Færsluflokkur: Bloggar
11.2.2024 | 20:51
Svartasta sviðsmynd er niðurbrot Íslands ...
Neyðarástand ríkir meðal 30 þúsund Suðurnesjamanna 10% Íslendinga eftir að glóandi hraunelfan rauf heitavatnsleiðsluna frá Svartsengi. Hætta er á að tugþúsundir Reyknesinga verði flóttamenn í eigin landi ofan á 3.700 Grindvíkinga og þúsundir hælisleitenda. Heitt vatn berst ekki til fólksins á Suðurnesjum né heldur til Leifsstöðvar á Keflavíkurflugvelli, KEF. Skúli Ágústsson byggingatæknifræðingur, sem unnið hefur fyrir HS Orku, varaði almannavarnir, viðbragðsaðila og HS Orku nákvæmlega við hraunflæðinu sem tók í sundur Njarðvíkurlögn. Skúli benti á þetta í netpósti til almannavarna, HS Orku, lögreglunnar og Grindavíkurbæjar þann 29. desember síðastliðinn, samkvæmt frétt mbl. Hann hélt því fram að varnargarður utan um Svartsengi leiddi hraun að Grindavíkurvegi og gæti tekið heitavatnslögnina í sundur. Það hefur nú gerst. Skúli hafði fyrst uppi varnarðarorð árið 2020.
HVE LENGI HEITAVATNSLAUST ...
Í raun veit enginn hve lengi verður heitavatnslaust. Suðurnesjamenn að minnsta kosti sumir telja þrjár vikur líklegar. Í nóvember/desember stóð ríkissjóði/almannavörnum til boða erlendis að kaupa Ketil; Boiler til varmaskipta sem hefði þjónað byggð á Suðurnesjum í neyðtilvikum. Því var hafnað. Versta sviðsmynd er að lagnir í jörðu skemmist sem taki langan tíma að lagfæra. Heitavatnslagnir skreppa saman um meter á hvern kílómeter þannig að lögnin hefur líklega skroppið verulega saman. Hætta er á að millilandaflug leggist af til skemmri eða lengri tíma. Heitavatnslagnir á flugvellinum eru nú þegar að frostspringa. Icelandair sendir eftir tankabílum til að flytja heitt vatn til KEF. Við erum að tala um mesta klúður á lýðveldistíma. Tetrakerfið gaf sig, neyðarlínan gaf sig, rafmagnslaust varð í Vogum og Kársnesi Kópavogs. Jón Magnússon skrifar um vanrækslusynd stjórnvalda en RÚV og Stöð 2 lýsa atburðum sem spennandi fótboltaleik.
KREPPUR FYRRI TÍÐA SEM HJÓM
Kreppan 2008 og síldarhvarfið 1969 verða sem hjóm miðað við það sem framundan kann að vera hjá íslenskri þjóð. Skaftáreldar 1783 koma í huga þegar hugmyndir voru að flytja þjóðina til Jótlands. Vonandi raungerist hin svarta sviðsmynd ekki. Fólk hírist í köldum húsum um ófyrirsjáanlegan tíma og þegar og tíma tekur að ná upp þrýstingi á kerfið. Við verðum að vona hið besta. Okkur er sagt í fréttum að eitthvað sé til af efni, en Landsvirkjun heldur ekki varabirgðir svo þar er komið að tómum kofa. Verstu sviðsmyndir eru kolsvartar. Allt að 35 þúsund manns verði flóttamenn í eigin landi. Við kunnum að vera horfa upp á niðurbrot samfélags. Þjóðstjórn verði eini valkostur. Við gjöldum fyrir slóðaskap og aðgerðaleysi síðustu fimmtán ára. Þau sem stöðvað hafa uppbyggingu orkumannvirkja hafa ráðið landinu í hálfan annan áratug. Orkustofnun hefur í hálft annað ár stöðvað og tafið vinnsluholu Norðurorku í Eyjafirði. Þarf ég að útlista Hvammsvirkjun í Þjórsá? Spyrjið. Af hverju? Frá valdaráninu 2016 hafa Sjálfstæðisflokkur og Framsókn verið hækjur þessara myrkraafla. Allt með ötulum atbeina vinstri villtra á RÚV og Stöð 2. Við búum í landi síljúgandi fjölmiðla 4ða valds ríkisins.
AF HVERJU EKKI ÖNNUR LÖGN
Semsagt: Við erum nú þegar með 3.700 íslenska flóttamenn frá Grindavík, hugsanlega allt að tífaldast sú tala ef allt fer á versta veg á Suðurnesjum. Lagnir hafa eyðilagst í frosthörkum, flugsamgöngur lamast um ófyrirséðan tíma sem yrði reiðarslag. Þrjú ár eru síðan Reykjaneseldar hófust og allan þennan tíma hefur blasað við augum aðeins ein heitavatnsleiðsla frá Svartsengi. Spyrjið. Hvers vegna? Af hverju ekki önnur lögn? Slegið var varnargarði um Svartsengi sem ef marka má tæknifræðinginn beindi hrauni að lögninni sem var óvarin. Kerfið er fálmandi og ónýtt. Eldgos hófst á Suðurnesjum 06:02, 08.02.24. Þegar glóandi hraunelfan fór yfir lögnina var umræða á Alþingi um galopin landamæri fyrir hælisleitendur frá Palestínu sem hafa verið flóttamenn í þrjár kynslóðir allar götur frá 1948 á framfæri alþjóðasamfélagsins. Krafan er loftbrú milli Íslands og Palestínu um Egyptaland. Þetta fólk mun hafast við í fyrsta gettói landsins og hatast við land og þjóð.
AÐ VÍLA & DÍLA UM MANNSLÍF
Á Alþingi sakaði Þórhildur pírína BjarnaBen um að ...víla og díla með mannslíf á sama tíma og Suðurnesjamenn voru að missa heitt vatn. Pírínan sakaði BjarnaBen um að stefna mannslífum í hættu. Þetta er ekki hægt að skálda. Á þremur árum; 2022, 2023 & 2024 á grundvelli opinna landamæra koma hingað um 15.000 hælisleitendur, líklega 30-50 milljarða árlegur heildarkostnaður. Hvern einasta dag hækka skuldir í útlöndum sem fólkið í landinu greiðir vegna stefnu Alþingis um opin landamæri. Kerfið er sprungið en það virðist engu skipta á Alþingi. Þetta er eins og Neró með fiðluna í Rómaborg.
LÆÐST UM LAUT, GIL & GÖTUR
Ríkissjóður galopinn gestum og gangandi meðan alþýða fólks, aldraðir og öryrkjar eiga ekki rödd en auðvitað hefur góða fólkið heimili sín harðlæst. Vinstri villtir og börn þramma á Austurvöll með fána Palestínu og lýsa stuðningi við hryðjuverkasamtök Hamas sem heita því að útrýma gyðingum, kristnu fólki og gera konur jafnréttháar geitum. Þeir sem efast um opin landamæri eru uppnefndir rasistar. Dyr eru galopnar hælisleitendum sem streyma til landsins með opinn reikning á ríkissjóð; fólkið í landinu. Þau sem víla og díla hafa selt fullveldi í hendur erlendu valdi sem leiðir til niðurbrots Íslands eins og við þekkjum; íslenskrar þjóðar, tungu og menningar. Þau læðast um laut, gil og götur eins og ræningjarnir í Kardemommubænum uppnefnandi óbreytt alþýðufólk rasista:
Við læðumst hægt um laut og gil
og leyndar þræðum götur,
á hærusekki heldur einn,
en hinir bera fötur ...
Nú fyllt við höfum fötu og sekk,
af fæðu, drykk og klæðum.
Og allt í lagi eins og ber,
en fátt um það við ræðum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2024 | 16:47
Forsetinn & sérfræðingurinn ...
Nú hefur Mannlíf Reynis Traustasonar varpað því fram sem snjallræði að Eliza Reid forsetafrú bjóði sig fram til forseta Íslands en forsetakosningar fara fram 1. júní. Guðni Th. Jóhannesson forseti láti af embætti og fátt sé um boðlega frambjóðendur, skrifar Reynir og bætir við að nokkur eftirsjá sé af Guðna Th. Jóhannessyni. Reynir kveður Elízu hafa undanfarnar vikur verið á ferð um Dubai að kynna bók sína Sprakka, þar sem hún meðal annars fjallar um stöðu sína sem innflytjanda, konu og eiginkonu. Sprakkar eru sagðir vera kvenskörungar. Þau eiga þrjú börn fædd 2011, 2009 og 2007 en fyrir á Guðni dóttur 1994.
Á SLÓÐUM HAMAS-LEIÐTOGA
Dubai er ekki land heldur stærsta borg Sameinuðu furstadæmanna og því líklegt að Elísa hafi ferðast um furstadæmin ef marka má Mannlíf. Þar á meðal er Katar þar sem nokkrir helstu leiðtogar Hamas búa í lúxus en þeir eru metnir á fimmtán hundruð milljarða króna; US $ 11.000.000.000. Ekki fer sögum af því hvort Elíza hafi hitt þá til þess að ræða um aðstoð við flóttafólk frá Gaza eða umdeilda aðstoð Íslands.
FORSETINN & SÉRFRÆÐINGURINN
Guðni Th. hefur ekki verið með Elizu á ferðalagi. Forsetinn er sagður í ansi nánum samskiptum við Unu Sighvatsdóttur sérfræðing á skrifstofu forsetans. Eliza og Guðni muni því skilja að frá borði og sæng eftir kosningar. Myndum af Guðna og Unu úr nánasta umhverfi forsetans hefur verið dreift á netinu. Erfið mál hafa komið upp á Bessastöðum, alveg sérstaklega kynferðisáreitni þegar fólk var hrakið frá Bessastöðum. Stundin og DV skýrðu frá: Maður sem hefur ítrekað verið sakaður um kynferðislega áreitni við starfsfólk á Bessastöðum heldur starfi sínu en þolendur hans flýja, var fyrirsögn DV. Málin voru hvorki kærð né rannsökuð af lögreglu líkt og tíðkast.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.1.2024 | 07:57
Nú er kallað eftir stríði við Íran ...
Þrír bandarískir hermenn féllu og 40 særðust í drónaárás á herstöð Turn 22; Tower 22 sem sögð er á landamærum Jórdaníu og Sýrlands. Árásin var á sunnudag, 28. janúar. Bandaríska varnarmálaráðuneytið segir að hermennirnir hafi verið í Jórdaínu vegna Aðgerða til Lausna; Operation Inherent Resolve í svokalllaðri baráttu við ISIS sem Obama-stjórnin kom á laggirnar fyrir um áratug. Þrjú þúsund bandarískir hermenn eru sagðir í Jórdaníu. Bandaríkjamenn eru með ólöglega herstöð á olíuslóðum í norð-austur Sýrlandi, þrátt fyrir að Donald Trump forseti hafi fyrirskipað alla hermenn frá Sýrlandi árið 2019, tilskipun sem Pentagon virti að vettugi. N-Austur Sýrland er hernumið og landið arðrænt með því að olíu er dælt upp, send í olíubílalestum til Írak og þýfið selt til Evrópu svo sem ég hef áður upplýst; sturlað sjónarspil.
BIDEN HEITIR HEFNDUM
Biden á kosningafundi í S-Karólínu heitir hefnda: Við munum bregðast við, sagði forsetinn. Að sögn Reuters, kveður Biden-stjórnin öfgahópa í Sýrlandi og Írak, sem studdir eru af Íran, vera að baki árásinni. Velkist ekki í vafa, við munum láta þá, sem að verki voru, gjalda fyrir ódæðið þegar tími er réttur, sagði talsmaður Pentagon. Íran hefur neitað aðild að árásinni. Það eru átök milli bandarískra hersveita og andspyrnuhópa á svæðinu, sagði Teheran. Talsmaður Hamas segir að árásin á Turn 22 sé bein afleiðing Gaza. Það er stríð í Mið-Austurlöndum.
NEO-CONS KREFJAST ÁRÁSA Á ÍRAN
Raunar endurtekur sagan sig. Hvar sem bandarískar hersveitir eru staðsettar í Mið-Austurlöndum, myndast andspyrnusveitir sem hefja árásir. Herstöðin Turn 22 hlaut að vera skotmark. Þegar ráðist er á ameríska hermenn krefjast stríðsæsingamenn; neo-cons hefnda. Nú skammast þeir út í vanmátt Biden. Leiðtogi repúblikana í þinginu, hinn seníli Mitch McConnell sem reglulega frýs frammi fyrir fréttamönnum, kveður aðgerðaleysi Biden styrkja óvini Ameríku. Það átti bregðast við árásinni áður en hugrakkir Bandaríkjamenn létust, sagði McConnell. Tom Cotton þingmaður frá Texas: Gereyðandi aðgerðir eru eina svarið gegn írönskum vígasveitum ... Öðrum kosti er Joe Biden heigull, sagði Cotton. Lindsey Graham frá Gerogíu krefst árása á Íran; to strike targets in Iran. Graham segir árásir ekki bara til að hefna, heldur koma í veg fyrir árásir. Ég hef sagt ykkur frá för Lindsey Graham til Mariepol í Úkraínu 2016 þegar hann hét hermönnum Azov-nazista fé og vopnum til árása á rússnesku mælandi borgara Donbass. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra gerir vel að hvetja Biden-stjórnina að hefja friðarferli líkt og var á árunum 2017-2021 þegar friður ríkti á Gaza, Arabaríki hófu að taka upp stjórnmálasamband við Ísrael og hefja brottflutning bandarískra hermanna frá Mið-Austurlöndum líkt og áformað var en Pentagon stöðvaði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2024 | 19:51
Með Satan á brjósti ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.1.2024 | 18:38
Af hverju ofsóknir í enska boltanum ...
Þrír klúbbar sem eru að stækka eða boðað stækkun leikvanga sinna; ManCity, Everton og Nottingham Forest sæta allir ásökunum skuggastjórnar EPL um að þeir brjóti reglur EPL, financial fair play og/eða megi ekki eyða um efni fram. Klúbbar með glæsta sögu fyrir stofnun EPL 1992. ManCity nú í Eastlands, Everton á bökkum Mersey og Forest á bökkum Trent. Wall Street hefur náð undirtökum í enska boltanum; English Premier League. Agentar WS hafa tekið yfir tíu klúbba. Eigandi Chelsea var látinn gjalda þjóðernis síns. Hann hafði gert Chelsea að einu besta félagi Englands. Klúbburinn var afhentur agentum Wall Street sem Divide & Conquer. Hvað finnst mönnum um eignaupptöku á grundvelli þjóðernis? Eftir að enski boltinn varð vinsælasta sófasport veraldar mætti WS til leiks á Englandi. skuggastjórn EPL tók yfir. Eftir 20 ára valdaferil Glazera er Old Trafford hriplekur; falling down, falling down. Er rangt gefið? Af hverju Rauður Ofsi? Af hverju Svartur Ofsi í Ameríku?
TITLAR
Everton Englandsmeistarar níu sinnum, FA Cup fimm sinnum, Evrópumeistarar bikarhafa einu sinni. Nottingham Forset Englandsmeistarar einu sinni, FA Cup tvisvar, Evrópumeistarar tvisvar. League Cup fjórum sinnum, UEFA Super-Cup einu sinni. ManCity Englandsmeistarar níu sinnum, FA Cup sjö sinnum, League Cup átta sinnum, Evrópumeistarar einu sinni, Evrópumeistarar bikarhafa einu sinni, UEFA SuperCup einu sinni og FIFA heimsmeistarar einu sinni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2024 | 18:44
Eru Bandaríkin að klofna ... Hörð deila Texas & Washington um ólöglega innflytjendur ...
Eru Bandaríkin að klofna? Upp er komin deila milli næst fjölmennasta fylkis Bandaríkjanna; Texas og Biden stjórnarinnar í Washington um yfirráð yfir landamærum fylkisins. Fylkisstjóri Texas, Greg Abbot lýsti því yfir á miðvikudag 24. janúar að réttur fylkisins til sjálfsvarnar ...gangi framar öllum alríkislögum sem gangi þvert á öryggi fylkisins ... Höfundar stjórnarskrárinnar sáu fyrir að fylkin gætu ekki verið upp á náð forseta sem færi fram með lögleysu og gerði ekkert til þess að stöðva glæpaklíkur sem smygluðu milljónum ólöglegra innflytjenda inn í landið, sagði fylkisstjórinn. Harðar deilur eru milli Biden forseta og Abbott fylkisstjóra sem hefur lýst því yfir að Washington sé ekki að verja fylkið fyrir innrás í landið, þvert á móti brjóti lög. Texas hafi stjórnarskrár varinn rétt til varnar utanaðkomandi ógn sem taumlaus ólöglegur innnflutningur sé og gaddavír var lagður á landamærunum.
ÚRSKURÐUR HÆSTARÉTTAR
Á mánudag úrskurðaði Hæstiréttur Bandaríkjanna að alríkisstjórninni sé heimilt að fjarlægja gaddavírinn á landamærum Texas og Mexíkó við Ríó Grande-fljót. Alríkisverðir hafa fjarlægt gaddavír sem fylkisstjórnin lét koma upp. Á sama tíma halda texas-þjóðvarðliðar áfram að leggja gaddvír til þess að hamla ólöglegum innflytjendum inngöngu í fylkið. Þjóðvarðlið Texas er undir fylkisstjórninni. Umræða er um að Biden kunni að setja texas-liða undir alríkisstjórnina. Biden-stjórnin hélt því fram fyrir Hæstarétti að heimild til þess að fjarlægja gaddavír væri svo landamæraverðir geti sinnt störfum af ýmsum ástæðum; mannúðar- og heilbrigðisástæðum. Staðan er grafalvarleg og líklegt að fleiri fylki muni krefjast úrsagnar. Flórída og Oklahoma hafa lýst stuðningi við Texas um að fylkin hafi heimild til þess verja eigin landamæri frá utanaðkomandi ógn; border invasion.
LÖGSÓKN TEXAS 2020 & TEXIT = BREXIT
Árið 2020 höfðaði Texas mál fyrir Hæstarétti gegn fimm fylkjum þar sem opinber úrslit kosninganna 2020 milli Joe Biden og Donald Trump voru véfengd og kosningalög verið brotin. Texas-fylki hefði lögvarða hagsmuni af því að fylkin fari að lögum og virði kosningalög. Hæstiréttur neitaði að taka málið til meðferðar. Ég hef margoft sagt frá valdaráninu; Coup dEtat í Washington 2020 þegar senílt gamalmenni kom upp úr kjallara og tók við embætti án þess að halda marktækan kosningafund. Í kjölfar synjunar Hæstaréttar 2020 magnaðist umræða um að Texas segi sig úr Bandaríkjum Ameríku; Texit í takt við slagorðið Brexit. Þáverandi fylkisstjóri Alan West gaf til kynna að Texas kunni að segja sig úr Bandaríkjum Ameríku. Repúblikanaflokkur fylkisins hvatti til fylkisatkvæðagreiðslu um úrsögn 2023. Í Ameríku er verið að skipta um þjóð líkt og á Íslandi nema hér á landi er hlutfallslegt innstreymi hælisleitenda miklu mun meira undanfarin ár; sex þúsund í Ameríku samanborið við fimmtán þúsund á Íslandi á þremur árum. Texas er næstum sjöfalt Ísland með yfir 30 milljón íbúa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2024 | 13:31
Kynþáttafordómar í garð hvítra ...
Guðlaus glóbalizmi er reistur á hóphyggju; ein alheimsstjórn, afnám þjóðríkja, kristni útskúfuð, skipt um þjóð í landinu á fáum áratugum. Íslensk þjóð skal afmáð; íslensk tunga og menning, fullveldi, frelsi og jafnrétti. Þessi stefna væri í lagi ef þjóðin væri spurð og væri sammála. Svo er ekki. Þeir sem efast og andæfa opnun landamæra eru uppnefndir popúlistar og rasistar. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í vikunni ...hörmung að sjá tjaldbúðir við Austurvöll á hinum helga stað milli styttunnar af Jóni Sigurðssyni og Alþingis og erlendum þjóðfána sé flaggað. Hóphyggjufólk stimplaði Bjarna umsvifalaust popúlista og rasista. Í silfri Egils hjó Sigríður Hagalín í þennan knérunn, fákunnandi, stamandi, fálmandi.
15.000 HÆLISLEITENDUR Á ÞREMUR ÁRUM ...
Árin 2022 og 2023 bárust hvort ár 4.000-5.000 umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi, samtals hátt í 10 þúsund manns á framfærslu skattgreiðenda. Hvað verður 2024, 15 þúsund á þremur árum? Kostnaður um 15 milljarðar á ári fer ört hækkandi. Vinnumálastofnun leigir hótel og íbúðir fyrir um 2.800 hælisleitendur. Finna þarf um 1.500 búsetuúrræði. Sveitarfélög ráða ekki við fjölgun. Þingið ræðir neyðarlög svo sveitarfélög geti breytt iðnaðarhúsnæði í íbúðir. Á þetta bendir formaður XD. Á visi.is voru 73% þátttakenda í skoðanakönnun sammála ráðherranum. Bjarni Ben vill breyta stefnu til samræmis við Evrópu. Grindavíkingar eru settir aftur fyrir gæluverkefni hins villta vinstris. Í silfri Egils uppefndi pírínan Þórhildur Sunna Ævarsdóttir formann Sjálfstæðisflokksins popúlista með hræðsluáróður, pírínan full andúðar og fordóma, afvegaleiðir og blekkir. Ólafur Þ. Harðarson fyrrum prófessor talaði um harðskeyttari stefnu Bjarna Ben, en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokki kvað yfirlýsingu BjarnaBen hugsanlega merkilegustu í stjórnmálasögu þessara aldar. Svo virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn sé að stíga á bremsur hömlulauss innstreymi hælisleitenda. Þetta fæst ekki rætt málefnalega á RÚV sem tengir málflutning Bjarna við popúlisma og rasisma. Hóphyggjufólk stimplar, útskúfar og fordæmir.
GUÐLAUSIR GLÓBALISTAR SNÚIST GEGN EIGIN KYNÞÆTTI
Guðlausir glóbalistar eru að stofni til villta vinstrið; píratar, samfó, viðreisn, vg sem XD & XB hafa beygt sig undir. Þau vilja opin landamæri sem eru sem íbúðir opnar ókunnugum breytast í hreysi, Austurvöllur sem hreysi undir útlendum fána. Yfirvöld vita ekki hverjir koma. Flokkarnir vilja leggja Ísland og auðlindir undir stjórn Brussel og alheimsstjórn Sameinuðu þjóðanna í samvinnu við hina ofsaríku milljarðamæringa; wefarana í Davos. Flokkar hóphyggju grafa undan jafnrétti, einstaklingsfrelsi og fullveldi íslenskrar þjóðar. Forverar þeirra voru kommar, kratar og framsókn. Pælið í því. Kynþáttafordómar, hatur og ofsóknir birtast okkur fyrst og fremst í garð hvítra karlmanna. Þúsundir mæðra sættu árás í covid, 2.700 í fb-hóp þagðar og þaggaðar. Guðlaus hóphyggja hefur snúist gegn eigin kynþætti; hvíta kynstofninum. Spyrjið: Af hverju? Kristnir víða um heim mæta ofsóknum, 365 milljónir 2023 samkvæmt Open Doors, ráðist á þúsundir kirkna, árlega lagður eldur að um 1.300 kirkjum í Ameríku.
AF PRÓFESSOR & HÓPHYGGJU
Helstu vígi glóbalista eru Háskóli Íslands og RÚV sem kæfa umræðu og stimpla skoðanir popúlískar og rasískar. Þetta gerir Ólafur Þ. Harðarson, einn helsti talsmaður hóphyggju, þjóðkunnur fyrir þátttöku í kosningasjónvarpi RÚV um áratugaskeið. Á dögunum uppnefndi hann forsetaframbjóðandann Arnar Þór Jónsson popúlista. Prófessorinn með silkitunguna hikar ekki við að uppnefna. Arnar Þór sagði starfi sínu lausu við Héraðsdóm Reykjavíkur til þess að taka upp málflutning frelsis og lýðræðis; vara við ritskoðun og málfrelsi. Arnar Þór er allt annað en popúlisti en allur ferill Ólafs Þ. Harðarsonar markast af stuðningi við hóphyggju beina arfleifð kommúnisma og nazisma sem nú eru að taka fullveldi og frelsi af íslensku þjóðinni. Sagan rímar.
Nú veit fólk að Ólafur er vænsti maður, vorum samtíða í Kennó í den. Mér finnst hörmulegt að fólk hugi ekki að sálu sinni; anda sínum sem við komum með þegar ljósið kveikir líf. Að lokinni lífsgöngu á vit ljóss Drottins. Ekki vantar trú í hinn guðlausa, bábylju þess efnis að manneskja komi úr myrkri þar sem ekkert er. Þetta er börnum okkar kennt og Jesú frá þeim tekinn. Á 60Minutes kvaðst Bob Dylan hafa selt Satan sálu sína; Youve got to serve somebody. It may be the Devil or it may be the Lord.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2024 | 18:02
Fjölmiðlar fjórða vald ríkisins ...
Það hefur verið sagt um fjölmiðla í lýðræðisríkjum að þeir séu fjórða valdið sem veiti þrískiptu ríkisvaldi aðhald. Svo er ekki lengur, hvorki á Íslandi né Vesturlöndum. Við lifum í samfélagi þar sem fjölmiðlar eru fjórða vald ríkisins og verið að úthýsa málfrelsi. Hver hefði trúað að þessi staða gæti komið upp? Það eru 33 ár frá því ég var með Jóni Baldvin Hannibalssyni í frelsisför hans til Eystrasaltsríkjanna í janúar 1991. Hin guðlausu Sovétríki hrundu eins og spilaborg seinni part árs 1991. Við áttuðum okkar ekki á að Rússar höfðu hrint guðlausum kommúnistum af höndum sér og snéru sér að Drottni og orthódox kristni. Vesturlönd á móti tóku upp að guðleysi og stefna nú hraðbyri að alræði þar sem ríkis- og einkamiðlar hinna ríku & voldugu sameinast um ritskoðun og kremja málfrelsi.
OFURVALD ÞRÍEYKIS EIN SKOÐUN
Í desember 2020 gerði ríkisstjórn Íslands fyrsta leynisamning við lyfjarisa; Big-Pharma um lítt rannsökuð bóluefni á undanþágum. Lyfjarisar með skelfilegt orðspor voru firrtir ábyrgð. Tryggðir hafa verið samningar af Íslands hálfu við tvo bóluefnaframleiðendur og sá þriðji er í burðarliðnum. Samtals tryggja þeir bóluefni fyrir rúmlega 280.000 einstaklinga, tilkynnti Stjórnarráðið. Þríeykinu svokallað var afhent ofurvald yfir þjóðinni. Blaða- og fréttamenn urðu framvarðasveit ríkislögreglustjóra ásamt læknum, hjúkkum, lögreglu og fleiri stéttum, samkvæmt Fjölmiðlanefnd. Fjölmiðlar urðu fjórða vald ríkisins og brugðið frá hinni gullnu reglu um þrískiptingu ríkisvalds sem fjölmiðlar veita aðhald. Ofurvald var fært í hendur þríeykis lögreglu, landlæknis og sóttvarnalæknis sem fjölmiðlar bergmála. Málfrelsi var afnumið. Ísland gat ekki lengur talist lýðræðisríki.
Bólusetningar fóru á yfirsnúning. Einkamiðlar fóru á ríkisstyrki árið 2021. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði að skapa þyrfti stemmningu fyrir bólusetningum í landinu. Ræningjarnir í Kardemommubænum voru fengnir í Höllina til þess að róa börnin meðan þau fóru undir nálina. "Mesta niðurlæging í sögu fjölmiðla," ritaði ég. Funduðu fjölmiðlar um þá ákvörðun að fjölmiðlar yrðu fjórða vald ríkisins? Af hverju var þjóðinni ekki sagt frá?
UMFRAMDAUÐI HÁTT Í ÞÚSUND MANNS?
Síðla árs 2021 tók að bera á dauðsföllum umfram árabilið 2015-2019. Frá nóvember 2021 til júlí 2022 lágu 350 Íslendingar í valnum umfram það sem vænta mátti, samanber upplýsingar Our World of Data. Forsætisráðuneytið leyndi þjóðina þessum upplýsingum því sérfræðingar töldu þetta "skot" og ekki umræðu virði. Læknirinn Guðmundur Karl Snæbjörnsson; Kalli Snær telur að í mars 2023 hafi um 500 Íslandingar verið fallnir í valinn umfram venjulegt árferði. Frá haustdögum 2023 hefur Landlæknir neitað að veita upplýsingar um umframdauða, þar sem ekki liggi fyrir hversu margir hafi verið fullbólusettir. Hvað er að vera fullbólusettur? Kalli Snær mælti með Nóbelslyfinu Ivermectin sem Lyfjastofnun uppnefndi hrossamixtúru. Lyfjastofnun kærði Kalla Snæ til lögreglu. Hann var kærður af Lyfjastofnun kallaður til yfirheyrslu og hótað sex ára fangelsi fyrir að efast um þríeykið og mæla með Ivermectin. Í Vikunni með Gísla Marteini var mikið hlegið að hrossamixtúrunni. Hversu vont er það? Spyrjið.
2.700 KONUR MYNDA FB-HÓP VEGNA AUKAVERKANA
Aukaverkanir voru skelfilegar, 2.700 konur mynduðu fb-hóp einkum vegna tíðavanda. Rebekku Óskar Sváfnisdóttir sem nú er ófrjó hafði frumkvæði. Ég heiti Rebekka. Ég stofnaði hóp eftir að ég byrjaði á blæðingum. Ég endaði á blæðingum í 53 sólarhringa mjög miklum og þungum blæðingum. Þegar hópurinn var í kring um 600 konur þá hafði ég samband við Landlækni ... þá var ákveðið að rannsaka þetta mál af Lyfjastofnun og óháðum læknum. 19. ágúst [2021] var hringt í mig af kvensjúkdómalækni sem spurði spurninga í gegn um síma. Ekkert annað, svo kom niðurstaða: orsakir blæðinga mjög líklega ekki bólusetningar. Við værum mjög líklega stressaðar í heimsfaraldri. RÚV þegir og þaggar þessar raddir. Konur í ríkistjórn hlusta ekki, konur á Alþingi hlusta ekki. Landlæknir þegir, sömuleiðis forstýra Lyfjastofnunar, læknar í landinu þegja þunnu hljóði. Valdakonur sem nú stýra Íslandi þagga þjáningar kynsystra sinna. Mæður, sjálf vagga lífsins, hafa sætt árás. Læknar á ofurlaunum eru í raun sölumenn lyfjarisa. Þjóðin er afvegaleidd. Áreiðanlegar heimildir mínar segja að sakbitin Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sé ... í hvers manns skrifborði í ráðuneytinu. Skapbrestir ráðherrans eru umræddir í Stjórnarráðinu. Ég legg til að Rebekku Ósk verði sæmd fálkaorðu fyrir hugrekki sitt og baráttu.
LANCET: UMFRAMDAUÐI Í BRETLANDI
Breska læknatímaritið Lancet birti í desember upplýsingar um umframdauða í Bretlandi. Árið 2022 var umframdauði á Bretlandi 7.2% eða sem nemur 44.255 manns. Fyrstu sex mánuði 2023 fjölgaði látnum í 8.6% eða sem nemur 28.024 manns umfram það sem við mátti búast miðað við fimm ára tímabil fyrir covid. Það er stórfelldur umframdauði í kjölfari covid. Spyrjið: Af hverju? Lancet hefur líka skýrt frá því að óbólusettir séu við betri heilsu en bólusettir sem glíma við alvarlega sjúkdóma. RÚV fjallar ekki um þessa alvarlegu atburði.
GRAFÍN-OXÍÐ Í BÓLUEFNUM
Það er vont en vernsar. Háskólinn í Almeríu Spáni hefur birt rannsókn um innhald mRNA bóluefna sem bent hefur verið á að eru sýklalyf. Í genabreytandi mRNA bóluefni helstu lyfjarisa, Astra Zenega, Johnson & Johnson, Moderna og Pfizer fundust í hverju hettuglasi 6 ng (nanógrömm) af RNA kjarnasýrum og 747 ng af grafen-oxíði. Með öðrum orðum er grafen-oxíðið 99.103% af innihaldsefni tilraunalyfja. Grafen-oxíð er ...heimsins þynnsta, sterkasta og mest leiðandi efni sem til er. Grafen-oxíð er leiðari fyrir 5G sem án umræðu nær nú til þorra þjóðarinnar og þorri þjóðarinnar ber móttakarann. Sérsveitin stóð vaktina þegar bóluefnin bárust. Samkvæmt tillögu að stefnu Dr. David Martin MD, PhD gegn bandarískum stofnunum, FDA, CDC NIAID, Pfizer, Moderna og dr. Anthony Fauci alls tíu aðilum eru bóluefnin sýklavopn eða til hvers allt þetta grafín-oxið. Pétur Yngvi Leoósson hefur unnið þrekvirki að kynna.
Fjarskiptastofa kallar 5G fjarskiptanet iðnaðarins ... límið í fjórðu iðnbyltingunni. Það er aðeins hálfur sannleikur. Grafen-oxíð sem nú hefur verið sett í fólk er forsenda gervigreindar í mannfólk; Artificial Intelligence samruni manns og tölvu sem ofsaríkir wefarar Davos funda um. Grafín-oxíð leiðir 5G-bylgjur sem taka yfir líf fólks. Það er forsenda trans-húmanisma; tölvustýrðs mannkyns. Þýski vísindamaðurinn dr. Andreas Kalcker kveður grafín-oxíð hafa áhrif á hjartslátt. Hjartað slær vegna rafsegulsviðs sem framleiðir rafmagn. Hjartastopp fer sem faraldur um veröld víða; lést á heimili sínu. Fylgist með minningagreinum Mogga. Wefararnir í Davos boða sósíalisma, upptöku eigna: Youll own nothing, but will be happy. Klaus Schwab kveður lýðræðislegar kosningar verða minjar fortíðar; relic of the past en wefararnir funda nú í Davos og 1.500 einkaþotur standa á flugvöllum.
RÍKISMIÐLAR & EINKAMIÐLAR Í EINA SÆNG
European Broadcasting Union EBU evrópskir ríkismiðlar hafa samstarf um eina og sömu frétt á rauntíma undir forystu BBC í samvinnu við Reuters, CNN, Washington Post, New York Times og Facebook svo fáir séu nefndir. Þeir kalla þetta Trusted News Initiative. Ríkismiðlar Evrópu hafa samvinnu við fjölmiðla hinna ríku og voldugu. EBU gaf út yfirlýsingu um baráttu gegn frjálsri umræðu um vaksín gegn harmful vaccine disinformation. Forstjóri EBU segir að ekkert megi raska trú og trausti almennings á stjórnvöldum. Með þessu samstarfi hefur ritskoðun verið komið á og málfrelsi heft um öll Vesturlönd. Hver innan RÚV tók þessa ákvörðun? Hversu vont er málið?
BOGI ÁGÚSTSSON & VESTRÆN RITSKOÐUN
Bogi Ágústsson hefur verið einn helsti tengiliður við EBU. Hann hefur gegnt varaformennsku í fréttanefnd EBU og verið formaður ritstjórnarnefndar EBU; verið innsti koppur í búri. Bogi getur áreiðanlega skýrt þjóðinni frá ritstjórnarafsali RÚV og samræmdum fréttaflutningi vestrænna fjölmiðla. RÚV hefur verið þögult um umframdauða hátt í þúsund Íslendinga. RÚV hefur verið þögult um þjáningu þúsunda íslenskra kvenna og almennt alvarlega sjúkdóma þúsunda Íslendinga. RÚV hefur verið þögult um umframdauða í Bretlandi um 100 þúsund manns. RÚV hefur verið þögult um að lögregla hafi stormað skrifstofu forseta Póllands til þess að handtaka pólitíska andstæðinga Evrópusinnans Donald Tusk forsætisráðherra. Hér búa og starfa um 20 þúsund Pólverjar. Svo auðvitað, fréttamenn RÚV sakborningar í rannsókn um byrlun og símastuld; lögðu á ráð um að byrla, stela, ljúga og blekkja þegar skipstjóri var fluttur suður vart hugað líf. Formaður Blaðamannafélags Íslands, fréttakona RÚV ber að skattsvikum, rekur framkvæmdastjóra BÍ í skjóli þess að hann var kominn á aldur, 67 ára gamall. Þetta gerist dagana sem hún fer í launalaust leyfi hjá RÚV. Þessar lýsingar eiga við blaða- og fréttamenn; fjórðu valdastétt ríkisins í bandalagi við hina ríku & voldugu. Niðurbrot siðferðis.
Bogi hefur sagt að RÚV þjóni bara almenningi, eigi að hafa eftirlit, segi bara sannar og réttar fréttir, þjóni hvorki ESB né pólitískum öflum. Stenst þessi lýsing? Þó Bogi sé kominn á eftirlaun þá hefur hann ekki látið af störfum, er á ofurlaunum, situr enn þrátt fyrir að hafa sagt annað. Af hverju? Bogi á sæti í orðunefnd og er handhafi fálkaorðu. Hann hefur skýrt frá því að forstjóri Post-Office í Bretlandi hafi skilað orðu breska heimsveldisins; British Empire eftir að hafa ofsótt og rægt um þúsund útibústjóra lítilla pósthúsa víða um Bretland...
Bloggar | Breytt 20.1.2024 kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.1.2024 | 13:40
Smæð manns frammi fyrir náttúruöflum ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2024 | 09:16
Stjórnlagakrísa í Póllandi ... lögregla stormar forsetahöllina
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)