Julian Assange, George Orwell & ofsóknir nútíðar ...

Julian Assange stofnandi Wikileaks hefur verið látinn laus. Því fagna allir lýðræðissinnar. Fjórtán ár eru frá því Assange afhjúpaði stríðsglæpi Bandaríkjanna í Afganistan og Írak. Það er flottasta blaðamennska 21. aldar. Árið var 2010. Ofsóknir á hendur Assange hófust strax í nóvember 2010. Svíar tóku að sér skítverk og gefin var út evrópsk handtökutilskipun. Assange flúði í sendiráð Ekvador í London 2012 og fékk hæli á grundvelli pólitískra ofsókna. Svíar ofsóttu Assange til 2019 þegar rannsókn var hætt. Ekvador hætti að veita Assange skjól. Breska lögreglan stormaði sendiráðið og Assange var varpað í Belmarsh fangelsi í London, haldið í fimm ár frá 2019 til 2024.

 

ASSANGE & GEORGE ORWELL

Líklega verður Assange hissa þegar hann nú fagnar frelsi. Vestrænir fjölmiðlar hafa grímulaust breyst í 4ða vald ríkisins, háværa áróðursmaskinu. Helstu fjölmiðlar okkar eru á ríkisfé með ríkisfréttir; eina og sömu frétt á rauntíma, Marteinn Mosdal með einn ríkissannleik. Ritskoðun hefur verið innleidd um öll Vesturlönd. Í aðdraganda covid var blaða- og fréttamönnum skipað í “framvarðasveit ríkislögreglustjóra.” Skúli Sveinsson lögmaður benti fyrstur á “samræmdan sannleika á rauntíma; Trusted News Initiative”. Spádómur George Orwell í 1984 hefur ræst; sannleikur er lygi. Lygi er sannleikur gjallarhornum ríkis- og ríkramiðlum. Assange okkar tíðar er Winston Smith, söguhetja Orwell í 1984. Stríð okkar tíðar í Úkraínu, langt, langt í burtu endalaust stríð. Alþingi undir erlendum fána myrkvað.

 

MÉR HÓTAÐ 4RA ÁRA FANGELSI

Með RÚV í broddi fylkingar flytja fjölmiðlar okkar tíðar samræmda lygi sem þeir kalla sannleik og ofsækja þá sem efast, já fólkinu í landinu er bannað að efast. Hugsanalögreglan; Thought Police mætir á vettvang. Ég hef fjallað um svokallað fósturvísamál sem fjölmiðlar þegja og þagga. Mér var hótað 4ra ára fangelsi fyrir að fjalla um stuld tæknifrjóvgunarfirmans Art Medica á nítján fósturvísum í eigu hjónanna Gunnars Árnasonar og Hlédísar Sveinsdóttur. Fósturvísar voru afhentir vandalausum. Rökstuddur grunur er um að lífbörn hjónanna séu út í bæ og þekki ekki uppruna sinn.

 

1984 ER MEÐ OKKUR

Ég var kærður og sakaður um umsáturs-einelti. Lögregla stormaði norður yfir heiðar. Ég, einn reyndasti blaðamaður landsins sakborningur, yfirheyrður og þess krafist að meðan ég tóri verði mér bannað að fara frjáls um Reykjavík og Garðabæ. Það heitir nálgunarbann. Þetta er atlaga að réttarríkinu. Hvorki ríkis- eða ríkramiðlar hafa tekið mál mitt upp, enginn þingmaður hefur gert það. Kröfu lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins Höllu Bergþóru Björnsdóttur var hafnað en 1984 er með okkur. Hugsanalögreglan er mætt …


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Hallur Hallsson! Jesús Kristur orðaði þetta svona:

Hví skiljið þér ekki mál mitt?

Af því að þér getið ekki hlustað á orð mitt.

Þér eigið Djöfulinn að föður og viljið gjöra það, sem faðir yðar girnist.

Hann var manndrápari frá upphafi og aldrei í sannleikanum, því í honum finnst enginn sannleikur.

Þegar hann lýgur fer hann að eðli sínu, því hann er lygari og lyginnar faðir.

En af því að ég segi sannleikann, trúið þér mér ekki. (Jóh. 8:43-45).

Guðmundur Örn Ragnarsson, 26.6.2024 kl. 18:48

2 Smámynd: Hallur Hallsson

Hinir kristnu vita ... Baráttan er ekki við menn af holdi & blóði heldur andaa vonskunnar. Páll postuli.

Hallur Hallsson, 27.6.2024 kl. 14:01

3 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Satt segir þú Hallur, Páll segir einmitt:

Því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi og blóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum.

Takið því alvæpni Guðs, til þess að þér getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og haldið velli, þegar þér hafið sigrað allt.

Standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins og skóaðir á fótunum með fúsleik til að flytja fagnaðarboðskap friðarins.

Takið umfram allt skjöld trúarinnar, sem þér getið slökkt með öll hin eldlegu skeyti hins vonda.

Takið við hjálmi hjálpræðisins og sverði andans, sem er Guðs orð.

Gjörið það með bæn og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda. Verið því árvakrir og staðfastir í bæn fyrir öllum heilögum. (Ef. 6:12-18).

Guðmundur Örn Ragnarsson, 27.6.2024 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og nítján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband