30.1.2025 | 20:25
Af innherjaverki & landráðum
Víðir Sigurðsson íþróttaritstjóri Morgunblaðsins hefur verið með pistla um Dag Sigurðsson þjálfara Króatíu og Gunnar Magnússon sem aðstoðar Dag. Víðir kemur Degi til varnar í pistlum sínum og kveður Dag hafa fengið óverðskuldaðar og kaldar kveðjur eftir sigur Króata á íslenska liðinu. Víðir hefur eftir gömlum kunningja sínum sem kveðst ekkert skilja í Gunnari "...að svíkja land og þjóð á þennan hátt og afhenda mótherjum Íslands innanhússupplýsingar um íslenska liðið." Víðir bendlar Gunnar við landráð en nefnir ekki að það var Dagur sem fékk Gunnar til þess að leikgreina Ísland svo þeir eru í þessu saman.
INNHERJAVERK INSIDE JOB ...
Ég skrifaði pistil á dögunum á FB eftir að Ísland féll úr leik á HM í handbolta. Ég benti á að tveir íslenskir þjálfarar hefðu stýrt íslenska landsliðinu og planað fall Íslands. Þetta var innherjaverk; inside job. Það var Dagur sem fékk Gunnar Magnússon til liðs við sig. Gunnar var þjálfari íslenska landsliðsins og aðstoðarlandsliðsþjálfari í 20 ár á launum hjá íslenskri þjóð. Króatar vissu allt um íslenska liðið innan úr herbúðum Íslands.
Það er svo annað mál að Króatía komst áfram í skjóli hliðhollra dómara svo hneykslun olli og er nú komið í úrslit.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)