13.6.2025 | 07:23
Sjöunda ríkið er Íran ...
Íran er 7da ríkið. Nú er tæpur aldarfjórðungur síðan "Endalausar styrjaldir" hófust með 9/11 og Afganistan 2001. Það eru 22 ár síðan Wesley Clark hershöfðingi sá áformin um árásir á ríkin sjö. Það var í Pentagon í tíð Bush/Rumsfeld.
Árið var 2003. Fólk man gereyðingavopnin í Írak; "Weapons of Mass Destruction" sem aldrei fundust. Hin ríkin á listanum voru Líbanon, Lýbía, Súdan, Sýrland, Sómalía & nú Íran. Allt úr smiðju Nethanyau sem hafði verið sendiherra í Washington. Obama/Biden mögnuðu stríðin 2008-2016. Obama voru veitt friðarverðlaun Nóbels. Fólk man hatrið í garð Saddam Hussein í Írak, hatrið í garð Gaddafi í Lýbíu og Assad í Sýrlandi.
Öll þessi ríki voru sprengd á "steinöld". Milljónir eru fallnar. Við fengum milljónir á milljónir flóttamanna. Árið 1999 voru loftárásirnar á orthódox Serbíu í tíð Clinton. Belgrad var sprengd í 78 loftárásum. Árið 2000 lagði Pútin til Nato-aðild Rússlands. Hermaskínan og Clinton höfðu önnur áform.
ÚKRAÍNA 2014-2025
Svo kom orthódox Úkraína, yfirlýsingin í Búkarest 2008 um Georgíu og Úkraínu í Nato. Valdaránið í Kyiv 2014 og stríðið í A-Úkraínu á hendur rússneskum íbúum landsins 2014-2022. Þá stríðið 2022-25 þegar Rússar fóru inn í Úkraínu. Eini munurinn er að í stað þess að sprengja varnarlausar þjóðir, er Nato að tapa proxy-stríðinu gegn Rússlandi. Evrópa reigir sig eins og hani. Nú er Pútin hataður.
KENNEDY & VÍETNAM
Í janúar 1961 varaði Dwight Eisenhower forseti landa sína við hermaskínunni; Military Industrial Complex. John F. Kennedy forseti var skotinn til bana á götu í Dallas, Texas 23. nóvember 1963. Það var valdarán í beinni útsendingu frammi fyrir bandarísku þjóðinni. Lyndon Johnson varð forseti og lýsti yfir stríði á hendur N-Víetnam fyrir að ráðast á amerískan tundurspilli á Tonkin-flóa. Það var í ágúst 1964. Það tók 40 ár að afhjúpa þá lygi.
TILRÆÐIÐ Í BUTLER & CNN
Nú er Trump forseti. Trump var sýnt banatilræði í Butler Pennsylvaníu 13. júlí 2024. Það var í beinni útsendingu en guli karlinn vék sér undan kúlunni!!!
Nú er stríð í Íran. Ekkert breytist nema Ísrael gerir árásirnar. Það er stríð í Gasa. Trump heimsótti ekki Ísrael á ferð sinni um Persaflóa á dögunum. Okkur er sagt að Ísrael sé að koma í veg fyrir "kjarnorkuáætlun" Írana. Var kjarnorkusprengja í þessu fjölbýlishúsi?
Er USA sjálfstætt ríki? ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)