27.2.2025 | 12:24
Stefna Kristrúnar ógnar þjóðaröryggi ...
Frostrósin okkar var í Osló á fundi krataflokka eftir hörmullegt klúður sitt í Kænugarði með hinum sigruðu á lokadögum Zelinsky í T-bolnum. Hún hefði átt að halda sig á Íslandi, fylgjast með dauðateygjum stríðsstjórnar Zelinsky úr fjarlægð og friðarfrumkvæði Bandaríkjanna. En nei. Hún tók lest til Kyiv með litla fólkinu og tvöfaldaði framlag Íslands til vopnakaupa í 3.6 milljarða í ár, eftir að hafa beðið fólkið í landinu um tillögur til að spara. Frostrós hækkaði stríðsframlag okkar til Úkraínu í 27 milljarða; hvert er kick-backið. Ísland sagt í bandalagi NB-8; Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Þetta bandalag hefur tekið að sér að vopnvæða úkraínsk herfylki í styrjöld við Rússa, langfjölmennustu þjóð Evrópu. Við erum í hatursbandalagi með þjóðum sem eiga landamæri með Rússlandi. Stefna Frostrósar er þjóðhættuleg. Hún ógnar þjóðaröryggi. Hún gengur gegn íslenskum þjóðarhagsmunum og hegningarlögin taka á því.
Í lestinni hefur Frostrós hlustað á Mette gagga; Friður er hættulegri en stríð. Orwellskt ekki satt? Frostrós gengur út frá stríði: Vopnahlé sé á réttum forsendum...ekki stoppa stríðið sama hvað, segir Frostrós í viðtali við Morgunblaðið. Konan bullar. Stríðið hefur varað í þrjú ár, allan þann tíma hafa Evrópuleiðtogar aldrei rætt frið. Græni T-karlinn gætti þess að litla fólkið færi ekki hænufet út á meðal íbúa Kænugarðs. Frostrós tók ekki hænufet út fyrir sápukúlu græna T-karlsins.
ÓGNIN VIÐ BANDARÍSKT ÞJÓÐARÖRYGGI
Evrópskir leiðtogar toga þjóðir Evrópu stöðugt nær allsherjarstríði við Rússa. Hins vegar lítur Trump-stjórnin á stríð við Rússa sem ógn við bandarískt þjóðaröryggi. Stríð við Rússa getur leitt til kjarnorkustríðs. Friður við Rússa sé eina leiðin út. Trump kveðst vilja vera friðarleiðtogi og efla viðskipti. Stefna Evrópuþjóða getur leitt til eyðingar vestrænnar siðmenningar, en það svo sem hefur verið á dagskrá glóbalista. Fyrir 8 árum skrifaði ég grein í Fréttablaðið; Aðförin að vestrænni siðmenningu. Frostrós er þegar allt kemur til alls femin-glóbalisti sem tekur evrópska hagsmuni fram yfir íslenska.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2025 | 12:28
"Friður er hættulegri en stríð" ... pólitískt sjálfsvíg Kristrúnar ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.2.2025 | 14:15
Af hrútspungafýlu frú Sæland & eiturpennum Heimis Más
Við erum að sjá pólitíska umræðu sem ekki hefur sést frá dögum Kalda stríðsins. Inga Sæland sem loks heldur landsfund hefur farið áratugi aftur í tímann í árásum út í bæ. Hún sagði í ræðustól Alþingis að hrútspungafýlu leggi frá Hádegismóum og réðst á Jón Steinar Gunnlaugsson líkt og hann hefði framið glæp. Minn gamli vinur JSG hallar sér í áttrætt þvælist fyrir frú Sæland. Heimir Már Pétursson nýr áróðursmeistari Ingu fer áratugi aftur í tímann í pólitískum ofsóknum: Eiturpennar á Mogganum án alls siðgæðis. Ummælin voru óvenju ósvífin árás á blaðamenn. Raunar bætir Heimir Már hrútum við lýsingu sína. Í allri sinni fréttamennsku hefur Heimir Már ávallt haldið fram hagsmunum vinstriafla; allaböllum, Vg og Samfó. Morgunblaðið upplýsti að Inga Sæland og sonur hennar hafi fengið leiðbeiningar frá Skattinum og lofað að halda landsfund ...bráðlega. Það var ekki gert. Málatilbúnaður fjármálaráðherra um ...góða trú féll um sjálfan sig. Enginn hefur spurt Ingu um þær 240 milljónir sem Flokkur fólksins þáði. Hvað varð um peningana? Heimir Már kveður ekkert athugavert við fjármál Flokks fólksins. Með slíka öndvegisbyrjun er næsta víst að hann og Inga Sæland munu eiga góða daga saman í gefandi og uppbyggilegu samstarfi, sögðu Staksteinar. Flokkur fólksins í hendarhug útilokar XD frá stjórn borgarinnar. Af hverju ætli það sé? Frú Sæland í villta vinstrinu. Kemur það á óvart?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2025 | 21:06
Danir yfirgefa velferð fyrir styrjöld við Rússa ...
Mette Frederiksen, fulltrúi Frostrósar og Toggu í París, var ofuræst nánast sturluð á TV2, sagði að velferð, menntun og grænu hagkerfi verði skipt út fyrir hervæðingu og stríð við Rússland. Vi ma ha markant skifte til forsvar ikke bare bare kongeriget Denmark men hela Nato. Velferd, det grönne og skoler og alt mugligt andet skal væk. Russerne er den reel trussel mod Europa. Sjá viðtal við Metta á TV2. Danska þjóðin fær tillögurnar innan fárra daga. Vi kalder det kæmpkraften. Um ógn Rússa við Evrópu sagði Donald Trump um helgina: ...Not even a little bit. JD Vance sagði í Munchen að ógn Evrópu komi innan frá?
THE HILL: MAD KING OF KYIV VEÐJAR Á STYRJÖLD
Frostrósin okkar boðar ferð til Kænugarðs 3.400 kílómetra í burtu. Við vitum nú að $100Billion; hundrað milljarðar dollara hafa horfið í Kænugarði fimmtán þúsund milljarðar. Vestrænir stjórnmálamenn, Hollywoodstjörnur og blaða/fréttamenn hafa jafnan þegið svokallað kickback. Bílfarmar af dollurum og evrum farið vestur á bóginn. The Hill kallar Zelinsky The Mad King of Kyiv sem veðjar á styrjöld, ekki frið. Kómizar Kaja Kallas vill skipta Rússlandi upp í 3-5 smáríki. Hvaða erindi á forstýra okkar í Kænugarði? Togga gerði ferð í Austurveg að fyrsta verki sínu. Togga ofuræst á rúvinu kvað engan frið verða án Brussel. Togga leit illa út, ótilhöfð með timburmenn allt í kring um sig. Trump vill bara frið og dollarana $350Billion sem fóru til Úkraínu. Bara endurskoða reikningana! Það er allt of sumt. Af hverju allar þessar stressuðu konur og karlar sem skæla líkt og gerðist í Munchen.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.2.2025 | 11:35
Einangrun Pútins rofin - Stríð Bidens í Úkraínu ...
Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump segir að Úkraínu-stríðið sé styrjöld Bidens; Bidens War. Það hafi verið mikil mistök að lofa aðild Úkraínu að Nato. Stríðið í Úkraínu hefði aldrei átt sér stað ef hann hefði verið forseti. Trump kveðst vilja vera friðarforseti, ekki stríðsforseti. Útþensla Nato hófst á tíunda áratug 20. aldar þrátt fyrir loforð Vesturlanda til Mikhail Gorbatsjov um Ekki þumlung austur; Not an Inch East gegn því að Þýskaland yrði sameinað. Loforðið var svikið og Nato þandist út til A-Evrópu sem og ESB útþensla ókosinna búrókrata í Brussel.
DRAUMAR HERFORINGJANNA RÆTAST
Herforingjar fengu drauma sína uppfyllta. Balkanskaga var hleypt í uppnám og loftárásir gerðar á Serbíu1999. Svo hófust endalausu stríðin í löndunum sjö; Afghanistan, Írak, Súdan, Lýbía, Sýrland, Sómalía og aðeins Íran er eftir af listanum. ESB og Nato-aðild Úkraínu og Georgíu var mótuð á fundi í Búkarest 2008. Þá sögðu Rússar hingað og ekki lengra. Nato í Úkraínu er eins og sovéskar eldflaugar á Kúbu 1962 og Kína með herafla í Mexíkó á okkar tíð.
EINANGRUN RÚSSA ROFIN
Macron boðar neyðarfund í París því Trump ætlar að koma á friði! Trump hefur bundið endi á einangrun Rússa sem ekki var boðið á friðarviðræður í Sviss. Yfir milljón úkrar eru sagðir fallnir og nýjasta útspilið er að stríð bara í nokkra mánuði í viðbót þýði hrun rússneska hersins og Pútins. Lygaveita ríkisins kallaði allaballann Árna Þór Sigurðsson til þess að ljúga því að Rússland Pútins sé á barmi hruns; bara þrauka í fáeina mánuði og fórna fleiri lífum úkranískra ungmenna. Rússland er langfjölmennasta þjóð Evrópu; 4ða mesta efnahagsveldi veraldar með öflugasta her heims.
Frostrós og Togga kyrja möntruna um Úkraínu í Nato í stað þess þess að halda sig til hlés eins og Færeyingar. Þær ætla í ESB! Hefur einhver reiknað hvað brjálæðið kostar fólkið í landinu? Sturlun þessa er ekki hægt að skálda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2025 | 22:22
Ísland útkjálki Evrópu á ný ...
Okkar næsti nágranni Grænland sækist eftir sjálfstæði og frelsi undan danskri nýlendukúgun. Við eigum að standa með Grænlendingum og gera að helstu viðskiptaþjóð okkar. Ríkisstjórn Íslands sækist eftir að vera þátttakandi í stríðsátökum í Úkraínu þangað sem íslensk ungmenni verða send á vígvelli ef draumur ríkisstjórnar Íslands rætist um aðild að ESB á brauðfótum. Kókaínfíkill með brostna rödd vill stofna evrópskan her til þess að berjast við Rússland langfjölmennasta ríki Evrópu, fjórða mesta efnahagsveldi veraldar, mesta herveldi okkar tíðar.
ÞAU ÞRÁ HEIMSTYRJÖLD
Það eru líklega allt að milljón Úkrar fallnir. Bandaríkin segja hingað og ekki lengra en vinstri menn þrá þriðju heimsstyrjöldina. Þeir eru í sárum af því forseti Bandaríkjanna talaði við Vladimir Pútin og af vinsemd um Rússa. Joe Biden gerði hvorugt í fjögur ár. Frostrós og Togga hafa uppi ágreining við tvö öflugustu ríki veraldar; Bandaríkin og þær eru í stríði við Rússland. Frostrós segir: "Úkraína verður að sigra Rússa." Bandaríkin breytir ekki stefnu Íslands, segir Togga. Þær eru út á þekju, kjánar ófærar um að leiða þjóðina.
ÞEGAR DANIR RÆNDU ÍSLENSKU GULLI & SILFRI
Ísland var útkjálki Evrópu um aldir undir danskri nýlendustjórn. Eftir að Jón Arason biskup var hálshöggvinn 1550 rændu Danir öllu gulli, silfri og verðmætum úr klaustrum og kirkjum. Það tók Dani fimmtán ár 1555-1570 að flytja verðmætin úr landi. Þegar því var lokið komu þeir á einokunarverslun 1602-1787. Þeir bönnuðu öðrum þjóðum aðgengi að landinu, svipað og þeir hafa einangrað Grænland. Við eigum samleið með Nuuk og verðum að gæta að verða ekki evrópskur útkjálki á ný.
HRÆSNI HINNA ÓKJÖRNU
Evrópu er stjórnað af ókjörnu fólki í Brussel sem prédikar lýðræði en lifir ekki lýðræði heldur beitir ritskoðun, höftum og ofursköttum, segir utanríkisráðherra Indlands Prasad Jaishankar sem bendir á hræsnina í Evrópu. Það var við hæfi að varaforseti Bandaríkjanna JD Vance hafi rassskellt evrópska elítu í Munchen. Ógnin kemur ekki frá Rússlandi, hún kemur innan frá, sagði Vance. Milljónir hælisleitenda eru ógn við vestræna siðmenningu, sagði Vance. Brussel og evrópsk elíta þráir stríð. Við eigum að standa vörð um hagsmuni og frelsi Íslands, íslenska menningu og tungumál á krossgötum milli Evrópu og Ameríku. Tallinn, Riga, Vilnius og Kænugarður eru fjarri Íslandsströndum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.2.2025 | 20:22
Eldræða JD Vance í Munchen ...
Varaforseti Bandaríkjanna J.D. Vance hélt mestu eldræðu bandarísks varaforseta þegar hann ávarpaði öryggisráðstefnuna í Munchen í Þýskalandi. Ræða sem allir verða að hlýða á hvaða skoðun sem þeir hafa. Lygaveita ríkisins í uppnámi, Vísir og Stöð2 fara á taugum. Öryggisógnin er ekki frá Rússlandi og Kína heldur innanfrá, sagði Vane. Í salnum var Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Ræða Vance var skörulega flutt sem var að vonum enda afar öflugur ræðumaður. Ræðan var haldin í skugga hryðjuverks í Munchen daginn áður. Vance gagnrýndi ógildingu kosninga í Rúmeníu á dögunum þegar Cálin Georgoescu var kjörinn forseti. Vance gagnrýndi fyrrum kómizarinn Thierre Breton sem fagnaði og kvað hugsanlega þurfa ógilda kosningar í Þýskalandi á sunnudag í næstu viku ef úrslit fara ekki að vilja ESB.
GRÉTA THUNBERG & ELON MUSK
Við eigum ekki bara að ræða lýðræði, við verðum að lifa lýðræði, sagði Vance sem minnti á Kalda stríðið milli lýðræðisríkja og kommúnista sem lokuðu kirkjum, ritskoðuðu, fangelsuðu og breyttu kosningum að geðþótta. Vance benti á hatursorðræðu sem dæmi um tilraun evrópskra stjórnvalda til þess að bæla raddir fólks. Hann benti á mannréttindabrot í Þýskalandi, Svíþjóð og Bretlandi; dóm yfir Adam Smith Connor 51 árs Breta fyrir að biðja í hljóði fyrir utan fósturdeyðingarkliník fyrir ófæddum syni sínum sem fyrrum kærasta hafði látið deyða í móðurkviði. Hann benti á hugarglæpi í Skotlandi. Og auðvitað Bandaríkin undir Joe Biden þar sem facebók var notuð til að ljúga því að covid hafi ekki komið frá rannsóknarstofu í Kína. Heyrir Alma? Vance gagnrýndi taumlausan innflutning hælisleitenda. Hver kaus þessa stefnu? Ameríka þoldi skammir Grétu Thunberg í áratug, þið eigið að líða Elon Musk í nokkra mánuði, sagði Vane.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.2.2025 | 16:20
Kynvæðing barna að baki luktum dyrum ...
Skólakerfið kynvæðir börn og ungmenni að baki luktum dyrum. Foreldrar sem vilja fylgjast með innandyra er vísað á dyr og ofsóttir af fólki á ríkisfé. Foreldrum ætti að vera frjálst að fylgjast með kennslu barna sinna. Að sjálfsögðu. Auðvitað á að opna skólana og ræða námskrá við foreldra; 14.9% barna og ungmenna í 9-10. bekk vera samkynhneigð, tvíkynhneigð pankynhneigð eða eikynhneigð. Auðvitað á að hætta kynvæðingu barna. Eldur Smári formaður Samtakanna 22 hefur stefnt Bergsteini Sigurðssyni fréttamanni, RÚV og Samtökunum 78 fyrir pólitískar ofsóknir á ríkisfé.
BÖRN ÞORA EKKI Í SKÓLA
Nú hafa fjölmiðlar hafið umræðu um ofbeldi innan skóla. Börn þora ekki í skóla, sagði á forsíðu Morgunblaðsins í byrjun viku. Fámennur hópur ræður ríkjum í Breiðholtskóla. Börn hafa orðið fyrir andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Stúlka sem tekin var kverkataki missti meðvitund. Borgin sér ekkert, heyrir ekkert, segir ekkert. Villta vinstrið er að rotta sig saman um nýjan meirihluta í nafni feminisma. Það verður bara svartara. Ríkisstjórn feminista heldur fram kynvæðingu barna í skólum, wók og trans. Karlar inn á kvennasalernum, karlar í íþróttum kvenna. Feministar ganga á mannréttindi barna og kvenna. Þeir segja að kynin séu 73 en ekki tvö; karl og kona. Þessi stefna endar auðvitað á ruslahaugum sögunnar. Vindar eru að snúast úti í hinum stóra heimi en á Íslandi ríkir miðaldamyrkur í skjóli lygaveitu ríkisins sem beitir þöggun og pólitískum ofsóknum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2025 | 13:12
Ameríska öldin heyrir sögunni til ...
Tímans þungi niður fram steymir. Ameríska öldin heyrir sögunn til; American Century 1947-2025. Ameríka setur sjálfa sig í 1. sæti fram fyrir alþjóðavald; Make America Great Again. Bandaríkin voru ráðandi heimsveldi í einpóla veröld. Við lifum nú í margpóla veröld með Kína, Indland, Rússland og Bandaríkin ráðandi stórveldi. Við erum vitni að upplausn ESB og Nato. Við erum vitni að endalokum endalausra styrjalda og fjörbrotum glóbalizma.
Donald Trump hefur hætt fjármögnun Úkraínu sem hefur tapað stríðinu gegn Rússlandi. Evrópuríki hins vegar eru staðráðin í að halda áfram stríðinu við Rússland. Ísland þar á meðal. Evrópskir leiðtogar eru vegvilltir kjánar. Hnignun Evrópu blasir við öllum nema pólitískum leiðtogum álfunnar. Glámskyggni Íslendinga er sérlega eftirtektarverð. Donald John Trump vann afgerandi sigur 5. nóvember; landslide victory. Hins vegar töldu 94% Íslendinga að Kamala Harris yrði forseti því Trump sé hættulegur narsissti og fasisti. Svona öflug er lygaveita íslenska ríkisins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)