24.2.2024 | 22:52
Af hverju efast svona fáir um sturlun í Austurvegi ...
Það er ekki einfalt mál að vera gagnrýnandi og segja hluti sem ráðamönnum finnast óþægilegir. Lýðræðisleg samfélög þarfnast gagnrýni og verða að umvefja mismunandi skoðanir. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er nú á hingferð um landið, var á Akureyri um helgina. Ég sótti fundinn og átti ánægjulegar samræður við forystu flokksins og þingmenn. Ekkert þeirra lét gagnrýni mína hafa áhrif á viðmót sitt, sýndi kurteisi og virðingu. Sjálfstæðismenn sameinast um sömu gildi; kristið líf í ljósi, frelsi og lýðræði sem flokkurinn var stofnaður um. Nú eru erfiðar tímar. Samtíð okkar er andsnúin lífsgildum flokksins og eltir hóphyggju. Sá tími kemur að vindast snúast. Í tilefni að tvö ár eru liðin frá því styrjöld braust út í Evrópu vil ég enn árétta mínar skoðanir.
Tvö ár eru innrás Rússa í Úkraínu, tíu ár frá vestrænu valdaráni í Kænugarði stýrt af CIA úr gömlu kgb-byggingunni og ameríska sendiráðinu í samvinnu við úkranska nazista. Í framhaldi af því réðust stjórnvöld í Kænugarði með her á hendur eigin þegnum í A-Úkraínu; Donbass og Luhansk. Fasistar í Kænugarð höfðu bannað þegnum sínum að tala rússnesku, rækta menningu forfeðra sinna í bága við Helsinkiyfirlýsinguna 1975. Azov-nazistum var stefnt gegn óbreyttum borgurum. Nazistinn Stepan Bandera [1909-1959] er þjóðhetja úkra, hampað á torgum og götum, mærður í skólum. Vesturlönd vinna með nazistum, jafn og þétt eru mannréttindi skert á Vesturlöndum, Íslandi sem annars staðar.
GUÐLEYSI Í STAÐ KRISTNI
Þegar Rússar hrintu af sér guðleysi kommúnista 1991, tóku Vesturlönd upp guðleysi. Vesturlönd kváðust ekki ætla þumlung austur; Not an inch Eastwards en sviku það. Árið 1994 viðruðu Rússar inngöngu í Nato en neo-cons í Washington höfðu önnur áform, wefarnir í Davos véluðu og skipulögðu valdarán hinna ríku og voldugu. Mannkyni skal fækkað, millistétt eytt sem og óþarfa alþýðufólki. Brussel hóf útþenslu ESB til allra átta; pan-evrópskt ríki. Ekki leið á löngu þar til stríð geisaði á Balkanskaga, Kosovo var tekin af Serbíu; sjálfir þingvellir Serba. Loftárásir voru gerðar á Belgrad árið1999. Pólland, Tékkland og Ungverjaland gengu í Nato sama ár. Árið 2001 var ráðist á Afganistan, svo Írak, Sýrland, Líbýu, Sómalíu, Yemen undir Bush og Obama. Árið 2004 gengu Búlgaría, Eistland, Lettland, Litháen, Rúmenía og Slóvakía í Nato. Á fundi í Búkarest 2008 var stefnan sett á Úkraínu og Georgíu í Nato og ESB. Þá sögðu Rússar nei við vestrænni útþenslu í eigin kartöflugarði en allt kom fyrir ekki. Árið 2016 reis bandarísk þjóð upp gegn Endalausum stríðum með kjöri Donalds Trump. Friður ríkti í veröld 2017-2021. Eftir valdaránið 2020; Coup dEtat fór aftur í sama far þegar hinn seníli Joe Biden kom upp úr kjallaranum í Delaware. Rússland skyldi lagt að velli bútað í sundur, gerð að nýlendu gömlu nýlenduveldanna.
ZELINSKI VALDI STRÍÐ
Rússar fóru með her inn í Úkraínu 2022 og umkringdu Kænugarð. Friðarsamningar hófust í Istanbúl, Tyrklandi lágu á borðinu á útmánuðum. Í apríl fór Boris Johnson til Kænugarðs með boðskap stríðs ekki friðar. Zelinsky valdi stríð gegn einu helsta herveldi heims. Rússar hófust handa um að frelsa Donbass og Luhansk sem höfðu lýst sjálfstæði eftir valdaránið. Nú tveimur árum síðar hafa Vesturlönd tapað proxy-stríði sínu í Úkraínu sem er í upplausn. Allt að 15 milljónir flúnir, hálf milljón ungra hermanna fallnir, fimmtíu þúsund Rússar. Rússland er nú helsta efnahagsveldi Evrópu og mesta herveldi heims. Rússneskumælandi fólk mun fá skjól innan rússneska lýðveldisins. Biden veður nú á skítugum skónum um Persaflóa; gert loftárásir á Írak og Sýrland þar sem amerískt hernámslið pumpar sýrlenskri olíu úr jörðu og flytur til þjófsnautar Evrópu. Vesturlönd eru siðferðilega gjaldþrota. Áfram er haldið að ala á ótta og hervæðingu Íslands sem Evrópu. Bandaríkin og Noregur voru bak við Nordstream mesta hryðjuverks í sögu veraldar; sterkar vísbendingar eru um að P8 þotan hafi hafið sig á loft frá Keflavíkurflugvelli áleiðis til Eystrasalts. Af hverju efast svo fáir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2024 | 17:23
Af formannskjöri KSÍ & góðri innivinnu ...
Starf formennsku KSÍ er krefjandi, líklega eitt hið erfiðasta í íslensku íþróttalífi. Nú hafa þrír menn gefið kost á sér, Þorvaldur Örlygsson fyrrverandi atvinnumaður, Vignir Már Þormóðsson stjórnarmaður KSÍ og fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar KA og Guðni Bergsson fyrrverandi formaður KSÍ. Þeir félagar komu fram á Stöð 2 og fóru yfir málin. Sérstaka athygli vekur að Guðni skuli bjóða sig fram hafandi í huga skelfilegan viðskilnað við KSÍ á sínum tíma. Feminískar drífur munu ávallt elta Guðna reiðubúnar að slá í klárinn. Það hefur framkvæmdastjóri Stígamóta þegar gert. KSÍ hefur ekki náð sér eftir kollsteypur Guðna þegar hann fór illa undirbúinn í viðtal í ágúst 2021.
LAUN EÐA LAUNALEYSI
Guðni réð landsliðsþjálfara í desember 2020, Arnar Þór Viðarsson og Eið Smára. Sú ákvörðun reyndist ekki farsæl. Þjóðin þekkir þá sögu sem ekki verður rifjuð upp hér. Guðni Bergsson var kosinn formaður í Eyjum við sérkennilegar aðstæður og lítt til sóma. Þá var val milli launalauss formanns og launaðs formanns. Ég er þeirrar skoðunar að röng leið hafi verið og sé valin. Sterkur leiðtogi þarf að leiða KSÍ. Nú virðist helsta markmið framjóðenda að ná sér í feitan launatékka, góða innivinnu eins og Gnarr orðaði það um borgarstjórastólinn. Öflugir leiðtogar sem hafa aðstöðu til að leiða KSÍ án þess að reiða sig ofurlaun hafa ekki sóst eftir formennsku, því miður. Hættan er að við sitjum uppi með reynslulitla og fjármálablinda meðalmenn. Við leitum að leiðtogum ekki fleiri skrifstofamönnum. Vignir Þór kveðst ætla að sinna fyrirtæki ásamt veru bæði í Reykjavík og á Akureyri. Það var ekki stórmannlegt af Guðna að véfengja getu landsbyggðarmanns til þess að sinna starfi í Reykjavík. Það er raunar með ólíkindum að Guðni Bergsson skuli bjóða sig eftir allt klúðrið, ef ég á að vera hreinskilinn. Henry Birgir benti á að Guðni hefði aldrei gert upp það klúður. KSÍ var rekið með 126 milljón króna halla 2023. Samkvæmt könnun er baráttan á laugardag milli Guðna 34% og Vignis, 31% en Þorvaldur aðeins með 7%, tæplega þriðjungur óákveðinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2024 | 12:11
Af trans, hommum, lesbíum & alræði öreiga okkar tíðar ...
Vesturlönd stefna að alræði transfólks, homma og lesbía undir skuggastjórn wefaranna í Davos og búrókrata sem ætla að brjóta undir sig mannkyn. Þeir sem andæfa eru ofsóttir sakaðir um razisma, popúlisma, ritskoðaðir og málfrelsi heft. Veröld er ætlað að taka upp þessa bábylju. Rússar neita að taka upp hina vestrænu helstefnu sem og 80% mannkyns. Rússar eru sakaðir um að virða ekki mannréttindi með því fara ekki undir hæl hinnar vestrænu öfgastefnu. Sjálfstæðisflokkurinn undir stjórn Bjarna Benediktssonar hefur tekið að sér að þjóna guðlausri hóphyggju undir forræði Vg. Fyrir öld höfnuðu Jón Þorláksson og Ólafur Thors sovésku alræði öreiganna undir skuggastjórn Leníns og Stalíns baki luktum dyrum Kremlar. Kommar; samfó og Vg fylgdu guðleysi gúlagsins og framsókn gyðingaandúð.
RÚSSAR HRINDA AF SÉR GUÐLEYSI
Fyrir 32 árum hrintu Rússar af sér guðleysi kommúnista og snéru sér á ný að orthódox kristinni trú sinni. Rússar töldu sig hafa tekið upp lýðræði að vestrænum hætti. Árið 1994 á fundi í Moskvu lagði Vladimir Pútin til við Bill Clinton forseta Bandaríkjanna [1991-2001] að Rússar gengju í Nato enda orðin lýðræðisþjóð. Clinton hafnaði tillögunni samdægurs eftir að hafa ráðfært sig við skuggastjóra sína. Þá þegar voru komnar fram hugmyndir vestanhafs mótaðar af herhyggju Military Complex þess efnis að sundra Rússlandi og gera að hjálendu Ameríku líkt og V-Evrópa er undir drottnun Nato og Wall Street; Dividing and Conquering.
VESTURLÖND TAKA UPP GUÐLEYSI
Hið furðulega gerðist að Vesturlönd tóku upp guðlausan glóbalizma í Washington, Berlín, London og Brussel sem hefur lagt undir sig A-Evrópu og leggur nú allt í sölurnar að knésetja hið rússneska orthódox lýðveldi. Meðan kirkjur Ameríku og Evrópu eru brenndar og rústaðar, endurreisir rússneska þjóðin sínar einstæðu býzönsku kirkjur. Rússland er stærsta efnahagsveldi Evrópu og helsta herveldi heims nú þegar Úkraínustríðið er um það bil til lykta leitt með ósigri Nato. Moskva og Sánkti Pétursborg eru glæsilegustu borgir Evrópu og Ameríku á pari við New York og San Fransisco fyrir 75 árum en nú ruslakistur. 80% mannkyns styður Vladimir Pútin í andstöðu við vestræna furðutrú um að manneskjan komi úr myrkrinu þar sem ekkert er. Hóphyggja rekur fjöldann í réttir. Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður um kristna arfleifð, helgi lífs í ljósi, frelsi og lýðræði með manngildi sem hornstein. Þessi gildi eru yfirgefin fyrir þjónustu við guðlaust helsi. Endalausar styrjaldir geisa, plágur skapa ótta og fjölmiðlar eru 4ða vald ríkisins undir rúvízkri drottnun.
ÖREIGAR ALRÆÐIS OKKAR TÍÐAR
Transfólk, hommar & lesbíur okkar tíðar eru nú í hlutverki öreiga alræðis fyrir hundrað árum. Formenn Sjálfstæðisflokksins frá Jóni Þorlákssyni til Davíðs Oddssonar voru andvígir hóphyggju kommúnisma og nazisma sem höfðu lægstu gildi sem hornsteina. Nú er öldin önnur og íslensk þjóð stendur frammi fyrir upplausn íslenska lýðveldisins; íslenskrar tungu og menningar í guðlausu alheimsríki stýrt af ofsaríkum wefurum í Davos. Það eru tíu ár frá blóðugri byltingu CIA og nazista í Kænugarði sem hófu stríð gegn rússnesku mælandi íbúum Donbass árið 2014. Illræmdur nazisti Stepan Bandera er þjóðhetja úkrönsku þjóðarinnar mærður í skólum, styttur reistar, götur og torg nefnd eftir honum. Nato styður Úkraínu land nazisma í proxy-stríði gegn Rússlandi. Utanríkisráðherra gerir vel að kynna sér sögu leikarans Zelinsky sem lofaði friði en sveik þjóð sína og magnaði stríðið.
HIN ÍSLENSKA ARFLEIFÐ Í GLATKISTUNA
Hætt við að úkranska þjóðin hverfi af spjöldum sögunnar, 15 milljónir flúnar, allt a[ 500 þúsund úkrar fallnir. V-Úkraína tilheyrði Póllandi fyrir 85 árum fer líklega aftur undir pólska stjórn. Um 80% af úkraínsku þjóðinni hefur um aldir mælt á rússnesku. Óðinn mælti á forn norrænu sem sagt íslensku. Óðinn bjó í Ásgarði í Asíá austan Tanakvíslar á bökkum Volgu sem gæti verið Volgograd, áður Stalíngrad fyrrum Tzaritsyn. Óðinn hélt upp Svíþjóð hina miklu og settist að í Sigtúnum. Tæpum þúsund árum síðar mælti Snorri Sturluson á sömu tungu og Óðinn hafði gert í Ásgarði á bökkum Volgu. Við Íslendingar tölum enn íslensku 800 árum eftir Snorra. Ef glóbal-helstefnan nær fram að ganga lendir hin íslenska arfleifð í glatkistunni. Það er vitnisburður um vegvillur okkar tíðar að forseti Íslands veifar hornum Satans og setur vindhana á Bessastaðakirkju. Bjarna Benediktssyni ber skylda sem formaður Sjálfstæðisflokksins að rýna í og skilja sína tíð og um það verður sagan dómari.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2024 | 20:39
Bifreið ofan í opinn lagnaskurð í Garði
Skömmu fyrir hádegi á fimmtudag lenti bifreið ofan í lagnaskurði í Garði sem Íslenskir aðalverktakar ÍAV höfðu grafið fyrir HS veitur við Meiðastaðaveg sem liggur til norðurs þegar ekið er inn í Garð frá Keflavík. Vatnslögnin mun hafa gefið sig í gosinu. Fiskvinnsluhús er nyrst á Meiðastaðavegi. Kona var ein í bílnum sem lenti ofan á lögnum. ÍAV gróf holuna á miðvikudag og gerði við vatnslögnina en skildi skurðinn eftir opinn án nokkurra viðvarana. Hallandi vegurinn var glerháll þegar slysið átti sér stað. Rjúfa þurfti þak bifreiðarinnar til þess að ná konunni út úr flakinu og var hún flutt í sjúkrabíl með blikkandi ljós á sjúkrahús. Tveir lögreglubílar mættu á vettvang ásamt sjúkrabíl og tækjabíl Slökkviliðs.
Eftir að lögregla hafði verið kvödd á vettvang kom ÍAV á vettvang með keilur sem voru settar upp. Hvort lögregla hafi verið að breyta vettvangi og til hvers liggur ekki fyrir. Undir kvöld var mokað í holuna. Ekki er að sjá að lögregla hafi skýrt frá hinu alvarlega slysi í Garði. Bifreiðin er Ssangyong Korando jepplingur árgerð 2014 ónýt. Mér er ókunnugt um líðan konunnar. Spurning er hvort konan eigi kröfu á hendur HS-veitum/ÍAV, sveitarfélaginu Garði eða hvort bifreiðin sé í kaskó. Árvökull Garðsbúi sendi mér þessar myndir en fjölnmiðlar hafa ekki birt fréttir af slysinu. Þeim er frjálst að nota meðfylgjandi myndir sem ég birti á facebók.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2024 | 18:28
Vill Guðni Th. nýjan sið & ný lög á Íslandi ...
Kirkja hefur staðið á Bessastöðum frá jafnvel í kjölfar kristnitöku árið þúsund og fyrir víst frá árinu 1200. Kirkjan á Bessastöðum var vígð 1796 hlaðin úr grjóti úr Gálgahrauni við botn Lambhúsatjarna. Kirkjuturninn var kláraður 1823 með vindhana og dönskum kóngi. Lýðveldi var stofnað 1944. Sveinn Björnsson varð forseti á Bessastöðum og settur var kross á Bessastaðakirkju í stað vindhanans. Krossinn var tekinn niður 1998 í tíð Ólafs Ragnars Grímssonar og var kirkjan krosslaus í aldarfjórðung til 9. nóvember 2023. Guðni Th. Jóhannesson lét þá setja upp vindhana sem snýst eftir veðri og vindum með ártalið 1823.
Forsetinn kveður hanann tákn árvekni og skyldurækni. Forsetinn skrifar að ...Pétur postuli afneitaði Jesú þrisvar þá gól þar hani. [sic]. Þorgeir ljósvetningagoði mælti á Þingvöllum árið þúsund að Ísland skuli vera kristið land með ...ein lög og einn sið... er vér slítum í sundur lögin, munum vér slíta og friðinn. Þennan vísdóm, raunar lögmál eru guðlausir að brjóta. Þeir eru að slíta í sundur siðinn og lögin og þar með friðinn, líkt og gerst hefur í Svíþjóð svo dæmi sé tekið. Vindhaninn á Bessastöðum er táknrænn fyrir hinn guðlausa sem snýst með vindum sinnar tíðar eltandi hóphyggju sem boðar að þú & ég komum úr myrkrinu þar sem ekkert er. Þessari furðutrú er haldið að þjóðinni og börnum hennar, sem eru kynvædd og transvædd. Hinn kristni trúir á líf í ljósi, almáttugan Guð; ábyrgð frammi fyrir Guði.
GUÐNI TH & STJÓRNARSKRÁIN
Guðni Th. sór eið að Stjórnarskrá Íslands sem kveður á um að forseti sem æðsti embættismaður ríkisins skuli ...styðja Þjóðkirkjuna og vernda. Semsagt viðhalda kristnum sið í landinu. Katrín Jakobsdóttir, ríkisstjórn og alþingsimenn hafa líka svarið eiða. Stjórnarskrá áréttar jafnframt trúfrelsi og kveður forseta óheimilt að vera í bísniss. Þessu eru flestir landsmenn sammála að ég hygg. Kjörnir leiðtogar verða að fara að lögum. Þeir hafa svarið eið að Stjórnarskránni. Það er tímabær spurning til Guðna Th. Jóhannessonar hvort hann styðji nýjan sið á Íslandi og hvað honum finnist um varnaðarorð Þorgeirs ljósvetningagoða um að slíta í sundur lögin og þar með friðinn. Frá Bessastöðum hefur bísniss verið stýrt af Elízu Reid. Hafa fjölmiðlar leitað skýringa?
PRESTUR HJÁ SIÐMENNT
Ég skrifaði um forsetann & sérfræðinginn Unu Sighvatsdóttur sem ráðin var til forseta Íslands í september 2020, valin úr hópi 188 umsækjenda. Una er athafnastjóri hjá Siðmennt vottuð af sýslumanni í september 2022. Una er að ígildi prestur. Hún gefur guðlaust fólk saman í hjónaband, fermir og skírir. Því fylgir ábyrgð, sagði Una þá í viðtali. Guðni Th. fór á þungarokkshátíð í Þýskalandi og hyllti Satan með alkunnri kveðju. Þá voru dóttir og sérfræðingurinn með í för en Eliza ekki sjáanleg. Reynir Traustason skrifar í Mannlíf að snjallræði sé að forsetafrúin Eliza Reid fari í framboð til forseta Íslands. Ég skrifaði þá pistil um mannlíf á Bessastöðum enda þarf gagnsæi að ríkja um embættið. Auðvitað er málið umdeilt. Í framhaldinu fóru forsetahjónin í heimsókn til gamla fólksins í Reykjanesbæ og fengu saltkjöt hjá Sjálfsbjörgu. Eliza setti inn færslur með myndum á facebók. Vísir fór í skaðastjórnun; Damage Control. Ekki annað að sjá en hamingjan leiki við Bessastaðahjónin, skrifar Vísir. Eiríkur Jónsson.is fréttamaður kveður færslur Elizu eiga að ...slá á sögusagnir sem geisað hafa um land allt um hugsanlegan skilnað þeirra.
FRIÐRIK KRÓNPRINS & UNGFRÚ CASANOVA
Í nóvember voru danskir fjölmiðlar uppfullir af því að Friðrik krónprins hafi notið kvöldstundar í Madríd með 46 ára mexikanskri konu að nafni Genoveva Casanova; ...hygget sig med en kvinde i Madrid. Spánska tímaritið Lectura birti myndir af prinsinum og fyrirsætunni fyrrverandi á veitingastaðnum El Corral de la Morería ...der er kendt for sit flamencoshow. Skötuhjúin fóru síðan á heimili Casanovu þar sem krónprinsinn dvaldi um nóttina. Við erum vinir, sagði hún í yfirlýsingu. Konungshöllin bað danska fjölmiðla að ...respektere privatlivets fred ... herunder kronprinsen. Þó það. Á Íslandi þarf Guðni Th. ekki að svara fyrir eitt né neitt; 4ða vald ríkisins veifar skotti og þiggur mola úr lófa.
Bloggar | Breytt 15.2.2024 kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.2.2024 | 20:51
Svartasta sviðsmynd er niðurbrot Íslands ...
Neyðarástand ríkir meðal 30 þúsund Suðurnesjamanna 10% Íslendinga eftir að glóandi hraunelfan rauf heitavatnsleiðsluna frá Svartsengi. Hætta er á að tugþúsundir Reyknesinga verði flóttamenn í eigin landi ofan á 3.700 Grindvíkinga og þúsundir hælisleitenda. Heitt vatn berst ekki til fólksins á Suðurnesjum né heldur til Leifsstöðvar á Keflavíkurflugvelli, KEF. Skúli Ágústsson byggingatæknifræðingur, sem unnið hefur fyrir HS Orku, varaði almannavarnir, viðbragðsaðila og HS Orku nákvæmlega við hraunflæðinu sem tók í sundur Njarðvíkurlögn. Skúli benti á þetta í netpósti til almannavarna, HS Orku, lögreglunnar og Grindavíkurbæjar þann 29. desember síðastliðinn, samkvæmt frétt mbl. Hann hélt því fram að varnargarður utan um Svartsengi leiddi hraun að Grindavíkurvegi og gæti tekið heitavatnslögnina í sundur. Það hefur nú gerst. Skúli hafði fyrst uppi varnarðarorð árið 2020.
HVE LENGI HEITAVATNSLAUST ...
Í raun veit enginn hve lengi verður heitavatnslaust. Suðurnesjamenn að minnsta kosti sumir telja þrjár vikur líklegar. Í nóvember/desember stóð ríkissjóði/almannavörnum til boða erlendis að kaupa Ketil; Boiler til varmaskipta sem hefði þjónað byggð á Suðurnesjum í neyðtilvikum. Því var hafnað. Versta sviðsmynd er að lagnir í jörðu skemmist sem taki langan tíma að lagfæra. Heitavatnslagnir skreppa saman um meter á hvern kílómeter þannig að lögnin hefur líklega skroppið verulega saman. Hætta er á að millilandaflug leggist af til skemmri eða lengri tíma. Heitavatnslagnir á flugvellinum eru nú þegar að frostspringa. Icelandair sendir eftir tankabílum til að flytja heitt vatn til KEF. Við erum að tala um mesta klúður á lýðveldistíma. Tetrakerfið gaf sig, neyðarlínan gaf sig, rafmagnslaust varð í Vogum og Kársnesi Kópavogs. Jón Magnússon skrifar um vanrækslusynd stjórnvalda en RÚV og Stöð 2 lýsa atburðum sem spennandi fótboltaleik.
KREPPUR FYRRI TÍÐA SEM HJÓM
Kreppan 2008 og síldarhvarfið 1969 verða sem hjóm miðað við það sem framundan kann að vera hjá íslenskri þjóð. Skaftáreldar 1783 koma í huga þegar hugmyndir voru að flytja þjóðina til Jótlands. Vonandi raungerist hin svarta sviðsmynd ekki. Fólk hírist í köldum húsum um ófyrirsjáanlegan tíma og þegar og tíma tekur að ná upp þrýstingi á kerfið. Við verðum að vona hið besta. Okkur er sagt í fréttum að eitthvað sé til af efni, en Landsvirkjun heldur ekki varabirgðir svo þar er komið að tómum kofa. Verstu sviðsmyndir eru kolsvartar. Allt að 35 þúsund manns verði flóttamenn í eigin landi. Við kunnum að vera horfa upp á niðurbrot samfélags. Þjóðstjórn verði eini valkostur. Við gjöldum fyrir slóðaskap og aðgerðaleysi síðustu fimmtán ára. Þau sem stöðvað hafa uppbyggingu orkumannvirkja hafa ráðið landinu í hálfan annan áratug. Orkustofnun hefur í hálft annað ár stöðvað og tafið vinnsluholu Norðurorku í Eyjafirði. Þarf ég að útlista Hvammsvirkjun í Þjórsá? Spyrjið. Af hverju? Frá valdaráninu 2016 hafa Sjálfstæðisflokkur og Framsókn verið hækjur þessara myrkraafla. Allt með ötulum atbeina vinstri villtra á RÚV og Stöð 2. Við búum í landi síljúgandi fjölmiðla 4ða valds ríkisins.
AF HVERJU EKKI ÖNNUR LÖGN
Semsagt: Við erum nú þegar með 3.700 íslenska flóttamenn frá Grindavík, hugsanlega allt að tífaldast sú tala ef allt fer á versta veg á Suðurnesjum. Lagnir hafa eyðilagst í frosthörkum, flugsamgöngur lamast um ófyrirséðan tíma sem yrði reiðarslag. Þrjú ár eru síðan Reykjaneseldar hófust og allan þennan tíma hefur blasað við augum aðeins ein heitavatnsleiðsla frá Svartsengi. Spyrjið. Hvers vegna? Af hverju ekki önnur lögn? Slegið var varnargarði um Svartsengi sem ef marka má tæknifræðinginn beindi hrauni að lögninni sem var óvarin. Kerfið er fálmandi og ónýtt. Eldgos hófst á Suðurnesjum 06:02, 08.02.24. Þegar glóandi hraunelfan fór yfir lögnina var umræða á Alþingi um galopin landamæri fyrir hælisleitendur frá Palestínu sem hafa verið flóttamenn í þrjár kynslóðir allar götur frá 1948 á framfæri alþjóðasamfélagsins. Krafan er loftbrú milli Íslands og Palestínu um Egyptaland. Þetta fólk mun hafast við í fyrsta gettói landsins og hatast við land og þjóð.
AÐ VÍLA & DÍLA UM MANNSLÍF
Á Alþingi sakaði Þórhildur pírína BjarnaBen um að ...víla og díla með mannslíf á sama tíma og Suðurnesjamenn voru að missa heitt vatn. Pírínan sakaði BjarnaBen um að stefna mannslífum í hættu. Þetta er ekki hægt að skálda. Á þremur árum; 2022, 2023 & 2024 á grundvelli opinna landamæra koma hingað um 15.000 hælisleitendur, líklega 30-50 milljarða árlegur heildarkostnaður. Hvern einasta dag hækka skuldir í útlöndum sem fólkið í landinu greiðir vegna stefnu Alþingis um opin landamæri. Kerfið er sprungið en það virðist engu skipta á Alþingi. Þetta er eins og Neró með fiðluna í Rómaborg.
LÆÐST UM LAUT, GIL & GÖTUR
Ríkissjóður galopinn gestum og gangandi meðan alþýða fólks, aldraðir og öryrkjar eiga ekki rödd en auðvitað hefur góða fólkið heimili sín harðlæst. Vinstri villtir og börn þramma á Austurvöll með fána Palestínu og lýsa stuðningi við hryðjuverkasamtök Hamas sem heita því að útrýma gyðingum, kristnu fólki og gera konur jafnréttháar geitum. Þeir sem efast um opin landamæri eru uppnefndir rasistar. Dyr eru galopnar hælisleitendum sem streyma til landsins með opinn reikning á ríkissjóð; fólkið í landinu. Þau sem víla og díla hafa selt fullveldi í hendur erlendu valdi sem leiðir til niðurbrots Íslands eins og við þekkjum; íslenskrar þjóðar, tungu og menningar. Þau læðast um laut, gil og götur eins og ræningjarnir í Kardemommubænum uppnefnandi óbreytt alþýðufólk rasista:
Við læðumst hægt um laut og gil
og leyndar þræðum götur,
á hærusekki heldur einn,
en hinir bera fötur ...
Nú fyllt við höfum fötu og sekk,
af fæðu, drykk og klæðum.
Og allt í lagi eins og ber,
en fátt um það við ræðum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2024 | 16:47
Forsetinn & sérfræðingurinn ...
Nú hefur Mannlíf Reynis Traustasonar varpað því fram sem snjallræði að Eliza Reid forsetafrú bjóði sig fram til forseta Íslands en forsetakosningar fara fram 1. júní. Guðni Th. Jóhannesson forseti láti af embætti og fátt sé um boðlega frambjóðendur, skrifar Reynir og bætir við að nokkur eftirsjá sé af Guðna Th. Jóhannessyni. Reynir kveður Elízu hafa undanfarnar vikur verið á ferð um Dubai að kynna bók sína Sprakka, þar sem hún meðal annars fjallar um stöðu sína sem innflytjanda, konu og eiginkonu. Sprakkar eru sagðir vera kvenskörungar. Þau eiga þrjú börn fædd 2011, 2009 og 2007 en fyrir á Guðni dóttur 1994.
Á SLÓÐUM HAMAS-LEIÐTOGA
Dubai er ekki land heldur stærsta borg Sameinuðu furstadæmanna og því líklegt að Elísa hafi ferðast um furstadæmin ef marka má Mannlíf. Þar á meðal er Katar þar sem nokkrir helstu leiðtogar Hamas búa í lúxus en þeir eru metnir á fimmtán hundruð milljarða króna; US $ 11.000.000.000. Ekki fer sögum af því hvort Elíza hafi hitt þá til þess að ræða um aðstoð við flóttafólk frá Gaza eða umdeilda aðstoð Íslands.
FORSETINN & SÉRFRÆÐINGURINN
Guðni Th. hefur ekki verið með Elizu á ferðalagi. Forsetinn er sagður í ansi nánum samskiptum við Unu Sighvatsdóttur sérfræðing á skrifstofu forsetans. Eliza og Guðni muni því skilja að frá borði og sæng eftir kosningar. Myndum af Guðna og Unu úr nánasta umhverfi forsetans hefur verið dreift á netinu. Erfið mál hafa komið upp á Bessastöðum, alveg sérstaklega kynferðisáreitni þegar fólk var hrakið frá Bessastöðum. Stundin og DV skýrðu frá: Maður sem hefur ítrekað verið sakaður um kynferðislega áreitni við starfsfólk á Bessastöðum heldur starfi sínu en þolendur hans flýja, var fyrirsögn DV. Málin voru hvorki kærð né rannsökuð af lögreglu líkt og tíðkast.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.1.2024 | 07:57
Nú er kallað eftir stríði við Íran ...
Þrír bandarískir hermenn féllu og 40 særðust í drónaárás á herstöð Turn 22; Tower 22 sem sögð er á landamærum Jórdaníu og Sýrlands. Árásin var á sunnudag, 28. janúar. Bandaríska varnarmálaráðuneytið segir að hermennirnir hafi verið í Jórdaínu vegna Aðgerða til Lausna; Operation Inherent Resolve í svokalllaðri baráttu við ISIS sem Obama-stjórnin kom á laggirnar fyrir um áratug. Þrjú þúsund bandarískir hermenn eru sagðir í Jórdaníu. Bandaríkjamenn eru með ólöglega herstöð á olíuslóðum í norð-austur Sýrlandi, þrátt fyrir að Donald Trump forseti hafi fyrirskipað alla hermenn frá Sýrlandi árið 2019, tilskipun sem Pentagon virti að vettugi. N-Austur Sýrland er hernumið og landið arðrænt með því að olíu er dælt upp, send í olíubílalestum til Írak og þýfið selt til Evrópu svo sem ég hef áður upplýst; sturlað sjónarspil.
BIDEN HEITIR HEFNDUM
Biden á kosningafundi í S-Karólínu heitir hefnda: Við munum bregðast við, sagði forsetinn. Að sögn Reuters, kveður Biden-stjórnin öfgahópa í Sýrlandi og Írak, sem studdir eru af Íran, vera að baki árásinni. Velkist ekki í vafa, við munum láta þá, sem að verki voru, gjalda fyrir ódæðið þegar tími er réttur, sagði talsmaður Pentagon. Íran hefur neitað aðild að árásinni. Það eru átök milli bandarískra hersveita og andspyrnuhópa á svæðinu, sagði Teheran. Talsmaður Hamas segir að árásin á Turn 22 sé bein afleiðing Gaza. Það er stríð í Mið-Austurlöndum.
NEO-CONS KREFJAST ÁRÁSA Á ÍRAN
Raunar endurtekur sagan sig. Hvar sem bandarískar hersveitir eru staðsettar í Mið-Austurlöndum, myndast andspyrnusveitir sem hefja árásir. Herstöðin Turn 22 hlaut að vera skotmark. Þegar ráðist er á ameríska hermenn krefjast stríðsæsingamenn; neo-cons hefnda. Nú skammast þeir út í vanmátt Biden. Leiðtogi repúblikana í þinginu, hinn seníli Mitch McConnell sem reglulega frýs frammi fyrir fréttamönnum, kveður aðgerðaleysi Biden styrkja óvini Ameríku. Það átti bregðast við árásinni áður en hugrakkir Bandaríkjamenn létust, sagði McConnell. Tom Cotton þingmaður frá Texas: Gereyðandi aðgerðir eru eina svarið gegn írönskum vígasveitum ... Öðrum kosti er Joe Biden heigull, sagði Cotton. Lindsey Graham frá Gerogíu krefst árása á Íran; to strike targets in Iran. Graham segir árásir ekki bara til að hefna, heldur koma í veg fyrir árásir. Ég hef sagt ykkur frá för Lindsey Graham til Mariepol í Úkraínu 2016 þegar hann hét hermönnum Azov-nazista fé og vopnum til árása á rússnesku mælandi borgara Donbass. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra gerir vel að hvetja Biden-stjórnina að hefja friðarferli líkt og var á árunum 2017-2021 þegar friður ríkti á Gaza, Arabaríki hófu að taka upp stjórnmálasamband við Ísrael og hefja brottflutning bandarískra hermanna frá Mið-Austurlöndum líkt og áformað var en Pentagon stöðvaði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2024 | 19:51
Með Satan á brjósti ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.1.2024 | 18:38
Af hverju ofsóknir í enska boltanum ...
Þrír klúbbar sem eru að stækka eða boðað stækkun leikvanga sinna; ManCity, Everton og Nottingham Forest sæta allir ásökunum skuggastjórnar EPL um að þeir brjóti reglur EPL, financial fair play og/eða megi ekki eyða um efni fram. Klúbbar með glæsta sögu fyrir stofnun EPL 1992. ManCity nú í Eastlands, Everton á bökkum Mersey og Forest á bökkum Trent. Wall Street hefur náð undirtökum í enska boltanum; English Premier League. Agentar WS hafa tekið yfir tíu klúbba. Eigandi Chelsea var látinn gjalda þjóðernis síns. Hann hafði gert Chelsea að einu besta félagi Englands. Klúbburinn var afhentur agentum Wall Street sem Divide & Conquer. Hvað finnst mönnum um eignaupptöku á grundvelli þjóðernis? Eftir að enski boltinn varð vinsælasta sófasport veraldar mætti WS til leiks á Englandi. skuggastjórn EPL tók yfir. Eftir 20 ára valdaferil Glazera er Old Trafford hriplekur; falling down, falling down. Er rangt gefið? Af hverju Rauður Ofsi? Af hverju Svartur Ofsi í Ameríku?
TITLAR
Everton Englandsmeistarar níu sinnum, FA Cup fimm sinnum, Evrópumeistarar bikarhafa einu sinni. Nottingham Forset Englandsmeistarar einu sinni, FA Cup tvisvar, Evrópumeistarar tvisvar. League Cup fjórum sinnum, UEFA Super-Cup einu sinni. ManCity Englandsmeistarar níu sinnum, FA Cup sjö sinnum, League Cup átta sinnum, Evrópumeistarar einu sinni, Evrópumeistarar bikarhafa einu sinni, UEFA SuperCup einu sinni og FIFA heimsmeistarar einu sinni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)