8.5.2025 | 16:22
"Lille Danmark" planar styrjöld ...
Mette Frederiksen forsætisráðstýra Danmerkur talar orwellsku. Þið munið: Friður er hættulegri en stríð. Mette orwellska hélt ræðu í Köben 4. maí í tilefni af 80 árum frá frelsisdeginum 1945; Befrielsen að viðstaddri danskri elítu. Óumdeilt er að frelsi sitt geta Danir þakkað Bandaríkjamönnum ásamt Sovétmönnum sem höfðu gersigrað hersveitir nazista Hitlers við Stalíngrad. Nú hatar lille Danmark Bandaríkin og Rússland. Helsti bandamaður Mette, Friedrich Merz kanslari ofsækir næst stærsta flokk Þýskalands AfD.
27 milljónir Sovétmanna féllu til varnar Móður Rússlandi, Evrópu og þar með lille Danmark. Svíar höfðu hvorki hreyft legg né lið, þvert á móti lagt nazistum lið. Danir gripu ekki til vopna gegn nazistum en þeir skutu rithöfundinn Guðmund Kamban [1888-1945] 5. maí. Nazískir Úkrar undir forystu þjóðardýrlingsins Stepan Bandera [1909-1959] börðust við hlið nazista Hitlers í Úkraínu en gengu jafnvel fram af þeim. Sagan fer ekki í hringi, en hún rímar.
NATO & ESB Í FÓTSPORI NAZISTA HITLERS
...Stríð geisar aftur í Evrópu; Krigen er tilbage i Europa, sagði Mette orwellska. Nato/ESB í fótspori nazista er mætt við landamæri Rússlands í bandalagi við úkraínska ný-nazista. Rússar líta svo á að þeir séu að verja móður Rússland; eina ferðina enn. Það er yfirlýst markmið kómizarínu Kaju Kallas í Brussel að skipta Rússlandi upp. Svo ræna þau rússnesku þjóðina. "Stríð er betra en friður," sbr. orwellsku Mette.
Danski herinn telur sextán þúsund hermenn. Í gildi er almennt herútkall þar á meðal kvenna. Við hátíðahöldin marseruðu danskir hermenn flestir án vopna því þau hafa verið send til Úkraínu. Lille Danmark hyggst tilbúin til árása á Rússland 2030 ásamt Blackrock Merz, litla Napóleon, Stormer008 og Toggu töff. Á dögum Kalda stríðsins mælti Háðfuglinn Mogens Glistrup [1926-2008] með símsvara á rússnesku ef Rússarnir mættu. Mette orwellska er töff líkt og Togga. Með fb-færslu minni má sjá myndir frá 4. maí.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning