23.8.2025 | 22:22
Óli Hauks biður fisk um að drekkja sér ...
Í aðdraganda Covid árið 2020 fékk ég símtal frá gömlum kollega, Ólafi Haukssyni almannatengli. Óli færði mér þau tíðindi að ég væri rekinn úr fb-nethópi blaðamanna af því ég væri hvass. Mér var sparkað úr fb-hópnum. Rödd mín var þögguð meðal blaðamanna, þar sem bara ein skoðun er leyfð eins og fólk veit. Rógsherferðin mikla gegn mér hafði hafist eftir grein mína í Mogganum í janúar 2019: Atlagan að vestrænni siðmenningu. Þá kom skæðadrífa svívrðinga og ég var lýstur geðveikur, takk fyrir. Dagblaðið sem ég átti þátt að stofna - 1975 - tók að sér skítverkin. Þá urðu alger skil milli mín og félaga í Blaðamannafélagi Íslands. Ég varð persona non grata í íslenskum fjölmiðlum. Ég hafði nefnt Soros og plön glóbalizta að skipta um þjóðir.
EINANGRUN Í GRÍMSEY
Samtal mitt við Óla Hauks var stutt. Þegar Covid hellist yfir heimsbyggðina var Óli undarlega áhugasamur að smala fólki í sprautur. Hann kvað óbólusetta andsetna, forherta af hjarðheimsku. Áhrifaríkara væri að biðja fisk um að drekkja sér en tjónka við hyskið. Óli vildi einangra óbólusetta. Þetta var í janúar 2022. Ummæli Óla voru á pari við Kára Stefánssonar í ágúst 2021 sem vildi einangra óbólusetta í Grímsey. Kári veit hvað hann syngur, sagði Vísir sem stendur vörð um hagsmuni hinna ríku og voldugu. Jakob Bjarnar Grétarsson sagði á Bylgjunni: Látið bólusetja ykkur, kjánarnir mínir. Snoturt eða hitt þá heldur ekki satt? Óli Hauks lýsti forseta Bandaríkjanna sem fáráð eftir að Trump og Pútin hittust í Alaska. Hver er sök Trump? Jú, Trump krefst friðar. Óli Hauks almannatengill er með allt á hreinu er lýtur að plágum og styrjöldum ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)