Lögleiðir Ísland misrétti sem Hæstiréttur USA hefur dæmt ólöglegt ...

Dagana sem íslensk transsendinefnd kynsegin fólks var í Washington DC dæmdi Hæstiréttur Bandarikjanna 9-0 að “...öfug mismunun gangi gegn Stjórnarskrá USA. Rétturinn dæmdi gagnkynhneigðri konu í vil í máli Ames vs. Ohio Department of Youth Services. Ólöglegt var að mismuna henni sem “... hvítri og gagnkynhneigðri konu ... á kostnað minnihlutahópa í þessu tilviki LGBTQ-fólki. Mannréttindi eru veitt einstaklingum ekki hópum. Borgaralögin frá 1964; Civil Rights Act of 1964 um jákvæða mismunun brjóta gegn Stjórnarskrá Bandaríkjanna. Framvegis verður ólöglegt að mismuna fólki á grundvelli “...kynþáttar, litarhafts, trúar, kyns eða þjóðernis.“ Hóphyggja hefur orðið fyrir þungu höggi. Dómur Hæstaréttar Bandaríkjanna kemur í kjölfar dóms Hæstaréttur Bretlands sem dæmdi að “...transkonur eru ekki líffræðilegar konur. Þar féll helsta vígi transvókisma þó þessum sannindum hafi ekki skolað til Íslands né ef út í það er farið til Brussel.
 
BABELSTURNAR & HÓPHYGGJAHæ
Ráðstýran Hanna Katrín Friðriksson heldur því fram að svokallað bakslag transisma sé vegna skorts á íslenskri lagasetningu þar sem Ameríka sé ekki lengur "öruggt ríki" því Trump viðurkenni ekki nema tvö kyn. “....Hanna Katrín ætlar sér að setja lög um skoðanir fólks,“ skrifar Páll Vilhjálmsson bloggari. Glóbaliztar neita að trúa að kynin séu bara tvö. Þeir minna mig á sögu Mósebókar 11:1-11 þegar var eitt tungumál í Babýloníu. Mennirnir hófu að reisa Babelsturn til himna. Drottinn kom niður til jarðar, tvístraði, dreifði mönnum um jörðina og ruglaði þjóðtungum. Nú hafa glóbaliztar reist Babelsturn í Strassbourg, stefna á eitt tungumál og jafnmörg kyn sem menn geta talið.
 
MISMUNUN HVÍTRA & GAGNKYNHEIGÐRA ÓLÖGLEG Í USA
Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi einróma að “...öfug mismunun“ gangi gegn Stjórnarskrá USA. Rétturinn dæmdi Merlean Ames í vil um að gengið hafi verið gegn Stjórnarskrárrétti hennar. Henni var neitað um stöðuhækkun og lækkuð í starfi á kostnað LGBTQ-fólki. Þessi dómur hefur vakið mikla athygli vestanhafs. Ames hafði tapað máli sínu fyrir héraðsdómstól ásamt áfrýjun til Sjötta Umdæmisdómstóls; Sixth Circuit Court.
 
GAGNKYNHEIGÐ KONA & TVÆR LESÍBÍUR
Dómstólar höfðu áður dæmt löglegt að mismuna fólki tilheyrandi meirihluta; hvítum og gagnkynheigðum körlum og konum. Það þurfti að ekki sanna mismunun "einstaklinga" aðeins "hópa". Árið 2019 hafði Ames sótt um stöðu deildarstjóra en var hafnað ásamt tveimur lesbíum sem var synjað um starf. Átta mánuðum síðar var önnur lesbían ráðin. Ames var gefinn kostur á stöðulækkun eða segja upp. Hún kaus stöðulækkun og fór síðan í mál gegn fylkinu sem hún hefur unnið.
 
BORGARALÖGIN FRÁ 1964, TRANS-VÓK & HÆLISLEITENDUR
Borgaralögin frá 1964 voru samþykkt í kjölfar misréttis í garð svartra og morðsins á John F. Kennedy 1963. Lögin gerðu það að verkum að “...minnihlutahópar“  urðu rétthærri í bandarísku þjóðfélagi.Í framhaldi varð LBGTQ-fólk rétthærra gagnkynhneigðu fólki. Síðar urðu ólöglegir sem löglegir hælisleitendur rétthæri íbúum Bandaríkjanna, Evrópu og Íslands. Nú er svo komið að Íslendingar, líkt og Evrópubúar horfa fram á gereyðingu þjóða. Fullyrða má að “...hvítum og gagnkynhneigðum“ Íslendingum sé mismunuð, neitað um störf á kostnað gæða og hnignun tekið yfir land & þjóð.

Bloggfærslur 9. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband