Allir 18-65 ára sæti herskyldu í Evró/Rússó styrjöld ...

Undirbúningur herfarar Íslands sem aðildarríkis ESB í Evró/Rússó styrjöld 2030 er í fullum gangi þar sem allt miðast við herför gegn Rússlandi og komandi hernaðarárás Rússa á Ísland. Fyrir tíu dögum lagði dómsmálaráðstýra fram frumvarp um almannavarnir í samráðsgátt stjórnvalda þar sem gert er ráð fyrir: “... borgaralegri skyldu allra á aldrinum 18-65 ára að gegna á hættustundu, án endurgjalds starfi í þágu almannavarna ... að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra.“ Frumvarpið snýst um hervæðingu Íslands dulbúin sem almannavarnir sem skammlaust og svívirðilega eru misnotaðar. Öllum ber að hlýða, gefa sig fram og má enginn á neinn hátt tálma eða koma í veg fyrir þessa hina lögbundnu skyldu né yfirgefa umdæmi lögreglustjóra sem hann heyrir undir. Allir menn sæti herskyldu sem þær kalla almannavarnaskyldu, konur eru líka menn. Nauðung gengur í gegn um frumvarp dómsmálaráðstýru, Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur.
 
Frumvarpið er skýlaust brot á Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. “Nauðungarvinnu skal engum gert að leysa af hendi,“ sbr. 68. grein.
 
ALRÆÐISVALD RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA
 
Í frumvarpinu er ákvæði um að kalla útlendan herafla til landsins. Það er kallað “...alþjóðleg borgaraleg aðstoð...“. Ríkislögreglustjóri fær alræðisvald til að kalla útlendan herafla til landsins. Honum ber einvörðungu að tilkynna ákvörðun sína dómsmálaráðherra sem metur hvort og hvernig eigi að upplýsa ríkisstjórn og/eða Alþingi. Ríkislögreglustjóri metur hvort útlendur her komi undir ákvæðum lögreglulaga. Ísland  lögregluríki.
 
ÞAÐ MÁ KALLAST HER ...
 
Van der Leyen var kynnt fyrir Runólfi Þórhallssyni sviðsstjóra Almannavarna sem verður æðsti herforingi landsins eftirmaður Víðis Reynissonar sem stýrði covid-lyginni. Georg Lárusson forstjóri Gæslunnar hefur sagt um mixið: “Það má kallast her. Hvað sem er“. Ég fæ hvergi séð Georg garminn flaðra upp um Leyen í heimsókn sinni. Undirmaður Georgs í fullum skrúða bugtaði sig fullur lotningar með tvo aula með hönd á pung sér til hliðar. Það bærðist ekki hár á stíflakkaðri komizarínu í rokinu þegar Grindvíkingar mótmæltu en lygaveita ríkisins hefur auðvitað ekki frétt af því.
 

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og sautján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband