25.6.2025 | 15:44
Vígvellir Úkraínu bíða íslenskra ungmenna ... Höfnum styrjöld þeirra
Frostrós og Togga hafa samþykkt 230 milljarða króna árleg herútgjöld til stríðsrekstrar Nato í Úkraínu og Rússlandi. Mark Rutte stríðsherra Nato skýrði Donald Trump frá þessu í gærkvöldi í tölvupósti sem Bandaríkjaforseti hefur opinberað.
Það var ekki auðvelt en VIÐ höfum fengið ÞAU ÖLL til þess að samþykkja 5%, montar Rutte sig. Þetta er annars vegar 3.5% til styrjaldareksturs og 1.5% hernaðarinnviða. Nú vitið þið hvað gerst hefur að baki luktum dyrum í Haag. Enginn spurður. Allir leiðtogar Nato hafa gefið vilyrði fyrir 5% herútgjöldum.
ÍSLAND EKKI Í ÞÁGU ÍSLENDINGA
Verg landsframleiðsla GDP er 4.600 milljarðar króna; fjögur þúsund og sex hundruð milljarðar. Fimm prósent eru 230 milljarðar; kr.230.000.000.000.- á ári. Í hælisleitendur renna +-kr.100.000.000.000.- falin útgjöld á ári. Hver samþykkti að Íslendingar séu 2rs flokks í eigin landi? Það eru +-kr.50.000.000.000 í græn afgjöld til Brussel. Miklu meira falið fyrir mér og þér. Pólitíkin rænir Ísland og flytur þjóðarauðinn úr landi líkt og Danir forðum. Aðild að ESB, bókun 35 fyrir bruzzelskar tilskipanir, "...aðlögun að hernaðararmi ESB." Fiskimiðin til Brussel, sæstrengir flytja orkuna yfir hafið. Ísland EKKI fyrir Íslendinga.
VÍGVELLIR BÍÐA UNGMENNA OKKAR
Nato er á leið í allsherjarstríð við Rússland eftir fimm ár; árið 2030. Myrkur Stríðs & Dauða Váfuglsins vomir yfir Evrópu. Áttar fólk sig á skelfingunni? Útþensla Nato rímar við lífsrými; lebensraum Hitlers fyrir níutíu árum. Hvað er gert ráð fyrir að mörg +/-20 ára íslensk ungmenni falli á vígvöllum fjarri ströndum? Fimm hundruð ungmenni í kistum til baka frá Kyiv? Líkt og Ísland mun Ameríka senda hermenn; Boots on the Ground. Þau bíða eftir að Trump láti af embætti 2029 ... Ef "vel gengur" jafnvel fyrr!
FAZÍSKT LÖGREGLURÍKI
Rutte segir að aðild Úkraínu í Nato sé óhjákvæmileg. Zelinsky er í Haag. Kôk-Zel hefur komið á fazísku lögregluríki eltandi uppi ungmenni í strið. Embættistíð Kôk-Zel rann út í maí 2024. Svona er lýðræði þeirra. Der Leyen hefur enginn kosið ALDREI. 2021-2025 var Leyen leidd af senílu gamalmenni. Leyen bíður þess að Trump hverfi af sviðinu. Frostrós & Trump hittust í Haag. Togga hikstar á hótelherbergjum; vígvæðumst, vígvæðumst rymur hún óðamála á lygaveitum ríkisns sminkuð eins og unglingstelpa. Endurtók hún svívirðingarnar í garð gula karlsins?
Landráð, klár brot á Stjórnarskrá Íslands. Aldrei í sögu Íslands hafa landsmenn lifað aðra eins vátíð ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)