Guðni veifar hornum Satans

Forsetinn okkar naut sín á þungarokkshátíðinni í Wacken í Þýskalandi þar sem hann veifaði hornum Satans; Devil‘s Horns. Guðni hvatti til þess að öfgaöfl misnoti ekki norrænan sagnaarf í þágu haturs og illsku. Mæli hann manna heilastur. Sannarlega. En af hverju veifar forseti Íslands hornum Satans sem standa fyrir hatur, illsku og upplausn í veröldinni? Hann leggur þumalinn yfir baugfingur og löngutöng svo ekkert fari milli mála um táknmálið. Spyr sá sem ekki veit. Rokksveitin Múr lenti í 4. sæti í Wacken. Hornum Satans óspart veifað hornum Satans en þau ráða ekki málefnum þjóðar svo því sé haldið til haga.

SAKLAUST ROKKMERKI?

Menn kunna að segja að horn Satans séu saklaust rokkmerki. Mynd á fbsíðu minni af pörupiltum veifandi hornum Satans með rauð horn sem höfuðskart var tekin á tónleikum ACDC, svo því sé haldið til haga. Rokkarinn Ronnie James Dio er sagður hafa veifað hornum Satans fyrstur fyrir fjörtíu árum. Tengsl rokks við horn Satans eru einkum tengd Black Sabbath, Kiss og ACDC. George Bush laug um efnavopn Saddams Hussein; Weapons of Mass Destruction. Milljónir saklausra borgara liggja í valnum. Menningarþjóðir Mið-Austurlanda sprengdar á steinöld. Bush gengur enn laus en Julian Assange situr í fangelsi án dóms og laga. Bush veifaði hornum Satans líkt og okkar Guðni Th. Er það ekki merkileg tilviljun?

KATA OKKAR Á MÁLA WHO & WEFaranna

Vesturlönd beita nazistum fyrir sig í Úkraínu þar sem nazistinn Stepan Bandera er þjóðhetja. Fjöldamorð Bandera gengu fram af þýzkum nazistum. Handverksmaður Hitlers í Úkraínu var afi Úrsúlu van der Leyen. Kata okkar er á mála WHO og WEF-aranna í Davos. Alþjóða heilbrigðistofnunin fær brátt alræðisvald yfir íslenskri þjóð án nokkurar umræðu. Allir skulu sprautaðir genabreytandi vaksíni. Dísa okkar afhendir Brussel skattheimtuvald án þess að ræða í ríkisstjórn og allra síst við skipafélögin. Flugfélögin okkar eru enn undir hamri Brussel. Dísa vill tilskipanir skriffinna rétthærri íslenskum lögum. Þúsundir streyma stjórnlaust inn í landið í krafti opinna landamæra. Hvert stefnir Ísland? Útsker Nato með kjarnorkukafbáta í Helguvík. Miðnesheiði er herstöð á ný. Þegar Ísland varð fullveldi hétu forfeður okkar „ævarandi hlutleysi“. Fullveldi hefur verið kastað á haugana. Hver er framtíð íslenskrar þjóðar og menningar með svona leiðtoga?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þú ert ágætur Hallur og mjög fær meira að segja. Þegar þú segir mikilvægasta sannleikann koma glóbalistarnir og kalla þig ónöfnum, en skömmin er þeirra sem svíkja land sitt og þjóð, sem þú gerir aldrei. Verst er að Guðni forseti er bjáni og Davos-peyi. 

Ég er þér svolítið ósammála í þessum pistli en ekki alveg samt. Mér finnst gjörðirnar sýna bezt hvort menn vinna fyrir Satan eða ekki, embættisverkin. Það væri gaman að vita hvað séra Guðmundi Erni finnst um þetta. Hann kemur oft með spaklegar athugasemdir og tilvitnanir úr Biblíunni sem aðeins menn eins og hann muna eftir.

Ég er bara ósammála með þungarokkið, það er bara til gamans gert þetta daður við Satanisma og öll þau tákn. Ég held að það fólk sé ekkert verra en annað fólk.

Hryðjuverkafólkið eru stjórnvöldin sem selja land og þjóð, sem koma óhæfu fólki í embætti og allt eftir því, styðja glóbalista sem eru peningapúkar, og þar er Satan holdi klæddur.

Að vissu leyti hefur þú samt rétt fyrir þér, að þetta fræga fólk eins og Guðni forseti sem daðrar við þungarokk og femínisma og skammast sín ekki fyrir þessi tákn er komið yfir á svörtu hliðina, og skammast sín ekki fyrir það. 

Sjáðu til, menningin hefur allt frá Endurreisninni, Frönsku byltingunni og jafnaðarstefnunni verið daður við Satan. Það er sagan um Evu og eplið, að hlýða uppreisninni gegn Guði. Síðan er spurning hvort fólk fer lengra og alla leið, eða hvort fólk iðrast og sér villu síns vegar.

Eliphas Levi var einn af þeim sem spruttu uppúr frönsku byltingunni, kröfunni um mannréttindi og að maðurinn væri æðri Guði. Hann var prestsmenntaður og varð djákni, snéri sér svo að göldrum og kukli og varð frægur fyrir það. Hann bjó til myndina frægu af Bafómet, (en púkinn Bafómet er talinn tengast Musterisriddurunum, og vera afbökun á Múhameð spámanni mögulega) sem nú er notuð sem fyrirmynd Kölska á myndum af mörgum, og sem Trans-Jesú myndirnar á strætóskýlunum minntu á, því á frægri teikningu Eliphas Levi var kölski sýndur með brjóst og skegg og horn og mörg fleiri slík tákn, tvíkynja vera. Hann skrifaði bækur um þetta og taldi satanisma einhverja frelsun. Enda hefur hann verið hluti af vestrænni menningu æ síðan, og kannski frá upphafi.

Ég á nokkrar bækur eftir Eliphas Levi sem voru þýddar yfir á ensku, keypti þær af forvitni. Hann skrifaði um að þessi tvíkynja vera væri eitthvað framtíðarofurmenni andlegt, með kvenlega og karlmannlega eiginleika í senn. Annars eru bækur hans mjög torskildar og hægt að túlka þær á ólíkan hátt, mikið um táknmál sem er óljóst.

En þungarokkararnir eru í langri röð þeirra sem daðrað hafa við djöfulinn mismikið. 

Blúsarinn Robert Johnson var sagður hafa selt djöflinum sál sína fyrir frægð og frama og færni í tónlistinni, það var á fyrri hluta 20. aldarinnar, þannig að þetta er ekkert nýtt.

En ég held að orð og verk sýni það bezt hver þjónar Satan, ávextir trúarinnar. Cernunnos, sem Satan miðalda var kenndur við, hyrndur guð, hann var upphaflega nokkurskonar Búddah, eða sem tengdist gróðri og dýralífi.

Ingólfur Sigurðsson, 9.8.2023 kl. 18:05

2 Smámynd: Guðrún Bergmann

Menn veifa víða hornunum...

Guðrún Bergmann, 9.8.2023 kl. 19:37

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Yfir 80% sem kjósa á Íslandi kjósa "fjórflokkinn" sem skiptir með sér hverjir stjórna hverru sinni. Á meðan svo er heldur þetta bara áfram og Íslendingar halda áfram að kvarta og kvarta en ekkert breytist!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 9.8.2023 kl. 19:55

4 Smámynd: Skuggfari

Skyldi Satan vera að fríska upp fyrir næstu forsetakosningar?

Skuggfari, 9.8.2023 kl. 21:27

5 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Sigurður I B Guðmundsson segir að yfir 80% kjósenda á Íslandi greiði Fjórflokknum atkvæði sitt í hvert sinn sem kosið er. Flokkurinn skiptir síðan alltaf með sér völdum í landinu að kosningum loknum. Þetta get ég tekið undir.

Stjórnvöld allra landa eru ætíð undir valdi Satans. Það er staðreynd, sem ritningin undirstrikar í Lúkasarguðspjalli 4. kafla, versunum 5-8:

Þá fór hann (Djöfullinn) með hann (Jesús) upp og sýndi honum á augabragði öll ríki veraldar. Og Djöfullinn sagði við Jesú: Þér mun ég gefa allt þetta veldi og dýrð þess því að mér er það í hendur fengið og ég get gefið það hverjum sem ég vil. Ef þú fellur fram og tilbiður mig skal það allt verða þitt.

Jesús svaraði honum: Ritað er: Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og þjóna honum einum.

Tilbeiðsla stjórnvalda á Íslandi, og annarra vestrænna landa, til Satans hefur nú síðustu ár náð nýjum hæðum, eins Hallur Hallsson lýsir svo vel í pistlum sínum, og reyndar fleiri.

En það er ekki eingöngu við stjórnvöld að sakast. Áttatíu prósent þjóðarinnar vill þetta.

Er þetta vont fólk?

Já, þetta er vont fólk.

Allt fólk er vont fólk, nema það hafi tekið við Jesú Kristi sem frelsara sínum.

Í Markúsarguðspjalli 10. kafla versi 18 lýsir Jesús því yfir að enginn maður sé góður nema Guð einn.

Ef Jesús fær inngöngu í hjarta þitt breytist þú úr óvini Guðs yfir í Guðs barn.

Nú stendur yfir hátíðarvika á Íslandi Djöflinum til dýrðar. Hátíðin er nú sú stærsta á Íslandi og lýkur með svo kallaðri Gleðigöngu á laugardag. Fleiri en 80% Íslendinga taka undir og styðja gönguna. Þar er haldið á lofti FAGNAÐARERINDI Satans.

Jesús sagði: Og þú Kapernaum (Sódóma Reykjavík). Verður þú hafin til himins? Nei, til Heljar mun þér steypt verða. Ef gjörst hefðu í Sódómu kraftaverkin, sem gjörðust í þér, þá stæði hún enn í dag. En ég segi yður: Landi Sódómu mun bærilegra á dómsdegi en þér. (Matt. 11:23-24).

Guðmundur Örn Ragnarsson, 9.8.2023 kl. 21:49

6 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hmm...

https://en.wikipedia.org/wiki/Sign_of_the_horns

Allir eru að fæla burt illa anda nema LaVey.

Ásgrímur Hartmannsson, 9.8.2023 kl. 22:35

7 identicon

Bob Dylan skýrði frá því í 60Minutes að hann hefði gert díl við Satan sem hefði fært honum texta & lýrik. Síðar söng Dylan: You got to serve somebody. It may be the Devil or it may be the Lord. You got to serve somebody. Páll postuli sagði að baráttan væri ekki við menn af holdi og blóði heldur drottnara þessa heims, anda illskunnar. Mannkyn sætir árás en þó fyrst og fremst ættkvíslir Ísraels. Þess vegna er atlagan að Íslandi sérstaklega hörð ... Við erum Benjamítar, líkt og Adam Rutherford skýrði frá þegar hann kom 1939 eftir að hafa rannsakað Pýramídann mikla í Giza í 20 ár, fór fyrir breska leiðangrinum.  Píramídinn er Biblían greipt í stein. Ljósið mun koma frá Íslandi, sagði Rutherford. Vonandi verður svo ... 

Hallur Hallsson (IP-tala skráð) 13.8.2023 kl. 11:14

8 Smámynd: Loncexter

Rétt er að Benjamín settist að á íslandi. Það eru viss öfl sem hafa alltaf vitað hvað Benjamin stendur fyrir, og ættu íslendingar því að athuga vel fortíð og sögu þeirra sem hingað koma í ,,viðskiptaerindum"

Loncexter, 13.8.2023 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband