Sprautu fíkn lyfjarisa & lækna ...

Árið 1986 voru árlega sjö skyldubólusetningar, öllum beint að börnum. Árið 2025 verða bólusetningar hvítvoðunga 32. Á Íslandi síðast ég skoðaði voru árlega átta bólusetningar hvítvoðunga. Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna; CDC hefur boðað vaksín-sprautu-áform sín fyrir árið 2025. CDC gengur rösklega til verka ásamt sölumönnum lyfjarisa; læknum með pillur, sprautur og hnífa þar sem er misjafn sauður í mörgu fé. CDC boðar fimm (5) skyldusprautur fyrir ófrískar konur, sjötíu (70) skyldusprautur fyrir börn og ungmenni 0-18 ára og hundrað og þrjátíu (130) skyldusprautur fyrir fólk að áttræðu. Robert F. Kennedy hefur í áratugi glímt við lyfjarisa; Make America Healthy Again.
 
TÖLUR TALA SÍNU MÁLI
Allar tölur streyma til Dýrafjarðar. Árið 1983 var einhverfa í einu af hverju tíu þúsund börnum; einu af hverjum 150 börnum árið 2008; einu af hverjum 88 árið 2013; einu af hverju 36 árið 2023. Pfizer fór fram á 75 ára mRNA leynd í covid, spyrjið af hverju? Á fimmtíu árum 1970-2020 fengu 1.312 íþróttamenn hjartaáfall og létust; 26 á ári. Á tveimur árum 2021-22 fengu 1.598 íþróttamenn hjartaáfall og létust; 799 á ári. Spyrjið af hverju dó allt þetta unga fólk? Um helgina missti 22 ára liðsfélagi Alberts Guðmundssonar hjá Firoentina meðvitund. Öllum var mjög brugðið.
 
FIMM FYLKI LÖGSÆKJA PFIZER
Ameríka hefur fengið nóg. Nú blása vindar úr annarri átt. Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að taka á Big-Pharma & Big-Food enda Bandaríkin orðin veikasta þjóð veraldar og sú feitasta þó RÚV sjái það ekki. Kennedy mun taka á CDC og FDA, Pifzer, Moderna og rest. Fimm ríki Texas, Utah, Kansas, Missisippi og Louisiana undirbúa lögsóknir á hendur Pfizer fyrir að hafa afvegaleitt almenning í covid-tíð. Það eru 10% fylkja.
 
mRNA SPRAUTUR VALDA SKAÐA
Hylmt er yfir afleiðingar mRNA vaxsína sem valda hjartabólgum, gollurhúsbólgum, fósturdauða og dauðsföllum. Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur skorið úr um aukna tíðni hjartaveiki eftir bólusetningar með mRNA bóluefnunum Comirnaty (Pfizer/BioNTech) og Spikevax (Moderna). Landlæknir segir frá en gerir lítið úr afleiðingum!!! Flest erum við sammála um að brjálæði lyfjarisa taki út yfir allan þjófabálk nema auðvitað RÚV sem ávallt kemur lyfjarisum til varnar. Er það ekki alveg stórmerkilegt. RÚV kallar Robert F. Kennedy jr. RUGLUDALL; "...harður andstæðingur bólusetninga & trúir á alls kyns samsæriskenningar," segir Bogi !!!

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Gott hjá þér Hallur sem endranær. Við þurfum heilbrigt fólk í heilbrigðiskerfið, fólk sem segir okkur sannleikann án aðkomu yfirvalda og alheimsglópalista sem vilja ljúga að almenningi.

Tómas Ibsen Halldórsson, 4.12.2024 kl. 19:18

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og fimm?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband