13.5.2023 | 15:06
Úkranísering Íslands ... Hervæðing Íslands
Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Reykjavík eftir helgina í boði Katrínar og Þórdísar. Fundurinn er haldinn í skugga þriðju heimsstyrjaldarinnar. Kata og Dísa einar vita hvort leikarinn Zelinskyy mætir á svæðið en hann er í páfagarði um helgina. Honum var hafnað að ávarpa Eurovision og þar áður Óskarinn en stendur til boða að ávarpa elítu Evrópu. Þetta er í fjórða sinn í 74 ára sögu ráðsins sem leiðtogar ráðsins koma saman. Mun nokkur evrópskur leiðtogi tala fyrir friði? Munu allir kyrja: Úkraína verður að vinna! Stjórnarráðið segir að grunngildi Evrópuráðsins verði áréttuð sem séu mannréttindi og lýðræði ásamt stuðningi við Úkraníu. Í Úkraínu er stjórnarandstaða bönnuð, stjórnandstæðingar fangelsaðir og drepnir, fjölmiðlar bannaðir og ritskoðaðir, stjórnvöld hafa frá 2014 farið með stríði á hendur rússneskumælandi þegnum með azov-nazista í fremstu víglínu, fólki bannað að mæla á þjóðtungur aðrar en úkraínskar ásamt trúarofsóknum á hendur orthódox fólki, kirkjur þeirra brenndar. Þeirra börn munu hírast í kjöllurum, hótaði Podorovski forseti 2014. Til hvers voru 46 amerískar sýklasmiðjur í Úkraínu? Þetta er fasismi. Allt þetta gætu ríkis- og ríkramiðlar með rúv á 1. bekk staðreynt ef þeir hristu af sér framvarðastimpil ríkisáróðurs og leituðu sannleika í stað að flytja ríkisáróður um styrjaldir og plágur. We finally meet, sagði alsæl Kata í Kænugarði og faðmaði Zel.
HATURSFRUMVARP & TILSKIPANIR ÆÐRI LÖGUM
Frumvarp Kötu um hatursorðræðu sem skerðir mannréttindi er sagt teljast til evrópskra grunngilda. Frumvarp Dísu að tilskipanir kómizara í Brussel skuli æðri íslenskum lögum telst til evrópskra grunngilda. Endir verður bundinn á íslenskt fullveldi tæpri öld eftir að það vannst árið 1918 þegar þjóðin hét ævarandi hlutleysi eftir hildarleikinn mikla. Evrópa er ekki samfélag lýðræðisríkja heldur klíkustjórn í Brussel. Klíka þessi stefnir að lama alþjóðaflug á Keflavíkurflugvelli. Til hvers að lama tengiflug Íslands milli Evrópu og Ameríku? Veltið því fyrir ykkur. Kef-Airport herflugvöllur undir stjórn Nato? Kolefnisgjald Brussel þýðir gjaldþrot Icelandair, Play og íslenskrar ferðaþjónustu. Trúir fólk að Ursula [Albrect] van der Leyen hafi hagsmuni Íslands í huga? Eru Íslendingar að láta teyma sig líkt og sauði fram af Svörtuloftum?
Hvaða tilgangi á gamla Atómstöðin að þjóna í evrópsku stórríki? Af hverju yfirbýður Kata flóttamenn? Af hverju hafa Kata, BjarniBen og SigIngi opnað landamærin meðan Norðurlönd stíga á bremsur? Hvort hafa þau eigin heimili sín læst eða opin? Nú keyra strætisvagnar um landið merktir Glory-to-Ukraine með fólk kyrjandi dýrð sé Úkraínu. Á hvað minnir það? Þjóðhetja Úkraínu samtímans er nazistinn Stephan Bandera 1909-1959. Úrsúla sækir í reynslu afa Karls Albrecht í Úkraínu 1941-43. Hvað segir það? Sléttum níu árum eftir að 48 Rússar voru brenndir inni í Alþýðuhúsinu í Odessa var Dísa þar í sólinni faðmandi Dmitry Kuleba utanríkisráðherra. Dmitry tvítaði í vikunni um símtal frá kollega: ... Dmitry. Ég ræddi við vandræðaland og sagði að Úkraína ákveði hvaða þjóðir tilheyri siðmenntuðum þjóðum og hverjar ekki . Nú hef ég ekki hugmynd um hvaða ráðherra ávarpaði Dmitry en ekki Mr. Kuleba. Eru Færeyjar vandræðaland?
Þær stöllur hafa gefið Nato lausan tauminn á Keflavíkurflugvelli, herþotur eru undir vökulum augum vopnaðra nato-hermanna og Helguvík kjarnorkukafbátalægi. Hervæðing Íslands er í yfirgír; íslenskur her á teikniborði, leyniþjónusta ríkislögreglustjóra undir vökulu auga Þjóðaröryggisráðs. Mun Nato í linnulausri útþenslu fagna flotastöð í Finnafirði á Langanesi? Stöðvar hervæðing siglingar kaupskipa á Norðurslóðum? Finnafjörður yrð viðbót við flotalægi í N-Noregi. Nú þegar eru fjórar herstöðvar í Noregi sem heyra ekki undir norsk lög. Amerískar herstöðvar í Finnlandi er á teikniborði. Af hverju vinna Kata og Dísa ötullega að því að breyta Íslandi í Atómstöð á Norðurslóðum? Er sýn Halldórs Laxness að rætast. Af hverju vinnur Ísland að hervæðingu Norðurslóða. Íhugaðu orð og gjörðir. Hervæðing Evrópu er í yfirgír. Hvaða framtíð er börnum okkar búin?
KANSLARINN SAMÞYKKTI ÁRÁS Á ÞÝSKU ÞJÓÐINA
Hryðjuverk Bandaríkjanna og Noregs á gasleiðslum Nord Stream var Act-of-War. Það var árás á þýsku þjóðina, evrópsk og rússnesk fyrirtæki, hryðjuverk framið fyrir tæpum 8 mánuðum. Gas margfaldaðist í verði í Evrópu. Nord Stream er mesta mengunarhryðjuverk sögunnar. Hryðjuverk Biden var með samþykki Olav Scholz kanslara. Norðmenn voru þátttakendur 62 árum eftir innrás nazista. Danir sáu allt frá nýju Nato ratsjárstöðinni á Borgundarhólmi, kafarar komu frá Stokkhólmi á Baltop22 flotaæfinguna. Gassala Dana og Norðmanna rauk upp. Hvað vissu Kata og Dísu um flug P18 ratsjárþotu frá Keflavíkurflugvelli sem sveimaði yfir gasleiðslunum í Eystrasalti í meir en sex stundir árásarnóttina. Í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafa Vesturveldin komið í veg fyrir alþjóðlega rannsókn á hryðuverkinu. Spyrjið: Af hverju? Nú íhugar Washington að sprengja hálfleiðara-smiðjur Taivans; semi-conductor plants tölvubransans og rústa eyjunni. Þetta hefur reitt Taivana til reiði enda ankeri taivansks efnahags og trilljarða dollara bísniss. Bandaríkin eru helsta hryðjuverkaríki veraldar. Allt þetta er í boði vestræns hergagnabransa; Military-Industrial-Complex sem fer með stríði vítt og breitt um veröldina. Rikki ríki sem Bretar ekki kusu til embættis hefur sent eiturspúandi úraníum skriðdreka á austurvígstöðvarnar og langdrægar stormeldflaugar; storm shadow til árása á Rússland. Bretar eru í stríði við Rússland og líkt og við verða skotmark í Heimsstríði. III Vesturveldin heimta gagnsókn úkrana niður Krímskaga. Pentagonlekinn upplýsti áform um gagnsókn frá Zaporizhzhia sem á að splitta rússneskan herafla. Hvað verður um stærsta kjarnorkuver Evrópu í Zaporizhzhia í Donbass? Rússneskir íbúar Donbass skulu þvingaðir og ofsóttir í evrópsku stórríki á forsendum evrópskra gilda. Hversu galið er þetta?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.