Ríkiskúgun femin kerlinga ... Gerum Ísland Gott Aftur

Evrópa er einangruð í frjálsu falli ofan í efnahagslegt svarthol í nafni þeirrar kreddu að karlmennska sé eitruð og veröldin farist nema CO2 sé tekið frá gróðri sem hættir að framleiða súrefni, sjálfan lífsandann. Búrókratar í Brussel í nafni femin-glóbalisma hafa staðið að útþenslu ESB og Nato að landamærum Rússlands í bandalagi við ný-nazista með valdaráni CIA í tíð Obama þegar Úkra/Rússastríðið hófst 2014. Í Úkraínu berjast slavneskir bræður og yfir milljón Úkrar eru fallnir og særðir.
 
EVRÓPA EINANGRAST
Evrópskir femin-glóbalistar láta sig geigvænlegt mannfall engu varða og hafa rústað samskiptum við öflugustu ríki veraldar Bandaríkin og BRICS-þjóðir sem telja 80% mannkyns; Rússland, Kína, Indland, Brasilíu, S-Afríku, raunar hafa flest ríki S-Ameríku, Afríku og Asíu snúist gegn Evrópusambandinu og hernaðararmi þess Nato sem á að leiða til alheimsstjórnar. Á Íslandi ríkir ríkiskúgun sem drepur frumkvæði í dróma. Alþingi er afgreiðslustöð búrókrata SÞ og ESB. Femin-glóbalistar stjórna Íslandi í þjónustu við erlent vald. Femin-kerlingar hafa komið á menntakerfi sem innrætir börnum hóphyggju; samkynhneigð, transisma þar sem karlmennska er ofsótt. Foreldrar eru sviptir rétti til að fylgjast með menntun barna sinna. Metnaður til menntunar birtist í ráðherraskiptum í ráðuneyti menntamála. Feministar eru sérlega áhugasamIr um trans “karla“ í kvennasporti. Þær hafa svipt fólkið í landinu málfrelsi í nafni haturslöggjafar. Mannréttindum er kastað í ruslatunnur. Þær ætla að loka íslenska þjóð af í evrópskri fátæktarkistu. Þær eru í fremstu víglínu Islandistan.
 
DÖNSK NÝLENDUKÚGUN Í VESTURHEIMI
Danir hafa komið hroðalega fram við Grænlendinga. Danir eiga ekkert erindi í Vesturheimi með nýlenduofbeldi sitt. Nýir ráðamenn í Nuuk tala dönsku, þjóna Kaupmannahöfn, embættismenn eru danskir, viðskipti eru í höndum Dana sem hafa einangrað Inuita frá öðrum þjóðum í 300 ár. Á 130 ára tímabili 1857-1987 rændu Danir grænlensku þjóðina jafnvirði 7.900 milljörðum króna með kryolit námagreftri skammt frá Arsuuk stutt frá Hvarfi. "Lykkjumál" Dana kom í veg fyrir að þúsundir grænlenskra kvenna gætu eignast börn. Danir eru rasistar sem gerðu tilraun til þjóðarmorðs á Inuitum. Það verður ekki svartara.
 
DANIR RÆNDU KLAUSTRIN
Eftir að Jón Arason var hálshöggvinn 1550 rændu Danir öllu gulli, silfri og verðmætum úr íslenskum klaustrum og kirkjum. Árin 1555-1570 fluttu þeir gullið úr landi, skipsfarm eftir skipsfarm eftir skipsfarm á dögum Kristjáns III [1534-1569]. Árin 1602-1778 var hin illræmda Einokunarverslun sem næstum tortýmdi íslenskri þjóð. Þeir stálu handritum okkar og reyndu að stela menningu okkar og tungu. Ísland er hluti Vesturheims en ekki einhverrar slepjulegrar skandinavískrar “fjölskyldu“ þar sem pólitíkusar, embættismenn og menningarvitar dreypa á  ókeypis rauðvíni í veislum vítt og breitt um Norðurlönd. Stjórnmálastéttin er úr öllum tengslum við fólkið í landinu. Ísland þarf að stokka upp spilin; Gerum Ísland Gott Aftur ... 

Bloggfærslur 31. mars 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband