29.6.2025 | 17:57
Kongó & Rúanda semja frið í Washington ...
Friður hefur verið saminn í Afríku milli Kongó og Rúanda eftir áratuga deilur. Afrísku lýðveldin Kongó og Rúanda undirrituðu friðarsamkomulag í Washington á föstudag fyrir milligöngu USA og fleiri ríkja. Leiðtogar ríkjanna, Olivier Nduhungirahe og Therese Kayikvamba Wagner undirrituðu sáttina. Rúanda hefur verið bakhjarl M23-skæruliða sem hafa lagt undir sig stór landsvæði í A-Kongó og stundað námagröft dýrmætra málma í smart-síma og hátæknivöru; kóbalt, tin, gull og fleiri dýrmæti. Evrópusambandið hefur verið gagnrýnt fyrir að líta undan að Rúanda hafi flutt mun meira magn málma úr landi en unnir eru í Rúanda. Á því hefur verið aðeins ein skýring. Málmarnir hafa verið unnir af skæruliðahópum í gegn um Rúanda til Evrópu.
ESB MISSIR SPÓN ÚR ASKI
Stuðningur Rúanda við M23 hefur verið gagnrýndur en samkvæmt samkomulaginu hættir Rúanda stuðningi við M23. Mótmæli hafa verið fyrir utan Berlaymont höfuðstöðvar ESB. Orðrómur er uppi um að nokkur hundruð belgískra hermanna frá gömlu nýlendunni hafi verið staðsettir í A-Kongó. Sagt er að ...friðarsáttin marki þáttaskil en talsmaður skæruliða kveður friðarsáttina engu skipta. Það sem þó virðist ljóst er að nýlenduveldi Evrópu eru að missa spón úr aski sínum líkt og Mið-Afríku þar sem Macron hefur fengið sparkið.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning