Færsluflokkur: Bloggar
16.3.2023 | 09:27
Bandarískur ofurdróni hrapar í Svartahaf
Nýjasta atvik í deilu stórveldanna er bandarískur njósnadróni MQ-9 Reaper sem hrapaði á mánudag, 14. mars í sjóinn undan Krímskaga. Atvik eru fremur óljós. Evrópuherstjórn Bandaríkjahers; US European Command EUCOM sakar Rússa um unsafe and unprofessional intercept; sprauta eldsneyti yfir ofurdrónann og fljúga utan í hinn mikla hreyfil með þeim afleiðingum að dróninn féll í sjóinn. Tvær rússneskar Su 27 herþotur höfðu verið sendar á vettvang. Rússar segja að flugmenn þeirra hafi ekki beitt vopnum né farið utan í drónann og lent heilu og höldnu eftir atvikið. Eitthvað gerðist sem varð þess valdandi að ofurdróninn hrapaði líklega skammt undan 12 mílna landhelgi á alþjóðlegu hafsvæði. Það er ágiskun en undarlega lítill áhugi hefur verið á staðsetningu atviks.
Washington var ekki skemmt. Sendiherra Rússlands í Washington var kallaður á teppið og tvítaði svo: Ímyndið ykkur hvað gerst hefði ef rússneskur njósnadróni hefði verið undan ströndum New York eða San Fransisco. Það er svo sem ekki erfitt eftir að bandarískar orrustuþotur á liðnum vikum skutu niður loftbelgi og geimskip frá öðrum hnöttum; Alien UFO objects að sögn Hvíta Hússins. Nato-drónar hafa verið tíðir gestir yfir Svartahafi og látið úkrönum í té upplýsingar sem tengst hafa bardögum í Úkraínu. Orðrómur hefur verið undanfarna daga um stórfellda árás Úkraínuhers á næstunni, meðal annars til þess að frelsa tíu þúsund úkraínska hermenn umkringda í herkví í Bakhmut. Kann þarna að vera skýring á viðbrögðum Rússa?
Bandaríkjamenn hafa beitt MQ-9 Reaper ofurdrónum til flugskeyta árása í Mið-Austurlöndum. Þetta eru engin smátæki. Í júlí 2008 réðst slíkur dróni á þorpið Haska Meyna þar sem brúðkaup stóð yfir og féllu 47 Afganir, þar á meðal brúðurin. Þennan stríðsglæp Bush neita þeir að viðurkenna, en kalla Collateral Damage; tryggingatjón í þýðingu google. Biden hafði synjað Zelenskyy um MQ-9 dróna því þeir mættu undir engum kringumstæðum lenda í höndum Rússa. Zelenskyy var ekki treyst. Strax eftir atvikið yfir Svartahafi var rúmenski herinn beðinn að endurheimta drónann en Rússar voru á undan. Þeir eru sjálfsagt að skoða og rannsaka.
Öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham mætti hjá Sean Hannity á Fox News. Þeir voru báðir reiðir, Graham vill stríð alveg eins og stelpurnar okkar Katrín og Þórdís. Graham sagði á Fox að Ronald Reagan forseti 1981-1989 hefði aldrei látið þetta yfir Bandaríkin ganga: Hvað myndi Reagan gera? Hann myndi skjóta niður rússneskar þotur, ef þær ógna okkur. En er þetta rétt? Reagan var ekki stríðsforseti, hann beitti stjórnvisku og viðræðum við Sovétríkin; alræðið sem Rússar svo hristu af sér líkt og óværu. Reagan vann stríðið með diplómatíu en ekki það sem ágætur vinur minn kallar mónómatíu; eintali um stríð. Ég minni á fund Reagan og Gorbatsjov í Höfða 1986. Ég hef sagt frá stríðshaukunum Graham og John McCain með fyrir utan Mariepol 2016 þar sem þeir hvöttu til stríðs á komandi ári gegn rússneskum þegnum Úkraínu. Þeir lofuðu vopnum og dollurum, sjá hér. Mariepol var helsta vígi Azov-nazista. Það sem hins vegar gerðist var að nýr forseti sem svarinn var í embætti í janúar 2017 hvatti Zelenskyy til viðræðna við Pútin, ekki styrjaldar ... svo kom Biden.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.3.2023 | 19:02
Katrín & Zelinskyy í faðmlögum
Katrínu Jakobsdóttir og Þórdísi Reykfjörð var stefnt til Kænugarðs af húsbændum sínum og hafa kysst hring Zelenskyy forseta í Kænugarði með fjölmennt fylgdarlið sér við hlið. Þau féllust í faðma í lok fundar eins elskendur sem bíður langur aðskilnaður, Katrín og Zelenskyy. Stöllurnar heita ríkulegum stuðningi íslenskra skattgreiðenda til stríðsrekstrar en 2.5 milljarðar eru farnir án þess að nokkur spyrji hvert þeir fóru. RÚV tryggir traustar ríkisfréttir; trusted news og fjölmiðlarestin tekur við ríkisefni. Stöllurnar fóru til Bútsja þar sem skelfileg fjöldamorð bíða uppljóstrunar og veröldin mun krefjast að hinum seku verði refsað. Sú stund er ekki upp runnin. Ásakanir hafa gengið á víxl en á Íslandi er bara ein ríkisskoðun. Hætt er við því að stöllurnar eigi eftir að harma för sína því sagan gleymir ekki. Við vitum að eftir blóðugt valdarán í Kænugarði 2014 stefndi Petro Poroshenko nýr forseti Azov-nazistum gegn rússnesku mælandi íbúum Donbass og Luhansk; þeirra börn munu hírast í kjöllurum hótaði Poroshenko með blessun Washington. Stríðið hafði staðið í átta ár þegar Rússar fóru inn fyrir rúmu ári. 15-20 þúsund manns lágu í valnum og tvær til þrjár milljónir úkraínskir Rússar flúið til Rússlands.
Á dögunum var enn ein unga vestræna konan í Kænugarði, Sann Marin forsætisráðherra Finnlands innvígð og innmúruð í Davos. Hún fór með Zelinskyy í útför fallins hermanns; nazista svo sem fjölmiðlar víða um heim og fréttin.is hér heima hafa skýrt frá. Sann Marin hefur sýnt að hún kann að meta ljúfa lífið og Zelinsky hvíta duftið. If you want to hang out, you've gotta take her out, Cocaine fór sem eldur í sinu á netinu með Zelenskyy í aðalhlutverki. Auðvitað býður Zelinskyy Kötu og Þórdísi til dýrðlegrar veislu. Hvað er þetta með allar þessar glæsilegu ungu konur sem boða stríð en ekki frið? Vestræn diplómatík um frið er víðs fjarri, aðeins mónomatísk síbylja um stríð. Eru ungu konurnar í embættum af verðleikum eða mótaðar að hentugleika? Í Eistlandi dreymir Kaju Kallas um að taka við af Stoltenberg í Nato. Þýskur kollegi Þórdísar, græninginn Annalena Braebock segir frið aðeins mögulegan ef Pútin breyti stefnu 360 gráður! Hvað er hægt að segja um vitsmuni þessarar sjálfsagt ágætu en afvegaleiddu konu? Engar viðræður, bara skilmálar.
Framsókn hefur sett unga þingkonu, Hafdísi Hafsteinsdóttur, til að leiða vinnu um ný sóttvarnalög í velferðarnefnd. Samkvæmt drögum má sprauta fólk með framandi efnum án upplýsinga um innihald. Sóttlæknar framtíðar fá lögregluvald; skipa lögreglu að svipta fólk frelsi og sprauta. Í þætti á Útvarpi Sögu var unga þingkonan út á þekju um málefnið, svo mildilega sé til orða tekið. Hverjir véla að tjaldabaki? Af hverju ekki bara kjósa framsókn?
Vestrænir leiðtogar til Kænugarðs
Í Úkraínu eru Katrín og Þórdís í kjölfari hers vestrænna leiðtoga sem allir sem einn hafa leyfi Vladimirs Pútin til farar. Ulrika van der Leyen frá Brussel, Giorgia Meloni frá Róm, Olav Scholz og Annalena Baerbock frá Berlín, Mette Fredriksen, frá Kaupmannahöfn, Boris Johnson og Rishi Sunak frá London. Frá Washington hafa komið Nancy Pelosi þingforseti og nýlega Joe Biden forseti með örvæntingu í svip. Anthony Blinken utanríkisráðherra var í Austurvegi, Janet Yellen fjármálaráðherra og Merrick Garland dómsmálaráðherra. Þarna hefur margt verið brallað. Kevin McCarthy leiðtogi repúblikana í fulltrúadeildinni hafnaði boði Zelinskyy um för í Austurveg. McCarthy kveðst ekki fara til Kænugarðs nema hafa fullvissu um endurskoðun fjármuna; financial audit þar sem allt sé gagnsætt upp á borðum. Engin 10% to the Big Guy svo vitnað sé í Laptop-from-Hell. Joe Biden-stjórnin hafnar öllu eftirliti með þvottavélum sínum. Árin 2017-2021 var við völd forseti sem vildi hætta Endalausum styrjöldum Ameríku og Nato ásamt kalla hermenn heim. Það fannst Kötu og Þórdísi afleit hugmynd, þær vilja stríð. Svona er nú veröldin skrítin.
750 amerískar herstöðvar utan landamæra
Bandaríkin hafa 750 herstöðvar utan landamæra sinna, þar af um mörg hundruð umhverfis Rússland og Kína. Sjálfsagt er Keflavíkurflugvöllur nú á lista. Síðastliðin 30 ár hafa Nato, Bandaríkin og Evrópusambandið markvisst fært út kvíar í Austur-Evrópu og eru nú í kálgarði Rússlands. Árið 2014 var dæmigert amerískt Coup dEtat í Kænugarði kallað Colour Revolution eða Litabyltingin. Íslendingar fengu sína Litabyltingu en kalla Búsáhaldabyltingu þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar var hrakin frá völdum eftir að hafa styggt Wall Street, Brussel, London og Washington um skaðabætur úr föllnu bönkunum upp á 800 milljarða við afnám gjaldeyrishafta. Það er farið eftir þeim sem rugga bátnum.
Kerfisbundið er grafið undan stjórnvöldum í Hvíta Rússlandi og Georgíu. Anthony Blinken utanríkisráðherra var í Kazakstan á dögunum og bauð fram vernd Bandaríkjanna gegn Rússum. Því var hafnað af Mukhtar Tileuberdi, utanríkisráðherra sem kvað Kazakstan enga ógn stafa af Rússlandi. Fréttablaðið hefur skýrt frá mestu heræfingum Bandaríkjanna og S-Kóreu um árabil. Bandaríkin hafa 17 herstöðvar í S-Kóreu. Rússar munu hafa herstöðvar í gömlu sovétlýðveldunum Armeníu, Tadzhikistan og hérðunum Abkhazíu og Ossetíu sem lýstu yfir sjálfstæði frá Georgíu. Kínverjar eru í Dhjibútí í Afríku og hafa steypt og stækkað eyjar í S-Kínahafi. Hvað eru þeir að bralla?
B-52 kjarnorkuvirki stefnt á Pétursborg
Fréttablaðið birti með frétt sinni mynd af B-52 kjarnorkuvirki ásamt fylgdarþotum. B-52 var með kallmerkið Noble61 stefnt á Pétursborg og Kalíningrad en þó án kjarnorkuvopna að helst er talið. Fyrir átta mánuðum var USS Kearsarge í Eystrasaltinu með fríðu föruneyti. B-52 tók á loft frá Póllandi út yfir Eystrasaltið yfir eistnesku eyjuna Saaremaa og stefndi í átt að rússnesku eyjunni Gogland um 200 kílómetra frá Pétursborg. Þar tók þotan stefnu til suðurs og flaug yfir Eistland, Lettland og Litháen í átt að rússnesku borginni Kaliningrad. Að því loknu flaug B52-virkið til Bretlands. Pólskar herþotur fylgdu þotunni en að sögn varnarmálaráðherra Póllands var flugið mikilvægur liður í alþjóðalegri æfingu og forstjóri finnsku alþjóðastofnunarinnar kvað flugið viðbrögð við vaxandi ögrandi aðgerðum Rússa. Rússnesk stjórnvöld hafa ekki brugðist við æfingafluginu. Nú kvartar Biden yfir amerískum dróna sem hvarf yfir Svartahafi. Hvað er Ameríka að aðhafast við Svartahaf? Hvað ef rússneskt Tupolov-virki poppaði upp 200km frá New York. Teldist það ögrun?
Í lok janúar og byrjun febrúar varð mikið írafár í Ameríku þegar kínverskur veðurloftbelgur sem fór af leið og var skotinn niður af F-16 þotu. Svo skutu F-16 þotur þrjá ógnandi hluti yfir Kanada og Alaska. Þeir voru mögulega geimskip frá öðrum hnöttum; alien UFO obejcts, að sögn Hvíta Hússins. Einn þeirra kann að hafa verið pico-loftbelgur sem áhugaklúbbur í Illinoi saknaði og hafði horfið yfir Alaska. Varð af mikið fjölmiðlafár um allan hinn vestræna heim og lét okkar litla RÚV ekki sitt eftir liggja. Þann 14. janúar hafði Sy Hersh birt grein sína um hryðjuverk Bandaríkjanna og Noregs á Nord Stream í Eystrasalti; How America took out Nord Stream Pipelines. Hryðjuverk Biden hvarf af fréttasíðum og úr minni íbúa Vesturlanda, gleymt og grafið. Tilviljun? En af hverju stefndi B-52 þotan svo dólgslega á Pétursborg? Getur það tengst frétt um að Rússar hafi í síðustu viku sprengt neðanjarðar bönker úkraínska hersins í nágrenni Lvyv þar sem voru á milli 3-400 manns, þar af 40 háttsettir Nato-herforingjar fallnir?
Bloggar | Breytt 15.3.2023 kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2023 | 12:58
Hryðjuverk - Act of War ... Stríðsglæpur í Eystrasalti
Það liggur fyrir að Nord Stream hryðjuverkið er Act of War; - stríðsaðgerð. Gasleiðslan er í eigu rússneskra og evrópskra orkufyrirtækja, þar á meðal þýskra svo hryðjuverkið er stríðsaðgerð gegn Rússlandi, Þýskalandi og þjóðum Evrópu. Þetta er mesta umhverfis hryðjuverk sögunnar, óheyrilegt magn af CO2og metan slapp út í andrúmsloftið. Mengunin hefur geigvænleg áhrif á lífríki og dýralíf í Eystrasalti; 250 þúsund tonn af þungamálmum og þrávirkum eiturefnum frá upphafi iðnvæðingar þyrluðust upp. Orkuverð í Evrópu hefur fjór- til sexfaldast. Hryðjuverkið er glæpur gegn mannkyni; Crime against Humanity sem ber að taka fyrir af ICC í Haag, International Criminal Court; Alþjóða Glæpadómstólnum. Áhrifin á óbreytt alþýðufólk, eiga eftir að koma niður á þýsku þjóðinni þegar orkuskortur bítur næsta vetur. Bandarískar varabirgðir, ásamt stolinni olíu í Sýrlandi hafa fleytt Evrópu í gegn um veturinn. En hvað svo?
Noregur, Þýskaland, Danmörk og Svíþjóð, líkt og Ísland eru aðilar að ICC í Haag. Dönskum og sænskum yfirvöldum ber að rannsaka hryðjuverkið og vísa til ICC í Haag og auðvitað þýskum. Raunar ber ICC að rannsaka hryðjuverkið og gefa út ákærur á hendur hinum seku. Einkunnarorð dómstólsins eru: The most serious crimes ... must not go unpunished. Dómstóllinn starfar á grundvelli Rómarsáttmálans og hefur rannsóknarábyrgð. Bandaríski demókratinn, fyrrum þingmaður frá Ohio, Dennis Kucinich hefur bent sérstaklega á ábyrgð danskra stjórnvalda um rannsókn enda Nord Stream skammt undan Borgundarhólmi í danskri lögsögu. Hann hefur vitnað í Sy Hersh og ummæli Biden forseta, Blinken utanríkisráðherra, Sullivan öryggisráðgjafa og Victoriu Nuland aðstoðarutanríkisráðherra um að stöðva Nord Stream sbr. ummæli Biden: We Will Bring an End to It. Biden hafi brotið bandarísk lög með því að upplýsa ekki Þingið; Congress í Washington. Aðeins með samþykki Þingsins sé forseta heimilt að grípa til stríðsaðgerða; Act of War. Málið sé grafalvarlegt. Samkvæmt Sy Hersh frömdu Bandaríkin og Noregur hryðjuverk í Eystrasalti. Ég bæti við með aðild Íslands þar sem P8 þotan sem sveimaði yfir Nord Stream nóttina og fram á morgun, lagði upp í hina örlagaríku árás frá Keflavíkurflugvelli. Ég hef sýnt ykkur ferðir P8 þotunnar yfir Eystrasalti um nóttina og eldneytistöku í 100 mínútur fram á morgun 26.09.2022. Eftir að hafa farið lágflug yfir staðinn kl. 07:04 að staðartíma hélt hún áleiðis til Íslands.
BORGUNDARHÓLMUR AUGA NATO Í EYSTRASALTI
Nú vill svo til að aðstaða Danmerkur til að rannsaka hryðjuverkið er sérlega góð því Borgundarhólmur er ein helsta njósnastöð Nato í Eystrasalti, uppstreymið sást berum augum frá Borgunarhólmi. Nato veit um allt sem þar gerist. Á síðustu árum hefur Nato lagt mikla fjármuni í endurnýjun til þess að fylgjast með öllu sem gerist á, í og yfir Eystrasalti. Íbúar hafa verið sérlega kátir með Nato, gnægð fjár og vinna síðustu misseri, líkt og Keflvíkingar í den. Þar er Kalda stríðs safn með gamla vitaturninn á suð-austur odda eyjunnar, 70 metra hár með 400 þrepum, svona eins og Hallgrímskirkja, tekinn úr notkun 2012, nýr á að vera kominn í staðinn. Útsýnisturn til þess að fylgjast með ferðum Sovétmanna í den. Við sem eldri erum munum Mogens Glistrup 1926-2008 sem fyrir um 50 árum vildi leggja niður danska herinn, ganga úr Nato og hafa símsvara sem segði á rússnesku: Ð¼Ñ sdavat'sya, Við [Danir] gefumst upp.
CNN FYRST MEÐ FRÉTTINA EN HVAÐ SVO?
Strax eftir hryðjuverkið kváðust esbsk, dönsk, sænsk og þýsk stjórnvöld ætla rannsaka hryðjuverkið í þaula. Fjölmiðlar sögðu allir sem einn að böndin bærust að Rússum. CNN státaði að vera fyrst með fréttina á þriðja degi. First on CNN: European officials observed Russian Navy ships in vicinity of Nord Stream pipeline leaks. Rússnesk skip í nágrenni Nord Stream lekanna. CNN vitnaði í heimildir innan CIA og fyrrum CIA forstjóra John Brennan í viðtali. Russia did it! Af þessu er ekkert frekar að frétta. Það er ekkert að frétta af rannsóknum Scholz, Van der Leyen, Mettu Fredriksen né að Katrín Jakobsdóttir hafi útskýrt flug P8 þotunnar. Hins vegar hefur goðsögnin Sy Hersh afhjúpað hryðjuverk Washington og Osló og net-nördum hefur tekist að rekja flug P8 þotunnar yfir gasleiðslunum. Fyrir viku var Scholz kallaður til lokaðs fundar í Washington með Biden. Eftir fundinn fann Die Zeit snekkju í Rostock höfn sem sex manns höfðu leigt 6. september; kona og fimm karlar, af þeim tveir kafarar. New York Times og Washington Post kváðu CIA gruna úkraínska skæruliða um græsku og fréttin skeki stjórnvöld í Kænugarði; Intelligence officials suspect Ukraine partisians behind Nord Stream bombings, rattling Kyivs allies. Litla RÚV hóf sína eftirgrennslan og færði okkur fréttir hinna erlendu miðla en hafði auðvitað engar fréttir af P8 þotunni ... bara snekkju á Eystrasalti sem CIA telji á bak við hryðjuverkið! Ein og sama ríkisfréttin fer um Vesturlönd þver og endilöng. Der Spiegel fann snekkjuna sem reyndist stútungs skúta, Andromeda. Nú segir Wall Street Journal að vestrænar leyniþjónustur gruni að pro-úkraínsk vígasveit sé að baki. Rússar eru ekki lengur grunaðir, segir WSJ. Áfram snýst hringekjan.
Die Zeit var fyrst með fréttina um snekkju; yacht. Á ferð hafi verið atvinnumenn, sagði Zeit: Ein Job für Profis. Skoðum nánar. Sex manns á skútu; fimm karlar og kona áttu að hafa sprengt gasleiðslurnar á um 80 metra dýpi á Borgundarhólmsdjúpi, skilað snekkjunni en gleymt að þrífa og því hafi fundist púðuragnir! Gasleiðslurnar liggja saman frá Rússlandi að Borgundarhólmsdjúpi, aðskiljast á sjálfu Djúpinu og koma svo aftur saman undan Borgundarhólmi. Aðstæður í Djúpinu eru allar hinar erfiðustu og dýpi mest, fjarlægð milli sprengistaða 80 kílómetrar; sumsé mesta mögulegt dýpi og mesta möguleg fjarlægð milli staða. Norðmenn höfðu valið staðinn af kostgæfni. Djúpköfun er skilgreind undir 18 metrum. Eftir það þarf helíum blandað súrefni til að koma í veg fyrir svokallaða djúpsjávargleði; nitrogen narcosis. Áttatíu metrar er gríðarlegt dýpi fyrir kafara og þarf mikinn viðbúnað. Helíum blandaðir loftkútar þurfa að vera til taks á nokkrum stöðum niður á áfangastað. Þegar upp er farið þarf kafari sömuleiðis að varast köfunareitrun og því fara upp í áföngum. Mikinn viðbúnað og djúpa þekkingu þarf yfir köfunarstað. Það er auðvitað broslegt að halda því fram að útsendarar Kænugarðs á seglskútu, hafi sprengt gasleiðsluna. Því kannski eðlilegt að spyrja hvort Zelenskyi og klíka hans verði látin róa.
SÆNSK LEYNIÞJÓNUSTA HLAUT AÐ VITA
Í júní 2022 fór fram heræfingin Baltops22 á Borgundarhólmsdýpi. Flugmóðurskipið USS Kearsarge úr sjötta flota Bandaríkjanna leiddi æfinguna með 45 herskip í Eystrasaltinu, 89 herþotur og sjö þúsund sjóliða. Þar á meðal voru sænsk herskip. Sy Hersh segir að kafarar frá björgunarmiðstöð í Flórída hafi komið sprengjunum fyrir undan Borgundarhólmi í samvinnu við Norðmenn. Sjóforingi á Baltop22 hefur gerst afhjúpari; whistleblower. Hann kom skilaboðum til fyrrum landgönguliða að nafni John Mark Bad-Volf Dougan sem flúði Ameríku vegna ofsókna FBI í kjölfar afhjúpana á lögregluspillingu lögreglu. Afhjúparinn; sjóliðsforinginn heldur því fram að því er lítur að Nord Stream 1 í sænskri lögsögu, hafi sveit kafara komið með þyrlu frá Stokkhólmi og verið sex tíma í kafi. Sex tímar í kafi þarfnast ofurdýran búnað, tækni, þekkingu og bestu kafara veraldar á pari við flota-seli; navy-seals. Sænsk leyniþjónusta hlýtur að hafa vitað.
Af þessu tilefni hlýtur maður að spyrja: Af hverju hefur Berlín yfirgefið Öst-Politík Willy Brandt kanslara um sættir við Rússland? Af hverju stríð?
Bloggar | Breytt 12.3.2023 kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2023 | 15:24
Hinn nýi guð Vatikansins ...
Vatikanið hefur gefið út silfur evru frá 2002 með esb-stjörnum en eins og fólk veit þá kveðst páfi vera staðgengill Drottins á jörðu. Þetta er snotur bísniss því silfurevra Vatikansins hefur söfnunargildi; gefin út í takmörkuðu upplagi, selst jafnan upp og hækkar í verði. Fyrsta silfurevra Vatikansins 1 var af Jóhannesi Páli páfa, svo hafa komið út seríur með Benedikt páfa og Francis páfa sem hefur agiterað fyrir nýrri ríkistrú 21. aldar, Krislam. Francis páfi boðar að kristni & islam rúmist í einni og sömu persónu. Nú er silfurevran 20. Evru prentsmiðjur eru í yfirgír líkt í Ameríku vegna styrjaldar og plágu svo þessar traustu myntir gjaldfalla með auknu framboði og okkur óbreyttu alþýðufólki er sendur reikningurinn. Mun þarna komin skýring á 20 silfurevru ... Maður spyr sig. Frá stofnun ameríska Seðlabankans 1913 hefur verðlag í Ameríku hækkað um 2.921.92% samkvæmt nýjum tölum enda hafa allar götur síðan geisað styrjaldir & plágur í mannheimum.
Á nýjustu silfurevru Vatikansins er páfa hvergi að sjá en kominn er nýr staðgengill guðs í Vatikaninu. Það er vaksínsprauta í höndum sérfræðinga sem boða að við eigum að treysta vísindum því þau viti best enda verði allt að gulli í höndum Bill Gates og big-pharma. Læknir og hjúkka með sprautu í hönd standa yfir ungri manneskju og sprauta, ja eigum við að segja vaksíni frá Pfizer líkt og á Íslandi sem leggur allt sitt traust á vísindin. Svo örugg voru KataJak, Willum, Svandís, BjBen, Þórólfur, Alma & Víðir að íslenskri þjóð var smalað í Höllina til að testa pfizer. Myntin er merkt Citta del Vaticano; borgríkinu Vatikan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.3.2023 | 14:16
Terror í nafni frelsis og lýðræðis & stolin olía til Evrópu
Stríðið í Sýrlandi hófst fyrir tólf árum, 2011 með uppreisn Isis gegn ríkisstjórn Assad Sýrlandsforseta. Ég hef áður sagt ykkur frá því að Bandaríkin í tíð Obama fjármögnuðu Isis hryðjuverkasamtökin. Ég hef sagt ykkur frá og sýnt myndir af senator John McCain með leiðtogum Isis. Þegar Isis var búið að gera nægilegan óskunda árið 2014 sendu Obama & Biden amerískt herlið til Sýrlands í nafni frelsis og lýðræðis. Bashar-Al-Assad stjórnin var sökuð um hvers kyns stríðsglæpi. Corporate-Main-Stream-Media MSM í órofa bandalagi við facebook google og evrópska ríkismiðla sjá um að uppfræða okkur í nafni Trusted News Initiative. Sama frétt fer á rauntíma um öll Vesturlönd. MSM eru í eigu Black Rock og Vanguard sem eiga allt sem framleiðir allt; own everything that makes everything. Upppsretta auðsins er Federal Reserve í eigu prentaranna sem selja pappírsdollar á 150 krónur.
Ameríka er enn í Sýrlandi. Norð-austurhéruðin eru hernumin. Okkur er sagt að Ameríka sé að verja héraðið fyrir grimmdarverkum Assad sem sé skúrkur sem beiti efnavopnum á eigin þegna. Amerísk lygi fer hringinn um heiminn í boði Trusted News. Al-Tanf herstöðin í Raqqa á bökkum Efrat er helsta ameríska vígið. Isis náði borginni á sitt vald á sínum tíma. Biden-stjórnin segist vera með small forces in partnership with indigenous ground forces. Ameríka er að verja frelsi og lýðræði fyrir harðstjóranum Assad. Hljómar vel, ekki satt? En er raunverulega svo?
Sýrland er hernumið land og Bandaríkin stela allt að 83% af olíu Sýrlands sem þeir flytja til Íraks og þaðan hvert annað en til Evrópu. Snoturt ekki satt? Amerísk/evrópsk ný-nýlendustefna. Tugir þúsundir olíufata af hráolíu fara daglega yfir landamærin til Íraks. Olíutrukkar undir hervernd streyma yfir landamærin; hundruð trukkar fram og til baka, fram og til baka, sem hér má sjá. MSM sér um lygina; rúv&co afritar og birtir. Evrópa bakkar Ameríku í vestrænni frelsis- og lýðræðisför í Sýrlandi alveg eins og Úkraínu. Vesturlönd eru sögð hafa stolið sýrlenskri olíu fyrir 100 milljarða dollara og flutt drjúgan hluta til olíuþyrstrar Evrópu.
Endalausar styrjaldir hafa geisað frá falli Sovétríkjanna. Þemað er jafnan að leiðtogar ríkja utan Vesturlanda eru rægðir af vestrænum fjölmiðlum, sakaðir um ofbeldi gegn þegnum sínum áður en Kaninn og Nato fara á vettvang. Skúrkurinn Bin Laden var sagður í felum í Afganistan, Saddam Hussein var með efnavon í Írak, Ghaddafi var ógnvaldur í Líbýu, Assad með efnavopn í Sýrlandi, MiloÅ¡ević var dreginn fyrir Alþjóða glæpadómstólinn eftir loftárásir á Belgrad Serbíu. Í þrjátíu ár sem liðin eru frá falli Sovétríkjanna liggja í valnum á annan tug milljónir múslima; milljónir ýmist farlama eða misst heimili og tugir milljóna á flótta. Allt í boði Nato og Ameríku. Hinir raunverulegu stríðsglæpamenn eru Clinton, Bush, Obama og Biden.
Hin fornu menningarríki múslima hafa verið sprengd á steinöld til þess að útbreiða vestrænt frelsi og lýðræði. Þetta var kallað war on terror en það eru Vesturlönd sem hafa fært þessum þjóðum terror í nafni frelsis og lýðræðis. Nú er verið að sprengja Úkraínu á steinöld og Pútin er sagður skúrkur. Það á að búta Rússland í nokkur ríki því neo-con hugveitur Pentagon; Rand & New American Century telja Rússa ógna amerískum heimsyfirráðum 21. aldar. Öllum evrópsku stelpunum finnst Biden aðalgæinn á ballinu í Davos. Hvað er heimstyrjöld milli vina. Stelpurnar falla fyrir Biden með sólgleraugun. Biden býður í dans og dýrlegar veitingar. Kata og Þórdís þiggja boðið jafnvel þó Biden sé þjófur og lygari. Sá versti frekar en næstbesti. Þetta er ekki hægt að skálda. Stoltenberg er stoltur af framgöngu Íslands fyrir að skrifa undir íslenska aðild að hryðjuverkaárás Ameríku og Noregs á þýsku þjóðina með því að sprengja Nord Stream. Spaugilegt að CIA laumar villuljósi um sex manns á snekkju í Eystrasalti og tengir við Úkraínu en Kænugarður neitar!
Óli kanslari náði Biden í mitti í Washington á dögunum og í febrúar 2022 þegar Biden lofaði heiminu: We will bring an end to it [Nord Stream] I promise you. Óli stóð við hlið hans og kinkaði kolli. Samkvæmt Laptop-from-Hell tekur Biden 10% af dílum Hunters; 10% for the Big Guy. Nú lofar Óli litli Leopard skriðdrekum til Úkraínu til stríðsrekstrar gegn Rússlandi 62 árum eftir að skriðdrekar Hitlers stormuðu Kænugarð. Þetta er ekki hægt að skálda. Quisling fagnaði nazistum í Noregi fyrir 62 árum og Stephan Bandera í Úkraínu. Quisling er norskur þjóðníðingur en Bandera úkraínsk þjóðhetja. Sagan gleymir ekki. Fjölmargir borgara-blaðamenn líkt og ég; citizen-journalists fjalla um glæpi Biden og Ameríku þó við elskum Bandaríkin. Gamli jaxlinn Sy Hersh, fyrrum foxarnir Glenn Beck, Clayton Morris, Lou Dobbs og hin flotta Lara Logan, svo nokkur séu nefnd afhjúpa keisarann í engum fötum. Epoch Times, The Cradle, And We Know, Rebel News fleiri, fleiri og fleiri fræða. Sannleikur leitar alltaf upp á yfirborðið, lygin morknar og rotnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2023 | 20:39
Af Biden stóra bróður & Scholz litla bróður ...
Olav Scholz kanslari Þýskalands var kallaður til Washington fyrir helgi. Þýskum blaðamönnum var bannað að ferðast með kanslaranum til Washington. Engar óþægilegar spurningar, bara vinnuferð litla bróður. Hvers vegna ferðu þangað, útskýrðu fyrir okkur, mælti Fredrich Merz leiðtogi kristilegra dómókrata í Bundestag. Af þessu tilefni birti tímaritið Stern Stjarnan meðfylgjandi mynd á forsíðu af litla bróður Olav Scholz með stóra bróðir Joe Biden. Áfram Stóri Bróðir. Myndin segir allt sem segja þarf, ekki satt? Heppinn Joe Biden ... Í deilum við Rússland og Kína höldum við áfram að fylgja USA. Ein Gluck, dass er Joe Biden gibt im Konflick mit Russland und China können wir uns wieder die USA verlassen.
USA NICHT UNSEREN FREUND
Víðtæk og vaxandi mótmæli eru í Þýskalandi en auðvitað eru þau þögguð. Kollegar mínir virðast telja að með því að þegja & þagga sé óþægilegum sannleika bægt frá. Petr Bystr þingmaður AfD sem á sæti í utanríkisnefnd Bundestag segir stöðugt fleiri vísbendingar um að Bandaríkin hafi egnt Rússland í stríð. Samningar hafi nánast verið í höfn milli Rússlands og Úkraínu síðastliðið vor en Bandaríkin og Bretland hafi komið í veg fyrir friðarsamninga í Istanbul. Bystr segir að ef marka megi fréttir um Nord Stream séu Bandaríkin ekki vinir Þýskalands; nicht unseren freund sbr þetta viðtal. Á Evrópuþinginu hefur ítrekað verið krafist rannsóknar og bent á aðild Ameríkana og Norðmanna að Nord Stream.
Þingmaðurinn kveður Biden og Boris Johnson hafa komið í veg fyrir friðarsamninga í Istanbul í apríl 2022. Boris stormaði til Kænugarðs 9. apríl þegar friður virtist innan seilingar, sbr. mynd af viðræðum. Boris lofaði fé og vopnum. Mogginn segir að Zelinskyi sé Churchill okkar tíðar. Zelinskyi bannar málfrelsi, bannar stjórnarandstöðu, bannar frjálsa fjölmiðla, ofsækir trúaða, fangelsar og drepur stjórnarandstæðinga. Níu dögum eftir að stríðið hófst var samningamaðurinn Denys Kireyev myrtur. Kireyev hafði talað fyrir friðarsamningum. Lík hans var skilið eftir á götu í Kænugarði öðrum til viðvörunar. Hvers á Churchill að gjalda? Hvenær opnast augu vina minna? ...
Gríðarleg sprenging var í East Palestine Ohio 3. febrúar með skelfilegum afleiðingum svo var sem kjarnorkuský yfir bænum. Þessi atburður hefur ekki vakið mikla athygli, fremur en hryðjuverkið í Eystrasalti. Atburðinum hefur verið líkt við Chernobyl, skelfileg mengun með hroðalegum afleiðingum fyrir náttúru og heilsu fólks, margt er á huldu um orsakir. Joe Biden hefur ekki séð ástæðu til að heimsækja íbúa Ohio. Innviðir í Ameríku eru í niðurníðslu; flugvellir, járnbrautir, hafnir, innrás á suðurlandamærum USA glæpagengi smyglandi fetanyl sem árlega fellir 70.000 ungmenni ásamt yfirþyrmandi fátækt sem er viðhaldið í borgum demókrata. Árlega falla mun fleiri fyrir dópvæðingu Ameríku vegna opinna landamæra en tuttugu ára Víetnamstríði. Á sama tíma spreðar Biden yfir hundrað milljörðum dollara í stríðsrekstur í Úkraínu. Augu Ameríku eru að opnast, fólk áttar sig á að fátækt og kynþáttahyggja eru valdatæki demókrata. Ameríka er að sjá hvers kyns Biden er, Olav lýtur honum sem stóra bróður líkt og Stern bendir á; Þýskaland sér í gegn um Scholz.
Bloggar | Breytt 6.3.2023 kl. 09:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2023 | 13:38
Sprengja Ísland í loft upp ... jafnvel líka Bretland
Í vinsælum þætti í rússneska sjónvarpinu RU.tv 2 í janúar, minnti einn helsti álitsgjafi Rússlands, gyðingurinn Yevgeny Satanovsky á að til greina komi að ...sprengja Ísland í loft upp. Þann 19.janúar vitnaði Haukur Hauksson fyrrverandi fréttamaður RÚV og nú Útvarps Sögu í orð Satanovsky sem hafði vísað til orða Vladimirs Shirinovsky [1946-2022] sem vildi gera Ísland að fangaeyju. Raunar bætti Yevgeny Satanovsky við að ef Nato róast ekki þá líka að sprengja Bretland með Posedon flaug til þess að vara Vesturlönd við og sérstaklega Bandaríkin. Satanovsky sagði orðrétt:
Aðalóvinur okkar eru Bandaríkin, þau óttast gereyðingu og þeim kemur mjög illa að missa nokkra tugþúsundi hermanna hvar sem þeir er; ef til vill þurfum við að taka slíkt á okkur. Rússland þarf að byrja tilraunir á kjarnorkusprengjum annars staðar en á Novaja Zemlja, margir möguleikar ... Ég minni á orð Zhirinovskys um að sprengja Ísland í loft upp ... Hins vegar eru [líka] aðrar eyjur sem eru mannlausar ... góður kostur síðan, ef þeir róast ekki er að sprengja upp Stóra Bretland með Poseidon [flaug] ... Allt Nato er í stríði gegn okkur í Úkraínu ... Við þurfum að láta þá trúa á hótanir okkar.
Daily Mail fjallaði um hótun Zhirinovsky 26. maí 2016 og taldi helst að hann ætti við Færeyjar, Orkneyjar eða Shetlandseyjar. Satanovsky hins vegar er skýr um að eyjan er Ísland og þá taka út Reykjanesskaga þar sem Keflavíkurflugvöllur er. Rússar telja að Vesturlönd þurfi að læra að þekkja, virða og stafa ógn af geigvænlegan rússneskum hernaðarmætti.
Heimsstyrjöld er dauðans alvara. Ísland hefur tekið þátt í hryðjuverki USA & Noregs á rússneska gasleiðslu í Norðursjó með geigvænlegum afleiðingum og árás á þýsku þjóðina. Raunar komu kafarar frá Stokkhólmi til að koma sprengjum fyrir á Baltops æfingu Nato í júní, að sögn bandarísks herforingja, svokallaðs whistleblower. P8 þotunni sem virkjaði sprengjuna að morgni 26.september 2022 var flogið frá Íslandi. Það þarf lítinn neista til að kveikja bálið. Daginn eftir að Vlaldimir Pútin ógilti START kjarnorkusáttmálann lenti DÓMDAGSÞOTA Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli og bandaríska sendifrúin á Íslandi ásamt fylgdarliði stormaði suður á Keflavíkurflugvöll til móttöku. Væntanlega hefur verið mikið dáðst og hlegið dátt. Hvaða íslenskt fyrirmenni var þar? Þotan samræmir kjarnorkuherafla á landi og í sjó. Hvað eru íslenskir ráðamenn að hugsa? Keflavíkurflugvöllur er alþjóða flugvöllur, er ekki svo. Hvers vegna eru íslenskir ráðamenn og ögra Rússum bendandi á Keflavíkurflugvöll, virkir þátttakendur í hryðjuverki gegn Rússland og síðast en ekki síst lama Þýskaland?
Satanovsky þjónaði sem leiðtogi Jewish Congress í Rússlandi. Hann vill hengja úkraínsku gyðingana Joseph Zissels, leiðtoga Vaad-nazista og Igor Kolomoisky stofnanda Azov-nazista. Kolomoisky er guðfaðir gyðingsins Zelinskyi sem hefur bannað málfrelsi, bannað stjórnarandstöðu, bannað fjölmiðla, ofsótt trúaða, fangelsað og drepið stjórnarandstæðinga og lét skjóta þá sem í apríl 2022 vildu friðarsamninga við Rússa. Ísland neitaði að lýsa yfir stríði á hendur Þýskalandi í öðru heimsstríði. Ísland er í fremstu víglínu í þriðja heimsstríði? Má segja um Kef að völlurinn sé svo vitnað sé í þekkt ummæli: ... clear & present danger to Russia? ... Hvað þýðir það?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.2.2023 | 00:06
ÍSLAND ÞÁTTTAKANDI Í ÁRÁS USA & NOREGS Á ÞÝSKU ÞJÓÐINA
Þegar Nord Stream gasleiðslan var sprengd 26. september 2022 kl. 02:03 og kl. 07:04 var bandarísk P-8 þota yfir skotmarkinu. P-8 þotan hafði tekið á loft frá Keflavíkurflugvelli og haldið til Eystrasaltsins rúmlega þriggja tíma flug. Þotan flaug yfir gasleiðsluna og síðan yfir til Póllands og var klukkustund og 20 mínútur að taka eldsneyti í 26 þúsund feta hæð. Það er afar langur tíma og til merkis um að verkið hafði ekki klárast. Eftir eldsneytistöku var þotunni flogið út yfir Eystrasaltið á ný, lækkaði flug og hóf aðflug að Nord Stream í síðara skiptið og var yfir leiðslunni kl. 07:04.
ÍSLAND VIRKUR ÞÁTTTAKANDI Í STRÍÐINU
Þessar upplýsingar staðfesta aðild Íslands að mesta hryðjuverki og mengunaratviki í sögu Evrópu þegar bandarískar og norskar sérsveitir gerðu árás á þýsku þjóðina og eyðilögðu rússneska gasleiðslu sem hafði fært Þýskalandi og V-Evrópu ódýrt gas. Ísland er virkur þátttakandi í stríði Vesturlanda gegn Rússlandi.
Tvö atvik komu fram á jarðskjálftamælum nóttina 26.09; hið fyrra og smærra kl. 02:03 og hið síðara miklu mun öflugra kl. 07:04 þegar P8 þotan var aftur yfir gasleiðslunni. Sex af átta sprengjum sprungu. Þrjár af fjórum leiðslum eyðilögðust. Það þurfti tvö aðflug yfir Nord Stream til að ljúka verkinu. Áður hafði bauju verið varpað í sjóinn með Raytheon sónar, nokkurs konar byssugikkur.
GEIGVÆNLEG MENGUN Í EYSTRASALTI
DR Danmarks Radio skýrir í dag frá því að ný rannsókn leiði í ljós að sprengingin og afleiðingar hennar hafi leitt til dreifingar eiturefna af hafsbotni sem nemi ellefu rúmkílómetrum. Hið gífurlega magn eiturefna sé að hafa geigvænleg áhrif á lífríki og dýralíf í Eystrasaltinu. Rannsóknin er unnin af dönskum, pólskum og þýskum vísindamönnum, þar á meðal Hans Sanderson við Árásóarháskóla. Um er að ræða hvers kyns þungmála, blý og þrávirk eiturefni, meðal annars frá botnmálningu skipa; eiturefni sem hafa safnast upp frá upphafi iðnvæðingar. Vísindamenn telja að 250.000 tonn af eiturefnum hafi þyrlast upp af hafsbotni undan ströndum Skandinavíu, Þýskalands og Póllands.
VAR ÍSLAND UPPLÝST - GAF ÍSLAND SAMÞYKKI?
Norsk, dönsk og sænsk stjórnvöld munu hafa verið upplýst en Þjóðverjum var haldið óupplýstum. Ákveðið var að P8 þotan flygi frá Íslandi en ekki USA eða Kanada. Bretar munu hafa hafnað því að þotan flygi frá breskum herflugvelli. Var Ísland upplýst um árásina líkt og Noregur, Danmörk og Svíþjóð?
Bandaríkjamenn fóru frá Keflavíkurflugvelli árið 2006. Er Keflavíkurflugvöllur undir íslenskri stjórn? Eftir að Úkraínustríðið braust út hafa verið stöðug og vaxandi hernaðarumsvif á Keflavíkurflugvelli og allt að tólf P8 þotur verið samtímis á vellinum. Þotum hefur verið perkerað á svokallaðan Top-Ramp sem þýðir mikinn viðbúnað. Spurt er: Hvað er um borð í þotum á Top-Ramp? Flugvöllurinn er okkur sagt, að sé undir íslenskri stjórn Isavia svo íslenskir fjölmiðlar geta spurt um hernaðarumsvifin. Hvað veit Isavia um flug P8 þotunnar frá Íslandi sem var yfir sprengjustað kl. 02:03 og 07:04 26.09 2022?
Gaf Ísland samþykki sitt fyrir stríðsaðgerð gegn Rússlandi og Þýskalandi sem leiddi til mesta menungaratviks í sögu Evrópu frá Chernobyl í Úkraínu? Spurningunni mega fjölmiðlar beina til Katrínar Jakobsdóttur og Þórdísar K.R. Gylfadóttur.
STRÍÐSAÐGERÐ ACT OF WAR
Jake Sullivan öryggisráðgjafi Biden stýrði aðgerðum úr Eisenhower byggingunni gegnt Hvíta Húsinu. Umdeilt var í aðgerðarhópnum að halda þýskum stjórnvöldum óupplýstum: ...Allir litu á þetta sem stríðsaðgerð gegn Rússlandi og jafnvel Nato-þjóðinni Þýskalandi ... act of war ... Biden hafi valið að láta Þýskaland frjósa í pólitískum tilgangi en ekki með þjóðarhagsmuni í huga. Biden Chose To Let Germany Freeze For Strictly Political & Not National Security Purposes, skrifar John Basham fyrrum hermaður US Army, sérfræðingur í upplýsingatækni og veðurfræðingur.
Olav Scholz kanslari andmælti ekki þegar hann stóð við hlið Joe Biden í Washington þegar forsetinn hótaði að ...bring an end to it [Nord Stream], I promise you. We can do it. Kanslarinn sagði ekki orð. Í kjölfari Nord Stream hækkaði verð á gasi og tveimur dögum eftir hryðjuverkið tóku Norðmenn í notkun Baltic-gasleiðsluna til Póllands. Norskt og danskt gas flæddi til Evrópu á mun hærra verði en Rússagasið hafði kostað enda verð rokið upp við hryðjuverkið. Að sögn Sy Hersh fremsta blaðamanns Vesturlanda síðustu 50 ár, völdu norskir sérsveitarmenn og sérfræðingar staðinn undan Borgundarhólmi. Bandarískir kafarar í borgaralegum klæðum frá flota- og björgunarmiðstöðinni í Panama City Flórída komu fyrir sprengjum á Baltops22 Nato æfingu í júní 2022. Að loknu verki voru kafararnir sóttir af norskum kafbát. Það þótti of snemmt að sprengja í júní, svo finna varð leiðir til að virkja sprengjurnar þegar Biden gæfi skipun sem svo kom í september. Orkulaust Þýskaland er lamað, af-iðnvæðist í frjálsu falli líkt og Evrópa.
ÚKRAÍNA LYKILL AÐ LAMA RÚSSLAND
Í bók sinni The Grand Chessboard 1997 lýsir neo-con Zbigniew Brzezinki hvernig Úkraína sé lykill að því að lama Rússland til að tryggja stöðu Ameríku sem stórveldi 21. aldar. Sterkt Þýskaland við dyragætt Rússlands með alla sína olíu, gas og málma ógni amerískum yfirráðum yfir Evrópu. Það þurfi að loka á náin samskipti Þýskalands og Rússlands. Þarf að útskýra frekar? Nord Stream hryðjuverkið sló tvær flugur í einu höggi. Hryðjuverkið var innan við mánuði frá því norska þingið samþykkti varnarsamning við Bandaríkin. Fjórar bandarískar herstöðvar í Noregi fengu sömu stöðu og Keflavíkurflugvöllur á árunum 1951-2006; bandarísk lög og leynd gilda innan herstöðvanna: Rygge Østfold í nágrenni Moss, Sola skammt frá Stafangri ásamt Evenes og Ramsund í N-Noregi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
19.2.2023 | 15:34
Norsk árás á þýsku þjóðina
Í byrjun júní 2022 samþykkti meirihluti norska Stórþingsins varnarsamning við Bandaríkin sem markaði mestu þáttaskil í norskum utanríkismálum frá 1949 þegar Noregur gekk í Nato. Vinstri & hægri blokkirnar tóku höndum saman undir forystu Jónasar Gahr Støre forsætisráðherra gegn jaðarflokkum. Fjórar bandarískar herstöðvar í Noregi fengu sömu stöðu og Keflavíkurflugvöllur í den; bandarísk lög og leynd gilda innan herstöðvanna; Rygge Østfold í nágrenni Moss, Sola skammt frá Stafangri, Evenes og Ramsund í N-Noregi.
Innan við mánuði frá samþykkt Stórþingsins höfðu Noregur og Bandaríkin gert árás á þýsku þjóðina með því sprengja Nord Stream gasleiðsluna 29.júní 2022. Árásin í Eystrasaltinu er ein skæðasta efnahagsárás sögunnar og hafði í för með sér stórfellda metan mengun. Bandarískar sérsveitir komu sér fyrir í Noregi við skipulagningu og Norðmenn völdu staðinn í Eystrasalti skammt frá Borgundarhólmi.
Norsk P-8 þota varpaði stýri bauju í sjóinn þremur dögum fyrir sprenginguna örlagaríku sem svipti Þjóðverja ódýru gasi og skilur eftir berskjaldaða fyrir vetrarhörkum. Samþykkt Stórþingsins var keyrð í gegn um þingið í upphafi sumars meðan norska þjóðin hafði hugann við sól og sumar. Árásin er auðvitað á rússneska gasleiðslu en þýska þjóðin er þolandi sem á allt undir ódýru gasi. Þýskir stjórnmálamenn hafa snúist gegn þýskum almenningi í pólitísku valdatafli.
Rússum er kennt um árásina sem Jói Biden hótaði með Ólaf Stolz kanslara sér við hlið í Washington í febrúar 2022. We will bring an end to it, sagði Biden. Bandaríski verðlauna blaðamaðurinn Sy Hersh uppljóstraði um árásina í ítarlegri grein en CNN, Washington Post og New York Times þagga. Þýskir falsmiðlar hafa þurft að hagræða og breyta skoðun sinni á Hersh. Fyrir uppljóstrun sína kallaði Der Spiegel Hersh ...legendary American journalist, world famous sem upplýsti um My Lai fjöldamorðin í Víetnam 1970 og pyntingar í Abu Ghraib fangelsinu í Írak 2004. Eftir uppljóstrun er Hersh ...controversial who in a poorly written blog post heldur því fram að US hafi sprengt gasleiðsluna. Þetta er auðvitað bara grátbroslegt. Ég hef ekki séð falsmiðlar okkar segja frá uppljóstrun Sy Hersh. Þeir sjá ekki, heyra ekki, segja ekkert. Hversu vandræðaleg er vestræn blaðamennska, hversu vandræðaleg er íslensk blaðamennska?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2023 | 16:59
Macgregor: 700.000 Rússar undir alvæpni ...
Morgunblaðið gerir því nú skóna að stórsókn Rússa sé hafin undir fyrirsögn: Stöðva þarf Rússa áður en þeir sækja lengra í vestur. Herskáum Mogga-tón linnir ekki, þarf ekki frekar að semja frið? Rússar eru að láta hné fylgja kviði. Mogginn hefur eftir varnarmálaráðherra Úkraínu, Oleksí Resnikov, að Rússar hafi kallað til mun fleiri hermenn en 300 þúsund, telur hann töluna vera nærri 500 þúsund.
Macgregor: Rússar tífalt öflugri
Ráðherrann fer nærri um, en Douglas Macgregor ofursti kveður um 700 þúsund rússneska hermenn í Úkraínu eða við landamærin albúna til stórsóknar gegn þegar gersigraðum her Úkraínu. 80.000 sjálfboðaliðar hafi boðið sig til herþjónustu. Rússland hafi nú þegar unnið stríðið í Úkraínu. Að minnsta kosti 150-160 þúsund úkraínskir hermenn séu fallnir og saknað í bardaga, jafnvel allt að 200 þúsund. Rússneski herinn sé tífalt öflugri en sá úkraínski; stórskotalið og eldflaugar gereyði úkraínska hernum. Der Spiegel: Ukraine Losing Hundreds of Soldiers Every Day. Paník í Berlín. Þeir sem eftir séu í Úkraínu líklega 18-19 milljónir þar af 4 milljónir í austurhlutanum. Yfir 10 milljónir hafi yfirgefið landið, tvær milljónir voru í V-Evrópu fyrir stríð. Það er líklegt að Úkraína verði örríki umhverfis Kænugarð. Pólverjar fái V-Úkraínu til baka.
Herkvaðning: 16 ára & 60+ karlar
Herútköll hafa verið tólf talsins, nú síðast 16 ára unglingar og 60+ karlmenn. Þetta minnir á þriðja ríkið fyrir 80 árum. Því lengur sem stríðið heldur áfram því meiri hörmungar. Úkraína er hrunin, innviðir rústir einar. Mannfall rússneska hersins sé 10-15% af úkraínska hernum. Það veldur mér hugarangri að fólk á Vesurlöndum lætur sig örlög úkraínsku þjóðarinnar ekkert varða, segir Macgregor ofursti skriðdrekaforingi í Flóabardaga 1991, Balkanskaga & Júgóslavíu. Hann er gagnrýnandi herskárrar stefnu Bandaríkjanna undanfarna áratugi. Hann hætti herþjónustu ári eftir innrásina í Írak. Macgregor var ráðgjafi Hvíta Hússins í tíð Dónalds Jóns og tilnefndur til embættis sendiherra í Þýskalandi en stríðshaukar Washington komu í veg fyrir staðfestingu hans.
Til þess að skilja atburði 2016-2023 verða menn að átta sig á að Dónald Jón Trump lofaði að draga Bandaríkin út úr Endalausum styrjöldum. Stríðshaukar í báðum flokkum snérust gegn forsetanum; neo-cons & neo-libs í þágu Military Industrial Complex & lyfjarisa Big-Pharma. Frá falli Sovétsins hafa geisað Endalausar styrjaldir & plágur. Dónald Jón kom á friði í Mið-Austurlöndum; steig fæti á N-Kóreu; hvatti Zelinskiy til að velja sættir og semja við Pútin. Þegar seníll Jói Biden kom upp úr kjallaranum í Delaware þá var "kveikt" í Úkraínu. Þetta er amerískt stríð alveg eins og stríðin í ríkjum múslima. Stórveldisdraumar ESB eru sem brunarústir, Evrópa án orku er púnteruð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)