Tilræðið við Pútin þegar veröldin var á barmi þriðju heimsstyrjaldar ...

Engu mátti muna að þyrla Vladimir Pútin forseta Rússlands hefði verið skotin niður yfir Kúrskhéraði 20. maí þegar skæðadrífa dróna var stefnt á þyrluna frá Úkraínu; “Putin‘s helicopter at Epicenter of repelling drone attack.“ Veröldin var á barmi þriðju heimsstyrjaldar; World War III, að sögn Dmitry Medvedev fyrrum forseta Rússlands. Spurningin er: Voru Bandaríkin á bak við árásina? Hvernig stóð á óvenjulegri umferð bandarískra orrustuþotna yfir Rúmeníu og Svartahafi á sama tíma? Itamil-radar skýrði frá. Hverjir vissu um för Pútin þennan morgun? Stríðinu í Úkraínu er stýrt af USA frá Wiesbaden í Þýskalandi. Nato Supreme Headquarters Allied Powers Europe (SHAPE). Amerískt fjármagn streymir til Kyiv svo ekkert hefur breyst þrátt fyrir loforð Trump um frið. 
 
TRUMP SEGIR PÚTIN “...GONE CRAZY“
Rússar svöruðu með árásum á Úkraínu, þar á meðal Antonov drónaverksmiðjuna í Kyiv sem stóð í ljósum logum; 298 drónum og 69 eldflaugum var skotið á Úkraínu á fyrsta sólarhring. 355 drónum og níu eldflaugum á öðrum sólarhring eftir tilræðið, að sögn Úkra. Trump kallaði Putin brjálaðan; “...Gone Crazy“. Pútin væri sér að leika að eldi; “Playing with Fire.“ Aðspurður vissi forsetinn ekki um árásina á þyrlu Pútins. Augljóslega er forseti ekki með réttar upplýsingar um atburði. Þetta vekur upp spurningar um hver sé við stjórn. Trump hefur ekki nefnt stórfelldar drónaárásir Úkra á Rússland dagana 20-23. maí; 788 drónum þar af tólf sem komust í gegn að sögn Rússa. Þetta vekur spurningar um áhrif stríðshauka; neo-cons í Washington.
 
Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússa benti á stríðsæsta leiðtoga Breta, Frakka og Þjóðverja; Starmer, Macron og Merz. Þeir eiga í náinni samvinnu við Kellog hershöfðingja með furðutillögur um vopnahlé og herlaus svæði sem snúast um að fresta stríðinu þar til Evrópa og Úkraína hafi hervæðst. Þetta plan virðist Trump hafa "keypt." Í vikunni opnuðu Þjóðverjar herstöð í Litháen. Hervæðing Evrópu er í yfirgír.
 
Nú hafa Vesturlönd sýnt Pútin banatilræði í proxy-stríði sínu. Rússar hafa hleypt vestrænum leiðtogum inn í Úkraínu þegar þeir hafa sótt tíundir sínar, þar á meðal Kötu litlu Jak og Frostrósu. Zelinsky hótaði þjóðarleiðtogum sem heimsóttu Rússa 9. maí. Víðtækar drónaárásir voru gerðar á Rússland og Moskvu dagana sem sigri var fagnað yfir nazistum Hitlers. Það þótti sjálfsagt í Brussel sem hýsir hvoru tveggja Nato og ESB.

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og sex?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband