Færsluflokkur: Bloggar
3.1.2024 | 07:01
Man City, Wall Street & rauður ofsi ...
Fyrir 50 árum tók bísnissmaðurinn Peter Swales við stjórnarformennsku Manchester City. Árið var 1973. ManCity var þá eitt besta lið Evrópu; Englandsmeistarar 1968, FA Cup 1969, Evrópumeistarar bikarhafa, League Cup 1970, misst af titli '72 á markatölu. Í ágúst 1967 hafði sextán ára gutti í Bústaðahverfi tekið ástfóstri við félagið; Bell Lee & Summerbee goðsagnir. Með Swales varð City óstöðugt, illa stjórnað þó sigur hefði unnist í League Cup 1975 og liðið hafnaði í 2. sæti 1977, stigi á eftir Liverpool og léki tvo leiki til úrslita í FA Cup 1981. Árið 1983 féll City og tuttugu árum eftir valdatöku árið 1993 hrökklaðist Swales frá City, rúinn trausti og félagið í frjálsu falli alla leið í 3. deild enskrar knattspyrnu. Aldrei hafði svo stórt enskt félag fallið í annað eins hyldýpi. Þann 19. desember 1998 tapaði ManCity fyrir York City 2-1, var í 13. sæti á jólum. Þrátt fyrir bága stöðu var Maine Road jafnan smekkfullur í 3. deild. Þrátt fyrir erfitt gengi 1998 komst ManCity í úrslitakeppni um sæti í næstefstu deild og vann magnaðan sigur á Wembley vorið 1999 þegar Kevin Horlock og Paul Dickov björguðu félaginu úr svartholinu með tveimur mörkum í uppbótartíma gegn Gillingham. Ári síðar var ManCity á ný í English Premier League.
ST. MARKS KIRKJAN & ÍÞRÓTTIR
St. Marks [Church] Football Club í West Gorton var stofnað 1880, varð Ardwick FC 1887 breytt í Manchester City FC 1894 sem vann FA Cup 1904 fyrsta stóra titil borgarinnar. Prestur St. Marks og fjölskylda hans voru frumkvöðlar að cricket, rugby og fótboltaliðum til þess að skapa alþýðufólki áhugamál en þýskur influttur verkfræðingur Carl Beyer fjármagnaði St. Marks og tvær aðrar kirkjur í Manchester og var helsti stuðningsmaður háskóla borgarinnar; University of Manchester. Maine Road var reistur 1923 stærsti félagsvöllur Englands í áratugi. Staðarval fjarri stofnlóð í austur Manchester var ekki óumdeilt. Sígaunar voru sagðir hafa lagt bölvun á Maine Road en þeir höfðu hrakist af vallarlóðinni. Enn stendur aðsóknarmet á Englandi, sett á Maine Road 84.569 þegar Stoke City kom í heimsókn í Bikarnum 1934. Þá um vorið vann City FA Cup í annað sinn, þriðja sinn 1956. St. Marks kirkjan var rifin 1976. Um aldamótin tvö þúsund horfði gott fólk til framtíðar ManCity. Samveldisleikarnir í Eastlands austurhluta Manchester urðu stökkpallur. Elísabet II Englandsdrottning vígði leikvanginn sumarið 2002. Borgaryfirvöld leigðu City of Manchester Stadium leikvanginn til 99 ára. Hinn nýi leikvangur í Eastlands var sem óplægður akur tilbúinn til sáningar, gaf ManCity magnað forskot á önnur ensk félög án þess að tekið væri eftir. Kevin Keegan hafði verið ráðinn stjóri 2001 og félagið dreymdi stóra drauma.
UPPBYGGING MANCITY
Sjeik Mansour keypti ManCity 2008, Khaldoon al Mubarak varð stjórnarformaður, Roberto Mancini leiddi City til FA Cup sigurs 2011 og Englandstitils 2012 með mörkum Edin Dzeko 91:40 og Sergio Aguero 93:20 í 3-2 sigri á QPR. Um þrjátíu Íslendingar urðu vitni að þessari frægustu endurkomu enskrar knattspyrnusögu. Árið 2014 tók City titilinn aftur eftir að Steven Gerrard hafði hrasað slysalega á Anfield. Ferran Sorriano og Txiki Begiristain voru ráðnir haustið 2012 og Pep Guardiola kom 2016. Uppbygging ManCity fór í yfirgír; glæsilegasta akademía veraldar, eitt besta kvennalið Englands, Etihad stækkaður nú á leið í 61.400. Hótel, safn, verslanir, íþrótta- og sýningarhöll við Etihad ásamt mikilli uppbyggingu á fornum slóðum í austur Manchester. ManCity hóf að byggja upp félög víða um heim; hugmynd Ferran hafði verið hafnað í Barcelona þaðan sem þeir félagar höfðu hrökklast. Stórbrotin endurkoma gegn Aston Villa tíu árum eftir QPR var vorið 2022. City 0-2 undir á 70. mínútu. Sjálfur Steven Gerrard stjóri Villa á hliðarlínunni. Kevin DeBruyne reimaði skóna eftir síðara mark Villa og City skoraði þrjú mörk á rúmum fimm mínútum; Ilkay Gundogan 76:20, Rodri 78:50 og Gundogan 81:50. Liverpool sat eftir með sárt enni.
WALL STREET & RAUÐUR OFSI
Stjórn félaga skiptir öllu. Árið 2003 komu Glazerar inn í ManUtd. Í júní 2005 luku þeir skuldsettri yfirtöku á ManUtd í gegn um Wall Street. Nú 20 árum síðar er ManUtd óstöðugt, illa stjórnað hefur ekki unnið Englandstitil frá því Ferguson hætti fyrir tíu árum, Glazerar rúnir trausti, Old Trafford í niðurníðslu falling down ... falling down; hriplekur. Það er til marks um stöðu ManUtd að satan prýðir þriðju treyju, fyrsta sinn í sögu félagsins sem sá sómi hefur verið honum sýndur. Matt Busby innleiddi rauðu djöflana á sjötta áratug 20. aldar til að vekja ógn í brjóstum andstæðinga, en bölvun virkar á báða vegu. Rætur ManUtd og ManCity ólíkar sem verða má. English Premier League var stofnuð 1992 þegar bestu lið Englands slitu sig frá neðri deildar klúbbum. ManUtd. vann þrettán titla á árunum 1992-2013; fyrsta áratug EPL nánast ósigrandi með átta titla en Liverpool í sárum eftir Heysel 1985 og Hillsborough 1989. Enski boltinn varð vinsælasta sjónvarpssport veraldar færði rauðu liðunum mikið sófafylgi; Ísland þar á meðal. Wall Street tók eftir. Arsenal Wengers var helsti keppinautur Utd, svo kom Chelsea & þá City. Á Englandi eru nú tíu amerískir eigendur meira og minna fjármagnaðir af Wall Street sem lítur á ManCity sem ógn. Bísnissmódeli bankanna er ógnað, stýrivextir Federal Reserve í hæstu hæðum 7.79% í október 2023, peningaprentun fed hömlulaus og dollar í frjálsu falli. Rauður-ofsi ofsafenginn. Amerísk fingraför allra að sjá. Chelsea var tekið af Abramovich af því hann er Rússi og fært í amerískar hendur, Everton í amerískar hendur haustið 2023. Wall Street deilir & drottnar; Divides & Conquers. Í Ameríku eru íþróttafélög grímulaust misnotuð sem stjórntæki. Wall Street inn á gafli enskrar þjóðargersemi; knattspyrnu. Pólitísk slagorð tekin upp í EPL, reglubreytingar EPL færðar í bakherbergi, flækjustig vex með VAR; dularfull 10% lenging leikja án þess leikmenn séu spurðir. Til hvers? Sá er þekkir baksvið Ameríku, sögu Federal Reserve og Wall Street, þekkir þjáningu bandarísku þjóðarinnar, alveg sérstaklega millistéttarinnar og svartra íbúa.
ÓSLITIN SIGURGANGA MAN CITY
Með tilkomu Pep besta þjálfara heims hófst óslitin sigurganga ManCity, nú sjö Englandstitlar á tíu árum, 100 stiga múrinn rofinn, þrír bikartitlar. Fimm risatitlar árið 2023; Heimsmeistarar, Evrópumeistarar, Super-Cup Evrópu, Englandsmeistarar og FA Cup. En jafnframt magnaðist ofsi og rógur í garð City sem sagt er félag án sögu. Vorið 2018 grýtti múgur rútu ManCity fyrir utan Anfield og braut rúður. Árásin var látin óátalin, gerð með blessun klúbbsins og í stíl við ofbeldi í amerískum borgum þar sem svörtu fólki er att á forað ofbeldis og haturs. Fimm árum síðar varð veröldin vitni að sama hættuleik í Marseille með hörmulegum afleiðingum. Vorið 2019 birti Der Spiegel stolna pósta portúgalsks hakkara um ManCity sem neitar ásökunum og kveður slitna úr samhengi. UEFA setti City í Evrópubann en City áfrýjaði til CAS Íþróttadómstóls Evrópu sem felldi bannið úr gildi, sýknaði City að mestu af ásökunum, m.a. um óeðlilega hátt verð sem Etihad flugfélagið greiddi fyrir nafngift heimavallar City. Nú eru ásakanir uppi af hálfu English Premier League, EPL undir forystu rauðra skjólstæðinga Wall Street, sem blóðmjólka boltann og stöðugt hækkar gjald áhorfenda. Við sjáum hvað setur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimildamyndin Soviet Barbara á RÚV annan í jólum um listsýningu Ragnars Kjartanssonar Santa Barbara í Moskvu er áhugaverð fyrir margra hluta sakir. Stórbrotið að sjá okkar fremsta listamann Ragnar Kjartansson, einn fremsta listamann Vesturlanda í höfuðborg Rússlands með sýningu á tímamótum í mannkynsögunni þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Ég kem mér í situationir þar sem móralinn er flókinn, segir Ragnar og hittir naglann á höfuðið. Myndin hefst haustið 2021 skömmu fyrir opnun sýningarinnar um amerísku þáttaröðina Santa Barbara sem Rússar drukku í sig á tíunda áratugnum. Santa Barbara varð táknmynd kapitalisma, hugmynd um velgengni að sögn Ragnars sem kveður þessar táknmyndir trumplegar í hrottaskap sínum. Ragnar kveðst vera að krítisera vald og bætir við að sýningin sé ekki bara týpískt rússagrýlukjaftæði. Áhugavert verður að sjá hvort listjöfur okkar, Ragnar Kjartansson sé á réttunni eða röngunni um stærstu atburði okkar tíðar tjú, tjú tral-la-la.
PÖNK-FÖNK-BÖLBÆNIR PUSSY-RIOT
Þann 21. febrúar 2012 ruddust fimm grímuklæddar Pussy-Riot pönkstelpur inn í Dómkirkju Jesú Krists í Moskvu. Þær höfðu uppi guðlausar pönk-föck-bölbænir þegar þær mótmæltu framboði Vladimir Pútins til endurkjörs sem og endurreisn kristni í Rússlandi. Birth-giver of God, Drive Putin Away." Dómkirkja Jesú Krists á bökkum Moskvufljóts var reist á 19. öld eftir innrás Napóleon á Moskvu og brotthvarf 1812. Það tók áratugi að reisa kirkjuna sem guðlaus Jósef Stalín lét rústa og tortýma árið 1931. Árið 1991 hrintu Rússar af höndum sér oki guðlausra kommúnista. Strax árið 1992 var tekin ákvörðun um að endurbyggja Dómkirkju Krists með framlögum um milljón Moskvubúa og var hún vígð árið 2000. Eftir fall Sovétríkjanna var Rússneska rétttrúnaðarkirkjan reist til fyrri vegs og virðingar, kirkjur endurreistar vítt og breitt um Rússland. Í þrjátíu ár hefur Rússland endurreist hundruð kirkna. Rússneskur almenningur leit á uppákomu Pussy-Riot sem helgispjöll en vestrænir fjölmiðlar hafa gert stelpurnar að píslarvottum og refsingu þeirra dæmi um alræði Pútins. Á sama tíma hafa Vesturlönd úthýst Jesú Kristi, tekið upp guðleysi með kyn- og transvæðingu samfélaga þar sem hundruð kirkna hafa verið brenndar til grunna. Hvað segja Íslendingar ef pönkaðar grímustelpur ryðjast með bölbænum inn í Hallgrímskirkju, framkvæma gjörninga þar sem þær meðal annars míga á brúðu af forseta Íslands? Hinn kristni veit að stelpurnar eru andsettar. Tvær þeirra eru íslenskir ríkisborgar. Vel fer á með þeim og forsætisráðherra þjóðarinnar. Bob Dylan kvaðst í 60 Minutes hafa gert samning við Satan. Dylan söng: You're gonna have to serve somebody. It may be the devil or it may be the Lord. But you're gonna have to serve somebody. Hvenær opnast augu fólksins í landinu?
HVAÐ VEIT RAGNAR ...
Sýningu Ragnars Santa Barbara var hætt með innrásinni í Úkraínu 24.02.2022. Sjálfsagt hefur Ragnar sína Pútingrýlu frá RÚV, BBC, CNN, New York Times, Washington Post og rest sem senda út eina og sömu frétt á rauntíma með Trusted News Initiative. Vestrænir fjölmiðlar halda úti samræmdu Rússahatri, covid-ótta og loftlagsvá á rauntíma. Veit Ragnar að valdaránið í Kænugarði 2014 var stýrt af CIA úr gömlu KGB höllinni og ameríska sendiráðinu? Veit hann viti að þjóðhetja Úkra er nazistinn Stepan Bandera samstarfsmaður nazista? Veit Ragnar að í kjölfar valdaránsins siguðu stjórnvöld í Kænugarði her á hendur rússnesku mælandi íbúum Donbass og Luhansk? Veit hann að íbúum Donbass og Luhansk var bannað að rækta menningu og tala tungumál forfeðra sinna, sem er brot á Mannréttindasáttmálanum 1975. Veit hann að fólkið í Danbass, Luhansk ásamt löndum sínum á Krímskaga kaus um eigin framtíð? Veit Ragnar að síðustu rúm þrjátíu ár hafa Ameríka og Nato farið með stríði á Balkanskaga, orthódox Serbíu, Afganistan, Írak, Sýrlandi, Súdan, Lýbíu auk þess að fjármagna stríðið í Úkraínu þar sem bræður berjast. Eini forsetinn á þessum rúmum þrjátíu árum til að fara ekki með stríði á hendur öðrum þjóðum er hinn hrottalegi-Trump, sem þvert á móti hét aðdraga Ameríku út úr Endalausum styrjöldum; Endless Wars og kalla bandaríska hermenn heim. Styggði Trump hina ríku og voldugu sem eiga alla helstu fjölmiðla heims, eru í bandalagi við guðlausa sósíalista sem stýra vestrænum ríkismiðlum og Sameinuðu þjóðunum í bandalagi við wefarana illu í Davos? Veit Ragnar að Julian Assange er ofsóttur, situr í bresku fangelsi fyrir að afhjúpa stríðsglæpi Ameríku og Nato?
MEÐ GRÍMU Í LISTASAFNI
Ragnar var með covid-grímu í hinu stórbrotna GES-2 listasafni í Moskvu sem Pútin opnaði fyrir sýningu Ragnars. Staðarfólk var ekki með grímur. Táknrænt? Hver sannfærði Ragnar? Veit Ragnar Kjartansson að frá september 2021 fram á haust 2022 voru 350 umframdauðsföll á Íslandi í kjölfar mRNA sprauta. Veit Ragnar að Ríkisstjórn Íslands gerði leynisamninga við illræmda lyfjarisa þar á meðal Pfizer. Allir alþingismenn ásamt fjölmiðlum okkar þegja og þagga, læknar eru sölumenn Big-Pharma. Í meir en ár hefur upplýsingum um dauðsföll og veikindi verið haldið leyndum fyrir þjóðinni. Af hverju?
Nokkur sögubrot í lokin: Árið 1240 brutu Hákon gamli og Vatikanið undir sig Noreg eftir að eldur var lagður að klaustrinu í Niðarósi og Skúli jarl var drepinn. Árið 1241 voru kaþólskir flugumenn sendir á eftir Snorra Sturlusyni með skipun um að drepa skáldjöfurinn í Reykholti. Spyrjið: Hvað áttu Skúli jarl og Snorri sameiginlegt? Árið 1242 hrintu Rússar undir forystu Alexander Nevsky prins af Hólmgarði og Kænugarði sænsk/kaþólskri krossferð á hendur orthódox Rússlandi að undirlagi Vatikansins; fyrstu vestrænu stórárásinni á Rússland. Pétur mikli keisari lét reisa Alexander Nevsky dómkirkjuna og klaustrið í Heilagri Pétursborg sem guðlausir bolsévikar síðar svívirtu og kenndu við Lenín. Vilji Ragnar vita meira um atburði sinnar tíðar þá spegli hann þá meðal annars í verkum Snorra og Völuspá þar sem bræður berjast; Gól með ásum Gullinkambi, sá vekur hölda að Herjaföðurs. En annar gelur fyr jörð neðan, sótrauður hani að sölum Heljar. Spyrjið: Hverjir takast þarna á ... erindi við okkar tíð? Sjá einnig gamlar samantektir mínar, m.a.: Þegar Bolsévikar voru bannfærðir af rússnesku orthódox-kirkjunni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2023 | 15:02
ManCity besta lið enskrar knattspyrnusögu ... fimm risatitlar á einu ári ...
Með fimm risatitla á sama ári í fimm borgum er Manchester City besta félagslið í sögu enskrar knattspyrnu. FA Bikarinn í Lundúnum, Englandstitill í Manchester, Evróputitill í Istanbúl, Super-Cup í Aþenu og Heimsmeistaratitill félagsliða í Jeddah. Veröldin hefur aldrei séð aðra eins sigurgöngu ensks félagsliðs. Á tólf árum hefur ManCity unnið 20 titla; þar af sjö Englandstitla. Pep Guardiola er besti þjálfari sögunnar.
Fyrir 25 árum 19. desember 1998 tapaði ManCity fyrir York City 2-1 og var í 13. sæti 3. deildar ensku deildakeppninnar. Félagið upplifði sína mikla niðurlægingu. ManCity var fyrsti klúbbur Manchester til að vinna þjóðartitil 1904, stofnað sem [St. Marks Church] Gorton AFC 1880, breytt Ardwick AFC, breytt í Manchester City FC árið 1894 með rætur djúpt í þjóðarsál Greater-Manchester, flutti á Maine Road 1923 þar sem áhorfendamet ensks félagslið stendur enn, 84.569 vorið 1934. Í ágúst 1967 hóf 16 ára gutti í Bústaðahverfi að halda með ManCity sem varð Englandsmeistari vorið 1968, Bikarmeistari 1969, Evrópubikar bikarhafa 1970. ManCity var á Wembley vorið 1999 að spila um sæti í 2. deild við Gillingham. Á 90M var City 0-2 undir en tvö mörk Horlock & Dickov í uppbótartíma og sigur í vítaspyrnukeppni tryggðu sæti í næsta efstu deild. Sama vor skoraði ManUtd tvö mörk í uppbótartíma gegn Bayern Munchen og vann þrefalt; Bikar, Englandstitil og Evróputitil. Ári síðar var ManCity í efstu deild; English Premier League. ManCity flutti á Eastlands 2003 í tíð Kevin Keegan þegar Glazer-feðgar eignuðust ManUtd stærsta félag Englands í English Premier League sem hafði slegið í gegn á heimsvísu. ManUtd er í dag félag í hnignun. Old Trafford hriplekur og bláir nágrannar þeirra sungu á dögunum Old Trafford is falling down, falling down; hrynur niður, hrynur niður við lagið um London Bridge. ManUtd er félag í hnignun, stefnulaust, Glazerfeðgar fjármagnaðir af blóðsugum Wall Street. Bera má tíð Glazera 2003-23 við formannstíð Swales 1973-93.
UPPBYGGING ...
Mansour sjeik í Abu Dhabi eignaðist ManCity fimm árum síðar 2008. Mansour sjeik hóf uppbyggingu Etihad, búið að stækka í 53.000 og er nú að stækka í 61.400 með hótel, verslanir, reist la Maisa glæsilegustu akademíu veraldar; teflir fram einu besta kvennaliði Bretlands og hefur reist átta þúsund manna íþrótta & sýningarhöll í Eastlands. Vorið 2011 vann ManCity Bikarinn á Wembley með marki Yaya Toure. Vorið 2012 var ég á Etihad með 30 félögum þegar ManCity mætti QPR. Á 90M var staðan 1-2 og titilinn að renna ManCity úr greipum en Dzeko 92:10 og Aguero 93:20 skoruðu tvö mörk í uppbótartíma. City var Englandsmeistari í fyrsta sinn í 44 ár. Púlarar fögnuðu rosalega en fögnuður þeirra átti eftir að breytast í heift. Vorið 2012 komu Ferran & Txiki til Manchester, vorið 2014 varð ManCity Englandsmeistari. Pep kom sumarið 2016. ManCity varð langbesta lið Englands. Amerískum eigendum hefur fjölgað jafnt & þétt í ensku deildinni og eru 10 með nýjum eigendum Chelsea og Everton. Þessir eigendur eru á ofurlaunum, fjármagnaðir meira og minna af Wall Street með vöxtum í hæstu hæðum með dollar í frjálsu falli. Wall Street deilir & drottnar; devides & conquers sem birtist í óeirðum og eldsvoðum í borgum svartra og niðurbroti millistéttarinnar. Þegar ManCity fór á fordæmalaust skrið 2017-2018 magnaðist rauður rógur gegn félaginu. Vorið 2018 grýtti æstur múgur rútu ManCity fyrir utan Anfield og um haustið tók Der Spiegel að birta ásakanir upp úr hökkuðum tölvupóstum. Manchester City var sett í tveggja ára keppnisbann í Evrópu. Vorið 2020 sýknaði dómstóll um íþróttamálefni [CAS] City af ásökunum. Í ársbyrjun 2023 magnaði EPL rógsherferð gegn ManCity og sakaði félagið um 115 brot á reglugerðum EPL þar sem málið meðal annars sem CAS hafði sýknað félagið af. Á sama tíma og ManCity hefur unnið 20 titla á tólf árum hefur ManUtd unnið fimm.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2023 | 23:49
Láttu þá í veðrinu vaka að séra Friðrik hafi unnið til saka ...
Borgaryfirvöld hafa boðað að stytta séra Friðriks Friðrikssonar [1868-1961] við Lækjargötu verði fjarlægð eftir útgáfu bókar sagnfræðingsins Guðmundar Magnússonar, Séra Friðrik og drengirnir hans. Nafnlausar ásakanir koma fram í verkinu frá manni á áttræðisaldri, líklega fæddur 1945. Séra Friðrik var sem sagt 77 ára þegar ásakandi fæddist. Guðmundur kveður fund ásakanda með séra Friðriki hafa verið um 1956 þegar hann var 11 ára drengur. Atvikið var sumsé þegar séra Friðrik var á áttugasta og áttunda aldursári, hrumur, sjóndapur, líklega blindur. Á grundvelli þessa nafnlausa framburðar er æran höfð af séra Friðriki sem sagður er hafa vangað og þreifað andlit drengsins. Séra Friðrik lést í mars 1961 á 93 aldursári elskaður og dáður.
Sagnfræðiverk er reist á nafnlausri ásökun á hendur öldruðum manni. Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður hefur bent á að grunnreglur réttarríkisins séu brotnar á séra Friðriki að honum látnum. KFUM hafi brugðist arfleifð séra Friðriks. Jón hefur boðist til að taka að sér málsvörn séra Friðriks samtökunum að kostnaðarlausu. Ekki megi bregðast grunnstoðum réttarríkisins hvort sem fólk sé lífs eða liðið. Það hafi gerst að séra Friðriki látnum. Jón kveðst hafa skömm á framgöngu KFUM sem hafi auglýst að hafið sér yfir ...skynsamlegan vafa, að ásakanir um kynferðislegt ofbeldi af hálfu sr. Friðriks Friðrikssonar séu réttar. Ófagleg athugun KFUM fór að baki luktum dyrum leyndarhyggju. Trausti KFUM var glatað á augabragði í Kastljósi þar sem slegið var upp költ-fundi en ekki upplýstri umræðu. Jón bendir á snautlegan rógburð forstýru Stígamóta. Hvernig á kristið fólk að geta treyst að börn þeirra séu ekki kynvædd í sumarbúðum? Snúa strákar heim strákar og stelpur stelpur en ekki uppfull efasemda um kyn sitt?
ÓGLEYMANLEGAR MINNINGAR
Í kjölfar útgáfu ritverksins um séra Friðrik hefur 89 ára maður lýst reynslu sinni af samskiptum við séra Friðrik. Í grein í Morgunblaðinu lýsir Rúnar Guðbjartsson flugstjóri og sálfræðingur fæddur 1934, reynslu sinni. "Hann [séra Friðrik] tók þéttingsfast utan um mig og setti vangann sinn á minn vanga og knúsaði mig og strauk ekki ósvipað því sem faðir minn gerði við mig í mikilli gleði eða sorg. ... En að fá að hitta séra Friðrik og fá knús hjá honum og vera með honum að syngja á þessu sumarkveldi eru mér ógleymanlegar minningar," skrifaði Rúnar af mikilli virðingu "um séra Friðrik góða". Þeir hafi líklega hist árið 1945 þegar hann var 10-11 ára en Guðmundur telur fund þeirra hafa verið 1946 þegar Rúnar var á tólfta ári. Rúnar kveðst hafa ásamt 5-6 drengjum farið inn í herbergi sem sagnfræðingurinn gerir að svefnherbergi. Af hverju? Guðmundur segir í viðtali við Morgunblaðið ... að ef ævisögur eigi bara að vera helgisögur og skáldsögur sé lítið varið í þá grein bókmennta. Mogginn vitnar í fjölmiðilinn Heimildina um að ...stóra opinberunin í bókinni sé að séra Friðrik hafi misnotað ungan dreng á Íslandi og verið með barnagirnd. Hversu ógeðfelld er þessi blaðamennska?
FLÝGUR FISKISAGA
Sagnfæðingurinn, fjölmiðlarnir og pólitíkin leggjast á eitt með Gróu á Leiti. Svona flýgur fiskisaga. Guðmundur kveður sögu Rúnars staðfesta ...ákveðna drengi [hafa verið valda] til að fara eina inn í svefnherbergi hans, þar sem hann vangar þá, knúsar og strýkur. Svo! Fimm sex strákar samtímis með séra Friðriki. Fyrir Rúnari var það ógleymanleg minning 11 ára drengs. Fyrir nafnlausum ásakanda tíu árum síðar er snerting kölluð áreitni gamals manns. Úr því Guðmundur ákvað að leita meintra dökkra hliða séra Friðriks þá urðu það að vera heimildir frá fyrstu áratugum 20. aldar fram að síðari heimstyrjöld en ekki saga af hrumum, blindum, gömlum manni á áttugasta og áttunda aldursári, gróusaga, ærumeiðing. Ásakanir Guðmundar á hendur séra Friðriki eru ekki sagnfræði. Ég fullyrði að undir ritstjórn Matthíasar og Styrmis á minni tíð hefði Mogginn beðist afsökunar á mistökum blaðsins að bergmála gróusögu. Páll Árdal samtímamaður séra Friðriks orti:
Ef ætlarðu að svívirða saklausan mann,
þá segðu aldrei ákveðnar skammir um hann,
en láttu það svona í veðrinu vaka,
þú vitir, að hann hafi unnið til saka.
Ég var níu ára gamall þegar séra Friðrik lést álitinn heilagur maður af samtíð sinni. Séra Friðrik er einn ástsælasti kristni leiðtogi þjóðarinnar. Hinn kristni trúir á líf í ljósi, sköpun Drottins, Jesú Krist og heilagan anda meðan hinn guðlausi kveðst koma úr myrkrinu þar sem ekkert sé, morkni og rotni að loknum lífsspretti. Fyrir hundrað árum lásu menn Biblíuna, Íslendingasögurnar og Passíusálmana en í okkar samtíma lesa menn glæpasögur sem gera út á myrkur ódæðisverka. Páll postuli sagði fyrir tvö þúsund árum að baráttan sé ekki við menn af holdi og blóði heldur andaverur vonskunnar. Þetta hafa menn vitað um árþúsundir en á okkar myrka samtíma ræður dómstóll götunnar. Baráttan er í andaheimum. Sú staðreynd að Jesú Kristi hafi verið úthýst úr skólum er vitnisburður um hnignun. Þau ætla að svipta okkur vestrænni kristinni siðmenningu og færa okkur myrkur nýrra miðalda. Kemur Alþingi til varna réttarríkinu, þó ekki sé nema einn þingmaður?
Bloggar | Breytt 22.12.2023 kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.12.2023 | 19:19
Hversu mörg þúsund fótboltavelli undir vindmyllur Gulla ...
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis, orku & loftlagsráðherra gengur rösklega til verka. Einu virðist gilda hvort málefni séu í anda gamla góða Sjálfstæðisflokksins eða helstefnu glópalista. Gulli ætlar að flýta umtalsvert smíði vindmylla vítt og breitt um landið að hætti ESB. Gulli er nú kallaður Gulli græni af því hann gengur ötullega fram i grænum erindagjörðum. Norskur sérfræðingur að nafni Sveinulf Vågane varar við vindmyllum. Sveinulf segir að í Noregi hafi land sem jafnist á við 84 þúsund fótboltavelli farið undir vindmyllur; ósnortin víðerni, fjöll og skógar. Við leyfðum vindorkufyrirtækjum að skaða náttúruna, umhverfið og orkukerfin okkar, segir Sveinulf. Grænn raforkukostur hafi haft í för með sér hörmungar, skelfileg náttúruspjöll, gróða fjárplógsafla í skattaskjólum með skattleysi á heimaslóð og hærra raforkuverði. Sveinulf segir að almenningsálitið í Noregi hafi snúist gegn vindmyllum. Ég sendi Gulla þessa norsku viðvörun, vonandi hefur hann lesið þó ég sé ekki sérlega bjartsýnn.
HVERSU MARGAR VINDMYLLUR?
Hversu margar vindmyllur ætlar Gulli að reisa í viðkvæmri íslenskri náttúru? Sem nemur þúsund fótboltavöllum, tíu þúsund, tuttugu þúsund eða kannski 84.000 fótboltavöllum eins og Norðmenn? Ísland er 27% af stærð Noregs. Eigum við að segja að 25% fari undir vindmyllur eða sem nemur 21.000 fótboltavöllum, eða kannski bara sex þúsund ef við miðum við höfðatölu. Haldið þið að gróðapungarnir láti þar við sitja? Bjarni & Gulli hafa ekki reist þjóðarleikvang þar sem þjóðin kemur saman, hlýðir á þjóðsönginn, syngjur áfram Ísland og hampar íslenska fánanum. Nei, þjóðin kúldrast í Laugardalnum, finnur til skammar yfir ömurlegri aðstöðu. Bjarni og Gulli virðast reiðubúnir að færa fjárplógsöflum landsvæði sem nema þúsundum fótboltavalla, tug þúsundum undir vindmyllur ... Gulli kallar raforkuskömmtun, raforkuöryggi. Raforkuskömmtun sé vegna umframeftirspurnar. Þetta er ekki hægt að skálda ...Eru þeir hissa á að fólkið í landinu treysti þeim ekki?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2023 | 00:29
Af Tucker módeli ´48 með vélina í skottinu ...
Árið 1948 kynnti snillingur að nafni Preston Tucker [1903-1956] glæsibifreið sem var kölluð var Tucker-stormveipur Tucker Torpedo eða Tucker ´48 eins og hún var á endanum kölluð. Bílaiðnaðurinn hafði í stríðinu verið ríkisvæddur gegn Þjóðverjum og Japönum. Hergögn stærri en veröldin hafði áður séð voru smíðuð; Willys jeppar, trukkar og skriðdrekar. Bílaiðnaðurinn í Detroit Michigan hafði ekki framleitt bíla fyrir almenning frá 1941 og eftir stríð var kominn tími til að láta hendur standa fram úr ermum. Eða svo hélt Preston Tucker sem í lok stríðsins var með byltingarkenndar hugmyndir sem bílasmiður. Bíll hans heillaði Ameríku eftir stríð. Þetta var litli maðurinn gegn risum Detroit með Washington og Wall Street á bak við sig.
94% TUCKER-BÍLAR ENN TIL
Stormsveipur Tuckers var með vél í skottinu líkt og Volkswagen minn í gamla daga nema bíll Tuckers var ótrúlega glæsilegur upp á ameríska vísu. Tucker kynnti hugmyndir sínar fyrir fjölmiðlum sem heilluðust af nýja bílnum. Ameríka hélt ekki vatni yfir glæsileika Tucker ´48. Á skömmum tíma safnaði Tucker 15 milljón dollurum sem voru miklir peningar í den. Aðalljós snérust í beygju og Tucker vildi setja bílbelti í bíla sína en það þótti of mikil framúrstefna. Fleira mætti svo sem nefna og þið vonandi gerið. Tucker fékk til liðs við sig hönnuði og væntingar jukust. Fimmtíu og ein bifreið var smíðuð og af þeim eru 48 fornbílar í dag. Hugsið ykkur. 94% smíðaðra bíla eru ennþá til! Tucker fornbíll selst á yfir 400 milljónir króna. Árið 1988 gerði Francis Ford Coppola kvikmyndina Tucker; Maðurinn og draumur hans. Ford Coppola átti sjálfur Tucker fornbíl. Snillingurinn Jeff Bridges lék Carter Tucker.
WASHINGTON SETTI Á SIG BOXHANSKA
Í stríðinu höfðu Ford, General Motors og Chrysler myndað banvænt ástarsamband við Washington. Ríkiskrumlan mætti, ásakanir komu fram og rannsóknir fóru í gang um að Tucker hefði blekkt fjárfesta, bíllinn væri drasl. Fjölmiðlar fóru á eftir honum og veröld frumkvöðulsins hrundi. Tucker lést 1956 fimmtíu og þriggja ára. Tucker var ákærður og sýknaður af kviðdómi en draumurinn var orðinn martröð. Washington hafði sett á sig boxhanska. Þið sjáið þessa útgáfu ekki á Wikipedia þar sem flestu er logið en þetta er nokkurn veginn útgáfa Coppola fyrir 35 árum og þeirra sem hafa lagt á sig að rannsaka sögu Tucker. Þetta er ekki ósvipað sögu líklega mesta frumkvöðuls sögunnar, Nikola Tesla sem var hálfri öld á undan Tucker, fæddur 1856 og fannst látinn einstæðingur á hótelherbergi 1943. FBI lagði hald á öll skjöl og gögn Tesla, til þeirra hefur ekki spurst.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.12.2023 | 15:51
Gulli bjargar heiminum frá bansettum óseðjandi börnunum ...
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis, orku & loftlagsráðherra gengur rösklega til verka eins og jafnan. Einu virðist gilda hvort málefni séu í anda gamla góða Sjálfstæðisflokksins eða stækrar vinstri helstefnu. XD skal sitja á valdastól jafnvel þó flokkurinn ráði litlu. Gulli er nú kallaður Gulli græni af því hann gengur svo ötullega fram i grænum erindagjörðum. Hann er nú meðal 84 Íslendinga í Dúbaí að bjarga heiminum. Klukkan er sögð glymja mannkyni um það bil að slá tólf. Margir ráðstefnugesta töfðust vegna kulda í Evrópu þegar flugvélar frusu á flugbrautum. Meðan Gulli brá sér bæjarleið til Persaflóa lagði atvinnuveganefnd fram frumvarp hans um skömmtun orku. Gleiðbrosandi kallar hann það raforkuöryggi! Ráðherrann kveður orkuskort ríkja vegna umframeftirspurnar á orku! Skömmtunarstjóri ríkisins mun forgangsraða þegar til raforkuskerðinga kemur. Þetta er ekki hægt að skálda. Útvaldir fá orku. Er það ekki stórmerkilegt að gefin er vika til umsagna um þessa kommúnízku stefnu meðan ráðherrann er í útlöndum?
Það er sagt ríkja neyðarástand í orkumálum og skortlögin eru á leiðinni. Ráðherra XD vill skammta orku fremur en beita sér fyrir neyðarlögum um virkjanir til þess að koma í veg fyrir orkuskort. Orkumálastjóri og Kata litla prýða vefsíður wefaranna miklu í Davos. Olíu-arabar eiga að hætta olíuvinnslu til þess að skapa umframeftirspurn með þjóðum heims. Sumsé auka á orkuskort. Bjargvættir íslenskrar þjóðar á Alþingi hafa gefið frá sér vinnslu olíu sem gnægð er af í íslenskri lögsögu og myndi útrýma fátækt á landinu bláa. Svona gætir Alþingi velferðar Íslands af því klukkan er sögð vera að detta í tólf. Orkusnautt land er fátækt land svo draumalandið er við sjónarrönd.
Gulli græni og Bjarni Ben ráða meðan þeir fylgja kommúnízkri skortstefnu ríkisstjórna Kötu litlu. Þetta er ekki flókið. Loftlagráðstefnan í Dúbaí snýst um að taka kolefni CO² frá plöntum svo skortur verði á súrefni í mannheimum. Segja má að þetta sé helför gegn velferð og gróðri, sjálfri lífsbjörg okkar. Þessi helför okkar tíðar er teiknuð upp af wefurunum í Davos og framkvæmd að búrókrötum í New York. Kolefnisskattar eru aflátsbréf okkar tíðar, lögð á almenning til þess að gleðja hina ríku og voldugu.
Kolefni er 0.04% af lofthjúp jarðar, sagt valda ofurhlýnun! Þau telja sig geta stillt hitastig jarðar með thermostati. Þetta auðvitað er sturlun. Fækka á alþýðufólki, einkabílum og kúm sem gefa frá sér CO². Einkabílnum fylgir frelsi svo fólki skal smalað í strætó. Önnur eins fátæktarstefna hefur aldrei birst mannkyni. Nautakjöt er þegar skammtað í gamla fólkið okkar á hjúkrunarheimilum. Davíð Oddsson segir í leiðara Morgunblaðsins að allt eins megi segja um skortstefnu þessa, að ef ískápurinn sé tómur, séu bansett börnin óseðjandi ... Pælið í því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.11.2023 | 23:01
Ofsóknir þá & nú ...
Vinstri menn okkar tíðar styðja ofbeldissveitir Hamas sem 7. október myrtu á annað þúsund Ísraela, börn, konur og menn. Hamas hefur strengt þess heit að útrýma ísraelsku þjóðinni, hrekja gyðinga í hafið. Ísraelska þjóðin verðskuldar ekki ofsóknir, fremur en arabar í Palestínu. Hamas kúgar eigin þegna. Af þessu tilefni er vert að minnast að fyrir 90 árum hófust ofsóknir á hendur gyðingum í Þýskalandi með valdatöku Hitlers. Gyðingar útskúfaðir í landi þar sem þeir höfðu búið um aldir. Í september 1935 á altari Satans í Nurnberg var ríkisborgararéttur tekinn af gyðingum. Nazistar reistu altari sitt í Nurnberg að fyrirmynd altaris Satans í Berlín sem flutt var frá Pergomos á 19. öld. Í nóvember 1938 var hin illræmda kristalnótt þegar brúnstakkar myrtu gyðinga í köldu blóði. Nazistar litu á gyðinga sem óæðri kynstofn. Flutningar hófust í útrýmingabúðirnar illræmdu. Vestrænar þjóðir tóku ekki á móti flóttafólki, þar á meðal við Íslendingar. Snorri G. Bergsson sagnfræðingur hefur líkt gyðingahatri við hundahatur. Hermann Jónasson forsætisráðherra 1934-1942 fór fyrir gyðingaandúð á þessum tíma. Í lok nóvember 1941 átti Haj al-Hussein, múslimski Múftinn í Jerúsalem, fund með Adolf Hitler í Berlín. Múftinn lagðist gegn flutningi gyðinga til Landsins helga og vildi útrýmingu þeirra.
SEX MILLJÓNIR GYÐINGA
Sex vikum eftir fund Múftans með Hitler, 20. janúar 1942 hittust fimmtán nazistaforingjar undir forystu SS obengruppenführer, Reinhard Heydrich í Wannsee fyrir utan Berlín þar sem ákvörðun var tekin um lokalausina; Final-Solution. Markmiðið var útrýming 11 milljón gyðinga á þýsku yfirráðasvæði. Eftir fund var skálað í koníaki og efnt til veislu. Þýskar hersveitir höfðu þá umkringt Leníngrad, þær voru í útjaðri Moskvu, lagt undir sig Kænugarð á leið til Stalíngrad. Orrustan um Stalíngrad hófst í ágúst sama ár. Á útmánuðum 1943 hófst undanhald nazista frá Stalíngrad, innrás Bandamanna í Normandy var í júní 1944 og uppgjöf Þjóðverja í maí 1945. Nazistar drápu sex milljónir gyðinga.
HAMAS ER ILLSKA
Eftir Helförina ríkti sérstakt samband milli Ísraels og Íslands en Thor Thors mælti fyrir stofnun Ísraels og Palestínu á þingi Sameinuðu þjóðanna 1947. Arabar í Palestínu vildu ekki stofna eigið ríki og hafa ávallt krafist tortýmingar Ísraels sem var stofnað í maí 1948. Arabaþjóðir réðust umvifalaust á hið nýja ríki. Svo var sex daga stríðið 1967, Yom Kippur 1973. Steingrímur tók upp gyðingaandúð eftir föður sínum og breytti utanríkisstefnu Íslands. Árið 1990 hitti hann Yasser Arafat sem var með byssu í hulstri. Ísrael yfirgaf Gaza árið 2005 og afhenti Aröbum í Palestínu. Þúsundir ísraelskra fjölskyldna voru reknar frá Gaza í nokkurs konar þjóðernishreinsunum þar sem gyðingar voru útilokaðir frá Gaza. Hamas komst til valda 2007, drap alla liðsmenn Fatah, eyðilagði gróðurhúsin, hefur blóðmjólkað og heilaþvegið palestínska Gazabúa. Hamas er illska, svartamyrkur. Ísrael-Arabar eru tæpar tvær milljónir með full ríkisborgararéttindi, arabískar konur hljóta menntun til jafns við karla ólíkt kúguðum konum Gaza. Þúsundir Araba gegna hermennsku og þjóna í ísraelska hernum á Gaza. Ef Hamas nær markmiðum sínum að útrýma gyðingum, þá skulu menn vita að samkynhneigðir eru næstir og þá kristið fólk um allan heim. Árið 2014 samþykkti Reykjavíkurborg viðskiptabann á Ísrael og 2019 náði gyðingaandúð Íslendinga nýjum hæðum með framlagi Hatari í Eurovision sem fram fór í Ísrael; Hatrið mun sigra. Segja má að Hatari komi út úr utanríkisráðuneytinu, valið af RÚV til að breiða út hatur. Lífið er tilgangslaust. Tómið heimtir alla, segir í texta. RÚV er myrkur, Hamas er myrkur. Gætum að okkur ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.11.2023 | 14:26
Gagnsemi talin vafasöm á síðari árum ...
Kunnasti læknir okkar í Svíþjóð bendir landlækni á í umsögn sinni um styttingu viðbeins sem hann kallar sníða af viðbeini: Gagnsemi þessarar aðgerðar hefur á síðari árum verið talin vafasöm. Hann nefnir rannsóknir en sérstaklega stóra norska rannsókn sem leiði í ljós vafasemi þessara aðgerða. Í Orkuhúsinu er sagað af viðbeini fólks. Þeir í Orkuhúsinu segjast vita af hinni norsku rannsókn en hún breyti ekki þeirra afstöðu. Í umsögninni frá Svíþjóð er aðgerðin talin tæknilega rétt framkvæmd þó ekki hafi fengist jákvæð niðurstaða. Hann nefnir vanrækslu í fimm liðum og ámælisverða framgöngu við sjúkdómsgreiningu. Sjúkraskrár séu mótsagnakenndar. Hvergi hægt að sjá að sjúklingur hljóti nákvæmar upplýsingar hvað varðar aðgerð....
Ári áður hafði ég verið greindur með dystoniu á Borgarspítalanum; vöðvabólgu sem myndaði tog í hálsi. Þá var borin undir mig botexmeðferð. Ég synjaði í fyrstu en prófaði að lokum einu sinni. Fór svo í Orkuhúsið. Ég var þeirrar trúar að til stæði að skafa axlarhyrnu. Mér fannst það ágæt hugmynd. Að láta sér detta í hug að ég hefði samþykkt afsögun viðbeins er firra. Umsagnarlæknir telur ámælisvert hvernig staðið var að sjúkdómsgreiningu, þá séu sjúkraskrár stuttar, á köflum mótsagnakenndar, ritar hann. Landlæknir í einu og öllu í liði Orkuhússins.
EKKI STYGGÐARYRÐI FRÁ MÉR
Aðgerðin var gerð 12. október 2016. Aldrei fór styggðaryrði frá mér til læknis Orkuhússins enda bar ég á þessum tíma fullt traust til lækna. Í janúar 2017 ef minni bregst ekki las sjúkraþjálfari Orkuhússins upp fyrir mér lýsingu á aðgerðinni, þar sem fram kom að sagað hafði verið af viðbeini mínu; ...tek rétt um 1 cm af viðbeinsendanum. Þetta var sumsé orðin að líkamsbreytandi aðgerð. Mér var brugðið, fór til læknisins og skýrði honum frá. Þú hefur opnað Pandórubox mitt, sagði ég. Læknirinn hristi höfuð. Hann útilokaði að tog í hálsi væri út frá vinstri öxl. Hver var ég að efast um það? Það var jafnan gott samband milli okkar. Við ræddum trúmál og ég lagði til við hann að taka á móti Jesú. Hann bað mig um að hjálpa sér að komast í samband við Davíð Oddsson. Það var auðsótt mál. Eitt sinn kom læknirinn úr aðgerð á skurðstofu. Ég var þá að segja honum að mér versnaði, togið í hálsi væri mér stöðugt erfiðara. Svona gekk þetta.
ORKUHÚSIÐ: BULL & ÓSANNINDI
Áfram versnaði mér, og fór fram á röntgen-rannsókn sem fram fór 10. janúar 2018. Ekkert að sjá, sagði læknirinn. Það var ósatt og ég leyndur upplýsingum; ...stór fullþykktar rifa í supraspinatus sininni og virðist sem maður sjái sinina um 2sm frá festunni. Hann hlýtur að hafa verið kominn með vonda samvisku úr því hann leyndi mig þessum upplýsingum. Það þarf mikið til að rífa sinina frá festum og tæta, ekki satt? Haustið 2018 heyrði ég í lögmanni vini mínum. Mér var umsvifalaust vísað af sjúkraskrá Orkuhússins af því ég hafði brugðist trausti! Orkuhúsið vissi af rifinni og slitinni sin, ég ekki.
Síðasta dag janúar 2019 var kvörtun lögð fyrir landlækni vegna aðgangsharðari aðgerðar sem ekki hefði verið veitti samþykki fyrir. Álitaefni landlæknis á fagmáli opin aðgerð eða með liðspegli. Ég vissi að sagað hafði verið af viðbeini en ekki að meginsin axlar væri rifin og slitin frá festum. Fyrir landlækni kvað læknir Orkuhússins: ...öxl ok ... degenerative [hrörnunar]rifa ... lagað axlareinkennin. Ég hef ekki sofið á vinstri hlið í sjö ár. Hvað er hægt að segja? Orkuhúsið rægði mig fyrir landlækni; bull og ósannindi Halls Hallssonar. Eitthvað mikið hlýtur að liggja að baki þessum luktu dyrum. Það er vont en versnar. Meira síðar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2023 | 22:21
Af sæmd & arfleifð ...
Ég átti því láni að fagna ungur maður að vera blaðamaður á Morgunblaðinu og var treyst fyrir vandasömustu fréttum svo og á fréttastofum Sjónvarps og Stöðvar 2. Nú hef ég afhjúpað mistök og skaða sem læknar Orkuhússins hafa valdið mér. Allt skjalfest fyrir landlækni, varðveitt í möppu á varðveittum stað. Í janúar 2018 leyndi Orkuhúsið mig niðurstöðum rannsóknar þar á bæ um sundurtætta sin við afsagað viðbein. ...stór fullþykktar rifa í supraspinatus sininni og virðist sem maður sjái sinina um 2sm frá festunni. Þetta fékk ég ekki að vita, bara smávægileg hrörnunarrifa. Þegar ég í ágúst 2018 heyrði í löglærðum vini mínum var mér vísað af sjúkraskrá Orkuhússins. Málið kom fyrir landlækni í janúar 2019. Þá var mér ókunnugt um sundurtætta sinina enda afvegaleiddur af Orkuhúsinu sem bar ósannindi á borð: ..öxlin ok. Það var ekki fyrr en í mars 2021 með rannsókn í Domus Medica að ég fékk staðfestingu um að supraspinatus-sin axlar væri sundurtætt, ...gegn um gangandi rifa í miðhluta supraspinatus sinarinnar á 6mm löngu svæði og sinaendarnir dregnir upp í hæð við acromion. Landlækni Sjóvá og stjórn Orkuhússins var gert viðvart um þetta hneyksli. Ég lagði til við landlækni að málinu yrði vísað til opinberrar rannsóknar lögreglu en það var ekki gert. Ég sendi aðalritstjóra Morgunblaðsins grein um þessi læknamistök Orkuhússins. Mogginn synjaði birtingar nema afstaða landlæknis lægi fyrir! Ritstjórarnir fundu ekki hvöt til að fræðast um gróf læknamistök í Orkuhúsinu og bjóða karlinum í kaffi. Landlæknir og tryggingafélagið Sjóvá kusu að hylma yfir með Orkuhúsinu ásamt svokallaðri úrskurðarnefnd vátryggingamála. Landlæknir segir í úrskurði ...ekkert bendi til að fylgivkilli hafi orðið af aðgerðinni. Ég er rifinn innvortis með afsagað viðbein staðfest í tveimur rannsóknum og landlæknir kvað ágreining fjalla ...fyrst og fremst um að aðgerðin var gerð að hluta til opin og ekki eingöngu með liðspegli. Orkuhúsið bar rangan vitnisburði fyrir stjórnvaldi sem er afar alvarlegt brot og landlæknir segir framburð kollega ...trúverðugan. Þetta er ekki hægt að skálda. Svona er Ísland í dag.
AKKILESARHÆLL LÆKNAVÍSINDA
Mál mitt gegn Orkuhúsinu opnuðu augu mín fyrir akkilesarhæl nútíma læknavísinda. Svo kom covid og skaðsemi mRNA vaksína. Læknar starfa án aðhalds. Þeir eru sölumenn lyfjarisa, starfa í skjóli embættismanna og fjármálaafla. Faðir minn lést á Borgarspítalanum nokkrum dögum eftir magaaðgerð 2001 og afi minn á Landakoti nokkrum dögum eftir magaaðgerð árið 1935. Krufningsskýrslur eru leyniskjöl. Leynd og myrkur umvefur störf lækna sem heyja nokkurs konar styrjaldir í líkama fólks með hnífum, kemískum efnum, geislameðferðum, pillum og sprautum. Orkuhúsið fór í líkamsbreytandi aðgerð á líkama mínum hálfri öld eftir að brjóst- og kinnbein höfðu brotnað, hryggjarliðir fleygast og rætur framtanna rótfylltar með silfuramalgam; blöndu þungmála silfurs, tins, kvikasilfurs, kopars auk kemískra efna. Orkuhúsið kveður afsögun viðbeins og slitna supraspinatus sin engin áhrif hafa á áverka mína frá bernsku! Aðgerðin í október 2016 var sýnikennsla fyrir læknanema í Svíþjóð. Slíkar aðgerðir munu aflagðar erlendis ...taldar á síðari árum vafasamar, að sögn umsagnarlæknis. Takið eftir orðalagi okkar kunnasta bæklunarlæknis á Norðurlöndum; vafasamar aðgerðir aflagðar erlendis. Orkuhúsið er í afneitun. Afsögun viðbeins var ekki borin undir mig. Ekkert í skjalfestum gögnum fyrir aðgerðina styður samráð við sjúkling. Á það bendir umsagnarlæknir. Orkuhúsið heldur því fram að öxlin hafi verið löguð, bara smávægileg hrörnunarrifa, þvert á umsögn eigin rannsóknarlæknis. Það eru ósannindi. Vinstri öxl mín er liðónýt, alvarlega sködduð. Kerfið hefur synjað gjafsókn, endurupptöku synjað. Þetta er sturlun. Fyrir um þrjátíu árum var hætt að saga efsta viðbein af fólki vegna alvarlegra afleiðinga. Til þurfti harða baráttu sem fólkið í landinu hvorki vissi né veit nokkuð um en margir liðu mikla þjáningu í hljóði.
FRUMVARP UM ALRÆÐISVALD WHO
Það er vont en versnar. Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um alræðisvald Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar á tímum heimsfaraldurs þar sem valdið fer úr landi til WHO með heimildir til að siga lögreglu á fólk; vald til að skipa fyrir um bólusetningar, grímuskyldu, útgöngubann, lokun skóla, veitingastaða, fyrirtækja og ef út í það er farið senda óbólusetta út í Grímsey. Kári Stef veit hvað hann syngur sagði Visir í ágúst 2021. Fólk þarf að átta sig á að alræðishyggja okkar tíðar finnur sér farveg í vestrænni læknisfræði. Fátt hefur breyst frá því sem opinberað var í Nurnberg. Það er skylda mín að upplýsa og okkar allra að stöðva. Læknar verða að koma út úr pukri myrkurs og vinna fyrir opnum tjöldum. Það er kominn tími á að frelsa lækna undan agavaldi lyfjarisa og kerfisþrælkun ríkisins.
LÝÐRÆÐI BREYST Í SKRIFRÆÐI
Morgunblaðið fagnaði á dögunum 110 ára afmæli. Blaðið á merka arfleifð og tók einarða afstöðu með frelsi gegn helsi hóphyggju 20. aldar. Það má aldrei gleymast. Hlutir hafa þó breyst á nýrri öld. Í upphafi covid voru ritstjórnir skilgreindar framvarðasveitir ríkislögreglustjóra og settar á ríkisstyrki. Morgunblaðið og Stöð 2 ásamt hópi innvígðra miðla fá um hálfan milljarð í ríkisstyrki. RÚV deilir og drottnar með sína átta milljarða en samt rekið með tapi. Hóphyggja er alls ráðandi, frelsi fórnað í þágu valdastéttar og fjármagns hinna ríku eigenda fjölmiðla. Fólk er sett á svartan lista ef það efast um vísindi og óskeikulleika sérfæðinga ríkisins sem gerðu leynisamninga við lyfjarisa; Big-Pharma. Lýðræði hefur breyst í skrifræði. Fjölmiðlar vegsömuðu mRNA, smöluðu fólki í bólusetningar, sköpuðu stemningu og eftirvæntingu meðal barna þegar ræningjarnir í Kardemommubænum mættu í Höllina. Það er lágpunktur íslenskra fjölmiðla.
MÖRG HUNDRUÐ LÁTNIR?
Landlæknir hefur verið kærður til umboðsmanns Alþingis fyrir rangfærslur og blekkingar. Á alþjóðlegri ráðstefnu fyrir fullum sal í Reykjavík nýlega var upplýst um sláandi aukaverkanir mRNA vaksína sem breyta genum fólks. Ég veit ekki til að nokkur framvarðamiðill hafi birt frétt um ráðstefnuna. Umframdauði hér er einn sá hæsti í Evrópu. Frá nóvember 2021 til júlí 2022 ...lágu 350 manns í valnum miðað við venjulegt árferði, sagði Andríki í nóvember 2022. Forsætisráðherra faldi niðurstöður fyrir fólkinu í landinu og hennar sérfræðingar kölluðu umframdauða fólks skot sem ástæðulaust sé að nefna. Hver er talan nú? Minningargreinar í Mogganum þekja breiðsíður. Þúsundir kvenna mynda samstöðuhóp vegna skaðlegra aukaverkana ekki síst á tíðahring; sjálfu hreiðri lífsins, konurnar eru þaggaðar. Frjósemi hrundi í fyrra þegar fæðingum fækkaði um 500 milli ára. Tilviljun? Túrbókrabbamein fer sem eldur um sinu, hjartastopp um víða veröld. Rannsókn Yale háskóla meðal bólusettra sem tilkynntu aukaverkanir leiðir í ljós langvarandi þreytu, heilaþoku, taugakvilla, vöðvaverki, eyrnasuð. Nóbelslyfið Ivermectin var úthrópað hrossamixtúra. Læknir sem vildi gefa Ivermetin var hótað sex ára fangelsi. Lyfjarisum í bísniss er boðið til veislu með trans- og kynvæðingu barna í boði Menntamálastofnunar. Barnamálaráðherra ypptir öxlum, umboðsmaður barna þegir. Það er vá fyrir dyrum, illska á ferð.
ÖNNUR SÝN EN STÉTTAR MINNAR
Ég hef aðra sýn á atburði í Bandaríkjunum en stétt mín. Endalausar styrjaldir Ameríku og Nato, Úkraínustríðið hörmulega, stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum. Þrjár torséðar B2-þotur sem hver ber 16 kjarnorkusprengjur við æfingar í lágflugi yfir Reykjavík, kjarnorkukafbátar þjónustaðir í Helguvík, amerískt hryðjuverk á Nord Stream gasleiðslunni í Eystrasalti, að sögn Sy Hersh þekktasta blaðmanns Bandaríkjanna. P8 ratsjárþotan, sem sveimaði yfir gasleiðslunum, hóf sig til flugs frá Keflavíkurflugvelli. Þetta eru tabú meðal fjölmiðla sem ekki taka umræðu. Við hvað eru menn smeykir? Fyrir nokkru bauð ég Morgunblaðinu ritstjórnargrein til birtingar um nýjar upplýsingar í bók KGB Plays Chess um hefnd Sovétmanna í forsetaslag FIDE 1982 þegar ég var á vettvangi fyrir blaðið í Sviss og stórmerka arfleifð Friðriks Ólafssonar í glímunni við Sovétið. Florencio Campomanes sem velti Friðriki var KGB njósnari! Grein blaðamanns úr framvarðasveit frétta sinnar tíðar á Mogganum var hafnað! Kiljan hefur ekki frétt af Váfuglinum.
ÁBYRGÐ GAGNVART ÁSKRIFENDUM
Á sínum pólitíska ferli átti ritstjórinn sannlega erindi við þjóð sína. Pólitískri arfleifð hans er haldið til haga sem er vel. Það er með sorg í hjarta að ég set þessar línur á blað. Það er rétt að halda til haga að munur er á skrifum ritstjórnar og aðalritstjóra sem þjóðhátíðarhelgina í sumar skrifaði um lygina um bóluefnin, kvað lyfjarisa ömurlega gróðapunga, sóttvarnarreglur sýndargjörð og hann hafi trúað lyginni. Hann er vantrúaður á hamfarhlýnun. En Davíð Oddsson ber ábyrgð gagnvart áskrifendum Morgunblaðsins. Hin síðustu ár hefur slagsíða blaðsins í fréttum keyrt um þverbak; blaðið verið framvarðasveit ríkislögreglustjóra í covid í samhljóm við Trusted News Initative evrópskra ríkismiðla og vestrænna einkamiðla með eina og sömu frétt á rauntíma um allan hinn vestræna heim. Það er hörmulegur dómgreindarbrestur eigenda blaðsins og Davíðs ritstjóra að hafa farið í þessa vegferð. Morgunblaðið framvarðamiðill ríkisvalds gengur gegn öllu sem Davíð Oddsson stóð fyrir sem merkasti stjórnmálaleiðtogi þjóðarinnar í aldarfjórðung. Nú eru hin miklu kerfisskipti, gamla veröld lyga og svika að hrynja. Ég er með vindinn í fangið í mannheimum en sannleikur er náttúrulögmál sem hverfur hvorki með þögn né þöggun. Það er lygin sem morknar og rotnar. Vindar munu snúast og fánýti samtíma okkar afhjúpast. Jesús Kristur sagði: Ekkert er hulið sem eigi verður opinbert, né leynt er eigi verður kunnugt. Davíð hefði fyrir löngu átt að setjast á friðarstól líkt og hann kvaðst áforma þegar við hittumst á heimili hans í Skerjafirði kvöldið áður en ég fór til Westminster í Lundúnum vegna útgáfuhófs Váfuglsins í maí 2012.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)