1.1.2023 | 16:38
Albert, Óli Björn & ég
Albert Jónsson og Óli Björn Kárason eru gamlir samstarfsfélagar mínir og vinir. Við Óli Björn unnum saman á Morgunblaðinu fyrir næstum fjörtíu árum og aftur árið 2003 þegar Óli Björn þá ritstjóri DV fékk mig til að leiða umbreytingu blaðsins. DV fékk nýtt nútímalegt útlit. Þá hins vegar urðu þau tíðindi að Landsbanki Björgólfsfeðga seldi DV Dablaðið Vísi í hendur Baugsveldi Jón Ásgeirs sem safnaði fjölmiðlum eins og nærbuxum. Þann 1.nóvember 2003 var tilkynnt um brotthvarf Óla Björns af DV.
Við Albert vorum saman á Sjónvarpinu á umbrotatímum. Albert kom til starfa á Sjónvarpið skömmu eftir fund Reagans og Garbatsjovs í Höfða í október 1986, fjölfróður um utanríkismál, ráðgjafi Davíðs Oddssonar í utanríkismálum alla hans forsætisráðherratíð og utanríkisráðuneytinu, síðar sendiherra í Washington, Moskvu og víðar.
Ég ber mikla virðingu fyrir þessum vinum mínum. Báðir hafa tjáð sig undanfarna daga um atburði í Úkraínu í Morgunblaðinu. Það er sannarlega erfitt að átta sig á gangi stríðsins en sú mynd sem þeir draga upp er á skjön við mína vitneskju. Albert kallar Rússa pappírsbjörn sem hafi tapað miklu landi eftir innrásina fyrir 10 mánuðum. Rússar hafi grafið sig niður í Donbass. Rússneski herinn hafi misst allt að 100 þúsund manns. Albert telur að Vesturlönd hafi ekki tekið nógu hart á Rússum við innlimun Krímskaga. Rússar hafi talið sig geta klárað málið hratt að mati Alberts en séu í krappri vörn. Ósigra rússneska hersins megi rekja til spillingar og vanhæfni. Óli Björn er harðorður í garð Rússa, lýsir Zelenskí forseta sem kyndilbera frelsis sem gangi á hólm við illsku. Framganga Zelinskí veiti unnendum frelsis innblástur; hernám einnar þjóðar rýri frelsi annarra. Ef Úkraína falli verði sólin á himni þínum daufari. Pútín sé meðal illmenna sögunnar. Sagan að sjálfsögðu mun dæma.
VALDARÁNIÐ 2014
Vinum mínum hlýtur að vera kunnugt um rætur valdaránsins í Kænugarði 2014 þegar öfgaöfl voru leidd til valda af Obama og Biden, hroðaleg morð framin í Kænugarði og Odessa. Nazísk öfl tóku yfir Kænugarð. Azov-nazistar urðu deild í úkraínska hernum, ásamt fleiri fasískum öfgaöflum. Rússneska var bönnuð í A-Úkraínu. Til varð Úkrnazía. Íbúar A-Úkraínu lýstu yfir sjálfstjórn eftir þjóðaratkvæðagreiðslur. Krímskagi fór á ný undir Rússland eftir þjóðaratkvæði. Íbúar Úkraínu eru að helmingi landsvæða rússnesku mælandi. Er það fólk réttlaust? Sjokkerandi var haturstónn öldungaþingmannanna John McCain og Lindsey Graham í útjaðri Mariepol síðla árs 2016 lofandi vopnum og dollurum. Herför Kænugarðs gegn rússnesku fólki í Donbass stóð þá yfir, borgir sættu linnulausum sprengjuárásum, á milli 15-20 þúsund Rússar féllu í þjóðernishreinsunum í A-Úkraínu fram að innrás Rússa. Um þrjár milljónir hafa flúið til Rússlands, allt að fimm milljónir hafa verið nefndar.
Það er engin úkraínsk þjóð í A-Úkraínu, yfirgnæfandi Rússar. Stalín innlimaði V-Úkraínu þar sem er Lviv eftir griðasamninginn við Hitler. Í Úkraínu berjast slavneskir bræður. Það væri sem danir, norðmenn og svíar í stríði. Azov-nazistar í fremstu víglínu sprengdu borgir A-Úkraínu og frömdu stríðsglæpi eins og nazista er siður. Vinir mínir vita auðvitað að Zelinskí hefur afnumið málfrelsi, bannað stjórnmálaflokka, drepið og ofsótt pólitíska andstæðinga, ofsótt rússneska orthodox kirkju. Vinir mínir hljóta að þekkja til peningaþvættis FTX Bankmans og Zelinskí klíkunnar til Biden, demókrata og hreytur til repúblikana. Allt er þetta skjalfest. Sama munstur og stríðshráðum ríkjum múslima. Fyrir rúmum áratug upplýsti Julian Assange um peningaþvætti Endalausra styrjalda. Af hverju halda menn að Obama, Biden og Zelinskí búi sem auðkýfingar?
HVAÐ VILL NATO Í AUSTURVEGI?
Hvað vill Nato í Úkraínu? er spurning sem ekki má spyrja. Er ekki Úkraína fjarri Atlantshafinu sem Nato er kennt við? Skoðanir vina minna eru í takti við ríkjandi skoðanir í 101 metrópólum Vesturlanda þar sem ein ríkisskoðun ræður stýrð af vestrænum samfélags- & fjölmiðlum í ríkiseigu og ofsaríkra eigenda hermaskínu og lyfjarisa beggja vegna Atlantsála. Þetta er bandalag auðmagns, neo-cons og sósíalista að hætti nazista Hitlers. Stríðið í Úkraínu er afleiðing útþenslu Nato austur á bóginn, svikin loforð gefin Gorbatsjov. Stríðið er amerískt/evrópskt proxy-stríð gegn Rússlandi þar sem úkraínsku blóði er fórnað á altari útþenslu Nato. Blóðbaðið má ekki nefna.
Ursula van der Leyen æðsti kómizar Brussel missti útúr sér á dögunum að 100 þúsund úkraínskir hermenn séu fallnir. Ritskoðarar voru fljótir að þurrka út ummælin sem eru í takt við mat herforingjanna Scott Ritter og Douglas Macgregor sem fullyrða að úkraínski herinn sé óvígur; 100 þúsund séu fallnir, tvö hundruð þúsund óvígir, vígtólum gereytt. Eftir að fréttir bárust af gereyðingu úkraínska hersins snéri Mark Malley yfirherforingi þeim yfir á rússneska herinn á fundi með ofsaríkum Wall Street verðbréfa-guttum. Vesturlönd eru búin að dæla að minnsta kosti 120 milljörðum dollara í Úkraínu; fimm þúsund milljörðum. Sannarlega er erfitt að átta sig á gangi mála undir það skal tekið með Alberti. Azov-nazistar biðu ósigur í Mariepol, höfðu hreiðrað um sig í kjallara verksmiðju ásamt vestrænum herforingjum og málaliðum. Bandarískar hersveitir eru sagðar í Úkraínu, vestrænir málaliðar undir vopnum. Hafa vestrænir fjölmiðlar sagt frá því eða endurbyggingu Mariepol? Meira síðar um stríðið.
Athugasemdir
Gleðilegt ár Hallur
Einar S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 2.1.2023 kl. 12:01
Hroki fer þér illa, kæri Einar, hroki bróðir fáfræði. Ekki sakar að þú kynnir þér málavöxtu og nazíska fortíð öfgaafla í Austurvegi ... Valdaránið 2014 hefur verið dokumenterað af fjölmörgum flottum blaðamönnum ... Undarlegt að draga Pál Vilhjálmsson inn í þessa dapurlegu orðræðu þína. Að þú þekkir ekki til Biden-feðga í Úkraínu segir allt sem segja þarf um þig; Tölvu frá Helvíti - Laptop from Hell. Þú virðist ekki þekkja til peningaþvættis í Úkraínu ... Var ekki Zelenskí í Washington á dögunum; stríð er öryggi!!! orwellska Zelenskí fór um allan heim. Ég legg til að þú kynnir þér vel starfsemi Crypto FTX guttans Bankman í Úkraínu ásamt fjárstreymi til Biden & Demókrata ... já, og endilega gang stríðsins. Ætla má að RÚV sé eina heimild þín ... Vertu marktækur, kæri Einar ...
Hallur Hallsson, 2.1.2023 kl. 21:07
Hallur.Þetta Biden Úkraínu kjaftæði eru samsæriskenningar.Þarftu sannanir með tilvitnun í heimildir? Gjörðu svo vel https://en.wikipedia.org/wiki/Biden%E2%80%93Ukraine_conspiracy_theory
Helgi (IP-tala skráð) 7.1.2023 kl. 22:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.