31.5.2024 | 09:36
Hvað er þetta með konur & sannleika ...
Já, hvað er þetta með konur og sannleika? Þær stöllur Halla Tóm, Halla Hrun & Nato Kata eru jafnan blankar þegar kemur að því að umgangast sannleika. Þeim virðist ómögulegt að segja satt. Á #forseti24 Stöð 2 voru frambjóðendur spurðir hvort þeir ættu hlutabréf. Ég á ekki beint en í einhverju félagi sem á hlutabréf aðallega óskráðum, sagði Halla Tóm nervös og Halla Hrun sagði: Ég á ekki hlutabréf nema þegar ég var krakki. Getur verið í SS ... fimm þúsund gamlar, þegar ég lagði inn lömbin á haustin. Svo brosti hún saklaus. Og Kato Jak sagði frá sínu tíu þúsund króna hlutabréfi í húsi Samtaka herstöðvarandstæðinga, geiflaði sig, baðaði öngum og fór tala um frið!!! Hún minntist á friðarsetrið á Höfða! Kata geiflaði sig, baðaði enn meir öngum fullviss um að þjóðin sé búin að gleyma byssukúlunum sem ríkisstjórn Nato Kötu sendir í stríðsrekstrur. Upplýst er að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur braut Stjórnarskrána. Stöllurnar treysta að þjóðin sé gleymin.
SUNNUNES HÖLLU TÓMU
Viðskiptablaðið hefur sagt okkur frá Sunnunesi ehf. sem Halla Tóm á 50% hlut í. Félagið hagnaðist 53.9 milljónir og átti 240 milljóna eigið fé í árslok 2022. Halla er stjórnarformaður en kveður ...aðkomu að rekstri enga. Hún stjórnarformaðurinn sumsé er alveg tóm þegar kemur að milljónafélaginu. Hún fékk í sinn hlut 200 milljónir af sölu félaga til Símans. Ég á ekki beint, sagði hún og brosti svo fegin þegar orðið var tekið af henni.
ÁLFHEIMAR HÖLLU HRUN
Halla Hrun er heldur ekki á flæðiskeri stödd. Á móti Kristjáni Frey bónda sínum á Halla Hrun 50% hlut í Álfheimum ehf. sem hagnaðist um 43.3 milljónir og átti eigið fé 59 milljónir króna í árslok 2022. Álfheimar eiga í 50Skills. Halla Hrun ætlar að leita að gamla bréfinu í SS, athuga þetta með bréfin og fór að tala um gildi atvinnulífs.
Hvað er þetta með konur & sannleika ...
Athugasemdir
Og höggormurinn mælti við konuna:
Er það satt, að Guð hafi sagt: Þið megið ekki eta af neinu tré í aldingarðinum?
Þá sagði konan við höggorminn:
Af ávöxtum trjánna í aldingarðinum megum við eta, en af ávexti trésins, sem stendur í miðjum aldingarðinum, af honum, sagði Guð, megið þið ekki eta og ekki snerta hann (lygi), ella munuð þið deyja. (Gen. 3:1-3).
Með lygum sínum minna konurnar þrjár óneitanlega á Evu sem gerðist brotleg og það olli syndafalli mannkynsins.
Skyldi ein kvennanna þriggja leiða land vort og þjóð í glötun?
Guðmundur Örn Ragnarsson, 31.5.2024 kl. 15:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.