"Mamma segir að ég sé stelpa," segir James litli

 
"Mommy Tells Me I am a Girl," segir James litli frá Texas, sjá hér. Mamma hefur frá tveggja ára aldri klætt hann í kjóla og lakkað neglur. Málaferli um framtíð hans fara fram í Kaliforníu en þau hófust í Texas. Ístöðulausir foreldrar og gerspillt skólakerfi að störfum baki luktum dyrum eru ástæður þess að strákar telja sig stelpur, stelpur telja sig stráka. Faðir James heitir Jeff Younger, á tvo syni, tvíbura. Forræði var tekið af Jeff en hann berst fyrir að James nú 12 ára fái að vera drengur, vaxa upp í karlmennsku og halda kynfærum. Allt dómskerfið og móðir drengisins í skjóli forræðis er gegn honum í krafti eitraðs transisma undir merkjum feminisma í skjóli auðvalds. James telur sig vera strák. Kalifornía skipar Jeff að borga fyrir geldingu sonar síns, ef hann gerir það ekki þá verður honum varpað í fangelsi.
 
600 MILLJÓNIR AÐ TRANSA BARN
Transismi snýst um peninga. Það kostar 4.5Milljónir dollara pr. barn í Kaliforníu að transa; yfir Kr.600M. Trans er keyrt áfram af lyfjarisum & læknum. Í dómskerfinu vestanhafs er transismi fjármagnaður af USAID og George Soros, segir Younger.
 
RÍKISSTJÓRN KEYRIR TRANS HRYLLINGINN
Við erum með trans ríkisstjórn sem breiðir út trans hryllinginn. Ráðherrar hafa lýst því yfir að nú skuli gefið í transvæðingu Íslands. Innræting fer fram í skólum að baki luktum dyrum því trans þolir ekki dagsljós. Viðtal við Jeff Younger er afar upplýsandi um baráttu hans sem hafa vakið mikla athygli, 1:22 klst. sjá link

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Lýst vel í texta hjá 

The Who - I'm A Boy (1967)

https://www.youtube.com/watch?v=G-zItRFUywI

Grímur Kjartansson, 14.4.2025 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og níu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband