Ráðherra talar sem vélbyssa fyrir stigmögnun stríðsins ...

Vesturlönd standa frammi fyrir ósigri í stríðinu í Úkraínu. Nato svarar með plani B sem er að bein þátttaka í stríðinu svo sem kort sýna og áréttar hversu langt austur Washington, Nato og Brussel eru komin í útþenslu sinni. Bandarískar hersveitir verða sendar eftir fimm leiðum austur á bóginn; “corridors“ eftir endilangri Evrópu. Hinn seníli Joe Biden hefur gefið Úkrum leyfi til árása á Rússland með amerískum eldflaugum sem er mikil stigmögnun og þýðir beina aðild Nato. Árásir hafa staðið yfir á Belgorod í Rússlandi skammt frá Kharkiv og dróni fór svo langt sem 1600 kílómetra inn í Rússland á dögunum. Margir spyrja hvort Heimstyrjöldin þriðja sé hafin. Alexander Mercouris á Duran telur að Úkraínustríðið mestu mistök Vesturlanda síðan Versaille-nauðungarsamninginn; Versaille Treaty í lok Fyrri heimstyrjaldar sem leiddi til Heimstyrjaldar síðari.

 

VALDARÁN CIA Í KÆNUGARÐI

Eftir valdarán CIA í Úkraínu 2014 mögnuðust fasískar þjóðernisofsóknir Kænugarðs á hendur Rússum í Donbass í A-Úkraínu og Ungverjum í V-Úkraínu; bannað að tala tungumál sitt. Rússar á Krímskaga gengu í rússneska lýðveldið. Stjórnvöld í Kænugarði hófu stríð á hendur rússnesku fólki í Donbass 2014. Rússar svöruðu með innrás í Úkraínu árið 2022. Friður var saminn í apríl 2022 en Boris Johnson stöðvaði friðarferlið. Friðarsamningar kenndir við Minsk 2014-15 voru brotnir. Í febrúar 2023 sagði Angela Merkel samningana til að vinna tíma til að vopnavæða Úkra. Hér eru sömu glóbalistar á ferð sem eru að taka yfir auðlindir Íslands, alveg eins og Blackrock og Big-Pharma í Úkraínu. Þeir áforma að búta Rússland í sundur og lama, sagan rímar.  

 

MALAR EINS & VÉLBYSSA

Við erum með utanríkisráðherra sem talar eins og vélbyssa fyrir stigmögnun stríðsins sendandi vopn sem gera það eitt að verkum að fleiri Úkrar og Rússar deyja. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir finnst sjálfsagt að útiloka Rússa frá friðarviðræðum. Dísa Reykás harmar að Kænugarður hafi ekki kjarnorkuvopn. Konan malaði vitleysu á yfirsnúningi á Bylgjunni fyrir helgi. Dísa Reykás gerir ekkert með hættu sem steðjar að íslenskri þjóð. Það hefur eitthvað hent konuna. Jóhanna Vilhjálmsdóttir gerði vel að spyrja gagnrýninna spurninga á Bylgjunni.

 

VATIKANIÐ & VÍG SNORRA STURLUSONAR

Ég hef sagt og segi enn að framganga Ríkisstjórnar Íslands og Alþingis eru svik við arfleifð Snorra Sturlusonar, sem árið 1241 var drepinn af útsendurum Hákonar gamla í bandalagi við Vatikanið sem kramdi Ísland og Noreg. Á sama tíma gaf Vatikanið út tilskipun til Svía um árásir á orthódox Rússland sem var hrundið í orrustunni á ísnum 1242; Peipusvatn suður af Pétursborg. Pétur mikli sigraði Svía í orrustunni við Poltova skammt frá Kænugarði árið 1709. Er hægt að skálda þetta? Svo mætti Napoleón í Moskvu 1812 og Hitler knúði dyra 1941. Nú árið 2024 knýr Biden dyra með stríði á hendur Rússlandi. Biden faldi ekki fasískar rætur sínar í hatursræðu í sjálfri Fíladelfíu 2022. Tími fyrir þjóð mína að vakna? Íslenskir ráðamenn eru óupplýstir kjánar, hef ég rétt fyrir mér ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Utanríkisráðherra er kominn í þann hóp sem hefur valdið landi og þjóð MESTU og 
ALVARLEGUSTU TJÓNI í ráðherratíð sinni, í þessum hópi eru meðal annars feðginin Svavar Gestson og  Svandís Svavarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Gunnarsstaða Móri..... 

Jóhann Elíasson, 9.6.2024 kl. 06:15

2 Smámynd: Hallur Hallsson

Án vafa skaðvaldur ... raunar á að draga hana fyrir landráð

Hallur Hallsson, 9.6.2024 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband