Nafn Adolf Hitler í heimsfréttir ...

Nafn Adolf Hitler [1889-1945] hefur komist í heimsfréttir eftir að innanríkisráðherra Argentínu gaf út tilskipun um að gerð yrðu opinber skjöl um nazista sem flúðu til Argentínu eftir síðari heimstyrjöld. Rottuleiðir; ratlines voru flóttaleiðir nazista um Sviss og Spán til S-Ameríku. Landa eins og Argentínu, Paraguay, Chile, Brazilíu. Uruguay, Mexikó, Perú, Kolombíu, og jafnframt Bandaríkjanna og Kanada.
 
SKÝRSLA CIA 1955
CIA hefur gert opinbera skýrslu um Hitler í S-Ameríku þar sem fullyrt er af stöðvarstjóra í Caracas, Venesúela til Washington að Adolf Hitler hefði verið í S-Ameríku 1955. Birt er mynd af Hitler með þýskum SS-foringja Philip Citroen sem fullyrti að Hitler væri lifandi, myndir á FB síðu minni. Þeir hefðu hist mánaðarlega og Hitler hefði í janúar 1955 yfirgefið Kolombíu og haldið til Argentínu. Í skýrslunni er haft eftir SS-foringjanum að þar sem 10 ár væru liðin frá lokum stríðsins, yrði Hitler ekki saksóttur fyrir stríðsglæpi. Það þykir hæpin fullyrðing.
 
Adolf Eichmann [1906-1962] var handtekinn 11. maí 1960 af Mossad við heimili sitt í Buenos Aires og fluttur til Ísrael, dæmdur til dauða og hengdur. Hinn illræmdi Josef Mengele [1911-1979] Engill dauðans bjó einnig í Buones Aires og munu þeir hafa haft samneyti. Mengele lifði ævi sína í S-Ameríku. Hitler á að hafa látist á sjötta áragtugnum rúmlega sjötugur. Óháði fréttamaðurinn Clayton Morris stjórnandi fréttaþáttarins Redacted tekur býsna sterkt til orða um að Hitler hafi flúið til S-Ameríku. Hann bendir á að “meint hauskúpa" Hitlers hafi verið flutt til Moskvu en rannsökuð vestanhafs og í ljós komið að var af konu.
 
OPERATION PAPERCLIP
Ég hef fjallað um "Operation Paperclip" sem var leynileg aðgerð bandarískra stjórnvalda þegar um 1.600 þýskir vísindamenn, verkfræðingar og tæknimenn nazista voru fluttir til Bandaríkjanna eftir lok síðari heimstyrjaldar 1945 til ársins 1959. Þeir komust til áhrifa í bandarísku þjóðfélagi. Þeirra kunnastur var félagi í Nazistaflokknum, Wernher von Braun [1912-1977] yfir geimferðastofnuninni Nasa þegar Bandaríkjamenn sendu menn til tunglsins árið 1969 þó efasemdir um tunglferðina komi reglulega fram um að svo hafi verið en það er önnur saga.

Rægður samt valdelfdur ...

Ég stend vörð um Ísland, íslenskt fullveldi, menningu og tungumál. Ég skrifaði Váfuglinn til varnar sjálfstæði Íslands og frelsi, ensk útgáfa kom út 2012 í Westminster að viðstöddum lávörðum og þingmönnum þaggaður af pótintátum RÚV. Við lifum tíma alþjóðavæðingar þar sem glóbaliztar sitja að svikráðum við fólkið í landinu. Glóbaliztar ráða umræðu, einoka fjölmiðla. Ég stend einn gegn stétt minni. Í janúar 2019 birti Morgunblaðið grein eftir mig: “Aðförin að vestrænni siðmenningu.“ Greinin fór fyrir brjóstið á glóbaliztum svo þeir hófu að rægja mig, þegja, þagga og svívirða. Ég var sagður geðveikur. Þetta er það sem glóbaliztar gera við þjóðholla Íslendinga sem þeir saka um vera hægri-öfgaista, trumpista eða pútinista – þið munið hann Hallgrím.
 
“NÆR ALLIR SEGJA HALL VEIKAN Á GEÐI.“
Í Moggagreininni varaði ég við glóbalizma sem beitti hommum, lesbíum og transfólki fyrir vagn sinn í pólitískum tilgangi og ég benti á áætlun George Soros um aðförina að vestrænni siðmenningu og vélabrögð lögfræðinga Rauða krossins gegn þjóð sinni. Gerspilltan Rauða kross á alþjóðavísu. Allt skjalfest. DV birti rógsfrétt: “Fjöldi þjóðþekktra ýmist fordæmir Hall eða hefur áhyggjur af geðheilsu hans,“ var fyrirsögn DV 8. janúar 2019 með myndum af þjóðkunnum glóbalistum, með Toggu töff og Byrlunar-Dodda í miðju rógsins. Þau fóru í smiðju kommúnista í Sovétinu.“...Nær allir segja Hall veikan á geði,“ sagði DV eins og Pravda í den um Shakarov og Solzinitsyn. Ég bað DV að draga mig ekki oní drullupyttinn. Togga og Doddi gagnrýndu Moggann og Hrafnaþing til að útiloka þátttöku mína í opinberri umræðu. Og sjá þeim varð að ósk sinni. Minn ástkæri Moggi lét undan þrýstingi og neitaði birtingu greina; fyrst Innrás í líkama minn af læknum, sem eyðilögðu öxl mína og svo stórmerka grein: "Campomanes var KGB-njósnari" enn óbirt. Hallur Hallsson er í kjallara blogg.is aldrei færður upp á forsíðu. Ég var tekinn af Hrafnaþingi, mínum gömlu vinnustöðum Stöð2, Vísi, DV. Það var hvíslað geðveikur suss, suss, endurtekið af lýðnum. Togga er töff, Doddi er samspilltur.
 
FAGLEG RÓGSHERFERÐ
Ég var í fremstu víglínu frétta minnar tíðar, meðal stofnenda Dagblaðsins árið 1975 og markaði þáttaskil í fréttum RÚV og Stöðvar2. Rógsherferð þeirra er fagleg, þau mega eiga það. Lygaveita ríkisins á Efstaleiti hefur lengst allra haft mig á svörtum lista. Ég hef verið ritskoðaður á samfélagsmiðlum og sætt tölvuárásum. Hóphyggja blaðamanna er rótföst í Blaðamannafélagi Íslands undir forystu gerspillts formanns. Blaðamenn eru költ sem afritar Reuters, AP, CNN, BBC, New York Times sem breiða út faraldra og styrjaldir glóbalizta. Félag rannsóknarblaðamanna á Íslandi málaliði USAID og CIA. Veltið því fyrir ykkur. Byrlunarmál Páls skipstjóra afhjúpar gerspillt RÚV á Glæpaleiti.
 
KÖLT VÓKISTA
Ég hef upplýst þjóðina um stríðið í Úkraínu og covid-hneykslið og mörg fleiri mál í um áratug. Ég hef fjallað um fósturvísamálið, stuld Art Medica á 19 fósturvísum, innbrot yfir hundrað lækna í sjúkraskrár og ofsóknir Landspítalans á hendur hjónunum Gunnari Árnasyni og Hlédísi Sveinsdóttur sem falsmiðlar þagga. Útvarp Saga bættist í hóp þaggara. Gamall kollegi furðaði sig á að fjölmiðlar fjalla ekki um fósturvísamálið. Hann vakti athygli kollega okkar en kom alls staðar að lokuðum dyrum. Blaðamenn eru költ vókista sem ljúga um öll helstu mál okkar tíðar. Komandi kynslóðir munu fjalla um þetta skeið Íslandssögunnar í forundran þegar þjóðin var afvegaleidd af glóbaliztum. Sagan er harður dómari. Ég rægður samt valdelfdur, einn gegn költinu. Það eru forréttindi. Þeim glymur klukkan.

Sólveig, Snorri & afhjúpun vókisma

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lét falla ummæli við Rauða borðið sem hafa farið sem eldur í sinu: “....Vók er ein mest ömurleg hugmyndafræði sem hægt er að hugsa sér,“ sagði hún. Hallgrímur Helgason rithöfundur stundi: “Þú talar eins og Trump,“ fórnandi höndum í búbblu. “...Þú skilur ekki vókisma,“ svaraði Sólveig Anna rithöfundinum sem hafði sannað mál hennar. Vók er útilokun. Vókismi er uppspretta tranisma; alræðismi, authoritarnismi orðaði Sólveig það. Karlar á kvennaklósettum og karlar í kvennasporti allt það sem farið hefur úrskeiðis í vestrænum samfélögum þar sem sönn karlmennska er jaðarsett í löndum feminisma sem gengur á mannréttindi kvenna. Þetta var stund sannleika. Orðræðan hefur farið víða, þar á meðal hefur Snorri Másson vakið athygli á. Snorri er ímynd karlmennsku, vel máli farinn og snyrtilegur. Ungir menn leita til hans um samhljóm og fyrirmynd. Snorri er uppnefndur trumpisti, hægri-öfgaisti; eitruð karlmennska er hrópað.

HÓPHYGGJA & VÓKISMI
Hóphyggja okkar tíðar er wók sem á að andæfa kynþáttahyggju og misrétti #vertu vók; #staywoke en gerir þveröfugt, sundrar og sáir hatri. Þegar vókfólk heyrir lykilorð þá tekur það á rás og hrópar hægri-öfgar, rasismi, trumpismi, pútinismi. Fylgjendur #vók eiga fyrst og fremst heimilisfesti meðal feminista og vinstri manna; góða fólksins. Vók og trans eru kennd og innrætt á öllum skólastigum; leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, háskólum og á heimilum fólks af lygaveitu ríkisins með Samtökin 78 sem varðhund. Það verður ekki lægra lagst. Ríkisstjórn og þingmenn mæra vók í pontu; “...vók, vók, vók,“ sem er ásamt “...stríð, stríð, stríð,“ helstu hugðarefni þingheims. Transpírínan Alexandra Briem á fundi með íbúum Grafarvogs “...sýndi bringuna með kreppta hnefa,“ væntanlega af því hún/hann gleymdi kvenlegu hliðinni.

VÓKAÐ YFIR OKKUR
Öflugasti verkalýðsforingi landsins, Sólveig Anna Jónsdóttir kallar vók “...ömurlegan authoritanisma.“ Þóra Kristín Ásgeirsdóttir blaðakona segir “... Við lentum í því að vóka yfir okkur.“ Sú var tíð að baráttan átti rétt á sér en hefur snúist upp í andstæðu sína og trans er afbökun. Börnum og ungmennum er innrætt að þau búi í röngum líkama. Slagorð guðlausra um “sjálfræðisfrelsi“ er notað sem translykill þar sem opnast salir lyfjarisaog lækna með hnífa, pillur og sprautur með kemískar hormónablokkir og krabbameinslyf. Þarna má finna eitraða karlmennsku.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband