Strax í 1. grein frumvarps dómsmálaráðherra Þorbjargar Gunnlaugsdóttur um lög um almannavarnir 114/2025 er blandað saman hernaði og almannavörnum. Það opnar leiðir á herskyldu og stofnun íslensks hers. Ákvæðið um ...hernaðaraðgerðir er lykilorð. Þannig tekst ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að þræða framhjá óvinsælli umræðu um íslenskan her. Íslensk þjóð hefur alla fullveldistíð frá 1918 státað af herleysi og vopnleysi.
BRÝTUR GEGN STJÓRNARSKÁ
Frumvarpið brýtur gegn ákvæði 68. greinar Stjórnarskrár Íslands: Nauðungarvinnu skal engum gert að leysa af hendi. Ákvæðið um ...skyldu allra á aldrinum 18-65 ára að gegna á hættustundu, án endurgjalds, starfi í þágu almannavarna ... að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra, er sem blaut tuska framan í fólkið í landinu. Nauðung gengur í gegn um frumvarpið. Fordæmalaus eignaupptaka er boðuð. Nú er rúm vika til að gera athugasemdir til lævíslegustu breytinga í sögu lýðveldisins.
ÍSLAND UNDIR LÖGREGLUVALDI
Harður heragi er boðaður. Öllum ber að hlýða, gefa sig fram og má enginn á neinn hátt tálma eða koma í veg fyrir þessa hina lögbundnu skyldu né yfirgefa umdæmi lögreglustjóra sem hann heyrir undir, sbr 44. gr. Allir menn sæti herskyldu undir yfirskini almannavarna, konur eru líka menn. Ríkislögreglustjóra er gefið lögregluvald á stríðstímum til að kalla eftir ...erlendri aðstoð án aðkomu ráðherra, ríkisstjórnar og Alþingis, samkvæmt 45. grein. Þetta er mesta valdaafsal í sögu lýðveldisins og brot á fullveldi landsins. Ríkislögreglustjóri hefur sömuleiðis vald á stríðstímum til að senda hernaðaraðstoð; lesist hersveitir til útlanda og þarf einvörðungu að tilkynna ráðherra, samkvæmt 46. grein. Frumvarpið snýst um hervæðingu Íslands dulbúin sem almannavarnir.
ÍSLENSKAR HERSVEITIR TIL FINNLANDS
Boðaðar eru íslenskar hersveitir til Nato-herstöðvar Rovaniemi í Lapplandi. Þar eru boðaðar íslenskar, sænskar, finnskar, danskar, norskar, franskar og breskar hersveitir til árása á Rússland. USA neitar að senda sín ungmenni. Íslenskir [her]menn verða þátttakendur í Evró/Úkró/Rússó styrjöld sem ESB/Nato eru að undirbúa og hefst 2030. Ástæður undirlægju ESB gagnvart USA í nýlegum viðskiptasamningi eru til að halda amerískum hersveitum í Evrópu. Taktík Evrópu er að bíða af sér Donald Trump, þar á meðal Togga. Ísland hefur nú þegar varið tugmilljörðum króna í proxy-stríð gegn Rússlandi.
NÚTÍMA VISTABAND
Meðfylgjandi er umsögn mín 2. ágúst: "Frumvarp þetta brýtur gróflega gegn Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Það breytir lýðveldinu Ísland í grundvallar atriðum & kemur á nauðungaskyldu 18-65 ára án endurgjalds, nútíma vistabandi þar sem lögreglustjóri getur bannað fólki að yfirgefa lögreglu-umdæmi. Lögreglustjóri getur sent landsmenn á vígvelli Evrópu án samþykkis ríkisstjórnar eða Alþingis. Aðeins tiilkynna [fag]ráðherra.
Almannavarnalög eru grólega misnotuð til að koma á herskyldu landsmanna. Frumvarpið er lagt í samráðgátt 8. júlí & frestur til athugasemda rennur út 18.ágúst. Íslenskur embættismaður fær alræðisvald ... Hér hefur orðið trúnaðarbrestur milli ríkisstjórnar & Íslendinga.
Dómsmálaráðherra hefur gerst brotlegur við hegningarlög og ber að ákæra fyrir landráð.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning