Strax í 1. grein frumvarps dómsmálaráðherra Þorbjargar Gunnlaugsdóttur um lög um almannavarnir 114/2025 er blandað saman hernaði og almannavörnum. Það opnar leiðir á herskyldu og stofnun íslensks hers. Ákvæðið um ...hernaðaraðgerðir er lykilorð. Þannig tekst ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að þræða framhjá óvinsælli umræðu um íslenskan her. Íslensk þjóð hefur alla fullveldistíð frá 1918 státað af herleysi og vopnleysi.
BRÝTUR GEGN STJÓRNARSKÁ
Frumvarpið brýtur gegn ákvæði 68. greinar Stjórnarskrár Íslands: Nauðungarvinnu skal engum gert að leysa af hendi. Ákvæðið um ...skyldu allra á aldrinum 18-65 ára að gegna á hættustundu, án endurgjalds, starfi í þágu almannavarna ... að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra, er sem blaut tuska framan í fólkið í landinu. Nauðung gengur í gegn um frumvarpið. Fordæmalaus eignaupptaka er boðuð. Nú er rúm vika til að gera athugasemdir til lævíslegustu breytinga í sögu lýðveldisins.
ÍSLAND UNDIR LÖGREGLUVALDI
Harður heragi er boðaður. Öllum ber að hlýða, gefa sig fram og má enginn á neinn hátt tálma eða koma í veg fyrir þessa hina lögbundnu skyldu né yfirgefa umdæmi lögreglustjóra sem hann heyrir undir, sbr 44. gr. Allir menn sæti herskyldu undir yfirskini almannavarna, konur eru líka menn. Ríkislögreglustjóra er gefið lögregluvald á stríðstímum til að kalla eftir ...erlendri aðstoð án aðkomu ráðherra, ríkisstjórnar og Alþingis, samkvæmt 45. grein. Þetta er mesta valdaafsal í sögu lýðveldisins og brot á fullveldi landsins. Ríkislögreglustjóri hefur sömuleiðis vald á stríðstímum til að senda hernaðaraðstoð; lesist hersveitir til útlanda og þarf einvörðungu að tilkynna ráðherra, samkvæmt 46. grein. Frumvarpið snýst um hervæðingu Íslands dulbúin sem almannavarnir.
ÍSLENSKAR HERSVEITIR TIL FINNLANDS
Boðaðar eru íslenskar hersveitir til Nato-herstöðvar Rovaniemi í Lapplandi. Þar eru boðaðar íslenskar, sænskar, finnskar, danskar, norskar, franskar og breskar hersveitir til árása á Rússland. USA neitar að senda sín ungmenni. Íslenskir [her]menn verða þátttakendur í Evró/Úkró/Rússó styrjöld sem ESB/Nato eru að undirbúa og hefst 2030. Ástæður undirlægju ESB gagnvart USA í nýlegum viðskiptasamningi eru til að halda amerískum hersveitum í Evrópu. Taktík Evrópu er að bíða af sér Donald Trump, þar á meðal Togga. Ísland hefur nú þegar varið tugmilljörðum króna í proxy-stríð gegn Rússlandi.
NÚTÍMA VISTABAND
Meðfylgjandi er umsögn mín 2. ágúst: "Frumvarp þetta brýtur gróflega gegn Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Það breytir lýðveldinu Ísland í grundvallar atriðum & kemur á nauðungaskyldu 18-65 ára án endurgjalds, nútíma vistabandi þar sem lögreglustjóri getur bannað fólki að yfirgefa lögreglu-umdæmi. Lögreglustjóri getur sent landsmenn á vígvelli Evrópu án samþykkis ríkisstjórnar eða Alþingis. Aðeins tiilkynna [fag]ráðherra.
Almannavarnalög eru grólega misnotuð til að koma á herskyldu landsmanna. Frumvarpið er lagt í samráðgátt 8. júlí & frestur til athugasemda rennur út 18.ágúst. Íslenskur embættismaður fær alræðisvald ... Hér hefur orðið trúnaðarbrestur milli ríkisstjórnar & Íslendinga.
Dómsmálaráðherra hefur gerst brotlegur við hegningarlög og ber að ákæra fyrir landráð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2025 | 20:13
Inga sælent og Heimur smár ...
Flokkur fólksins var sagður standa fastur á fullveldi Íslands gegn aðild að ESB í Brussel. Það var fyrir kosningar 31. nóvember 2024. Þá var öldin önnur þegar Inga Sæland endurómaði raddir alþýðufólks. Í febrúar 2025 réð Inga Sæland gamlan komma úr villta vinstrinu, esb-lepp og framkvæmdastjóra Samfylkingar til að styrkja tengslin á stjórnarheimilinu. Heimir Már Pétursson með kolsvarta fortíð sem margir fréttamenn þekkja. Flokkur fólksins er sem gömul minning, Inga sallaróleg og þögul. Nú er Inga sælent á sviðinu. Klárinn er sleginn til Brussel, landið opnað bakdyramegin. Slóðin hulin, wóktaktur sleginn og kórinn rammfalskur. Stefnir hátt á þriðja þúsund manns í ár í nafni hælisverndar og fjölskyldusameiningar. Í nafni fjölskyldusameiningar hafa 486 múslimar komið fyrstu sex mánuðina á bak við fólkið í landinu.
HEIMUR SMÁR Á STÓRA SVIÐINU
Heimur Smár var ekki fyrr mættur á stóra sviðið en fyrrum kollegar í blaðamannastétt voru orðnir ...eiturpennar án siðgæðis. Doddi byrlari og Heimur Smár skipuðu stjórnarflokknum að tala ekki við Moggahyskið. Svona er nú íslensk pólitík gagnsæ. Evrópa er málið. Allt varð að vera tilbúið þegar Frau Leyen kæmi til Íslands. Forgangsmál að afhenda Ísland milli fjalls og fjöru ásamt sjávarauðlindinni: hálendið, árnar, heita vatnið og fiskimiðin. Franskir, breskir, belgískir, portúgalskir og spánskir togarar til Íslandsveiða á nýrri öld. Orkulindir vafðar inn í orkupakka með sæstrengi til Evrópu.
LÝÐVELDIÐ ÍSLAND AFHENT BRUSSEL
Það var próblem. Stjórnarandstaðan þvældist fyrir með málþófi á Alþingi og mikill var taugatitringur. Þegar formaður þingflokks XD sleit þingfundi 10. júlí kl. 23:39 varð mikill hvellur. Þingmenn og ráðherrar þustu ofsareiðir í pontu. Menntamálaráðerra XF hrópaði ...valdarán. Inga benti á að slíkt hyski í útlöndum sé ...dregið undir húsvegg og skotið. Kristrún Frostadóttir kvaðst vera að: ...verja lýðveldið Ísland. Slík var neyðin. Sjálft kjarnorkuákvæðið virkjað; 71. grein þingskaparlaga sem ekki hafði verið beitt í 66 ár. Heimur Smár við öllu búinn hafði fengið álit skrifstofu Alþingis á kjarnorkuákvæðinu strax 7. maí. Ragnar Þór ferskur með sína 10milljóna eingreiðslu huldi slóð gamla fréttaskúrksins ásamt prófessorum HÍ. Mikið lá við. Frau Leyen var á leiðinni og uppnám á Alþingi. Kjarnorkuákvæðið sprakk 11. júlí. Alþingi slitið 12. júlí. Mikill fögnuður greip um sig meðal stjórnarliða; high five, sungið og dansað. Slegið var upp partý og stelpurnar sungu eins og fjöllyndar druslur: Do not say I can not go with other boys.
HEIMUR SMÁR GJÖFIN SEM BÖRNIN ERFA
Frau Leyen mætti 16. júlí. Kristrún fór með hana upp á fjallstind til að sýna lýðveldið Ísland til afhendingar; Allt þetta er þitt. Mikil var hamingjan. Meðan þjóðin var í sumarfríi var lætt í samráðsgátt frumvarpi No. 114/2025 sem kveður á um nauðungarvinnu allra 18-65 ára með herskyldu undir yfirskini almannavarna. Nútíma vistabann af því stríðið er á leiðinni. Þetta og meira til gat Kristrún tilkynnt Frau Leyen á fjallstindinum. Inga sælent pollróleg, takk fyrir og HEIMUR SMÁR bíður Íslendinga, herskylda á evrópskum vígvöllum ...gjöfin sem börnin erfa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)