14.2.2025 | 20:22
Eldræða JD Vance í Munchen ...
Varaforseti Bandaríkjanna J.D. Vance hélt mestu eldræðu bandarísks varaforseta þegar hann ávarpaði öryggisráðstefnuna í Munchen í Þýskalandi. Ræða sem allir verða að hlýða á hvaða skoðun sem þeir hafa. Lygaveita ríkisins í uppnámi, Vísir og Stöð2 fara á taugum. Öryggisógnin er ekki frá Rússlandi og Kína heldur innanfrá, sagði Vane. Í salnum var Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Ræða Vance var skörulega flutt sem var að vonum enda afar öflugur ræðumaður. Ræðan var haldin í skugga hryðjuverks í Munchen daginn áður. Vance gagnrýndi ógildingu kosninga í Rúmeníu á dögunum þegar Cálin Georgoescu var kjörinn forseti. Vance gagnrýndi fyrrum kómizarinn Thierre Breton sem fagnaði og kvað hugsanlega þurfa ógilda kosningar í Þýskalandi á sunnudag í næstu viku ef úrslit fara ekki að vilja ESB.
GRÉTA THUNBERG & ELON MUSK
Við eigum ekki bara að ræða lýðræði, við verðum að lifa lýðræði, sagði Vance sem minnti á Kalda stríðið milli lýðræðisríkja og kommúnista sem lokuðu kirkjum, ritskoðuðu, fangelsuðu og breyttu kosningum að geðþótta. Vance benti á hatursorðræðu sem dæmi um tilraun evrópskra stjórnvalda til þess að bæla raddir fólks. Hann benti á mannréttindabrot í Þýskalandi, Svíþjóð og Bretlandi; dóm yfir Adam Smith Connor 51 árs Breta fyrir að biðja í hljóði fyrir utan fósturdeyðingarkliník fyrir ófæddum syni sínum sem fyrrum kærasta hafði látið deyða í móðurkviði. Hann benti á hugarglæpi í Skotlandi. Og auðvitað Bandaríkin undir Joe Biden þar sem facebók var notuð til að ljúga því að covid hafi ekki komið frá rannsóknarstofu í Kína. Heyrir Alma? Vance gagnrýndi taumlausan innflutning hælisleitenda. Hver kaus þessa stefnu? Ameríka þoldi skammir Grétu Thunberg í áratug, þið eigið að líða Elon Musk í nokkra mánuði, sagði Vane.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)