Færsluflokkur: Bloggar
26.11.2023 | 14:26
Gagnsemi talin vafasöm á síðari árum ...
Kunnasti læknir okkar í Svíþjóð bendir landlækni á í umsögn sinni um styttingu viðbeins sem hann kallar sníða af viðbeini: Gagnsemi þessarar aðgerðar hefur á síðari árum verið talin vafasöm. Hann nefnir rannsóknir en sérstaklega stóra norska rannsókn sem leiði í ljós vafasemi þessara aðgerða. Í Orkuhúsinu er sagað af viðbeini fólks. Þeir í Orkuhúsinu segjast vita af hinni norsku rannsókn en hún breyti ekki þeirra afstöðu. Í umsögninni frá Svíþjóð er aðgerðin talin tæknilega rétt framkvæmd þó ekki hafi fengist jákvæð niðurstaða. Hann nefnir vanrækslu í fimm liðum og ámælisverða framgöngu við sjúkdómsgreiningu. Sjúkraskrár séu mótsagnakenndar. Hvergi hægt að sjá að sjúklingur hljóti nákvæmar upplýsingar hvað varðar aðgerð....
Ári áður hafði ég verið greindur með dystoniu á Borgarspítalanum; vöðvabólgu sem myndaði tog í hálsi. Þá var borin undir mig botexmeðferð. Ég synjaði í fyrstu en prófaði að lokum einu sinni. Fór svo í Orkuhúsið. Ég var þeirrar trúar að til stæði að skafa axlarhyrnu. Mér fannst það ágæt hugmynd. Að láta sér detta í hug að ég hefði samþykkt afsögun viðbeins er firra. Umsagnarlæknir telur ámælisvert hvernig staðið var að sjúkdómsgreiningu, þá séu sjúkraskrár stuttar, á köflum mótsagnakenndar, ritar hann. Landlæknir í einu og öllu í liði Orkuhússins.
EKKI STYGGÐARYRÐI FRÁ MÉR
Aðgerðin var gerð 12. október 2016. Aldrei fór styggðaryrði frá mér til læknis Orkuhússins enda bar ég á þessum tíma fullt traust til lækna. Í janúar 2017 ef minni bregst ekki las sjúkraþjálfari Orkuhússins upp fyrir mér lýsingu á aðgerðinni, þar sem fram kom að sagað hafði verið af viðbeini mínu; ...tek rétt um 1 cm af viðbeinsendanum. Þetta var sumsé orðin að líkamsbreytandi aðgerð. Mér var brugðið, fór til læknisins og skýrði honum frá. Þú hefur opnað Pandórubox mitt, sagði ég. Læknirinn hristi höfuð. Hann útilokaði að tog í hálsi væri út frá vinstri öxl. Hver var ég að efast um það? Það var jafnan gott samband milli okkar. Við ræddum trúmál og ég lagði til við hann að taka á móti Jesú. Hann bað mig um að hjálpa sér að komast í samband við Davíð Oddsson. Það var auðsótt mál. Eitt sinn kom læknirinn úr aðgerð á skurðstofu. Ég var þá að segja honum að mér versnaði, togið í hálsi væri mér stöðugt erfiðara. Svona gekk þetta.
ORKUHÚSIÐ: BULL & ÓSANNINDI
Áfram versnaði mér, og fór fram á röntgen-rannsókn sem fram fór 10. janúar 2018. Ekkert að sjá, sagði læknirinn. Það var ósatt og ég leyndur upplýsingum; ...stór fullþykktar rifa í supraspinatus sininni og virðist sem maður sjái sinina um 2sm frá festunni. Hann hlýtur að hafa verið kominn með vonda samvisku úr því hann leyndi mig þessum upplýsingum. Það þarf mikið til að rífa sinina frá festum og tæta, ekki satt? Haustið 2018 heyrði ég í lögmanni vini mínum. Mér var umsvifalaust vísað af sjúkraskrá Orkuhússins af því ég hafði brugðist trausti! Orkuhúsið vissi af rifinni og slitinni sin, ég ekki.
Síðasta dag janúar 2019 var kvörtun lögð fyrir landlækni vegna aðgangsharðari aðgerðar sem ekki hefði verið veitti samþykki fyrir. Álitaefni landlæknis á fagmáli opin aðgerð eða með liðspegli. Ég vissi að sagað hafði verið af viðbeini en ekki að meginsin axlar væri rifin og slitin frá festum. Fyrir landlækni kvað læknir Orkuhússins: ...öxl ok ... degenerative [hrörnunar]rifa ... lagað axlareinkennin. Ég hef ekki sofið á vinstri hlið í sjö ár. Hvað er hægt að segja? Orkuhúsið rægði mig fyrir landlækni; bull og ósannindi Halls Hallssonar. Eitthvað mikið hlýtur að liggja að baki þessum luktu dyrum. Það er vont en versnar. Meira síðar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2023 | 22:21
Af sæmd & arfleifð ...
Ég átti því láni að fagna ungur maður að vera blaðamaður á Morgunblaðinu og var treyst fyrir vandasömustu fréttum svo og á fréttastofum Sjónvarps og Stöðvar 2. Nú hef ég afhjúpað mistök og skaða sem læknar Orkuhússins hafa valdið mér. Allt skjalfest fyrir landlækni, varðveitt í möppu á varðveittum stað. Í janúar 2018 leyndi Orkuhúsið mig niðurstöðum rannsóknar þar á bæ um sundurtætta sin við afsagað viðbein. ...stór fullþykktar rifa í supraspinatus sininni og virðist sem maður sjái sinina um 2sm frá festunni. Þetta fékk ég ekki að vita, bara smávægileg hrörnunarrifa. Þegar ég í ágúst 2018 heyrði í löglærðum vini mínum var mér vísað af sjúkraskrá Orkuhússins. Málið kom fyrir landlækni í janúar 2019. Þá var mér ókunnugt um sundurtætta sinina enda afvegaleiddur af Orkuhúsinu sem bar ósannindi á borð: ..öxlin ok. Það var ekki fyrr en í mars 2021 með rannsókn í Domus Medica að ég fékk staðfestingu um að supraspinatus-sin axlar væri sundurtætt, ...gegn um gangandi rifa í miðhluta supraspinatus sinarinnar á 6mm löngu svæði og sinaendarnir dregnir upp í hæð við acromion. Landlækni Sjóvá og stjórn Orkuhússins var gert viðvart um þetta hneyksli. Ég lagði til við landlækni að málinu yrði vísað til opinberrar rannsóknar lögreglu en það var ekki gert. Ég sendi aðalritstjóra Morgunblaðsins grein um þessi læknamistök Orkuhússins. Mogginn synjaði birtingar nema afstaða landlæknis lægi fyrir! Ritstjórarnir fundu ekki hvöt til að fræðast um gróf læknamistök í Orkuhúsinu og bjóða karlinum í kaffi. Landlæknir og tryggingafélagið Sjóvá kusu að hylma yfir með Orkuhúsinu ásamt svokallaðri úrskurðarnefnd vátryggingamála. Landlæknir segir í úrskurði ...ekkert bendi til að fylgivkilli hafi orðið af aðgerðinni. Ég er rifinn innvortis með afsagað viðbein staðfest í tveimur rannsóknum og landlæknir kvað ágreining fjalla ...fyrst og fremst um að aðgerðin var gerð að hluta til opin og ekki eingöngu með liðspegli. Orkuhúsið bar rangan vitnisburði fyrir stjórnvaldi sem er afar alvarlegt brot og landlæknir segir framburð kollega ...trúverðugan. Þetta er ekki hægt að skálda. Svona er Ísland í dag.
AKKILESARHÆLL LÆKNAVÍSINDA
Mál mitt gegn Orkuhúsinu opnuðu augu mín fyrir akkilesarhæl nútíma læknavísinda. Svo kom covid og skaðsemi mRNA vaksína. Læknar starfa án aðhalds. Þeir eru sölumenn lyfjarisa, starfa í skjóli embættismanna og fjármálaafla. Faðir minn lést á Borgarspítalanum nokkrum dögum eftir magaaðgerð 2001 og afi minn á Landakoti nokkrum dögum eftir magaaðgerð árið 1935. Krufningsskýrslur eru leyniskjöl. Leynd og myrkur umvefur störf lækna sem heyja nokkurs konar styrjaldir í líkama fólks með hnífum, kemískum efnum, geislameðferðum, pillum og sprautum. Orkuhúsið fór í líkamsbreytandi aðgerð á líkama mínum hálfri öld eftir að brjóst- og kinnbein höfðu brotnað, hryggjarliðir fleygast og rætur framtanna rótfylltar með silfuramalgam; blöndu þungmála silfurs, tins, kvikasilfurs, kopars auk kemískra efna. Orkuhúsið kveður afsögun viðbeins og slitna supraspinatus sin engin áhrif hafa á áverka mína frá bernsku! Aðgerðin í október 2016 var sýnikennsla fyrir læknanema í Svíþjóð. Slíkar aðgerðir munu aflagðar erlendis ...taldar á síðari árum vafasamar, að sögn umsagnarlæknis. Takið eftir orðalagi okkar kunnasta bæklunarlæknis á Norðurlöndum; vafasamar aðgerðir aflagðar erlendis. Orkuhúsið er í afneitun. Afsögun viðbeins var ekki borin undir mig. Ekkert í skjalfestum gögnum fyrir aðgerðina styður samráð við sjúkling. Á það bendir umsagnarlæknir. Orkuhúsið heldur því fram að öxlin hafi verið löguð, bara smávægileg hrörnunarrifa, þvert á umsögn eigin rannsóknarlæknis. Það eru ósannindi. Vinstri öxl mín er liðónýt, alvarlega sködduð. Kerfið hefur synjað gjafsókn, endurupptöku synjað. Þetta er sturlun. Fyrir um þrjátíu árum var hætt að saga efsta viðbein af fólki vegna alvarlegra afleiðinga. Til þurfti harða baráttu sem fólkið í landinu hvorki vissi né veit nokkuð um en margir liðu mikla þjáningu í hljóði.
FRUMVARP UM ALRÆÐISVALD WHO
Það er vont en versnar. Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um alræðisvald Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar á tímum heimsfaraldurs þar sem valdið fer úr landi til WHO með heimildir til að siga lögreglu á fólk; vald til að skipa fyrir um bólusetningar, grímuskyldu, útgöngubann, lokun skóla, veitingastaða, fyrirtækja og ef út í það er farið senda óbólusetta út í Grímsey. Kári Stef veit hvað hann syngur sagði Visir í ágúst 2021. Fólk þarf að átta sig á að alræðishyggja okkar tíðar finnur sér farveg í vestrænni læknisfræði. Fátt hefur breyst frá því sem opinberað var í Nurnberg. Það er skylda mín að upplýsa og okkar allra að stöðva. Læknar verða að koma út úr pukri myrkurs og vinna fyrir opnum tjöldum. Það er kominn tími á að frelsa lækna undan agavaldi lyfjarisa og kerfisþrælkun ríkisins.
LÝÐRÆÐI BREYST Í SKRIFRÆÐI
Morgunblaðið fagnaði á dögunum 110 ára afmæli. Blaðið á merka arfleifð og tók einarða afstöðu með frelsi gegn helsi hóphyggju 20. aldar. Það má aldrei gleymast. Hlutir hafa þó breyst á nýrri öld. Í upphafi covid voru ritstjórnir skilgreindar framvarðasveitir ríkislögreglustjóra og settar á ríkisstyrki. Morgunblaðið og Stöð 2 ásamt hópi innvígðra miðla fá um hálfan milljarð í ríkisstyrki. RÚV deilir og drottnar með sína átta milljarða en samt rekið með tapi. Hóphyggja er alls ráðandi, frelsi fórnað í þágu valdastéttar og fjármagns hinna ríku eigenda fjölmiðla. Fólk er sett á svartan lista ef það efast um vísindi og óskeikulleika sérfæðinga ríkisins sem gerðu leynisamninga við lyfjarisa; Big-Pharma. Lýðræði hefur breyst í skrifræði. Fjölmiðlar vegsömuðu mRNA, smöluðu fólki í bólusetningar, sköpuðu stemningu og eftirvæntingu meðal barna þegar ræningjarnir í Kardemommubænum mættu í Höllina. Það er lágpunktur íslenskra fjölmiðla.
MÖRG HUNDRUÐ LÁTNIR?
Landlæknir hefur verið kærður til umboðsmanns Alþingis fyrir rangfærslur og blekkingar. Á alþjóðlegri ráðstefnu fyrir fullum sal í Reykjavík nýlega var upplýst um sláandi aukaverkanir mRNA vaksína sem breyta genum fólks. Ég veit ekki til að nokkur framvarðamiðill hafi birt frétt um ráðstefnuna. Umframdauði hér er einn sá hæsti í Evrópu. Frá nóvember 2021 til júlí 2022 ...lágu 350 manns í valnum miðað við venjulegt árferði, sagði Andríki í nóvember 2022. Forsætisráðherra faldi niðurstöður fyrir fólkinu í landinu og hennar sérfræðingar kölluðu umframdauða fólks skot sem ástæðulaust sé að nefna. Hver er talan nú? Minningargreinar í Mogganum þekja breiðsíður. Þúsundir kvenna mynda samstöðuhóp vegna skaðlegra aukaverkana ekki síst á tíðahring; sjálfu hreiðri lífsins, konurnar eru þaggaðar. Frjósemi hrundi í fyrra þegar fæðingum fækkaði um 500 milli ára. Tilviljun? Túrbókrabbamein fer sem eldur um sinu, hjartastopp um víða veröld. Rannsókn Yale háskóla meðal bólusettra sem tilkynntu aukaverkanir leiðir í ljós langvarandi þreytu, heilaþoku, taugakvilla, vöðvaverki, eyrnasuð. Nóbelslyfið Ivermectin var úthrópað hrossamixtúra. Læknir sem vildi gefa Ivermetin var hótað sex ára fangelsi. Lyfjarisum í bísniss er boðið til veislu með trans- og kynvæðingu barna í boði Menntamálastofnunar. Barnamálaráðherra ypptir öxlum, umboðsmaður barna þegir. Það er vá fyrir dyrum, illska á ferð.
ÖNNUR SÝN EN STÉTTAR MINNAR
Ég hef aðra sýn á atburði í Bandaríkjunum en stétt mín. Endalausar styrjaldir Ameríku og Nato, Úkraínustríðið hörmulega, stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum. Þrjár torséðar B2-þotur sem hver ber 16 kjarnorkusprengjur við æfingar í lágflugi yfir Reykjavík, kjarnorkukafbátar þjónustaðir í Helguvík, amerískt hryðjuverk á Nord Stream gasleiðslunni í Eystrasalti, að sögn Sy Hersh þekktasta blaðmanns Bandaríkjanna. P8 ratsjárþotan, sem sveimaði yfir gasleiðslunum, hóf sig til flugs frá Keflavíkurflugvelli. Þetta eru tabú meðal fjölmiðla sem ekki taka umræðu. Við hvað eru menn smeykir? Fyrir nokkru bauð ég Morgunblaðinu ritstjórnargrein til birtingar um nýjar upplýsingar í bók KGB Plays Chess um hefnd Sovétmanna í forsetaslag FIDE 1982 þegar ég var á vettvangi fyrir blaðið í Sviss og stórmerka arfleifð Friðriks Ólafssonar í glímunni við Sovétið. Florencio Campomanes sem velti Friðriki var KGB njósnari! Grein blaðamanns úr framvarðasveit frétta sinnar tíðar á Mogganum var hafnað! Kiljan hefur ekki frétt af Váfuglinum.
ÁBYRGÐ GAGNVART ÁSKRIFENDUM
Á sínum pólitíska ferli átti ritstjórinn sannlega erindi við þjóð sína. Pólitískri arfleifð hans er haldið til haga sem er vel. Það er með sorg í hjarta að ég set þessar línur á blað. Það er rétt að halda til haga að munur er á skrifum ritstjórnar og aðalritstjóra sem þjóðhátíðarhelgina í sumar skrifaði um lygina um bóluefnin, kvað lyfjarisa ömurlega gróðapunga, sóttvarnarreglur sýndargjörð og hann hafi trúað lyginni. Hann er vantrúaður á hamfarhlýnun. En Davíð Oddsson ber ábyrgð gagnvart áskrifendum Morgunblaðsins. Hin síðustu ár hefur slagsíða blaðsins í fréttum keyrt um þverbak; blaðið verið framvarðasveit ríkislögreglustjóra í covid í samhljóm við Trusted News Initative evrópskra ríkismiðla og vestrænna einkamiðla með eina og sömu frétt á rauntíma um allan hinn vestræna heim. Það er hörmulegur dómgreindarbrestur eigenda blaðsins og Davíðs ritstjóra að hafa farið í þessa vegferð. Morgunblaðið framvarðamiðill ríkisvalds gengur gegn öllu sem Davíð Oddsson stóð fyrir sem merkasti stjórnmálaleiðtogi þjóðarinnar í aldarfjórðung. Nú eru hin miklu kerfisskipti, gamla veröld lyga og svika að hrynja. Ég er með vindinn í fangið í mannheimum en sannleikur er náttúrulögmál sem hverfur hvorki með þögn né þöggun. Það er lygin sem morknar og rotnar. Vindar munu snúast og fánýti samtíma okkar afhjúpast. Jesús Kristur sagði: Ekkert er hulið sem eigi verður opinbert, né leynt er eigi verður kunnugt. Davíð hefði fyrir löngu átt að setjast á friðarstól líkt og hann kvaðst áforma þegar við hittumst á heimili hans í Skerjafirði kvöldið áður en ég fór til Westminster í Lundúnum vegna útgáfuhófs Váfuglsins í maí 2012.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2023 | 11:48
Af hásæti Satans þá & nú ...
Ég hef sagt ykkur frá Gullinkamba og Surti í Völuspá sem Snorri Sturluson varðveitti ásamt öðrum dýrgripum fornaldar. Í Ragnarökum fer Surtur sunnan með svigalævi en Gullinkambi vekur hölda og Baldur kemur aftur. Í Biblíunni segir frá í Opinberun Jóhannesar að Jesús Kristur ...hinn fyrsti og síðasti og hinn lifandi, hafi birst Jóhannesi lærisveini sínum og beðið fyrir skilaboð til safnaðarins í hinni miklu borg Pergamos þar sem nú er Tyrkland suður af Istanbúl 26 kílómetra frá strönd Eyjahafsins. Þar var hinn trúi biskup Antípas leiddur í nautshöfuð úr bronzi og eldur borinn að. Þetta var á tíma Neró keisara um miðja 1. öld eftir Krist. Biskupinn dó í eldinum biðjandi fyrir kirkju Jesú Krists. Illsku og grimmd Satans eru engin mörk sett. Jesús kvað hásæti Satans vera í Pergamos; altari Seifs þar sem fast er haldið við kenningu Bíleams sem kenndi Balak að tæla Ísraelsmenn. Ég veit hvar þú býrð, þar sem hásæti Satans er. Þú afneitar ekki trú á mig, jafnvel ekki á dögum Antípasar sem var deyddur hjá yður þar sem Satan býr.
PERGOMOS Á HEIMSMINJASKRÁ UNESCO
Á 19. öld var hásæti Satans í Pergamos stein fyrir stein flutt til Berlínar. Það var á dögum Ottóman veldisins. Pergamos-safnið var reist í Berlín á árunum 1910-1930. Safnið er vel sótt og er á heimsminjaskrá UNESCO sem útaf fyrir sig er merkilegt. Hvað segir það okkur um Sameinuðu þjóðirnar? Síðan hafist var handa um að reisa hásæti Satans í Berlín hefur Þýskaland ekki borið barr. Þjóðverjar voru í stríði 1914-1918. Nazistar endurgerðu hásæti Satans í Nurnberg sem var lýst höfuðsetur nazista þar sem flokksþingin voru haldin. Frammi fyrir allt að milljón heittrúaðra flokksmanna hélt Hitler hinar frægu áróðursræður. Der Führer leiðtogi National Socialist Workers Party. Sieg heil bergmálaði um veröld víða. Þjóðverjar biðu ósigur í síðari heimstyrjöldinni 1939-1945. Stríðsglæpamenn nazista voru dæmdir í Nurnberg þegar veröldin var í sjokki yfir Helförinni á hendur gyðingum. Þýzkaland nú í kreppu er ekki lengur mesta efnahagsveldi Evrópu.
FLOKKSÞING DEMÓKRATA CHICAGO 2008
Árið 2008 héldu demókratar flokksþing sitt í Chicago þegar Barack Obama var valinn forsetaframbjóðandi. Altarið í Pergomos var endurgert í Chicago að fyrirmynd þess í Berlín. Er það ekki stórmerkilegt? Obama var forseti Bandaríkjanna 2009-2017, hlaut friðarverðlaun Nóbels 2009, ötull stríðsforseti sem varpaði 26.172 sprengjum á sjö lönd á síðasta valdaári 2016. Hvað segir það um Nóbelverðlaunin? Bandaríkin hafa verið í styrjöldum alla þessa öld og við erum vitni að endalokum Amerísku aldarinnar ásamt hruni dollars sem heimsmyntar og upplausnar kristinnar siðmenningar. Á árunum 2016-2021 gerði Ameríka uppreisn gegn Endalausum styrjöldum; Endless Wars. Coup d´Etat í Washington tryggði demókrötum Hvíta Húsið 2021-2025 með senílan sídettandi Joe Biden ófæran um heila hugsun. Hver er að tjaldabaki? Valdhafar þjóna Satan með hásæti Mammons á Wall Street, Big-Pharma, Military Industrial Complex og wefurum Fedbankans. Veltið fyrir ykkur helstu herforingjum Satans og birtingamyndum valds hans.
Munið vinir að sannleikur er náttúruafl sem ekki verður bælt. Þar kemur að vindar snúast. ...böls mun alls batna ... Vituð ér enn eða hvað? segir Völuspá. Í Postulasögunni 1.11 að Jesús komi á sama hátt og hann fór til himins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2023 | 15:40
Af Gullinkamba, Surti, gullinsniði & Snorra Sturlusyni ...
Hinn kristni maður trúir að hann sé skapaður af Drottni, kallaður til verka. Það sé þó frjálst val hvers manns að hlýða kalli og áætlun Guðs. Margt kristið fólk trúir að nú séu Endatímar svo sem spáð er í Opinberunarbók Biblíunnar. Völvan spáir í Völuspá að þegar bræður berjist fari Surtur sunnan með svigalævi en Gullinkambi veki hölda: ...böls mun alls batna, Baldur mun koma ... Sal sér hún standa sólu fegri, gulli þaktan á Gimlé. Við lifum Biblíutíma. Auðvitað er það satanísk bábilja að manneskjan komi úr tómi myrkurs þar sem ekkert er. Þvert á móti erum við líf í ljósi sköpuð til verka af Drottni allsherjar skapara himins og jarðar. Hvernig dettur nokkrum manni í hug að kaupa þá bábilju að maðurinn sé tilviljun úr myrkri án tilgangs. Vörumst að tala niður til lífsins.
GULLINKAMBI & SURTUR
Í árþúsundir hefur maðurinn þekkt tilgang lífsins. Vindar munu snúast, dyggvar dróttir munu um aldurdaga yndis njóta eftir að Satan hefur verið úthýst úr mannheimum. Vituð ér enn, eða hvað? Erum við vitni að Ragnarökum eins og spáð er í Völuspá? Kristur mun snúa aftur líkt og spáð er í Biblíunni, Baldur mun koma spáir Völuspá. Það er kristin siðmenning sem er undir. Er það ekki stórmerkilegt að Völuspá kveður átök Ragnaraka milli Surts sem fer með svigalævi að sunnan og Gullinkamba sem veki hölda? Merkilegt nafn Gullinkambi. Sjálfur arkitektúr Drottins í alheiminum er gullinsnið; Golden Ratio. Gullinsnið er í Píramídanum í Giza og raunar píramídum veraldar. Pýþagoros þekkti gullinsnið sem er í Parthaneon á Akropólishæð í Aþenu. Gullinsnið er í dómkirkjum og höfuðbyggingum Vesturlanda. Da Vinci notar gullinsnið í mannslíkamanum. Nú reisa guðlaus stjórnvöld fátt annað en gráa kassa; litla kassa á lækjarbakka úr dinga-linga-ling, litla kassa alla eins, svo sem segir í textanum.
SNORRI & TANAKVÍSL
Forfeður okkar komu úr eyðimörkinni af ætt Benjamíta, stofnuðu goðaveldið og við erum með landvætti í skjaldarmerki, þökk sé Snorra Sturlusyni sem færði okkur Heimskringlu sem segir frá komu Óðins til Norðurlanda inar miklu Svíþjóðar sem náði allt suður til Tanakvíslar í Vanalandi þar sem Don streymir nú lygn í Svartahaf. Vinur minn Siggi Bjarna telur Óðin hafa komið til Norðurlanda 277AD, farið fyrir Benjamítum sem auðvitað voru Galileumenn með Jesú afkomendur Abrahams. Já, hugsið ykkur. Óðinn kom frá Ásgarði austan Tanakvíslar. Stríðið í Úkraínu þar sem ...bræður munu berjast er engin tilviljun. Ef rétt er að við lifum Endatíma/ Ragnarök þá væri gaman að fara í tímaflakk og ræða við Snorra Sturluson um Gullinkamba sem bjargar mannkyni og Surt sem fer með svigalævi. Stillt þeim upp í nútímanum, ekki satt?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2023 | 17:16
Eitrað andrúmsloft á Old Trafford ...
Mikil umræða er um vanda ManUtd en félagið stendur nú um stundir í skugga nágranna sinna. ManUtd hefur kennt sig við Rauða djöfla og í fyrsta sinn í sögu félagsins var merki djöfulsins sett á keppnistreyju. Sérstaka athygli vakti að Roy Keane var meðal þeirra sem kynnti treyju félagsins ásamt leikmönnum. Djöfullinn með þríodda spjót er ófrýnilegur. Rauðir djöflar eiga rætur til Matt Busby sem stýrði félaginu til stórveldis fyrir sjötíu árum, 1945-1971. Nú eru 28 ár síðan bandaríska Glazerfjölskyldan tók ManUtd yfir í skjóli gerspilltra banka. Svokallaðir bísnissmenn verða sýna Mammon hollustu, félög eru mergsogin með vaxtagreiðslum, lúxuslíf ríkra Kana víða um heim kostar sitt. Bísnissmódel Wall Street er baneitrað. ManUtd er vegvilltur klúbbur og hriplekur Old Trafford í niðurníðslu.
Eftir niðurlægingu ManUtd um helgina talaði Phil Neville um eitrað andrúmsloft á Old Trafford. Hann kveður þá sem koma mergsjúgast í eitruðu andrúmslofti. Það var augljóst að leikmenn voru hræddir sem leiddi til falls ManUtd. Tvö atvik í fyrri hálfleik kostuðu. Amrabat braut klaufalega á Foden, aukaspyrnan leiddi til klaufalegs brots Hojlund á Rodri og fyrstu vítaspyrnu City á Old Trafford frá stofnun EPL 1992. Spjaldaður Amrabat var tekinn útaf í hálfleik og Hojlund um miðjan síðari hálfleik. Í síðari hálfleik braut Maguire á Haaland í teignum sem hefði átt að leiða til vítis en VAR gerði ekkert enda kannski nóg komið og hinn ógæfusami Maguire líklega ekki spilað annan leik fyrir ManUtd. Bruno Fernandes var spjaldaður fyrir ruddabrot á Grealish og trylltur Antony fékk gult. Keane vill sjá Fernandes sviptan fyrirliðabandinu. City aðdáendur sungu Old Trafford is falling down ... þið munið London Bridge is fallinn down ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.10.2023 | 13:54
Svona hylma Landlæknir og Sjóvá yfir með Orkuhúsinu ...
Læknir Orkuhússins sagði ósatt og afvegaleiddi sjúkling og raunar alla málsaðila um afleiðingar axlaraðgerðar sem gerð var fyrir sjö árum, 12. október 2016. Ég hef verið að segja ykkur frá. Þann 10. janúar 2018, fór fram rannsókn í Orkuhúsinu á öxlinni minni. Þar kom fram að supraspinatus-sin í vinstri öxl minni er sundurtætt, slitin og rifin; ...stór fullþykktar rifa í supraspinatus sininni og virðist sem maður sjái sinina um 2sm frá festunni, var úrskurður röntgenfræðings. Þessum upplýsingum var leynt fyrir mér. Læknirinn sem stýrði aðgerðinni kvað smávægilegt slit í öxl. Eftir að málið kom fyrir Landlækni 2020 endurtók hann ósannindin og fullyrti fyrir Landlækni: öxlin ok, generativ hrörnunarrifa ... lagað axlareinkennin.
Þann 20. mars 2021 í rannsókn í Domus Medica fór fram önnur rannsókn á öxlinni vegna þrálátra verkja. Þá fyrst fékk ég vitneskju um að sinin er sundurslitin. Það er gegn um gangandi rifa í miðhluta supraspinatus sinarinnar á ca 6mm löngu svæði og sinaendarnir dregnir upp í hæð við acrimion, skrifaði röntgenlæknir. Undirliggjandi er afsagað viðbein sem er alvarlegt mál, grafalvarlegt mál fyrir mann með alla mína áverka úr bernsku. Þá voru liðin fjögur og hálft ár frá aðgerð. Allan þennan tíma hafði Orkuhúsið neitað að öxlin hefði nokkuð með verkina að gera.
HINIR RÍKU & VOLDUGU VERNDAÐIR
Þegar fyrir lá hvers kyns var, tvær rannsóknir um skaðsemi aðgerðarinnar, upplýsti ég Landlækni, Sjóvá og stjórnarmenn Orkuhússins um þessa ámælisverðu framgöngu. Ég sendi ábyrgðarbréf til þessara aðila 26. maí 2021. Hér hafa gerst alvarlegir hlutir, skrifaði ég. Það verður ekki skýrar: Orkuhúsið hafði sagt öxlina ok, sem stangast á við tvö sérfræðiálit, læknirinn var staðinn að röngum vitnisburði fyrir stjórnvaldi sem á kjarnyrtri íslensku er lygi. Ég hvatti Landlækni til að vísa málinu til opinberrar rannsóknar, sumsé lögreglu og Sjóvá til greiðslu bóta.
Ég hafði sætt innrás í líkama, orðið fyrir alvarlegum skaða og þeir sem það gerðu voru staðnir að ósannindum. En hvað gerðu þeir sem áttu að axla ábyrgð? Landlæknir og Sjóvá hylmdu yfir með hinum ríku og voldugu í Orkuhúsinu sem þegir og þaggar fram á þennan dag. Kvörtunin fjallar fyrst og fremst um að aðgerðin var gerð að hluta til opin og ekki eingöngu með liðspegli, segja Landlæknir og Sjóvá. Þetta er auðvitað ekki hægt að skálda. Það sem hér er skrifað kemur allt fram í opinberum gögnum Landlæknis. Þrátt fyrir niðurstöðu sína staðfestir Landlæknir að Hallur Hallsson hafi: ... átt við mikla líkamlega vanheislu að stríða sem hefur fengið á hann og valdið honum atvinnumissi og skertum lífsgæðum. Stærsta einkaklínik landsins axlar ekki ábyrgð, lýgur og afvegaleiðir sjúkling. Landlæknir hylmir yfir ásamt einu helsta tryggingafélagi landsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2023 | 21:57
Enn af læknamistökum í Orkuhúsinu ...
Brottnám viðbeins viðgengst á Orkuhúsinu, stærstu einkaklínik landsins en hefur verið aflagt á Norðurlöndum vegna vafasamra aukaverkana. Á þetta benti læknir skipaður af Landlækni til að veita umsögn. Læknirinn sem starfar í Svíþjóð benti á stóra norska rannsókn sem véfengir gildi þessara aðgerða og fleiri rannsóknir gefi sömu niðurstöðu. Læknar Orkuhússins kváðust vita af norsku rannsókninni en það breytti ekki afstöðu þeirra að saga af viðbeini fólks. Í janúar 2018 rúmu ári eftir að sagað var af viðbeini mínu kom fram í rannsókn sem fram fór á röntgendeild Orkuhússins að meginsin vinstri axlar er slitin frá festum og rifin endilöng:...stór fullþykktar rifa í supraspinatus sininni og virðist sem maður sjái sinina um 2sm frá festunni. Undirliggjandi er afsagað viðbein sem er grafalvarlegt. Læknar Orkuhússins kveða þetta smávægilega áverka. En það er langur vegur frá og sjúklingur var afvegaleiddur. Ég lagði til við Landlækni að máli mínu yrði vísað til opinberrar rannsóknar, sumsé lögreglu en það var ekki gert. Orkuhúsið kvað sinina smávægilega degenerativa; sem sagt hrörnunarrifu en ekkert slíkt hafði komið fram fyrir aðgerðina 12. október 2016.
Það var ekki fyrr en í mars 2021 að ég, sjúklingurinn fékk réttar upplýsingar um sundurtætta sinina en það var í rannsókn í Domus Medica eftir að málinu hafði verið vísað til Landlæknis. Þá hafði Orkuhúsið vitað í þrjú ár af tættri sininni við afsagað viðbeinið. Ég upplýsti Landlækni og alla stjórnarmenn Orkuhússins um þessa atburði og trúnaðarbrestinn en var svarað með þögn. Afsagað viðbein og sundurtætt sin er grafalvarleg staða fyrir einstakling með alla mína áverka. Raunar var það ótrúleg gjörð að saga af viðbeini einstaklings sem 50 árum áður hafði kinn- og brjóstbeinsbrotnað í slysi, skaddast á hryggjarliðum auk þess sem rætur framtanna höfðu brotnað og verið rótfylltar. Ofan á allt með dupuytren í líkama. Læknirinn í Svíþjóð benti Landlækni á að ekkert í gögnum máls gæfi tilefni til að álykta ég hefði verið upplýstur um að til stæði að saga af viðbeini mínu. Landlæknir gerði ekkert með þá ábendingu, fremur en að sjúklingi með alvarlegar aukaverkanir var vísað af sjúklingaskrá. Þetta verður eiginlega ekki svartara. Við lifum tíma þar sem kerfið hylmir yfir með hinum ríku og voldugu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2023 | 08:11
Hin myrka veröld læknavísinda ....
Læknar starfa án aðhalds. Þeir starfa undir eftirliti kollega hjá Landlækni sem er verra en ekkert eftirlit. Krufningsskýrslur eru leyndarplögg raunverulegar dánarorsakir þaggaðar til þess að hylma yfir kukl og mistök. Læknar eru sölumenn lyfjarisa sem hafa gert mannkyn að markaðsvöru kemískra lyfjakotkteila Big Pharma sem þéna trilljarða. Lyfjarisar magna plágur, sprauta alþýðu fólks. Umframdauði í covid hér á landi hæstur í Evrópu. Þúsundir sárþjáðra kvenna mynda baráttuhóp vegna aukaverkana en eru þaggaðar af falsmiðlum í þjónustu gerspillts kerfis sem eltir peninga. Vestræn læknavísindi eru andlýðræðislegt kúganakerfi hinna ríku gegn alþýðu fólks. Nú sjötíu og fimm árum frá stofnun WHO árið 1948 er Alþjóðaheilbrigiðisstofnunin um það bil að taka sér alræðisvald yfir mannkyni með valdheimildir lögreglu til að nauðungarsækja börn, konur og menn í nauðungarbúiðir til að sprauta genabreytandi mixtúrum.
SÖLUMENN LYFJARISA
Læknar hefja nám með hníf í hönd og kryfja lík á réttarmeinadeildum spítala. Líkami manneskju er fyrir læknum sem hver annar kjötskrokkur og þeir lítt fróðir um eðli lífs. Vísindi þeirra kenna að manneskjan komi úr myrkrinu þar sem ekkert er og hverfi aftur í myrkrið þar ekkert er. Um árþúsundir hefur mannkyn vitað að maður er andi sem birtir sig í efni. Líf er ljós sem kviknar við getnað. Hin myrka veröld læknavísinda stefnir mannkyni í aldir myrkurs og fordóma. Að lokinni krufningu læra læknanemar utanbókar kemíska lyfjaskrá lyfjarisa og gerast að loknu námi sölumenn Big Pharma á ofurlaunum sækjandi ráðstefnur á lúxushótel um veröld víða. Í fyrsta sinn í sögunni hnignar atgerfi mannkyns. Gervivísindi kenna að börn geti valið kyn, fyllt kemískum efnum og trönsuð. Yfir 90% lækna fara í nám vegna peninganna. Augu fólks eru að opnast fyrir þessum vágesti sem vestræn læknavísindi eru. Vísindum hefur verið stolið og þeim er beitt sem hverri annarri kreddu og bábilju til þess að hneppa mannkyn í þrældóm. Prédikurum þeirra liggur á. Landlæknir boðar að farsóttum fjölgi með hlýnun!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.10.2023 | 13:50
Læknamistök: þrjár kynslóðir ...
Eftir að sjúkraþjálfari hafði lesið læknaskýrslu mína fyrir bráðum sjö árum og upplýst mig um að sagað hefði verið sentimeter af vinstra viðbeini, sagði ég að mitt pandórubox hefði verið opnað og ormum hleypt út. Ég hef velt vöngum hvers vegna aðgerðin fór svona illa í mig. Auðvitað blasa við beinbrot úr bernsku, ég er greindur sem lokað loft í hálsi. En fleira kemur til. Ég velti líka upp lófakreppu; dupuytren sem hefur leikið ætt mína grátt. Ég hef rakið lófakreppu 200 ár aftur í tímann norður í land. Lófakreppa á til að leggjast víðar um líkama og mig grunar að hún sé valdur að tíðum sorglegum skyndidauða í ætt minni.
Ég er þriðja kynslóð sem fer illa út úr opnum skurðaðgerðum. Ég hef ég oft gengið til svefns í óvissu um að vakna að morgni. Faðir minn Hallur Símonarson hsím blaðamaður lést viku eftir magaaðgerð á Borgarspítalanum árið 2001. Mér fyrir hönd ættingja var synjað um krufningsskýrslu. Læknir á réttarmeinadeild á Barónsstíg kvað hinn látna þann eina sem fengi skýrsluna í hendur, sumsé hsím. Sagt er frá þessu í Váfugli. Krufningsskýrslan er leyniplagg. Læknir las upphátt að pabbi hefði dáið af völdum heilablóðfalls. Svo var fælnum lokað. Ég var með pabba tveimur tímum fyrir áfallið sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hann hafði verið ferskur til huga á sama aldri og ég nú, byrjað að spila bridge á ný og farið á kostum, snillingur sem hann var.
Afi minn Símon Sveinbjarnarson skipstjóri lést líka nokkrum dögum eftir magaaðgerð liðlega fimmtugur að aldri 1935 á Landakoti. Ættingjar fengu ekki krufningsskýrsluna þá fremur en nú en var sagt að Símon afi hefði hefði látist af völdum lungnabólgu. Raunar hófst rannsókn á tíðum skyndidauða í ættinni eftir lát pabba 2001. Við vorum kölluð til rannsókna, en við vitum ekki meir.
LÓFAKREPPA: DUPUYTREN
Lítið er vitað um lófakreppu; dupuytren en líklega eru 10% íslenskra karla með þennan sjúkdóm ef marka má norskar rannsóknir, mun fleiri karlar en konur; hsím var með svæsna lófakreppu. Sjálfsagt ekki bara í lófum. Ég er þjáður í axlar-, háls- og hryggjarliðum. Eftir að ég hafði rætt við vin minn lögmann var mér vísað af sjúkraskrá Orkuhússins með sundurtætta meginsin axlar. Málinu var vísað til Landlæknis sem auðvitað sló skjaldborg um kollega sína í Orkuhúsinu. Eftirlit Landlæknis er verra en ekkert eftirlit. Landlæknir gerir ekkert með tvær rannsóknir sem staðfesta að supraspinatus-sinin er sundurtætt með undirliggjandi afsagað viðbein, þá fyrri í janúar 2018 í Orkuhúsinu og seinni mars 2021 í Domus. Bara alls ekki neitt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.10.2023 | 20:12
Af erfiðu slysi í bernsku og læknamistökum í Orkuhúsinu
Þrettán ára drengur 1964 fékk ég erfiða byrjun í lífinu. Ég slasaðist illa á hjóli á hitaveitustokknum sem liggur um Bústaðahverfi. Ég var á mikilli ferð niður brekku undan vindi þegar göt birtust á stokknum. Ég gat forðast það fyrsta en ekki næstu göt, skall á stokknum og úti í móa. Ég stóð upp frá slysinu, hélt áfram för minni og drengurinn hélt áfram lífi sínu. Slysið hefur markað líf mitt og ég lifað með verkjum allar götur síðan. Löngu síðar kom í ljós að drengurinn hafði brjóstbeins- og kinnbreinsbrotnað, hryggjarliðir 7-9 fleygmyndast, undir hryggjarliðunum erfitt bakflæði. Framtennur mínar urðu svartar, ræturnar brotnuðu og voru rótfylltar. Þannig var líkami drengsins skorðaður.
Samt skapaði drengurinn sér nafn í fremstu röð blaða- og fréttamanna, meðal stofnenda Dagblaðsins 1975, vann á Morgunblaðinu 1979-1986, Sjónvarpinu 1986-9 og Stöð 2 1989-1994. Drengurinn hætti að æfa fótbolta í yngri flokkum, hætti Moggaboltanum 20 árum síðar, reyndi golf en varð að hætta vegna verkja og stundaði gufu af eldmóð. Þegar ég var með mín stóru mál þá var líkt og líkaminn væri sem í skrúfstykki svo ég hætti fréttamennsku eftir áratug í sjónvarpi. Það var vindingur upp til höfuðs og ég átti til að fá mígreni og sjóntruflanir upp úr fimmtugu. Ég lærði að slaka á og vinna með orkuna. Ég sumsé lærði að lifa lífi mínu þó með verkjum væri og fúnkeraði bara ágætlega, takk fyrir.
ÖRLAGARÍK LÆKNAMISTÖK
Nú í október eru sjö ár liðin síðan verkir urðu að óbærilegri þjáningu. Í október 2016 fimmtíu árum eftir rótfyllinguna gekkst ég undir aðgerð í Orkuhúsinu þegar til stóð að skafa vinstri axlarhyrnu. Í þess stað var sentimeter sagaður af vinstra viðbeini að mér forspurðum. Óskiljanleg ákvörðun lækna og afdrifarík læknamistök gerð í Orkuhúsinu sem er stærsta einkaklíník landsins. Í kjölfarið slitnaði meginsin axlar og rifnaði endilöng; tættist í sundur: ...stór fullþykktar rifa í supraspinatus sininni og virðist sem maður sjái sinina um 2sm frá festunni, samanber rannsókn 10. janúar 2018 í Orkuhúsinu. Sama niðurstaða aftur í mars 2021 í Domus. Vinstri öxl mín er mjög löskuð. Sinin sem um ræðir tengir viðbein út í öxl, undir er gat, kring um það er sundurtætt sin. Líkaminn hafnaði inngripi lækna Orkuhússins. Þetta hefur áhrif á daglegt líf mitt, erfitt með svefn þannig get ég ekki sofið á vinstri hlið eða maga svo staðan er erfið skal ég segja ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)