Ofur-eldflaug sprengdi Nato-bönker í loft upp

Úkraína KinzhanNánari upplýsingar hafa borist af rússneskri árás á Nato-bönker  skammt hjá Lvyv í V-Úkraínu þar sem yfir 300 úkraínskir og háttsettir nato-herforingjar biðu bana 8. mars sl. Nato veit mannfallið.  Árásin var skammt frá heimaborg vinar míns, Margeirs Péturssonar stórmeistara og bankastjóra í Lvyv. Margeiri best að forða sér af vígaslóð. Ég sagði ykkur frá árásinni en frekari fréttir höfðu þá ekki borist. Hægt og hljótt hafa þær spurst út og liggja fyrir. Rússar beittu skæðustu ofureldflaug sinni úr MIG-31 þotu Kh-47M2 Kinzhal sem fer á 12-földum hljóðhraða; mach-12 kölluð rýtingurinn á 12.350KM hraða, dregur allt að 2.000KM. Eldflaugin boraði sig 400 fet undir yfirborð jarðar og sprengdi bönkerinn í loft upp og tók stjórnstöðina út. Einstaka vestrænir fjölmiðlar hafa verið að birta fréttir um þessa rosalegu árás.

Úkraína Sy Hersh TradeEldflaugaárásin mun hafa verið viðbrögð við árás úkraínskrar vígasveitar inn í Rússland 2. mars sl. í Brynask-héraði þar sem nokkrar manneskjur létust, þar af 10 ára gamall drengur. Rússar svöruðu með eldflaugaárásinni á bönkerinn. Vesturveldin eiga engin vopn í líkingu við þessar ofureldflaugar. Vladimir Pútin kynnti eldflaugina 2018. Sýnið mér þolinmæði þó ég taki sterkt til orða. Kata & Dísa eru kjánar sem vita ekki hvað þær hafa komið Íslandi út í með stuðningi við krimma í Hvíta Húsinu, stríði í Úkraínu, kjarnorkukafbátum í Helguvík, víggirðandi Keflavíkurflugvöll og kaupandi sjötíu Q8 Audi-glæsireiðar fyrir uppskafninga sem hingað koma. Þeir geta tekið strætó. Ég frábið mér sögubull Dísu við varnarráðherra Úkraínu og faðmlag Kötu við Zelinskyy. Hvenær skilja þessar konur að þær eiga ekkert erindi í Stjórnarráðið, fremur en aðrir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands og þingmenn á Alþingi. Þetta fólk hefði getað tekið sömu afstöðu og Færeyjar.

MILLJARÐA FJÁRDRÁTTUR

Reynsluboltinn Sy Hersh hefur afhjúpað 400 milljón dollara fjárdrátt Zelinskyy og klíku hans; 55 milljarða króna fjárdrátt með kaupum á ódýrri rússneskri olíu og hirða mismuninn. “Viðskipti við óvinininn; Trading with the Enemy,” er fyrirsögn Sy Hersh á Substack. Þetta þykir sérstaklega vandræðalegt fyrir Joe Biden. Hersh hefur eftir leyniþjónustumanni að Bandaríkin fjármagni olíuna á hergögn, Úkranar kaupi af Rússum og Zelinskyy taki mismuninn: $400M í fyrra.

Taxeira Jack 21 ÁRS GUTTI Í AMERÍKU

Jack Teixera 21 árs þjóðvarðliði setti leyniskjöl Pentagon á netið á dögunum svo sem sjá mátti þegar hann var leiddur í járnum af hermönnum inn í herbíl. Sýningin bar upp á sömu daga og Restrict Act-löggjöf sem er fyrir þinginu í nafni þjóðaröryggis en skerðir réttindi almennings. Strákurinn hefur afhjúpað veru bandarískra hermanna í Úkraínu og þá staðreynd að Úkraína er að tapa stríðinu gegn Rússum líkt og ég hef sagt ykkur frá um margra mánaða skeið. Vera bandarískra hermanna í Úkraínu er brot á Stjórnarskrá Bandaríkjanna. Drengurinn afhjúpaði afleitt ástand vestrænna vopna sem komu af „bílastæðum“ og þá staðreynd að þau virka illa á vígvöllum í Austurvegi komandi frá mismunandi Nato-löndum með mismunandi skotfæri. Teixera afhjúpar lygar og styrjaldarvafstur Biden-stjórnarinnar.

Teixera er það sem kallað er afhjúpari; whistleblower sem afhjúpar lögbrot og lygar stjórnvalda, stofnana og fyrirtækja og hefur því sérstaka lagalega stöðu í Bandaríkjunum. Drengurinn fær ekki notið þeirrar stöðu. Frægastur þeirra er Daniel Ellsberg sem 1971 afhjúpaði Pentagon-skjölin um Víetnam-stríðið. Litið var á Ellsberg sem hetju og ákærur voru felldar niður 1973. Þá voru demókratar á móti styrjöldum. Nú er öldin önnur. Teixera var sýningargripur í beinni útsendingu hjá CNN, Washington Post og New York Times sem hefðu getað birt skjölin án nokkurra viðurlaga. Hugleiðið það, á þetta er bent. Fjölmiðlar hafa sams konar einkarétt á sannleika og kaþólska kirkjan á miðöldum. Nú eru fjölmiðlar málpípur ráðandi yfirstétta gegn fólkinu; ríkis- & ríkramiðlar. Julian Assange situr í dýflissu. Hann afhjúpaði stríðsglæpi Bush. Edward Snowden er flóttamaður í Rússlandi fyrir að afhjúpa ólöglega leynistarfsemi.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loncexter

Hvað gera Kata og kó þegar enga olíu verður að fá nema frá russia ?

Loncexter, 23.4.2023 kl. 14:15

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Kaupa Repju af bændum í SkaftafellsÝslum? 

Helga Kristjánsdóttir, 24.4.2023 kl. 00:09

3 identicon

Hefurðu einhverja upprunalega heimild fyrir meintri árás á Nató bunkerinn og 300 manna dráp við hana?

NewsWeek kannaði málið og rakti upplýsingarnar til vafasamra áróðurssíða og finnur hvergi staðfestingar á fréttinni.  Enn fremur eru engar fréttir af svo miklu mannfalli Nató liða en slíkt færi nú varla leynt. 

https://www.newsweek.com/russia-nato-ukraine-command-center-strike-kinzhal-missile-1791805

Bjarni Bjarnason (IP-tala skráð) 24.4.2023 kl. 02:38

4 identicon

Leifur (IP-tala skráð) 24.4.2023 kl. 09:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband