14.6.2023 | 21:48
The Wall: Ofsóknir á hendur Roger Waters
Roger Waters er einn merkasti músikant 20. aldar, bassaleikari og leiðtogi Pink Floyd. The Wall, 1979 er eitt af höfuðverkum rokkaldar 20. aldar, ádeila á fasisma. Nærfellt hálf milljón hlýddu á flutning The Wall í Berlín eftir fall múrsins alræmda þegar kommúnismi hrundi. Waters kom fram í leðurjakka sem minnti á einræðisherra Chile, Gustavo Pinochet. Waters hefur gert svo um áratuga skeið. All in all youre just another brick in the wall ... We dont need no education ... We dont need no thought control. Waters sá á undan okkur hinum lævísi ríkisuppeldis og ríkismenntunar sem myndi leiða til helsis tortýmingar frelsis.
LÖGREGLURÍIÐ RÆSKIR SIG
Þýzk stjórnvöld freistuðu nýlega að banna Roger Waters að flytja The Wall í Frankfurt. Þau tengdu Waters við nazisma! Þýzka lögreglan tók Rogers til rannsóknar eftir tónleika í Berlín. Það þurfti dómstóla til að hnekkja banni yfirvalda. Kjánar blanda saman. Nú er reynt að banna tónleika Waters í Manchester. Poppgoðinu er brugðið. Lögregluríkið ræskir sig. Trúið ekki BBC, Daily Mail og Guardian, segir Waters; allir þessir miðlar eru lygaveitur, ljúga öllu. Lesið, lesið lesið og gjörið hið rétta hefur Waters eftir móður sinni. Meira að segja jafn ágætur maður og Einar Kárason fullur hneyskslunar sakaði Waters um að vera laumu-fasista. Ekki vantar að Einar Kárason einn fremsti rithöfundur okkar lesi, lesi og lesi en hann horfir á RÚV sem öllu lýgur alla daga. Þar bregst Einari. Hér rekur Waters atburði liðinna vikna.
Bloggar | Breytt 15.6.2023 kl. 03:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)