6.9.2023 | 11:34
Don Quixote međ heimilisfesti í Kópavogi?
Ţađ verđur ekki annađ sagt en vćngstýfđir Blikar hafi klćđst brynju Don Quixote og slegist viđ vindmyllur ţegar kemur ađ Íslandsmótinu í sumar. Sérlega hafa Víkingar fariđ í taugarnar á grćnum Blikum sem ekki nýttu búningsađstöđu í Víkinni á dögunum ţví hún vćri ljóslaus og illa lyktandi, svo sem Gummi Ben upplýsti í Stúkunni á Stöđ 2. Búningsađstađan hefđi veriđ Blikum ósambođin. Blikar hituđu ţví upp í Kópavogi, skiluđu leikskýrslu og mćttu seint í Víkina til ţess ađ ...mótmćla á táknrćnan hátt, segir á heimasíđu Blika. Víkingar unnu ungt og flott liđ Blika 5-3. Blikahöfundur skrifar ađ ...föst leikatriđi heimapilta og mistök dómaratríósins [hafi orđiđ] Blikaliđinu ađ falli ... Einn lítill Víkingur [Danijel Djuric innsk. HH] skorađi mark en hann var svo rangstćđur ađ jafnvel rangeygđustu menn sáu ţađ. Danijel einn efnilegasti leikmađur landsins uppalinn í Kópavogi hefur ţroskast vel undir handleiđslu Arnars ţjálfara.
VETTVANGSKÖNNUN DV
Víkingar svöruđu ekki ađfinnslunum Blika en fréttamađur DV fór í vettvangskönnun í Víkina, kveikti ljós og fann enga vonda lykt. Kári Árnason sagđi í viđtali viđ DV ađ ađstađan í Víkinni ...vćri bara eins og á Laugardalsvelli; strípuđ og old school. Af ţessu tilefni má nefna ađ Víkingar gerđu samninga um hina farsćlu uppbyggingu í Fossvogi fyrir 50 árum og vígđu Víkina áriđ 1991. Sjálfsagt er kominn tími til ađ taka nćstu skref. Spyrja má hvort Blikar sćtti sig viđ búningsklefa Ísfirđinga fari svo ađ Vestri fari upp í Bestu deild eđa hvort Skagamenn hafi endurnýjađ klefa nýlega? Bara spyr.
Óskar Hrafn Blikaţjálfari fór niđrandi orđum um Evrópuárangur Víkinga sem vćri ekki sambćrilegur Blika en ţar er hann sjálfsagt ađ vísa til Evrópusigra Blika á Tre Tenne, Budoconos, Shamrock Rovers og Struga. Ţegar Blikar loks mćttu til leiks tók Óskar ekki í hönd Arnars Víkingsţjálfara, ađ sögn Stöđvar 2. Á trofullum Heimavelli hamingjunnar sáu Blikar Víkinga afhenda Ljósinu, stuđningsamtökum krabbameinssjúkra, ţriggja milljón króna ávísun ágóđa af góđgerđatreyju til minningar um tónlistarmanninn Svavar Pétur Eysteinsson betur ţekktan Prins Póló sem féll frá í september 2022 eftir harđa baráttu viđ krabbamein. Fjölskyldan býr í Fossvogi. Treyjan hafđi selst upp á nokkrum klukkstundum áletruđ Nú! er góđur tími. Kóróna Prinsins er fyrir ofan Víkingsmerkiđ.
HARMAKVEIN AĐ ÁRI?
Blika-höfundur vitnar í Halldór Laxness: Minn herra á aungvan vin. Međ ţremur synjunum KSÍ ađ fresta Víkingsleiknum hafi Blikar skapađ vesen fyrir KSÍ og félög í Bestu deild og gćtir biturđar í skrifum en höfundur kallar ađdraganda leiksins farsa og kveđur Víkinga koma sér í ...einhver kjánaleg sjálfskaparvíti án ţess ađ útskýra nánar. Vandséđ er hvađ hann á viđ. Víkingur er á ţröskuldi Íslandstitils og í úrslitum Bikarsins viđ sterkt liđ KA. Ađ loknum 22 leikjum í Bestu eru Blikar 21 stigi á eftir Víkingi. Hinn bókvísi Bliki hefur svo í hótunum viđ Víkinga: Áhugavert verđ[ur] ađ heyra harmakveinin úr Fossvoginum ţegar ţeir röndóttu verđa hugsanlega í sömu stöđu og viđ eftir ár! Svo mörg voru ţau orđ. Viđ lestur Blikasíđu skilst af hverju Ungmennafélagiđ Breiđablik hefur ekki beđist afsökunar á ummćlum Óskars Blikaţjálfara fyrr í sumar ţess efnis ađ Víkingar séu fávitar og Höskuldur fyrirliđi uppnefndi Víkinga geltandi hunda. Er Don Quixote kominn međ heimilisfesti í Kópavogi?
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.