15.3.2024 | 17:54
Útvarp Saga & fréttin.is skúbba 4-ða valdið ...
Tveir fjölmiðlar; Útvarp Saga og vefmiðillinn fréttin.is halda úti sjálfstæði með annars konar fréttir en ritskoðað 4ða vald ríkisins. Í vikunni skúbbuðu Saga og fréttin.is með eftirminnilegum hætti. Á fréttin.is voru Margrét Friðriksdóttir og Gústaf Adolf Skúlason með ítarlegt viðtal við bandaríska herforingjann fyrrverandi Douglas Macgregor, eftirsóttasta óháða álitsgjafa veraldar um Úkraínu. Í Moskvu hefur Haukur Hauksson verið fréttamaður Radio Saga. Í vikunni lagði Haukur ásamt fjölda alþjóðafréttamanna fram spurningar til Maríu Zakharovu talsmanns utanríkisráðuneytis Rússlands. Þetta gerir Haukur reglulega og flytur hlustendum Útvarps Sögu fréttir.
GLATAÐ FRIÐARTÆKIFÆRI
Macgregor segir í viðtalinu að Ísland hafi misst af tækifæri til þess að vera rödd friðar í Úkraínu og það hafi verið "alvarleg mistök" að loka sendiráði Íslands í Moskvu. Ég hygg að allir séu sammála. Macgregor kveður um 500 þúsund Úkra fallna. Þeirra blóð er á höndum Nato og Úkraínu sem fóru með stríði á hendur rússnesku mælandi íbúum Donbass. Á Útvarpi Sögu eru daglega óritskoðaðir símatímar þar sem fólkið í landinu lætur rödd sína heyrast, besta útvarpsefni okkar tíðar og ber að varðveita. Raddir fólksins í landinu eru af ólíku sauðarhúsi en elítudekur RÚV þar sem hrossahlátur kvað við þegar Nóbelslyfið Ivermectin var uppnefnt hrossamixtúra að skipan Landlæknis. Vá, hvað hyskið á eftir að skammast sín.
SAGA ÍSLANDS HRÓPAR Á FRIÐ
Allt í sögu okkar hrópar á Ísland sem rödd friðar. Ég hef nefnt arfleifð Snorra Sturlusonar sem er vanvirt. Forfeður okkar, stofnendur hins íslenska fullveldis 1918 hétu ævarandi vopnleysi og hlutleysi. Ólafur Thors neitaði að lýsa stríði á hendur möndulveldum Þýskalands og Japan. Hversu flott var það? Ég var á Sjónvarpinu þegar Reagan og Gorbatsjov hittust í Höfða sem varð alþjóðlegt friðarsetur. Bobby Fischer [1943-2008] var ofsóttur fyrir að tefla í Serbíu 1992. Hann fór huldu höfði í mörg ár rændur af ófriðarstjórn Clinton. Þegar Fischer sat í fangelsi í Tokyo, þá ögraði Davíð Oddsson Washington. Davíð knúði í gegn íslenskan ríkisborgararétt Fischer til handa. Árið var 2005. Friðarsúla var fyrst tendruð 2007 til minningar um John Lennon. Nú er tímar ófriðar; Keflavíkurflugvöllur notaður til skæruárása, P-8 ratsjárþota virkjaði sprengjur á gasleiðslum Nordstream, kjarnorkubátar sækja vistir í Helguvík og B-2 kjarnorkuvirki taka lágflug yfir Reykjavík. Friðarsúla í Reykjavík er öfugmæli. Kata who-litla hampað af wefurunum í Davos sögð bjóða sig til forseta. Úfff ...
ÚTÞENSLUSTRÍÐ NATÓ
Olíu er kastað á ófriðarbálköst Úkraínu til útþenslu Nató. Þórdís Reykás var afleit en þó BjarniBen sé ekki jafn tilfinningavilltur þá er hann jafn vegvilltur. BjarniBen formaður Sjálfstæðisflokksins er arftaki Ólafs Thors, nafna síns og Davíðs Oddssonar. Í ræðu á dögunum hélt BjarniBen fram vitleysu ófriðar og haturs augljóslega ófróður um sögu okkar, tekur upp bull og lygar heilaþveginna kjána í utanríkisráðuneytinu þar sem hreinsa þarf til. Bjarni Ben boðar útgjöld til hermála og fjáraustur í Nato. Hversu vont er það? BjarniBen hefur þurft að leita til óbreytts Íslendings í Moskvu til milligöngu íslenskra fiskhagsmuna í Barentshafi því sendiráðið er lokað. Hversu vont er það? Bjarni Ben veit ekki að Rússland er mesta efnahagsveldi Evrópu farið fram úr Þýskalandi. Hann virðist halda að Rússland sé á pari við Spán. Hversu vont er það? Bjarni Ben veit ekki að við erum vitni að hrunadansi Ameríku, hruni dollars ... og líkt og Macgregor segir; íslensku krónunnar. Hversu vont er það?
Athugasemdir
Frábær grein og rétt.
Birgir Loftsson, 16.3.2024 kl. 09:30
Bestu þakkir kæri Birgir ...
Hallur Hallsson, 17.3.2024 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.