Sólveig, Snorri & afhjúpun vókisma

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lét falla ummæli við Rauða borðið sem hafa farið sem eldur í sinu: “....Vók er ein mest ömurleg hugmyndafræði sem hægt er að hugsa sér,“ sagði hún. Hallgrímur Helgason rithöfundur stundi: “Þú talar eins og Trump,“ fórnandi höndum í búbblu. “...Þú skilur ekki vókisma,“ svaraði Sólveig Anna rithöfundinum sem hafði sannað mál hennar. Vók er útilokun. Vókismi er uppspretta tranisma; alræðismi, authoritarnismi orðaði Sólveig það. karla á kvennaklósettum og karla í kvennasporti allt það sem farið hefur úrskeiðis í vestrænum samfélögum þar sem sönn karlmennska er jaðarsett í löndum feminisma sem gengur á mannréttindi kvenna. Þetta var stund sannleika. Orðræðan hefur farið víða, þar á meðal hefur Snorri Másson vakið athygli á. Snorri er ímynd karlmennsku, vel máli farinn og snyrtilegur. Ungir menn leita til hans um samhljóm og fyrirmynd. Snorri er uppnefndur trumpisti, hægri-öfgaisti; eitruð karlmennska er hrópað.

HÓPHYGGJA & VÓKISMI
Hóphyggja okkar tíðar er wók sem á að andæfa kynþáttahyggju og misrétti #vertu vók; #staywoke en gerir þveröfugt, sundrar og sáir hatri. Þegar vókfólk heyrir lykilorð þá tekur það á rás og hrópar hægri-öfgar, rasismi, trumpismi, pútinismi. Fylgjendur #vók eiga fyrst og fremst heimilisfesti meðal feminista og vinstri manna; góða fólksins. Vók og trans eru kennd og innrætt á öllum skólastigum; leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, háskólum og á heimilum fólks af lygaveitu ríkisins með Samtökin78 sem varðhund. Það verður ekki lægra lagst. Ríkisstjórn og þingmenn hrópa í pontum rótföst í því sem öflugasti verkalýðsforingi landsins, Sólveig Anna Jónsdóttir kallar authoritanisma sem ég hef lengi varað við. Börnum og ungmennum er innrætt að þau búi í röngum líkama. Slagorð guðlausra um “sjálfræðisfrelsi“ er notað sem lykill að trans þar sem handan horns bíða lyfjarisar; Big Pharma og læknar með hnífa, pillur og sprautur með kemískt drullumix; hormónablokkir og krabbameinslyf. Þarna má finna eitraða karlmennsku.


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og einum?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband