraínu, jafnvel lengur. Það voru  fjörtíu og sex amerískar sýklasmiðjur í Úkraínu; bio-labs. Hvert halda menn að Big-Pharma með allar sínar úkrönsku starfsstöðvar hafi sótt stofnfrumur? Evópuráðið fékk nasasjón af glæpunum fyrir 20 árum, ég hef sagt fá þeim og ályktunum ráðsins. Spyrjið og leitið. Allar þessar konur hylma yfir glæpi gegn börnum eltandi senílan krimma í Washington. ICC í Haag er vestrænt valdatæki sem hefur alla sína ömurlegu tíð litið framhjá amerískum stríðsglæpum.

Úkraína Kata

KATRÍN OG TASKAN                              

Í Aþenu er borgara-fréttamaður með daglega umfjöllun; Alex Christoforou labbar um Aþenu og ræðir heimsmálin.  Hann frétti af Katrínu okkar í Kænugarði. Alex fannst fyndið að Kata mætti með skjóðuna sína, hafði séð frétt á Kyiv-News. Alex setur sig í spor Zelinskyy sem tekur á móti Kötu, sér stóru skjóðuna og finnst fyndið. „Ertu með peninga í töskunni, gott! Mig vantar peninga til að kaupa villur á Íslandi!“ segir hann og hlær.

Þetta kallar Alex clown-world; trúðaveröld.


Grískt olíuskip var yfir Nord Stream

Nord Stream Minerva kortÞá Nord Stream. Grískt olíuskip Minerva Julie dólaði í sjö daga á Borgundarhólmsdjúpi dagana 6-13. september 2022 um hálfum mánuði áður en Nord Stream gasleiðslurnar voru sprengdar. Skipið sigldi inn á Eystrasalt frá Rotterdam og að loknu sjö daga dóli hélt til Tallinn í Eistlandi og Pétursborgar. Business Insider, BI hefur skýrt frá því að 29-ára Dani, Oliver Alexander hafi kortlagt dól skipsins. Ef rétt er þá hafa seglskútan Andromeda og olíuskipið Minerva Julie verið á svipuðum slóðum þriðjudaginn 6. september 2022. Finnskur miðill Verkkouutiset var fyrstur með fréttina sem hefur ekki fengið þá athygli sem hún verðskuldar. Útgerð skipsins hefur gefið þá skýringu að algengt sé að skip þess dóli milli verkefna til þess að spara hafnargjöld.

Nord Stream OliverHins vegar er bent á að útgerðin flytji um þriðjung af rússneskri olíu. BI kveður ekkert benda til aðildar skipverja að hryðjuverkinu í Eystrasalti. Þó hlýtur að liggja í hlutarins eðli rannsaka og skipverjar verði yfirheyrðir, hæg heimatök því um er að ræða vestrænt olíuskip.  Ekkert bólar á forvitni hvorki Dana né Svía um olíuskipið að ekki sé minnst á Þjóðverja. Stórblöðin Der Spiegel, Washington Post, New York Times og Wall Street Journal hafa ekki veitt gríska skipinu mikla athygli, en hins vegar Adromedu ofurathygli og tengt við úkraínska vígasveit; pro-ukranian partisans sem hefðu getað sprengt Nord Stream. Zelinskyi hefur lýst óánægju sinni að Úkraína sé bendluð við hryðjuverkið. 

DANIR VITA EN ÞEGJA OG ÞAGGA

Nú er það svo að frá Borgundarhólmi er fylgst með öllu á Eystrasalti og svo hefur verið frá árdögum Kalda stríðsins. Nato hefur mikinn viðbúnað á eyjunni og leyniþjónusta Dana boðaði árið 2017 mikla uppbyggingu Nato og 90m háan eftirlitsturn sem yrði reistur í Østermarie til þess að fylgjast með öllu á, í og yfir Eystrasalti og raunar inn í Rússland. Gamli turninn 70m er nú partur af Kalda stríðssafni. Dönskum stjórnvöldum er í lófa lagið að upplýsa um ferðir gríska skipsins, skútunnar og auðvitað P8 þotunnar sem fór frá Keflavíkurflugvelli  sem ég hef sagt frá en ekkert heyrist í Kaupmannahöfn, frekar en Berlín að ekki sé talað um Stokkhólm sem hóf en hætti rannsókn. 101 Reykjavík þegar þunnu hljóði um flug P8 þotunnar frá Íslandi.  Af hverju?

Ukraine Svartahaf  MQ-9 DRÓNINN 

Líkt og kom fram í pislti mínum um MQ-9 drónann, þá gusaði rússneska orrustuþotan Su-27 eldsneyti, nánar tiltekið steinolíu yfir drónann. Þotan skemmdi hreyfilblað svo hún féll í sjóinn. Rússar kváðust ekki hafa beitt vopnabúnaði, það útaf fyrir sig er rétt en ef út í það er farið þá er Su-27 vopn, ekki satt? Auðvitað telst atvikið örgun af hálfu Rússa, líkt og B-52 kjarnorkuvirkið 200km frá Pétursborg ögrun af hálfu Nato. MQ-9 féll í sjóinn á alþjóðlegu svæði en Rússar segja að brotið hafi verið gegn „núverandi lofthelgi“ meðan stríðið í Úkraínu varir. Ergo: Bandaríkin ögruðu Rússum og Rússar ögruðu Bandsaríkjamönnum. Kveikiþráður styrjaldar styttist ... 


Bandarískur ofurdróni hrapar í Svartahaf

Úkraína DróniNýjasta atvik í deilu stórveldanna er bandarískur njósnadróni MQ-9 Reaper sem hrapaði á mánudag, 14. mars í sjóinn undan Krímskaga. Atvik eru fremur óljós. Evrópuherstjórn Bandaríkjahers; US European Command EUCOM sakar Rússa um unsafe and unprofessional intercept; sprauta eldsneyti yfir ofurdrónann og fljúga utan í hinn mikla hreyfil með þeim afleiðingum að dróninn féll í sjóinn. Tvær rússneskar Su 27 herþotur höfðu verið sendar á vettvang. Rússar segja að flugmenn þeirra hafi ekki beitt vopnum né farið utan í drónann og lent heilu og höldnu eftir atvikið. Eitthvað gerðist sem varð þess valdandi að ofurdróninn hrapaði líklega skammt undan 12 mílna landhelgi á alþjóðlegu hafsvæði. Það er ágiskun en undarlega lítill áhugi hefur verið á staðsetningu atviks.

Úkraína kort Svartahaf SENDIHERRA RÚSSA Á TEPPIÐ

Washington var ekki skemmt. Sendiherra Rússlands í Washington var kallaður á teppið og tvítaði svo: Ímyndið ykkur hvað gerst hefði ef rússneskur njósnadróni hefði verið undan ströndum New York eða San Fransisco. Það er svo sem ekki erfitt eftir að bandarískar orrustuþotur á liðnum vikum skutu niður loftbelgi og geimskip frá öðrum hnöttum; Alien UFO objects að sögn Hvíta Hússins. Nato-drónar hafa verið tíðir gestir yfir Svartahafi og látið úkrönum í té upplýsingar sem tengst hafa bardögum í Úkraínu. Orðrómur hefur verið undanfarna daga um stórfellda árás Úkraínuhers á næstunni, meðal annars til þess að frelsa tíu þúsund úkraínska hermenn umkringda í herkví í Bakhmut. Kann þarna að vera skýring á viðbrögðum Rússa?

Afganista  dróni  MQ-9 FLUGSKEYTA ÁRÁSIR

Bandaríkjamenn hafa beitt MQ-9 Reaper ofurdrónum til flugskeyta árása í Mið-Austurlöndum. Þetta eru engin smátæki. Í júlí 2008 réðst slíkur dróni á þorpið Haska Meyna þar sem brúðkaup stóð yfir og féllu 47 Afganir, þar á meðal brúðurin. Þennan stríðsglæp Bush neita þeir að viðurkenna, en kalla Collateral Damage; tryggingatjón í þýðingu google. Biden hafði synjað Zelenskyy um MQ-9 dróna því þeir mættu undir engum kringumstæðum lenda í höndum Rússa. Zelenskyy var ekki treyst. Strax eftir atvikið yfir Svartahafi var rúmenski herinn beðinn að endurheimta drónann en Rússar voru á undan. Þeir eru sjálfsagt að skoða og rannsaka.

 Öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham mætti hjá Sean Hannity á Fox News. Þeir voru báðir reiðir, Graham vill stríð alveg eins og stelpurnar okkar Katrín og Þórdís. Graham sagði á Fox að Ronald Reagan forseti 1981-1989 hefði aldrei látið þetta yfir Bandaríkin ganga: Hvað myndi Reagan gera? Hann myndi skjóta niður rússneskar þotur, ef þær ógna okkur. En er þetta rétt? Reagan var ekki stríðsforseti, hann beitti stjórnvisku og viðræðum við Sovétríkin; alræðið sem Rússar svo hristu af sér líkt og óværu. Reagan vann stríðið með diplómatíu en ekki það sem ágætur vinur minn kallar mónómatíu; eintali um stríð. Ég minni á fund Reagan og Gorbatsjov í Höfða 1986. Ég hef sagt frá stríðshaukunum Graham og John McCain með fyrir utan Mariepol 2016 þar sem þeir hvöttu til stríðs á komandi ári gegn rússneskum þegnum Úkraínu. Þeir lofuðu vopnum og dollurum, sjá hér. Mariepol var helsta vígi Azov-nazista. Það sem hins vegar gerðist var að nýr forseti sem svarinn var í embætti í janúar 2017 hvatti Zelenskyy til viðræðna við Pútin, ekki styrjaldar ... svo kom Biden.


Katrín & Zelinskyy í faðmlögum

Úkraína Katrín ZelinskiKatrínu Jakobsdóttir og Þórdísi Reykfjörð var stefnt til Kænugarðs af húsbændum sínum og hafa kysst hring Zelenskyy forseta í Kænugarði með fjölmennt fylgdarlið sér við hlið. Þau féllust í faðma í lok fundar eins elskendur sem bíður langur aðskilnaður, Katrín og Zelenskyy. Stöllurnar heita ríkulegum stuðningi íslenskra skattgreiðenda til stríðsrekstrar en 2.5 milljarðar eru farnir án þess að nokkur spyrji hvert þeir fóru. RÚV tryggir traustar ríkisfréttir; trusted news og fjölmiðlarestin tekur við ríkisefni. Stöllurnar fóru til Bútsja þar sem skelfileg fjöldamorð bíða uppljóstrunar og veröldin mun krefjast að hinum seku verði refsað. Sú stund er ekki upp runnin. Ásakanir hafa gengið á víxl en á Íslandi er bara ein ríkisskoðun. Hætt er við því að stöllurnar eigi eftir að harma för sína því sagan gleymir ekki. Við vitum að eftir blóðugt valdarán í Kænugarði 2014 stefndi Petro Poroshenko nýr forseti Azov-nazistum gegn rússnesku mælandi íbúum Donbass og Luhansk; þeirra börn munu hírast í kjöllurum hótaði Poroshenko með blessun Washington. Stríðið hafði staðið í átta ár þegar Rússar fóru inn fyrir rúmu ári. 15-20 þúsund manns lágu í valnum og tvær til þrjár milljónir úkraínskir Rússar flúið til Rússlands.

 

Úkraína KolbrúnÁ dögunum var enn ein unga vestræna konan í Kænugarði, Sann Marin forsætisráðherra Finnlands innvígð og innmúruð í Davos. Hún fór með Zelinskyy í útför fallins hermanns; nazista svo sem fjölmiðlar víða um  heim og fréttin.is hér heima hafa skýrt frá. Sann Marin hefur sýnt að hún kann að meta ljúfa lífið og Zelinsky hvíta duftið. If you want to hang out, you've gotta take her out, Cocaine fór sem eldur í sinu á netinu með Zelenskyy í aðalhlutverki. Auðvitað býður Zelinskyy Kötu og Þórdísi til dýrðlegrar veislu. Hvað er þetta með allar þessar glæsilegu ungu konur sem boða stríð en ekki frið? Vestræn diplómatík um frið er víðs fjarri, aðeins mónomatísk síbylja um stríð. Eru ungu konurnar í embættum af verðleikum eða mótaðar að hentugleika? Í Eistlandi dreymir Kaju Kallas um að taka við af Stoltenberg í Nato. Þýskur kollegi Þórdísar, græninginn Annalena Braebock segir frið aðeins mögulegan ef Pútin breyti stefnu 360 gráður! Hvað er hægt að segja um vitsmuni þessarar sjálfsagt ágætu en afvegaleiddu konu? Engar viðræður, bara skilmálar.

Framsókn hefur sett unga þingkonu, Hafdísi Hafsteinsdóttur, til að leiða vinnu um ný sóttvarnalög í velferðarnefnd. Samkvæmt drögum má sprauta fólk með framandi efnum án upplýsinga um innihald. Sóttlæknar framtíðar fá lögregluvald; skipa lögreglu að svipta fólk frelsi og sprauta. Í þætti á Útvarpi Sögu var unga þingkonan út á þekju um málefnið, svo mildilega sé til orða tekið. Hverjir véla að tjaldabaki? Af hverju ekki bara kjósa framsókn?

Úkraína Biden ZelenskyVestrænir leiðtogar til Kænugarðs

Í Úkraínu eru Katrín og Þórdís í kjölfari hers vestrænna leiðtoga sem allir sem einn hafa leyfi Vladimirs Pútin til farar. Ulrika van der Leyen frá Brussel, Giorgia Meloni frá Róm, Olav Scholz og Annalena Baerbock frá Berlín, Mette Fredriksen, frá Kaupmannahöfn, Boris Johnson og Rishi Sunak  frá London. Frá Washington hafa komið Nancy Pelosi þingforseti og nýlega Joe Biden forseti með örvæntingu í svip. Anthony Blinken utanríkisráðherra var í Austurvegi, Janet Yellen fjármálaráðherra og Merrick Garland dómsmálaráðherra. Þarna hefur margt verið brallað. Kevin McCarthy leiðtogi repúblikana í fulltrúadeildinni hafnaði boði Zelinskyy um för í Austurveg. McCarthy kveðst ekki fara til Kænugarðs nema hafa fullvissu um endurskoðun fjármuna; financial audit þar sem allt sé gagnsætt upp á borðum. Engin 10% to the Big Guy svo vitnað sé í Laptop-from-Hell. Joe Biden-stjórnin hafnar öllu eftirliti með þvottavélum sínum. Árin 2017-2021 var við völd forseti sem vildi hætta Endalausum styrjöldum Ameríku og Nato ásamt kalla hermenn heim. Það fannst Kötu og Þórdísi afleit hugmynd, þær vilja stríð. Svona er nú veröldin skrítin.

 

Nord Stream B-52750 amerískar herstöðvar utan landamæra

Bandaríkin hafa 750 herstöðvar utan landamæra sinna, þar af um mörg hundruð umhverfis Rússland og Kína. Sjálfsagt er Keflavíkurflugvöllur nú á lista. Síðastliðin 30 ár hafa Nato, Bandaríkin og Evrópusambandið markvisst fært út kvíar í Austur-Evrópu og eru nú í kálgarði Rússlands. Árið 2014 var dæmigert amerískt Coup d‘Etat í Kænugarði kallað Colour Revolution eða Litabyltingin. Íslendingar fengu sína Litabyltingu en kalla Búsáhaldabyltingu þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar var hrakin frá völdum eftir að hafa styggt Wall Street, Brussel, London og Washington um skaðabætur úr föllnu bönkunum upp á 800 milljarða við afnám gjaldeyrishafta. Það er farið eftir þeim sem rugga bátnum.

Kerfisbundið er grafið undan stjórnvöldum í Hvíta Rússlandi og Georgíu. Anthony Blinken utanríkisráðherra var í Kazakstan á dögunum og bauð fram vernd Bandaríkjanna gegn Rússum. Því var hafnað af Mukhtar Tileuberdi, utanríkisráðherra sem kvað Kazakstan enga ógn stafa af Rússlandi. Fréttablaðið hefur skýrt frá mestu heræfingum Bandaríkjanna og S-Kóreu um árabil. Bandaríkin hafa 17 herstöðvar í S-Kóreu. Rússar munu hafa herstöðvar í gömlu sovétlýðveldunum Armeníu, Tadzhikistan og hérðunum Abkhazíu og Ossetíu sem lýstu yfir sjálfstæði frá Georgíu. Kínverjar eru í Dhjibútí í Afríku og hafa steypt og stækkað eyjar í S-Kínahafi. Hvað eru þeir að bralla?

Nordstream USS KearageB-52 kjarnorkuvirki stefnt  á Pétursborg

Fréttablaðið birti með frétt sinni mynd af B-52 kjarnorkuvirki ásamt fylgdarþotum. B-52 var með kallmerkið Noble61 stefnt á Pétursborg og Kalíningrad en þó án kjarnorkuvopna að helst er talið. Fyrir átta mánuðum var USS Kearsarge í Eystrasaltinu með fríðu föruneyti. B-52 tók á loft frá Póllandi út yfir Eystrasaltið yfir eistnesku eyjuna Saaremaa og stefndi í átt að rússnesku eyjunni Gogland um 200 kílómetra frá Pétursborg. Þar tók þotan stefnu til suðurs og flaug yfir Eistland, Lettland og Litháen í átt að rússnesku borginni Kaliningrad. Að því loknu flaug B52-virkið til Bretlands. Pólskar herþotur fylgdu þotunni en að sögn varnarmálaráðherra Póllands var flugið mikilvægur liður í alþjóðalegri æfingu og forstjóri finnsku alþjóðastofnunarinnar kvað flugið viðbrögð við vaxandi ögrandi aðgerðum Rússa. Rússnesk stjórnvöld hafa ekki brugðist við æfingafluginu. Nú kvartar Biden yfir amerískum dróna sem hvarf yfir Svartahafi. Hvað er Ameríka að aðhafast við Svartahaf? Hvað ef rússneskt Tupolov-virki poppaði upp 200km frá New York. Teldist það ögrun?

Biden balloonÍrafár í Ameríku

Í lok janúar og byrjun febrúar varð mikið írafár í Ameríku þegar kínverskur veðurloftbelgur sem fór af leið og var skotinn niður af F-16 þotu. Svo skutu F-16 þotur þrjá ógnandi hluti yfir Kanada og Alaska. Þeir voru mögulega geimskip frá öðrum hnöttum; alien UFO obejcts, að sögn Hvíta Hússins. Einn þeirra kann að hafa verið pico-loftbelgur sem áhugaklúbbur í Illinoi saknaði og hafði horfið yfir Alaska. Varð af mikið fjölmiðlafár um allan hinn vestræna heim og lét okkar litla RÚV ekki sitt eftir liggja. Þann 14. janúar hafði Sy Hersh birt grein sína um hryðjuverk Bandaríkjanna og Noregs á Nord Stream í Eystrasalti; How America took out Nord Stream Pipelines. Hryðjuverk Biden hvarf af fréttasíðum og úr minni íbúa Vesturlanda, gleymt og grafið. Tilviljun? En af hverju stefndi B-52 þotan svo dólgslega á Pétursborg? Getur það tengst frétt um að Rússar hafi í síðustu viku sprengt neðanjarðar bönker úkraínska hersins í nágrenni Lvyv þar sem voru á milli 3-400 manns, þar af 40 háttsettir Nato-herforingjar fallnir?


Hryðjuverk - Act of War ... Stríðsglæpur í Eystrasalti

Nordstream Kef P8Það liggur fyrir að Nord Stream hryðjuverkið er Act of War; - stríðsaðgerð. Gasleiðslan er í eigu rússneskra og evrópskra orkufyrirtækja, þar á meðal þýskra svo hryðjuverkið er stríðsaðgerð gegn Rússlandi, Þýskalandi og þjóðum Evrópu. Þetta er mesta umhverfis hryðjuverk sögunnar, óheyrilegt magn af CO2‚og metan slapp út í andrúmsloftið. Mengunin hefur geigvænleg áhrif á lífríki og dýralíf í Eystrasalti; 250 þúsund tonn af þungamálmum og þrávirkum eiturefnum frá upphafi iðnvæðingar þyrluðust upp. Orkuverð í Evrópu hefur fjór- til sexfaldast. Hryðjuverkið er glæpur gegn mannkyni; Crime against Humanity sem ber að taka fyrir af ICC í Haag, International Criminal Court; Alþjóða Glæpadómstólnum. Áhrifin á óbreytt alþýðufólk, eiga eftir að koma niður á þýsku þjóðinni þegar orkuskortur bítur næsta vetur. Bandarískar varabirgðir, ásamt stolinni olíu í Sýrlandi hafa fleytt Evrópu í gegn um veturinn. En hvað svo?

Nord Stream gasleiðslurNoregur, Þýskaland, Danmörk og Svíþjóð, líkt og Ísland eru aðilar að ICC í Haag. Dönskum og sænskum yfirvöldum ber að rannsaka hryðjuverkið og vísa til ICC í Haag og auðvitað þýskum. Raunar ber ICC að rannsaka hryðjuverkið og gefa út ákærur á hendur hinum seku. Einkunnarorð dómstólsins eru: The most serious crimes ... must not go unpunished.  Dómstóllinn starfar á grundvelli Rómarsáttmálans og hefur rannsóknarábyrgð. Bandaríski demókratinn, fyrrum þingmaður frá Ohio, Dennis Kucinich hefur bent sérstaklega á ábyrgð danskra stjórnvalda um rannsókn enda Nord Stream skammt undan Borgundarhólmi í danskri lögsögu. Hann hefur vitnað í Sy Hersh og ummæli Biden forseta, Blinken utanríkisráðherra, Sullivan öryggisráðgjafa og Victoriu Nuland aðstoðarutanríkisráðherra um að stöðva Nord Stream sbr. ummæli Biden: We Will Bring an End to It. Biden hafi brotið bandarísk lög með því að upplýsa ekki Þingið; Congress í Washington. Aðeins með samþykki Þingsins sé forseta heimilt að grípa til stríðsaðgerða; Act of War. Málið sé grafalvarlegt. Samkvæmt Sy Hersh frömdu Bandaríkin og Noregur hryðjuverk í Eystrasalti. Ég bæti við með aðild Íslands þar sem P8 þotan sem sveimaði yfir Nord Stream nóttina og fram á morgun, lagði upp í hina örlagaríku árás frá Keflavíkurflugvelli. Ég hef sýnt ykkur ferðir P8 þotunnar yfir Eystrasalti um nóttina og eldneytistöku í 100 mínútur fram á morgun 26.09.2022. Eftir að hafa farið lágflug yfir staðinn kl. 07:04 að staðartíma hélt hún áleiðis til Íslands.

 

Borgundarhólmur turn  BORGUNDARHÓLMUR AUGA NATO Í EYSTRASALTI

Nú vill svo til að aðstaða Danmerkur til að rannsaka hryðjuverkið er sérlega góð því Borgundarhólmur er ein helsta njósnastöð Nato í Eystrasalti, uppstreymið sást berum augum frá Borgunarhólmi. Nato veit um allt sem þar gerist. Á síðustu árum hefur Nato lagt mikla fjármuni í endurnýjun til þess að fylgjast með öllu sem gerist á, í og yfir Eystrasalti. Íbúar hafa verið sérlega kátir með Nato, gnægð fjár og vinna síðustu misseri, líkt og Keflvíkingar í den. Þar er  Kalda stríðs safn með gamla vitaturninn á suð-austur odda eyjunnar, 70 metra hár með 400 þrepum, svona eins og Hallgrímskirkja, tekinn úr notkun 2012, nýr á að vera kominn í staðinn. Útsýnisturn til þess að fylgjast með ferðum Sovétmanna í den. Við sem eldri erum munum Mogens Glistrup 1926-2008 sem fyrir um 50 árum vildi leggja niður danska herinn, ganga úr Nato og hafa símsvara sem segði á rússnesku: мы sdavat'sya, Við [Danir] gefumst upp.

CNN FYRST MEÐ FRÉTTINA EN HVAÐ SVO?

Strax eftir hryðjuverkið kváðust esbsk, dönsk, sænsk og þýsk stjórnvöld ætla rannsaka hryðjuverkið í þaula. Fjölmiðlar sögðu allir sem einn að böndin bærust að Rússum. CNN státaði að vera fyrst með fréttina á þriðja degi. First on CNN: European officials observed Russian Navy ships in vicinity of Nord Stream pipeline leaks. Rússnesk skip í nágrenni Nord Stream lekanna. CNN vitnaði í heimildir innan CIA og fyrrum CIA forstjóra John Brennan í viðtali. Russia did it!   Af þessu er ekkert frekar að frétta. Það er ekkert að frétta af rannsóknum Scholz, Van der Leyen, Mettu Fredriksen né að Katrín Jakobsdóttir hafi útskýrt flug P8 þotunnar. Hins vegar hefur goðsögnin Sy Hersh afhjúpað hryðjuverk Washington og Osló og ‘net-nördum‘ hefur tekist að rekja flug P8 þotunnar yfir gasleiðslunum. Fyrir viku var Scholz kallaður til lokaðs fundar í Washington með Biden. Eftir fundinn fann Die Zeit snekkju í Rostock höfn sem sex manns höfðu leigt 6. september; kona og fimm karlar, af þeim tveir kafarar. New York Times og Washington Post kváðu CIA gruna úkraínska skæruliða um græsku og fréttin skeki stjórnvöld í Kænugarði; Intelligence officials suspect Ukraine partisians behind Nord Stream bombings, rattling Kyiv‘s allies. Litla RÚV hóf sína eftirgrennslan og færði okkur fréttir hinna erlendu miðla en hafði auðvitað engar fréttir af P8 þotunni ... bara snekkju á Eystrasalti sem  CIA telji á bak við hryðjuverkið! Ein og sama ríkisfréttin fer um Vesturlönd þver og endilöng. Der Spiegel fann snekkjuna sem reyndist stútungs skúta, Andromeda. Nú segir Wall Street Journal að vestrænar leyniþjónustur gruni að pro-úkraínsk vígasveit sé að baki. Rússar eru ekki lengur grunaðir, segir WSJ. Áfram snýst hringekjan.

North Stream leiðslan  EIN JOB FÜR PROFIS

Die Zeit var fyrst með fréttina um snekkju; yacht. Á ferð hafi verið atvinnumenn, sagði Zeit: Ein Job für Profis. Skoðum nánar. Sex manns á skútu; fimm karlar og kona áttu að hafa sprengt gasleiðslurnar á um 80 metra dýpi á Borgundarhólmsdjúpi, skilað snekkjunni en gleymt að þrífa og því hafi fundist púðuragnir! Gasleiðslurnar liggja saman frá Rússlandi að Borgundarhólmsdjúpi, aðskiljast á sjálfu Djúpinu og koma svo aftur saman undan Borgundarhólmi. Aðstæður í Djúpinu eru allar hinar erfiðustu og dýpi mest, fjarlægð milli sprengistaða 80 kílómetrar; sumsé mesta mögulegt dýpi og mesta möguleg fjarlægð milli staða. Norðmenn  höfðu valið staðinn af kostgæfni. Djúpköfun er skilgreind undir 18 metrum. Eftir það þarf helíum blandað súrefni til að koma í veg fyrir svokallaða djúpsjávargleði; nitrogen narcosis. Áttatíu metrar er gríðarlegt dýpi fyrir kafara og þarf mikinn viðbúnað. Helíum blandaðir loftkútar þurfa að vera til taks á nokkrum stöðum niður á áfangastað. Þegar upp er farið þarf kafari sömuleiðis að varast köfunareitrun og því fara upp í áföngum. Mikinn viðbúnað og djúpa þekkingu þarf yfir köfunarstað. Það er auðvitað broslegt að halda því fram að útsendarar Kænugarðs á seglskútu, hafi sprengt gasleiðsluna. Því kannski eðlilegt að spyrja hvort Zelenskyi og klíka hans verði látin róa.

Nordstream USS Kearage  SÆNSK LEYNIÞJÓNUSTA HLAUT AÐ VITA

Í júní 2022 fór fram heræfingin Baltops22 á Borgundarhólmsdýpi. Flugmóðurskipið USS Kearsarge úr sjötta flota Bandaríkjanna leiddi æfinguna með 45 herskip í Eystrasaltinu, 89 herþotur og sjö þúsund sjóliða. Þar á meðal voru sænsk herskip. Sy Hersh segir að kafarar frá björgunarmiðstöð í Flórída hafi komið sprengjunum fyrir undan Borgundarhólmi í samvinnu við Norðmenn. Sjóforingi á Baltop22 hefur gerst afhjúpari; whistleblower. Hann kom skilaboðum til fyrrum landgönguliða að nafni John Mark ‘Bad-Volf‘ Dougan sem flúði Ameríku vegna ofsókna FBI í kjölfar afhjúpana á lögregluspillingu lögreglu. Afhjúparinn; sjóliðsforinginn heldur því fram að því er lítur að Nord Stream 1 í sænskri lögsögu, hafi sveit kafara komið með þyrlu frá Stokkhólmi og verið sex tíma í kafi. Sex tímar í kafi þarfnast ofurdýran búnað, tækni, þekkingu og bestu kafara veraldar á pari við flota-seli; navy-seals. Sænsk leyniþjónusta hlýtur að hafa vitað.

 

Af þessu tilefni hlýtur maður að spyrja: Af hverju hefur Berlín yfirgefið Öst-Politík Willy Brandt kanslara um sættir við Rússland? Af hverju stríð?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband