Helför okkar tíðar ... kynlífsþrælkun barna

Mansal; Human-Trafficking er meðal skelfilegustu glæpa sem þrífast í veröldinni. Um 25 milljónir; menn, konur og börn ganga kaupum og sölu víðs vegar um heiminn. Af þeim eru um 65% konur hnepptar þrældóm einkum vændi, yfir 6.2 milljónir kvenna. Börn í kynlífsþrælkun eru 5 milljónir; Child-Sex-Trafficking. Kynlífsþrælkun barna veltir 150 milljörðum dollara; 26.000 milljörðum króna. Árlega er talið að tvær milljónir barna séu hneppt í kynlífsþrælkun. Þessi glæpaiðja er stunduð í skjóli opinna landamæra keyrð áfram af glóbaliztum. Helför okkar tíðar er gegn börnum. Barn er sagt endast 2-3 ár í kynlífsþrælkun, þá er lífi þess lokið.

VILLTA VINSTRIÐ ÞAGGAR & SKAMMAST

Þann 4. júlí á þjóðhátíðardag Bandaríkjanna var kvikmyndin Sound of Freedom; Söngur Frelsis frumsýnd. Myndin fjallar um svaðilför Tim Ballard til að bjarga börnum í frumskógum S-Ameríku.  Myndin var tilbúin 2018 en þá eignaðist Walt Disney Company réttinn og stakk myndinni undir teppi. Angel Studios eignast réttinn í mars síðastliðnum og beið ekki boðanna að koma myndinni til fólksins. Fólk streymir í bíó, tekjur 100+ milljónir dollara. Myndin er þögguð af falsmiðlum. CNN skammast út í myndina, svo og vinstra flaggskipið Guardian sem kveður börnin sem Ballard bjargar vera með skítug andlit; Dirty-Faced-Moppets. Guardian blandar pólitík inn í þjáningu barna? Flaggskip feminista, Jezebel vefsíðan kallar myndina fantasíu; QAnon-fantasíu. Flaggskip feminsta kennir sig við drottninguna Jezebel sem var uppi á 10. öld fyrir Krist í norðurríki Ísraels. Jezebel ofsótti presta Drottins Ísraels og setti Braalpresta í staðinn. Jezebel dýrkaði guðinn Baal en börnum var fórnað á altari Baal. Spyrjið: Af hverju skammast villta vinstrið út í afhjúpun kynlífsþrælskunar barna og vændisþrælkun kvenna? Nú er stríð í Úkraínu. Börn hafa verið aflífuð og líffærin seld.

FORSETI Í MIÐJU STORMSINS 

Við upplifum helför barna á 21. öld. Örlög þeirra eru þögguð líkt og nazistar þögguðu helför gyðinga. Úkraína er miðstöð stofnfrumulækninga í veröldinni. Ég hef sagt ykkur frá börnunum sem voru tekin frá mæðrum í Kharkív. Ég hef sagt ykkur frá ályktun Evrópuráðsins. Ég hef sagt ykkur frá þöggun Brussel. Joe Biden er í miðju stormsins. New York Post hefur afhjúpað bæði Laptop-from-Hell og flutning barna í þrælkun. Bandaríkin eru miðstöð kynlífsþrælkunar barna, þau koma 3-4-5 ára með merkiband og níðingar sækja þau. Af hverju segja falsmiðlar okkar ekki frá Söng Frelsis; Sound of Freedom. Af hverju er myndin ekki í bíó? Ég ræddi kynlífsþrælkun barna á Útvarpi Sögu á þriðjudag, læt linkinn fylgja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þetta er ógeðslegt Hallur og er þá vægt til orða tekið. Þau saklausustu af mannkyninu líða af hendi hinna ógeðfelldustu sem til er, en þar á meðal er frægt fólk, "stjörnur" af ýmsu tagi, fólk í stjórnmálum sem hylma yfir ógeðinu og láta sem ekkert sé, dettur ekki í hug að láta til sín taka eða að tala um vandann.

Það er eins og börnin, sem eru framtíð mannkynsins, séu fyrir þeim sem öllu og öllum vilja stjórna en það má nota líffæri og efni úr líkömum þeirra í þeirra eigin þarfir og kasta síðan á haugana. Að það skuli vera til fólk sem þannig gengur fram sýnir okkur að höfðingi þessa heims er djöfullinn, en hann vill eyða og deyða sköpun Guðs. En við vitum sem er að Drottinn Jesús mun að lokum koma og mun Hann dæma mennina eftir verkum þeirra.

Megi Guð frelsa íslensku þjóðina á þessum voðalegu tímum sem við lifum á.

Tómas Ibsen Halldórsson, 20.7.2023 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband