10.1.2023 | 17:43
Þegar Friðrik Ólafsson varð þjóðhetja
Friðrik Ólafsson varðaði veginn á fyrstu árum lýðveldisins með glæstum sigrum á hvítu reitunum og svörtu. Þjóðhetja svo erfitt er fyrir fólk að skynja og skilja nú á dögum. Líklega hefur enginn Íslendingur hrifið íslenska þjóð sem Friðrik Ólafsson. Öll þjóðin fylgdist með afrekum hans og beið úrslita í ofvæni. Sjónvarpið sýnir nú tvær heimildamyndir um Friðrik Ólafsson eftir Jón Þór Hannesson. Helgi Ólafsson stórmeistari hefur skrifað magnaða ævisögu Friðriks.
Friðrik hampaði Íslandstitli 1952, aðeins 17 ára gamall og varð Norðurlandameistari ári síðar. Friðrik bjó yfir leiftrandi hæfileikum; sókndirfsku, djúpum fléttum, óvæntum leikjum svo áhorfendur tóku andköf. Tvítugur titillaus stúdent frá Íslandi sló í gegn í Hastings á Englandi um áramótin 1955-56. Þá einu alfrægasta skákmóti heims. Ungi Íslendingurinn var óskrifað blað þar sem hann atti kappi við heimsfræga stórmeistara. Spekingar spáðu fyrir mótið, töldu hinn júgóslavneska Ivkov eða Sovétmennina Taimanoiv og Korchnoi líklega til sigurs. Engum datt í hug að tvítugur strákur frá Íslandi ætti möguleika gegn svo öflugum stórmeisturum. Spekingar settu Friðrik ekki á blað.
En Friðrik varð efstur. Sigur Friðriks skipar honum við hlið beztu skákmanna heims, var fyrirsögn Morgunblaðsins yfir þvera forsíðuna. Símar ritstjórnar loguðu linnulaust og skákskýringar Guðmundar Arnlaugssonar í hádegisútvarpinu voru afar, afar vinsælar. Hvert mannsbarn hlustaði á og las fréttir frá Hastings.
Þjóðhetju fagnað á Reykjavíkurflugvelli
Mikið fjölmenni tók á móti Friðriki á Reykjavíkurflugvelli við komuna til landsins. Ræður voru fluttar, skákmeistari hylltur þjóðin tók á móti þjóhetju sinni. Og Sigurður heitinn Sigurðsson, hinn vinsæli fréttamaður Útvarpsins, var þá á vettvangi sem endanær þegar Frirðik snéri heim frá glæstum sigrum í útlöndum. Þjóðin þekkti ávarpsorð hans komiði sæl og komst í gott skap. Segðu mér, Friðrik
Áður en Friðrik fór til Hastings í lok árs 1955 hafði hann orðið efstur á Norðurlandamótinu í skák. Nokkrum dögum eftir komuna heim hóf Friðik einvígi sitt við Bent Larsen í Sjómannaskólanum. Þar var ávallt fullt út úr dyrum og færri komust að en vildu. Þjóðin fylgdist með viðureigninni við Danann af lífi og sál. Larsen náði tveggja vinninga forystu en Friðrik jafnaði metin með tveimur glæstum sigrum. Þeir tefldu úrslitaskák, Friðrik lenti í æsilegu tímahraki og tapaði. Líklega hafði liðið of skammur tími milli móta.
Þá var ég tæpra fimm vetra. Við Friðrik erum systkinabörn. Faðir minn, Hallur Símonarson, hsím þá á Tímanum síðar einn stofnenda Dagblaðsins, var ágætur skákmaður og afar snjall bridgespilari. Margfaldur Íslandsmeistari og landsliðsmaður. Mínar fyrstu bernskuminningar eru frá einvíginu í Sjómannaskólanum. Friðrik fór á millisvæðamót í Portoroz í Júgóslavíu og hafnaði í 5-6. sæti, vann þar meðal annars Bobby Fischer. Friðrik hafði skipað sér á bekk þeirra bestu til þess að skora á heimsmeistarann Mikhail Botvinnik. Hann var útnefndur stórmeistari 1958, 23 ára. Friðrik Ólafsson bar höfuð og herðar yfir aðra Íslendinga að vinsældum.
Þegar Rússar snérust gegn Friðriki
Þegar ég hóf störf á Morgunblaðinu 1979 hafði Friðrik Ólafsson verið forseti FIDE, alþjóða skáksambandsins í eitt ár. Ég fékk það hlutverk að halda utan um skákfréttir. Skák var stórmál á Mogganum. Friðrik þurfti að taka á erfiðum málum í forsetatíð sinni ekki síst máli stórmeistarans Viktors Korschnoi. Í tíð Friðrik tók Fide upp málstað mannréttinda og Korschnoi. Þing Alþjóðaskáksambandsins var haldið í Luzern í Sviss árið 1982. Þá kom Friðrik til endurkjörs og ég var blaðamaður Morgunblaðsins. Andstæðingur Friðriks í baráttunni um embætti forseta var Filipseyingurinn Campomanes. Sovétmenn hefndu sín og snérust gegn Friðriki. Ógleymanlegt þegar þau tíðindi spurðust á þinginu í Sviss að Brezhnev Sovétleiðtogi væri allur og þingheimur reis úr sætum til að hylla hinn látna leiðtoga.
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að flytja þjóðinni fréttir af frækilegum sigri Jóhanns Hjartarsonar við Viktor Korschnoi í St. John í Kanada þegar ég var á Sjónvarpinu. Friðrik aðstoðaði Jóhann við undirbúninginn, var í St. John ásamt Margeiri Péturssyni og Helga Ólafssyni. Þjóðin fylgdist með hinum unga Jóhanni í glímunni við rússnesku goðsögnina. Ég fór sem fréttamaður Sjónvarps til Seattle þegar Jóhann tefldi við Anatoly Karpov í átta manna úrslitum um réttinn til að skora á Garri Kasparov. Karpov reyndist okkar manni ofjarl, en svona nálægt en samt svo fjarri var Íslendingur frá heimsmeistaratign árið 1989.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.1.2023 | 09:38
Fá blindir sýn? ...
Það var húsfyllir á fundi Málfrelsis, samtökum um frjálsa og opna umræðu um lýðræði og mannréttindi; Í þágu upplýstrar umræðu. Undiraldan er þung og þyngist. Aðstoðarritstjóri Spectator og formaður Free Speech Union, Toby Young flutti fyrirlestur. Minn fyrrum samstarfsmaður og vinur, Ögmundur Jónasson fjallaði um stöðu Kúrda, Svala Magnea Ásdísardóttir fjölmiðlafræðingur um fangelsun Julian Assange. Fundarstjóri var Arnar Þór Jónsson. Fréttin.is greinir frá.
Ég hef reynt að vekja vini mína Albert Jónsson og Óla Björn Kárason til umræðu um Úkraínustríðið. Hvernig ber að túlka þögn þeirra? Gera vinir mínir sér grein fyrir áhyggjum fólks af skerðingu málsfrelsis og lýðréttinda? Ég hef reynt að opna augu þeirra án árangurs og uppskorið fangelsun facebókar; f-jail, nýr dagur, nýr dómur. Hvenær opnast augu valdastéttarinnar í 101 Reykjavík ... Hvenær fá blindir sýn?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.1.2023 | 16:50
F-dýflissa fyrir opin bréf til Alberts & Óla Björns
Ég hef skrifað gömlum félögum og vinum tvö opin bréf um Úkraínu-stríðið; Alberti Jónssyni fremsta alþjóðafræðingi okkar og Óla Birni Kárasyni þingmanni. Þeir hafa ekki verið í sambandi né svarað en ég efast ekki um að þeir ráði bót á því. Öll umræða er mikilvæg. Ein ríkisskoðun hefur verið grunnur umræðu meginmiðla samfélags- og fjölmiðla svo ekki má ræða aðra sviðsmynd en útgáfu Nato.
Þegar van der Leyen æðsti kómizar ESB missti útúr sér ummæli um hroðalega útreið úkranska hersins þar sem hún skýrði frá því að yfir 100 þúsund úkranskir hermenn séu fallnir, þá voru ummælin þurrkuð út nánast á rauntíma. Ég veit ekki til þess að nokkur vestrænn meginmiðill hafi skýrt frá. Þeir leiðrétta ef rangt er. Annað dæmi er hótun Biden 7. febrúar 2022 þess efnis að binda endi á; to end Nordstream gasleiðsluna með garminn Olaf Stolz kanslara sér við hlið. Ritskoðarar hafa verið í yfirvinnu að stroka út og meginmiðlar þagga en vinir mínir leiðrétta ef rangt er.
F-dýflissa: dómur Facebókar
Facebókin hefur sett mig í f-dýflissu og neitað að birta síðara bréf mitt til Alberts og Óla Björns [ II ]. Efast einhver um að Stóri bróðir sé í aksjón? Ég birti mynd af Zelinskí forseta undir úlfsöngli; miðaldatákni notað af nazistum Hitlers. Öngull úlfsins hefur verið áberandi í Úkraínu okkar samtíma. Eftir að stríðið braust út eru meginmiðlar ofurviðkvæmir því ekki má falla kusk á hvítflibba forsetans, né nazíska fortíð Úkraínu. Fyrir rúmu ári birti Nato mynd á Twitter af úkraínskum kvenhermanni með nazískan Svartkross Schwarze Sonne. Guardian birti sömu mynd á forsíðu. Nato fjarlægði myndina en eðli máls samkvæmt gat Guardian það ekki.
Hreinsun vestrænna meginmiðla
'Hreinsun' meginmiðla á nazískri fortíð Úkraínu hefur staðið yfir frá upphafi stríðs. Þeir sem dirfast að véfengja eru jaðarsettir. Svona er komið fyrir Vesturlöndum, samanber meðfylgjandi dóm facebókar og nokkur ummæli meginmiðla fyrir og eftir stríð sem ég hef birt. Traustvekjandi? Elon Musk hefur rofið þöggunarmúrinn á Twitter, samanber meðfylgjandi ummæli og mynd: Ég er ekki heilaþveginn. Sjá má II hluta bréfs míns: Albert, ÓliBjörn og ég [ II ] hér að neðan og Útvarpi Sögu og fréttin.is sem hafa tekið upp.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2023 | 22:28
Albert, Óli Björn & ég ... [ II ]
Rússland á uppruna í Garðaríki þar sem nú er Kænugarður eða Kyiv. Sagt er að Rússland hafi fæðst í Kievan-Rus. Víkingar sigldu Eystrasalt austur rússnesku ána Dvínu. Þeir sigldu fjarlæga Nepurfljót Dnjeprfljót suður til Kænugarðs niður til Svartahafs yfir til Miklagarðs í Býzan. Volga rennur í Kaspíahaf, Dóná í Svartahaf. Kænugarður var fyrsta höfuðborg Rússlands, stofnuð AD 882. Rúrik eða Hrærekur var fyrsti konungur Kievan-Rus og ríktu afkomendur hans í rúm 700 ár. Rúrik dó 879. Oleg eða Helgi gerði Kænugarð að höfuðborg.
Mongólar rústuðu Kænugarði á 13. öld þannig að Rúrikar fluttu sig norður til smábæjar nefndur Moskva. Valdatíma Rúrika lauk um 1600. Rómanóvar komust þá til valda. Garðaríki sætti árásum um aldir; Mongólar, Tyrkir, Litháar, Pólverjar, Svíar. Úkraína þreifst ekki sem þjóðríki fyrr en með rússnesku byltingunni fyrir rúmri öld þegar Úkraína varð sovéskt sósíalískt lýðveldi. Vladimir Lenín renndi iðnaðarsvæðum Donbass inn í Úkraínu. Holomodyr skipulögð hungurneyð Jósefs Stalíns 1932-33. Miðstýrður samyrkjubúskapur leiddi til dauða átta milljón bænda. Þegar Hitler og Stalín skiptu Póllandi milli sín 1938 renndi Stalín pólska hlutanum inn í Úkraínu þar sem Lviv er stærst borga. Hitler réðst inn í Sovétríkin í júní 1941. Hitler galt afhroð við Stalíngrad á bökkum Volgu. Stephan Bandera stofnaði nazískt leppríki í Lviv þar sem vinur minn Margeir Pétursson rekur Bank Lviv. Bandera gekk vasklega fram í fjöldamorðum svo jafnvel þýskum ofbauð. Rætur nazisma eru djúpar. Bandera var lýstur þjóðhetja Úkraínu fyrir rúmum áratug.
GERVIRÍKIN ÚKRAÍNA & HVÍTA RÚSSLAND
Úkraína og Hvíta-Rússland voru stofnríki Sameinuðu þjóðanna; gerviríki til að fjölga atkvæðum Stalíns á Allsherjarþingi og í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna; Ukraine Soviet Socialist Republic, Belo-Russian Socialist Republic. Krímskagi heyrði undir Rússland innan sovéska ríkjasambandsins þar til Nikita Krútsjoff fékk þá grillu í höfuðið að færa Krím undir úkraínska sovétlýðveldið árið 1954.
ÞEGAR KREMLARMÚRAR OPNUÐUST
Ég var í Moskvu 1985. Mér var sögð sú saga að á Sovét-tímanum hefðu Kremlarmúrar opnast að morgni 17. júní og sendinefnd ekið um Moskvu að íslenska sendiráðinu til að samfagna Íslendingum á þjóðhátíðardaginn, norrænum vinum til gremju. Pétur Thorsteinsson var sendirráðsritari í Moskvu 1944-47, sendiherra 1953-61 í miklum metum. Ísland er Rússum hugstætt vegna Heimskringlu, Eddu-kvæða Snorra Sturlusonar. Völuspá segir frá Ragnarökum þar sem bræður berast á banaspjót. Snorri kvað Óðinn koma frá Tanakvísl í Ásheimi þar sem Dóná rennur í Svartahaf við borgina Odessu. Njála, Egla, Laxdæla, Kristnisaga segja frá Gunnari á Hlíðarenda og Kolskeggi herja í Austurvegi þaðan sem þeir sigldu með fé mikið; sömuleiðis Egill og Þórólfur Skalla-Grímssynir í Kúrlandi. Laxdæla segir af Bolla í Austurvegi; sonur Bolla Þorleikssonar og Guðrúnar Ósvífursdóttur. Kristnisaga segir af Þorvaldi víðförla Konránssyni í Jórsölum og Miklagarði, sigldi Nepurfljót til Kænugarðs. Víkingar voru Rús, væringjar í Miklagarði.
Sovétríkin hrundu eins og spilaborg í ágúst 1991 þegar harðlínuklíka fangelsaði Gorbatsjov þar sem hann dvaldi á Krímskaga. Valdaránið fór út um þúfur þegar Boris Yeltsin klifraði upp á skriðdrekann í Moskvu. Sovétríkin liðuðust í sundur. Rússland og Úkraína urðu til ásamt lýðveldunum í Kákasusfjöllum og við Eystrasalt. Vladimir Pútin komst til valda um aldamótin. Hann hefur puðað við að sameina Rússa eftir hroðaskaða kommúnista. Þetta er örsaga Rússlands og Úkraínu í 500 orðum í bland við íslensk tengsl.
NATO MEÐ ELDSPÝTURNAR
Nú þætti mér vænt um ef vinir mínir, Albert og Óli Björn svari því hvað Nato sé að gera þarna. Zelinskí sagði á dögunum í Washington að Úkraínustríðið sé fjárfesting í öryggi Vesturlanda! Stríð er öryggi á orwellsku. Úkraínskri eldflaug var skotið á Pólland. Zelinskí laug að hún væri rússnesk. Zelinskí kvað Pólland hafa orðið fyrir árás; árás á eitt Natoríki væri árás á öll. Hvað er Nato að leika sér með eldspýtur í rússneskum kartöflugarði? We will stay with Ukraine as long as it is there, sagði Biden um daginn með Zelinskí sér við hlið. Lindsey Graham senator sagði að meðan Ameríka láti Úkraínu í té vopn, þá berjist úkranar til síðasta manns! Þessa menn varðar ekkert um úkraínskt blóðbað. Bræður berjast í amerísku proxy-stríði.
Rússum svíður kjánaprik íslenskra stjórnmálamanna. Utanríkisstefna okkar gengur gegn hagsmunum Íslands, ólíkt frændum okkar í Færeyjum. Við höfðum allar forsendur til að miðla friði í stað þess að senda milljarða í þvottavélar Zelinskí og Biden. Vinir mínir hljóta að átta sig á að vestrænt málfrelsi er ekki lengur við lýði, ritskoðun er sem mara yfir Vesturlöndum. Af hverju halda menn að facebók setji mig á f-fangelsi fyrir þessa myndar af Zelinski með vinum sínum? Telst það fréttaefni?
Vinir mínir hljóta að þekkja ummæli Angelu Merkel þess efnis að Minsk-samningarnir hafi veitt Úkraínu tíma til hervæðingar. Vinum mínum hlýtur að vera kunnugt um Tölvuna úr Helvíti Laptop from Hell sem afhjúpar glæpi Biden-feðga; skelfilegt barnaníð, mansal og fordæmalausa spillingu. Vestræn 101 metrópól hylma yfir. Vinir mínir hljóta að hafa kynnt sér valdaránið 2020 þegar Ameríka varð fasísk. Eða er ekki svo?
ORWELLSKA: STRÍÐ ER FRELSI
ESB lætur sig dreyma um evrópskt glóbal stórríki, en stendur frammi fyrir frostavetri, efnahagshruni og upplausn. Enginn nefnir hótun Biden að sprengja Nordstream gasleiðsluna. Er ekki sannleikurinn sá að úkrnazískur hersveitir eru gersigraður sem Hitlers við Stalíngrad fyrir 80 árum? Úkraína kolmyrkuð, orkulaus, máttvana. Vissulega voru Rússar í útjaðri Kænugarðs í upphafi stríðs, drógu sig baka og héldu til A-Úkraínu sem nú er hluti Rússlands. Það var túlkað sem ósigur. Er það svo? Var tilgangurinn að binda úkraínskar hersveitir í kring um Kænugarð. Nú berast fregnir af bandarískum hersveitum í Úkraínu ásamt vestrænum málaliðum með hátæknivopn. Sagt er að tugir, jafnvel hundruð rússneskra hermanna hafi fallið í flugskeytaárás á Mavkívka í Donetsk á dögunum. Vísbendingar eru um að Pólverjar hugsi sér til hreyfings. Væri það til að taka V-Úkraínu til baka? Hvað verður um Kyiv Oblast? Douglas Macgregor sagði í vikunni að 35 þúsund úkraínskir hermenn séu týndir, allt að 150 þúsund fallnir, enn eigi rússneski hrammurinn eftir að falla af fullum þunga.
Stríðið er framhald af því sem í Ameríku er kallað Endalausar styrjaldir; Balkanskagi, Afganistan, Írak, Lýbía, Sýrland, Súdan, Sómalía. Af hverju allar þessar styrjaldir? Þeir sögðu að stríðin væru í nafni frelsis og lýðræðis; stríð er frelsi á orwellsku. Hefur þeim tekist að breiða út frelsi og lýðræði í ríkjum múslima? Til hvers dóu 11 milljónir múslima og tugum milljóna stökkt á flótta? Standa frelsi og lýðræði á traustum fótum á Vesturlöndum? Er stefnan að Ameríka deili og drottni: Sjá menn ekki að stríðinu í Austurvegi er beint gegn Rússlandi, kallast Proxy-stríð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.1.2023 | 16:38
Albert, Óli Björn & ég
Albert Jónsson og Óli Björn Kárason eru gamlir samstarfsfélagar mínir og vinir. Við Óli Björn unnum saman á Morgunblaðinu fyrir næstum fjörtíu árum og aftur árið 2003 þegar Óli Björn þá ritstjóri DV fékk mig til að leiða umbreytingu blaðsins. DV fékk nýtt nútímalegt útlit. Þá hins vegar urðu þau tíðindi að Landsbanki Björgólfsfeðga seldi DV Dablaðið Vísi í hendur Baugsveldi Jón Ásgeirs sem safnaði fjölmiðlum eins og nærbuxum. Þann 1.nóvember 2003 var tilkynnt um brotthvarf Óla Björns af DV.
Við Albert vorum saman á Sjónvarpinu á umbrotatímum. Albert kom til starfa á Sjónvarpið skömmu eftir fund Reagans og Garbatsjovs í Höfða í október 1986, fjölfróður um utanríkismál, ráðgjafi Davíðs Oddssonar í utanríkismálum alla hans forsætisráðherratíð og utanríkisráðuneytinu, síðar sendiherra í Washington, Moskvu og víðar.
Ég ber mikla virðingu fyrir þessum vinum mínum. Báðir hafa tjáð sig undanfarna daga um atburði í Úkraínu í Morgunblaðinu. Það er sannarlega erfitt að átta sig á gangi stríðsins en sú mynd sem þeir draga upp er á skjön við mína vitneskju. Albert kallar Rússa pappírsbjörn sem hafi tapað miklu landi eftir innrásina fyrir 10 mánuðum. Rússar hafi grafið sig niður í Donbass. Rússneski herinn hafi misst allt að 100 þúsund manns. Albert telur að Vesturlönd hafi ekki tekið nógu hart á Rússum við innlimun Krímskaga. Rússar hafi talið sig geta klárað málið hratt að mati Alberts en séu í krappri vörn. Ósigra rússneska hersins megi rekja til spillingar og vanhæfni. Óli Björn er harðorður í garð Rússa, lýsir Zelenskí forseta sem kyndilbera frelsis sem gangi á hólm við illsku. Framganga Zelinskí veiti unnendum frelsis innblástur; hernám einnar þjóðar rýri frelsi annarra. Ef Úkraína falli verði sólin á himni þínum daufari. Pútín sé meðal illmenna sögunnar. Sagan að sjálfsögðu mun dæma.
VALDARÁNIÐ 2014
Vinum mínum hlýtur að vera kunnugt um rætur valdaránsins í Kænugarði 2014 þegar öfgaöfl voru leidd til valda af Obama og Biden, hroðaleg morð framin í Kænugarði og Odessa. Nazísk öfl tóku yfir Kænugarð. Azov-nazistar urðu deild í úkraínska hernum, ásamt fleiri fasískum öfgaöflum. Rússneska var bönnuð í A-Úkraínu. Til varð Úkrnazía. Íbúar A-Úkraínu lýstu yfir sjálfstjórn eftir þjóðaratkvæðagreiðslur. Krímskagi fór á ný undir Rússland eftir þjóðaratkvæði. Íbúar Úkraínu eru að helmingi landsvæða rússnesku mælandi. Er það fólk réttlaust? Sjokkerandi var haturstónn öldungaþingmannanna John McCain og Lindsey Graham í útjaðri Mariepol síðla árs 2016 lofandi vopnum og dollurum. Herför Kænugarðs gegn rússnesku fólki í Donbass stóð þá yfir, borgir sættu linnulausum sprengjuárásum, á milli 15-20 þúsund Rússar féllu í þjóðernishreinsunum í A-Úkraínu fram að innrás Rússa. Um þrjár milljónir hafa flúið til Rússlands, allt að fimm milljónir hafa verið nefndar.
Það er engin úkraínsk þjóð í A-Úkraínu, yfirgnæfandi Rússar. Stalín innlimaði V-Úkraínu þar sem er Lviv eftir griðasamninginn við Hitler. Í Úkraínu berjast slavneskir bræður. Það væri sem danir, norðmenn og svíar í stríði. Azov-nazistar í fremstu víglínu sprengdu borgir A-Úkraínu og frömdu stríðsglæpi eins og nazista er siður. Vinir mínir vita auðvitað að Zelinskí hefur afnumið málfrelsi, bannað stjórnmálaflokka, drepið og ofsótt pólitíska andstæðinga, ofsótt rússneska orthodox kirkju. Vinir mínir hljóta að þekkja til peningaþvættis FTX Bankmans og Zelinskí klíkunnar til Biden, demókrata og hreytur til repúblikana. Allt er þetta skjalfest. Sama munstur og stríðshráðum ríkjum múslima. Fyrir rúmum áratug upplýsti Julian Assange um peningaþvætti Endalausra styrjalda. Af hverju halda menn að Obama, Biden og Zelinskí búi sem auðkýfingar?
HVAÐ VILL NATO Í AUSTURVEGI?
Hvað vill Nato í Úkraínu? er spurning sem ekki má spyrja. Er ekki Úkraína fjarri Atlantshafinu sem Nato er kennt við? Skoðanir vina minna eru í takti við ríkjandi skoðanir í 101 metrópólum Vesturlanda þar sem ein ríkisskoðun ræður stýrð af vestrænum samfélags- & fjölmiðlum í ríkiseigu og ofsaríkra eigenda hermaskínu og lyfjarisa beggja vegna Atlantsála. Þetta er bandalag auðmagns, neo-cons og sósíalista að hætti nazista Hitlers. Stríðið í Úkraínu er afleiðing útþenslu Nato austur á bóginn, svikin loforð gefin Gorbatsjov. Stríðið er amerískt/evrópskt proxy-stríð gegn Rússlandi þar sem úkraínsku blóði er fórnað á altari útþenslu Nato. Blóðbaðið má ekki nefna.
Ursula van der Leyen æðsti kómizar Brussel missti útúr sér á dögunum að 100 þúsund úkraínskir hermenn séu fallnir. Ritskoðarar voru fljótir að þurrka út ummælin sem eru í takt við mat herforingjanna Scott Ritter og Douglas Macgregor sem fullyrða að úkraínski herinn sé óvígur; 100 þúsund séu fallnir, tvö hundruð þúsund óvígir, vígtólum gereytt. Eftir að fréttir bárust af gereyðingu úkraínska hersins snéri Mark Malley yfirherforingi þeim yfir á rússneska herinn á fundi með ofsaríkum Wall Street verðbréfa-guttum. Vesturlönd eru búin að dæla að minnsta kosti 120 milljörðum dollara í Úkraínu; fimm þúsund milljörðum. Sannarlega er erfitt að átta sig á gangi mála undir það skal tekið með Alberti. Azov-nazistar biðu ósigur í Mariepol, höfðu hreiðrað um sig í kjallara verksmiðju ásamt vestrænum herforingjum og málaliðum. Bandarískar hersveitir eru sagðar í Úkraínu, vestrænir málaliðar undir vopnum. Hafa vestrænir fjölmiðlar sagt frá því eða endurbyggingu Mariepol? Meira síðar um stríðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)