Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar ...

Nýr forsætisráðherra Kanada Mark Carney [1965-] er wefari; “You Own Nothing and Be Happy.“ Carney og Frostrós eiga bakgrunn í alþjóðlegum stórbönkum. Bæði komu þau fljúgandi sem frelsandi englar til pólitískra vinstriflokka í vegvillum; frjálslyndir rúnir trausti, samylking rúin trausti. Þau eru wefarar hinna ofsaríku. Carney fór í Englandsbanka, Frostrós í Kviku+100M. Þau þjóna fjármagni hinna ríku á tímum rafrænna viðskipta án seðla og allt undir kontról. Andóf afgreiðist með "delete".
 
Í bókinni “Value(s); Building a Better World for All“ má fræðast um hugsjónir Carney. Endurstillingin Mikla eða Great Reset wefaranna í Davos er hans ær & kýr. Hann heldur því fram að vestræn samfélög séu rotin, spillt af kapitalisma sem hafi þróast í “markaðssamfélag; marketing society“ sem ákveði verð á öllu. Ríkisvald mixað viðskiptum (að hætti DagsBé og BjarnaBen). Carney á ríkidæmi í skattaskjólum. Þú og ég erum og verðum leiguliðar. Carney stendur fyrir marxisma, vókisma, minna flug, minna kjöt í maga, óseljanlega dísilbíla. Hann stendur fyrir Núll-Kolefnisspor; Net-Zero sem tekur CO² frá plöntum sem dregur úr súrefni til mannfólks. Carney viðrar kvóta á barneignir. Ríkissölu á undanþágu herþjónustu.
 
KANADA LIFIR SNÍKJULÍFI Á AMERÍKU
Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku; "parasite on America." Kanada leggur ofurtolla á bandaríska vöru en Bandaríkin enga tolla á kanadíska vöru. Bandaríkin sjá um varnir Kanada í praxís. Kanada er ekki sjálfbært ríki. Þannig “lekur“ bandarískt fjármagn til Kanada; 200$Billion á ári; IsKr. 26.000.000.000.000.-. Tuttugu og sex þúsund milljarðar er dágóð upphæð, ef mér skjátlast ekki.
 
ÚRSÖGN ALBERTA ÚR KANADA?
Í hinu ríka Albertaríki í Kanada er öflug hreyfing sem vill sameinast USA. Hugmyndir um atkvæðagreiðslu 2026 hafa verið viðraðar af fylkisstjóranum. Um 40% vilja aðskilnað. Andófshreyfingin í landinu er þegar sterk, saman ber trukkabílstjórana í covid. Skattar og vöruverð allt mun hærra norðan landamæra. Í Bandaríkjunum hafa skattar verið aflagðir af yfirvinnu, þjórfé, ellilífeyri og örkuorkubótum; “social security.“ Nú eru viðraðar hugmyndir um afnám tekjuskatts. Rætt er um stofnun External Revenue. Tollar færa Ameríku nú þegar milljarða dollara í tekjur hvern einasta dag. Talað er um að leggja af Internal Revenue Service; Skattinn.
 
HVAÐ EF AMERÍKA LEGGUR AF TEKJUSKATT ...
Ef Ameríka leggur af tekjuskatt breytast viðhorf fljótt. Skattprósenta nú um 25% í Bandaríkjum Ameríku, móti 50% í Kanada. Skattar og gjöld á Íslandi eru um 70%. Skattahækkanir á Íslandi eru í yfirgír. Sagt er að Trump hafi lýst stuðningi við glóbalistann Carney til að flýta ferlinu að Kanada verði 51. fylki Bandaríkja Ameríku; “Its only a Matter of Time.“ Við lifum nýja tíma. Íslendingar voru fyrstir þjóða Evrópu að nema land í nýja heiminum ... Við erum með ríkisstjórn sem stefnir á að Ísland taki sér stöðu í gömlu lúnu Evrópu fortíðar ....

Bloggfærslur 11. maí 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband